Fréttablaðið - 12.05.2006, Blaðsíða 16
12. maí 2006 FÖSTUDAGUR
LÉTT SPÆGIPYLSA
65% MINNI FITA
LONDON Bresk þingnefnd segir það
vera skiljanlegt að bresku leyni-
þjónustunni hafi ekki tekist að
afla sér nægilegra upplýsinga til
þess að koma í veg fyrir sjálfs-
morðsárásir hryðjuverkamanna í
London í júlí á síðasta ári. Nefndin
skilaði í gær skýrslu um rannsókn
sína á árásunum, sem urðu fimm-
tíu og tveimur að bana og særðu
nokkur hundruð manns að auki.
Í skýrslunni segir að leyniþjón-
ustan hafi á árunum 2003 til 2005
hugsanlega getað rekist á einhverj-
ar upplýsingar, sem hefðu getað
leitt til þess að komið hefði verið í
veg fyrir árásirnar. Hins vegar
hafi leyniþjónustan haft svo mörg
mál á könnu sinni, og takmörkuð
úrræði til að fylgja þeim öllum
eftir, að óhjákvæmilegt hefði verið
að forgangsraða þeim upplýsing-
um sem kanna skyldi frekar.
Í gær upplýsti síðan John Reid
innanríkisráðherra í breska þing-
inu að lögreglu og leyniþjónustu-
mönnum hefði tekist að koma í
veg fyrir þrjár aðrar árásir frá
því að sprengjuárásirnar voru
gerðar í júlí á síðasta ári.
Í skýrslunni frá þingnefndinni
segir hins vegar að breska leyni-
þjónustan hefði ekki haft neinn
grun fyrirfram um að árásar-
mennirnir fjórir væru líklegir til
þess að fremja hryðjuverk. Ekki
lá heldur fyrir neinn grunur fyrir
fram um að árásir yrðu gerðar
þann 7. júlí.
Þó höfðu nöfn tveggja árásar-
mannanna verið nefnd í tengslum
við aðrar rannsóknir, en engar vís-
bendingar lágu fyrir um að þeir
hefðu verið að skipuleggja hryðju-
verk.
Reid innanríkisráðherra skýrði
frá því í gær að árásarmennirnir
hefðu verið í tengslum við einn
eða fleiri einstaklinga í Pakistan
skömmu fyrir árásirnar.
Í skýrslunni frá þingnefndinni
segir hins vegar að allt sé enn
óljóst um það hvort aðrir en
sprengjumennirnir fjórir hefðu
tekið þátt í skipulagningu árás-
anna, eða hvort þeir hefðu verið í
einhverjum tengslum við hryðju-
verkasamtökin al-Kaída.
Talið er að sprengjumennirnir
hafi varið sem svarar rétt rúm-
lega milljón íslenskra króna í und-
irbúning og framkvæmd hryðju-
verkanna. Allir voru þeir breskir
ríkisborgarar, þrír af pakistönsk-
um uppruna en einn þeirra var frá
Jamaíku. gudsteinn@frettabladid.is
Í KJÖLFAR ÁRÁSANNA Þessi vegfarandi aðstoðaði særða konu við að komast út úr neðan-
jarðarlestarstöð í London eftir árásirnar sem gerðar voru 7. júlí í fyrra. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Sakaðir um
úrræðaleysi
Breska leyniþjónustan réð ekki við að vinna úr gríð-
arlegu magni upplýsinga og vísbendinga um hugs-
anleg hryðjuverk í London. Þingnefnd hefur skilað
skýrslu um sprengjuárásirnar 7. júlí síðastliðinn.
ÁRÁSIN Á LONDON Þingnefnd hefur skilað
skýrslu um árásirnar 7. júlí sl. sem urðu 52
að aldurtila.
HEILBRIGÐISMÁL Enn koma upp ný
tilfelli lekanda, að því er fram
kemur í nýjum Farsóttarfréttum
Landlæknisembættisins, sem út
koma mánaðarlega. Þar eru birtar
fregnir um tíðni ýmissa smitsjúk-
dóma hér á landi.
Þrjú tilfelli af lekanda greindust
í apríl og á fyrsta þriðjungi maí-
mánaðar bættist enn eitt tilfelli við.
Hinir smituðu eru á aldrinum 23 til
35 ára, þrír karlar og ein kona. Það
bendir ekkert til að útbreiðsla
smitsins sé í rénun.
Sóttvarnalæknir ítrekar mikil-
vægi þess að fólk gæti varúðar í
kynlífi. Brýnt er fyrir fólki að nota
smokka við skyndikynni. Einnig er
mjög mikilvægt að fólk leiti læknis
og fái viðeigandi greiningu vakni
grunur um smit. - jss
Farsóttarfréttir Landlæknis:
Lekandi ekki
í rénun
SKIPULAGSMÁL „Árás uppkaups-
manna á hestamannafélagið Gust
og skipulagsmistök meirihluta
bæjarstjórnar Kópavogs komu
öllu þessu máli af stað,“ segir Flosi
Eiríksson, bæjarfulltrúi í Kópa-
vogi, sem gagnrýnir harðlega fyr-
irhuguð kaup bæjarins á Gusts-
landinu, sem er 11,5 hektarar.
Flosi bendir á að gert sé ráð
fyrir því að greiða þrjá milljarða
og eitthundrað áttatíu og fimm
milljónir króna fyrir landið, eða
rúmlega 27 þúsund krónur á fer-
metrann.
„Kaupverðið skiptist á milli
uppkaupsmanna, eiganda ein-
stakra hesthúsa og Hestamanna-
félagsins Gusts,“ segir Flosi.
„Fjárfestingafyrirtækið KGR ehf.
hefur tryggt sér eignarhald á 40
prósentum hesthúsanna sem
standa á 14,45 prósentum af land-
inu. Fyrir það vilja framsóknar-
og sjálfstæðismenn greiða þeim
rúman 1,1 milljarð króna eða rúm-
lega 67 þúsund krónur á fer-
metra.“
Gunnar Birgisson bæjarstjóri
segir að búið sé að samþykkja í
bæjarstjórn að haga málum á
þennan hátt. Það sé fjárhagslega
mjög hagkvæmt fyrir bæjarsjóð,
og haldi hestamannafélaginu
saman. Þegar svæðið verði full-
byggt gefi það 400 milljónir í fast-
eignagjöld á ári. Samfylkingin
hafi hringlað fram og til baka í
þessu máli og hafi nú snúist heilar
180 gráður. - jss
GUSTUR Nú virðist sjá fyrir endann á deilum
þeim sem hafa staðið um framtíð Gusts.
Bæjarstjórn Kópavogs kaupir Gustslandið á rúma þrjá milljarða:
Fjárhagslega hagkvæmt