Fréttablaðið - 12.05.2006, Blaðsíða 29
Heimild: Almanak Háskólans
Smáauglýsingasími
550 5000
Auglýsingasími Allt
550 5880
Þú getur pantað
smáauglýsingar á visir.is
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ O.FL.
GÓÐAN DAG!
Í dag er föstudagurinn
12. maí, 132. dagur ársins
2006.
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík 4.23 13.24 22.28
Akureyri 3.50 13.09 22.30
NEYSLA Á SMJÖRI OG OSTI HEFUR AUKIST MILLI ÁRA. MUN
MEIRA HEFUR SELST AF SMJÖRI OG OSTI FYRSTU FJÓRA
MÁNUÐI ÁRSINS EN Á SAMA TÍMA Í FYRRA.
Mun meira hefur selst af smjörva og osti fyrstu
fjóra mánuði þessa árs en
á sama tímabil í fyrra að
því er fram kemur í yfirliti
0sta og smjörsölunnar. Sala
á viðbiti hefur aukist um
4,3 prósent frá fyrra ári og
munar þar mest um 6,5
prósenta meiri sölu smörva
en smjörið hefur aukið hlut
sinn um rúmt prósent.
Ostasalan eykst um 4,5
prósent. Hlutfallslega er
aukningin mest í 11% ostum,
heil 72 prósent, en þar er
sneiddur ostur að koma sterkur
inn. Einnig hefur sala rjómaosta
og rifinna osta aukist töluvert.
Heildarsala Osta og smjörsölunnar á þessu fjögurra mánaða
tímabili jókst um tæp sjötíu tonn, úr 1.944 tonnum í 2.013 tonn,
sem er 3,5 prósenta aukning. Allar líkur eru á að auka þurfi
greiðslumark í mjólk um nokkrar milljónir lítra á næsta verðlagsári.
Viðbit selst vel
Gallabuxur eru á
tuttugu prósenta
afslætti þessa vikuna
í ZikZak Tískuhúsi.
Verslanir ZikZak má
finna í Grafarvogi,
Mörkinni, Kópa-
vogi, Hafnarfirði,
Keflavík og á
Selfossi.
Lagersala er í verslun H&M
Rowells. Veittur er helmings-
afsláttur af öllum vörum.
Holtið stendur fyrir Peter
Lehmann-dögum fram til
sunnudags. Boðið verður upp
á veglegan kvöldverð þar sem
matur og vínglas með hverjum
rétti kostar aðeins 9.500 krónur.
Matseðilinn er glæsilegur og
fjögurra rétta. Nánari upplýsingar
má finna á www.holt.is.
Pallaefni er á stórlækkuðu
verði í Húsasmiðjunni. Einnig
eru skjólveggir, viðarvarnir,
blómakassar,
pallaeiningar
og ýmislegt
annað á tilboði
á Sælureitar-
dögum Húsa-
smiðjunnar.
ALLT HITT
[MATUR TILBOÐ]
PÓLSKA SÆLGÆTIÐ
VINSÆLT
Mikið líf er í pólsku
búðinni Stokrotka í
Hafnarfirði þar sem
gott úrval er af pólsk-
um mat og sælgæti.
MATUR 2
EINFALT Í
ELDHÚSINU
Suman mat eiga allir að
kunna að elda. Hafragrautur,
soðin egg og pasta eru
allt fljótlegir og
seðjandi réttir.
TILBOÐ 7
Marentza Poulsen er eigandi kaffi-
hússins Café Flóra í Grasagarðinum.
Marentza er full tilhlökkunar þessa
dagana yfir opnun kaffihússins og
segist hlakka til að taka á móti gestum
sínum á ný.
Café Flóra í Grasagarðinum hefur fest
sínar sumarrætur og bíða margir spenntir
eftir að komast í kræsingarnar og það þægi-
lega andrúmsloft sem þar er að finna.
Marentza Poulsen, eigandi Café Flóru,
er spennt fyrir opnuninni í næstu viku og
er að leggja lokahönd á að fegra Flóruna
sína eins og henni einni er lagið. „Við erum
svo spennt að byrja. Café Flóra verður eins
og verið hefur síðastliðin níu ár nema að
við erum búin að koma okkur upp nýrri
aðstöðu sem gerir okkur kleift að veita enn
betri þjónustu. Þetta verður allt annað líf
bæði fyrir kúnnann og okkur,“ segir Mar-
entza. „Á hverju ári er einhverju nýju bætt
á matseðilinn og í sumar ætlum við að
keyra matseðilinn á ferskleika. Kryddjurt-
irnar sem við notum eru lífrænt ræktaðar
úr Grasagarðinu og við nýtum svo græn-
metisuppskeru garðsins. Þannig höfum við
aðgang að besta og ferskasta hráefni sem
völ er á. Grasagarðurinn er með metnaðar-
fulla sumardagskrá. Meðal annars er boðið
upp á námskeið sem ber heitið Matur og
kryddjurtir.“
Marentza segir Grasagarðinn vera sælu-
reit sem fólk ætti að nýta til fulls. „Með því
að koma í Grasagarðinn, þreyttur eftir
vinnudaginn, ferð þú endurnærður heim. Á
kvöldin er svo rómantískt að ganga um
Grasagarðinn og líta þá við á Café Flóru og
fá sér hressingu. Ef það er kalt úti má baða
sig í sólinni inni í glerskálanum og sé rign-
ing, þá kveikjum við bara á kerti og hlust-
um á regnið falla á glerið.“ Café Flóra verð-
ur opin alla daga frá klukkan 10 til 22.
Marentza lætur lesendum í té uppskrift
af appelsínusalati með þorski sem hún segir
passa vel við þá yndislegu árstíð sem geng-
ur nú í garð. Uppskriftina má finna á
síðu 3. johannas@frettabladid.is
Býður með brosi í mat
Marentza Poulsen, fagurkeri og kaffihúsaeigandi, tekur brosandi á móti þyrstum og svöngum gestum Grasagarðsins í sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA