Fréttablaðið - 12.05.2006, Blaðsíða 8
8 12. maí 2006 FÖSTUDAGUR
VERÐKÖNNUN Tæplega 61 prósents
verðmunur er á ódýrustu og
dýrustu vörukörfunni í matvöru-
verslunum í Reykjavík samkvæmt
verðkönnun Alþýðusambands
Íslands í tólf matvöruverslunum í
maí. Er það sjö prósentum meiri
verðmunur en mældist í seinustu
verðkönnun sem var gerð í janúar.
Vörukarfan samanstendur af 22
almennum neysluvörum til heimil-
isins og reyndist hún ódýrust í
Bónus sem var með lægsta verðið í
21 vöruflokki. Dýrust var karfan í
Ellefu-ellefu sem var með hæsta
verðið í 18 vöruflokkum.
Henný Hinz, verkefnisstjóri
hagdeildar ASÍ, segir sláandi mun
á verði milli verslana. Bornar séu
saman nákvæmlega sömu vörur og
í ellefu vörutegundum reynist
verðmunur meiri en 100 prósent.
Hún tekur þó fram að munur sé á
verslanategundum og minni verð-
munur sé til dæmis á milli lágvöru-
verslana. Í könnunum ASÍ er aðeins
um beinan verðsamanburð að ræða
en ekki lagt mat á gæði eða þjón-
ustu söluaðila.
Verð á ódýrustu körfunni hefur
hækkað um rúmlega 19 prósent frá
janúarkönnuninni og dýrasta karf-
an hefur hækkað um rúmlega 24
prósent. - sdg
TÍMI TIL AÐ LEGGJA FJÖGURRA
AKREINA SUNDABRAUT Í EINUM ÁFANGA
- ALLA LEIÐ UPP Á KJALARNES
Skipulagsstefna Sjálfstæðisflokksins og önnur stefnumál á betriborg.is
VEISTU SVARIÐ
1 Hvers vegna á Silvía Nótt á hættu að verða vikið úr Eurovision?
2 Hvaða tvö nágrannasveitarfélög Reykjavíkur hafa gert tilkall til
Lönguskerja?
3 Hvaða lið er Evrópumeistari félags-liða í fótbolta?
SVÖR Á SÍÐU 54
VERÐKÖNNUN ASÍ - TAFLA
Maí 2006
Ódýrasta karfan - Bónus 3.926
Dýrasta karfan - Ellefu-ellefu 6.304
Janúar 2006
Ódýrasta karfan - Bónus 3.286
Dýrasta karfan - Tíu-ellefu 5.071
Mjög mikill verðmunur er á matvöru milli verslana:
Sláandi munur á vöruverði
FATLAÐIR Boðað setuverkfall mun
hafa veruleg áhrif á fatlaða. Tæp-
lega fjörutíu fatlaðir eru hjá starfs-
þjálfunarstaðnum Örva í Kópa-
vogi. Þeir verða líklega að vera
heima ef boðað setuverkfall félags-
liða, stuðningsfulltrúa og annarra
starfsmanna á starfsþjálfunar-
staðnum skellur á um miðjan maí,
að minnsta kosti þeir sem þurfa
aðstoð til að komast á staðinn því
að sú þjónusta mun ekki standa
þeim til boða. Setuverkfallið mun
því raska ró þeirra verulega.
Vilhjálmur Bjarnason dósent á
24 ára tvíburadætur, Huldu
Guðnýju og Kristínu Mörtu, í
starfsþjálfun hjá Örva. Honum líst
ekkert á blikuna og bendir á að
starfið sé fötluðum mikilvægara
og merkilegra en flestum öðrum.
Það sé þeim „sjálfsvirðingin sjálf“
að geta unnið.
