Fréttablaðið - 15.05.2006, Blaðsíða 51
MÁNUDAGUR 15. maí 2006 31
Fr
u
m
Þ Í N U P P L I F U N
Þ I N N L Í F S T Í L L
ÞÍN FASTEIGNASALA Á SPÁNI
Sími 00 34 96 676 4086 www.perlainvest.com
VIÐ SJÁUMST Í SÓLINNI
KOMDU Í SKOÐUNARFERÐ.
FRÍTT FLUG, GISTING, TUNGUMÁLANÁM
OG GOLFKENNSLA FYRIR KAUPENDUR.
MIKIÐ OG GOTT ÚRVAL NÝRRA
SEM NOTAÐRA FASTEIGNA.
Búmenn hsf
Húsnæðisfélag
Suðurlandsbraut 54
108 Reykjavík
Sími 552 5644
Fax 552 5944
bumenn@bumenn.is
www.bumenn.is
Búmenn auglýsa íbúðir
Sveitarfélagið Vogar
Þjónustuíbúðir og íbúðir í hefðbundnum parhúsum.
Til sölu er búseturéttur í alls 13 þjónustuíbúðum sem eru
í tengingu við þjónustumiðstöð sem verið er að byggja í
Vogum. Um er að ræða níu eins herbergja íbúðir og fjórar
tveggja herbergja. Eins herbergja íbúðirnar verða annars
vegar um 48 fm og hins vegar um 55 fm. en tveggja herb.
íbúðirnar sem verða fjórar um 70 fm. Íbúðirnar verða
tengdar við þjónustumiðstöð sem Sveitarfélagið Vogar
munu annast um rekstur á. Einnig er til sölu búseturéttur
í sex íbúðum í þremur parhúsum. Íbúðirnar verða þriggja
herb. ásamt bílskúr samtals um 127 fm. Íbúðirnar sem
og stórheimilið verður byggt á lóð milli Vogagerðis og
Akurgerðis. Fyrirhugað er að allar íbúðirnar og þjónustu-
miðstöðin verði til afhendingar í september 2007. Miðað
verður við að kaupendur búseturéttar í þjónustuíbúðunum
séu Búmenn en hafi náð 67 ára aldri og mun Sveitarfé-
lagið Vogar koma að vali umsækjenda. Varðandi umsókn
um kaup á búseturétt í parhúsunum gilda almennar reglur
Búmanna, þ.e. að hafa ná 50 ára aldri.
Umsóknafrestur er til 29. maí n.k.
Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu félagsins
að Suðurlandsbraut 54 eða í síma 552-5644 milli
kl.9-15.
Fr
u
m
Hundrað atvinnuhúsalóðum
var úthlutað í Hafnarfjarðarbæ
fyrir helgi.
Undanfarið hefur verið mikil
ásókn í atvinnuhúsalóðir í Hafn-
arfirði. Á fundi bæjarráðs fyrir
helgi var um hundrað slíkum
lóðum úthlutað.
Lóðir í Hellnahrauni, Selhrauni
og á miðsvæði Vallahverfis hafa
rokið út. Fjölmörg fyrirtæki hafa
fengið þar lóðir undir starfsemi
og frekari uppbyggingu. Á þess-
um svæðum hefur flestum lóðum
verið úthlutað. Hins vegar er verið
að leggja drög að nýjum atvinnu-
svæðum til að koma til móts við
mikla ásókn í lóðir í suðurhluta
Hafnarfjarðar.
Atvinnulóðum út-
hlutað í Hafnarfirði
Mikil eftirspurn hefur verið eftir atvinnuhúsalóðum í nýju hverfum Hafnarfjarðar.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Lýsing: Komið er inn í anddyri með gestasnyrtingu. Eldhús er stórt með fallegri inn-
réttingu. Stofa, borðstofa og arinstofa eru bjartar með mikilli lofthæð. Svefnherbergi
eru fjögur og mjög rúmgóð og inn af hjónaherbergi er fataherbergi. Baðherbergi er
upprunalegt með baðkari, sturtu og hvítri innréttingu. Þvottahús og geymsla eru í
húsinu og á gólfum er parket og flísar.
Annað: Skipt var um járn á þaki fyrir nokkrum árum og þá sett aluzink að sögn
eiganda.
Fermetrar: 232,3 Verð: Tilboð óskast Fasteignasala: Höfði
210 Garðabær: Á sunnanverðu
Arnarnesi við sjóinn
Hegranes 26: Einbýlishús á einni hæð
Alcan og Orkuveitan skrifuðu
undir samning vegna fyrirhug-
aðrar stækkunar álvers.
Fulltrúar Alcan og Orkuveitu
Reykjavíkur skrifuðu undir samn-
ing fyrir helgi sem tryggir Alcan
um 200 MW af raforku vegna fyr-
irhugaðrar stækkunar álversins í
Straumsvík. Verðmæti samnings-
ins er talið vera um 60 milljarðar
króna en í honum er gert ráð fyrir
að orkan verði tilbúin til afhend-
ingar um mitt ár 2010. Viljayfir-
lýsing um samstarf var undirrituð
af Alcan og Orkuveitunni á síðasta
ári og hafa viðræður staðið yfir
frá þeim tíma. Með samningnum
hefur Alcan tryggt sér um 40 pró-
sent þeirrar orku sem fyrirtækið
þarf ef verksmiðjan í Straumsvík
verður stækkuð. Viðræður standa
yfir við Landsvirkjun um þau 60
prósent sem enn eru ótryggð.
Álverið stækkað
Alcan og Orkuveitan skrifuðu undir samning sem tryggir Alcan raforku vegna fyrirhugaðrar
stækkunar álversins.