„Í búðum verða fatlaðir svo
ánægðir þegar þeir sjá vörur sem
þeir hafa verið að pakka í Örva. Ef
það verður röskun á högum þeirra
þá líður þeim illa. Flestir fatlaðir
eru svo háðir því að líf þeirra rask-
ist ekki á neinn hátt, það haldi sömu
reglu og áður, mæti í vinnu og fái
þá aðstoð sem þeir þurfa. Fatlaðir
skilja ekki verkföll eða stéttarbar-
áttu en þeir eru óskaplega sam-
viskusamir í vinnu, svíkjast ekki
um og stökkva ekki út í reyk og
pásu.“
Kristjana Jónsdóttir er verk-
stjóri í Örva. Kristjana sér um að
velja fólk í störf og halda 17-18
starfsmönnum að vinnu í 10-15
mismunandi störfum á tveimur
vöktum, fyrir og eftir hádegi á
hverjum degi. Í Örva eru fram-
leiddar ýmsar plastvörur og vörum
pakkað. Kristjana fær 127 þúsund
krónur á mánuði fyrir fullt starf og
ekkert álag. Vilhjálmur segir vel
skiljanlegt að starfsmenn í umönn-
unarstörfum segi hingað og ekki
lengra.
„Kjör þeirra eru „skítleg“. Þetta
fólk hefur ábyggilega dregist aftur
úr fólki í sambærilegum störfum,“
segir hann.
Ástandið á sambýlum, hæfing-
arstöðvum, heimilum og starfs-
þjálfunarstöðum fyrir fatlaða
hefur verið slæmt lengi. „Setu-
verkfallsástand hefur verið nánast
viðvarandi í lífi þessa fólks vegna
manneklu og vegna þess að nýliðar
fara viðstöðulaust inn og strax út
aftur vegna lágra launa. Blessað
fólkið okkar býr og lifir við setu-
verkfallsástand og hefur gert lengi
en það er fyrst nú sem það kemur
fram í þjóðfélagsumræðunni,“
segir Kristjana.
ghs@frettabladid.is
Mega ekki
við verkfalli
Boðað setuverkfall mun raska ró fatlaðra og hafa
slæm áhrif á líf margra þeirra. Vilhjálmur Bjarna-
son, foreldri fatlaðra tvíbura, segir að fatlaðir séu
háðir því að líf þeirra raskist ekki á neinn hátt.
MEÐ TVÍBURADÆTRUNUM „Í búðum verða fatlaðir svo ánægðir þegar þeir sjá vörur sem
þeir hafa verið að pakka í Örva. Ef það verður röskun á högum þeirra þá líður þeim illa,“
segir Vilhjálmur Bjarnason dósent. Frá vinstri: Auður María Aðalsteinsdóttir og Vilhjálmur
með tvíburadætrum sínum, Huldu Guðnýju og Kristínu Mörtu. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
SVALBARÐI Alex Hartley, breskur
listamaður heldur því fram að hann
hafi uppgötvað nýja eyju í Sval-
barða-eyjaklasanum og gerir tilkall
til þess að eiga hana. Hann hefur
nefnt hólmann Nýmörk, að því er
greint er frá á vef Aftenposten.
Hólminn er meðal mýmargra
skerja og smáeyja sem komið hafa
undan Norðuríshafs-ísnum sem
hefur hopað verulega á þessum
slóðum á síðustu árum. „Nýmörk“
er á stærð við fótboltavöll og er við
austurströnd Svalbarða, þar sem
heitir Land Ólafs V. Harley tjáði
norska ríkissjónvarpinu að hann
vildi stofna sitt eigið örríki á eynni
„sinni“, helst lýðveldi. - aa
Englendingur á Svalbarða:
Gerir tilkall til
smáeyjar
Í 75 ár hefur Dethleffs verið í fararbroddi í gerð framúrskarandi hjólhýsa
og nú á afmælisárinu eru það viðskiptavinirnir sem fá afmælisgjöfina:
100.000 kr. inneign í nýju fortjaldi frá Isabella sem fylgir hverju nýju
Dethleffs hjólhýsi.
Nýtt Dethleffs hjólhýsi
Kletthálsi 13 // s. 587 6644 // www.gisli.is
með 100.000 kr. afmælisgjöf til þín
Umboðsmaður á Akureyri:
Bílasalinn.is // Hjalteyrargötu 2
INNKAUP ÓDÝRUST VAR KARFAN Í BÓNUS.