Fréttablaðið - 15.05.2006, Side 6
6 15. maí 2006 MÁNUDAGUR
Þú kaupir eitt glas af Vega Champignon og færð eitt glas af Vega
Milk Thistle í kaupauka.
Champignon +FOS og Spirulina- inniheldur mikið af æskilegum
vítamínum og næringarefnum, léttir undir með hreinsunarferli
líkamans, hefur jákvæð áhrif á þarmaflóruna og dregur úr líkamslykt.
Milk Thistle léttir undir með hreinsunarferli líkamans og gefur
ferskara útlit.
Garðatorgi - Grindavík - Keflavík - Lágmúla - Laugavegi - Setbergi - Smáralind - Smáratorgi - Spönginni - Egilsstöðum - Höfn - Fáskrúðsfirði -
Seyðisfirði - Neskaupsstað - Eskifirði - Reyðarfirði - Ísafirði - Bolungarvík - Patreksfirði - Borgarnesi - Grundarfirði - Stykkishólmi - Búðardal -
Húsavík - Kópaskeri - Raufarhöfn - Þórshöfn - Sauðárkróki - Blönduósi - Hvammstanga - Skagaströnd - Selfossi - Laugarási
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
L
YF
3
20
29
05
/2
00
6
FERSKARI LÍKAMI “DETOX” TVENNA
UMFERÐ Reykjavíkurborg mun
leita samstarfs við lögreglu og
ríkisvaldið um að koma upp föst-
um hraða-
myndavélum
á helstu
hraðaksturs-
stöðum í
borginni.
Þessi tillaga
borgarstjóra
var sam-
þykkt á fundi
borgarráðs á fimmtudaginn.
Gert er ráð fyrir að fastar
hraðamyndavélar á þeim stöðum
þar sem aðstæður bjóða helst upp
á lögbrotin geti spornað við ofsa-
akstri sem mikið hefur borið á
undanfarið. Eru Ártúnsbrekka,
Sæbraut og Breiðholtsbrautin
nefnd sem dæmi. - sdg
Aðgerðir gegn hraðakstri:
Vill hraða-
myndavélar
HRAÐANN EÐA LÍFIÐ?
HEILBRIGÐISMÁL Ákveðið hefur
verið að stækka Heilbrigðis-
stofnun Suðurlands á Selfossi.
Stefnt er að því að bæta einni
hæð við þær tvær sem fyrir eru í
húsakynnum stofnunarinnar og
þannig koma til móts við þá
miklu þörf sem er fyrir hjúkrun-
arrými.
Framkvæmdasýsla ríkisins
mun sjá um að hönnunarvinnu
ljúki sem fyrst svo hægt verði að
hraða framkvæmdum. Ráðgert er
að á þriðju hæð húsnæðis Heil-
brigðisstofnunarinnar verði íbúð-
ir af ýmsum stærðum og gerðum
sem komi til móts við þarfir þeirra
sem þar dvelja. - aöe
Heilbrigðisstofnun stækkuð:
Þriðju hæðinni
bætt við
SLAGSMÁL Fimm menn voru hand-
teknir vegna slagsmála sem brut-
ust út á skemmtistað í Keflavík um
hálf þrjú leytið í fyrrinótt.
Lögregla var kölluð til vegna
slagsmála en ráðist hafði
verið á þrjá dyraverði.
Tveir þeirra voru
lemstraðir eftir
slagsmálin og þurftu
að leita til læknis.
Annar mannanna
var saumaður í andliti en
talið er að hann sé kinnbeins- og
nefbrotinn. Hinn var með tölu-
verða áverka í andliti en talið var
að hann hefði brákast á kinnbeini
auk þess sem hann marðist.
Mennirnir sem lögreglan hand-
tók voru allir drukknir og voru þeir
vistaðir í fangageymslu lögregl-
unnar í Keflavík. - mh
Slagsmál í Keflavík:
Lömdu tvo
dyraverði illa
LOFTMENGUN Hlýja loftið, sem svo
skyndilega bar snemmbúna sum-
arkomu til Íslands, hefur einnig
borið hingað norður í höf loftmeng-
unarský sem eiga uppruna sinn á
austanverðu meginlandi Evrópu.
Vísindamenn á Svalbarða hafa síð-
ustu daga mælt meira magn meng-
unaragna í loftinu þar en nokkru
sinni frá því mælingar hófust.
Er þetta rakið til þeirra óvenju-
legu veðuraðstæðna sem ríkt hafa
í norðanverðri Evrópu undanfar-
ið, þar sem þurrt og hlýtt loft af
meginlandinu hefur dælst yfir
Skandinavíu og allt hingað norður-
og vestureftir.
Það sem þykir þó einna eftir-
tektarverðast er að þétt frjókorna-
ský hefur borist með þessum
þurra og hlýja vindi yfir Norður-
sjóinn og alla leið út á Norður-Atl-
antshaf. Þetta gulleita frjókorna-
ský hefur komið skýrt og
greinilega fram á myndum frá
veðurgervihnöttum.
Einkum og sér í lagi hafa birki-
trén í þessum hluta álfunnar verið
iðin við að framleiða frjókorn síð-
ustu vikur. Í Danmörku mældust
4.381 birkifrjókorn í hverjum
rúmmetra lofts, sem er vel yfir
fyrra meti sem var sett fyrir þrett-
án árum, en þá mældust 3.899 frjó-
korn í rúmmetra. Þetta er rakið til
mjög hagstæðra aðstæðna, sem
sköpuðust við rigningartíð í apríl
en hlýja og sólríka daga í maí. - aa
Óvenjulegar veðuraðstæður í norðurhluta Evrópu:
Frjókornaský sést úr geimnum
FRJÓKORNASKÝ YFIR NORÐURSJÓ Á þessari gervihnattarmynd sem tekin var í síðustu viku
sést frjókornaskýið vel. LJÓSMYND/EUMETSAT
ÍRAK, AP Blóðug helgi er að baki í
Írak þar sem hátt í 40 féllu í átök-
um.
Fjórtán Írakar féllu og sex
særðust þegar tvær sjálfsmorðs-
sprengjur sprungu í vegkanti á
hraðbraut sem liggur að alþjóða-
flugvellinum í Írak. Vegurinn er
talinn einn sá hættulegasti í heim-
inum en árásum þar hafði fækkað
verulega síðasta árið í kjölfarið á
hertu eftirliti.
Tólf létust í samtals fimm
sprengingum við vegkant í Bagdad
í gær. Ein þeirra sprakk á fjölförn-
um götumarkaði þar sem þrír féllu
og fimmtán særðust. Sprengju var
beint að lögreglusveitum en lenti í
staðinn á almenningsvagni með
þeim afleiðingum að tveir Írakar
fórust. Fjórir uppreisnarmenn
féllu í átökum við lögreglusveitir í
suðvestur Bagdad. Fjórir Írakar
fundust látnir í miðborg Bagdad
með skotsár í höfði og bundnar
hendur. Öðrum fimm Írökum var
rænt af heimilum sínum af upp-
reisnarmönnum. Tveir írakskir
bakarar féllu og tveir borgarar
særðust þegar maður hóf skotárás
við bakarí í Bagdad.
Tveir bandarískir hermenn fór-
ust í sprengiárás um kvöldmatar-
leytið í gær austur af Bagdad.
Tveir breskir hermenn féllu í
sprengjuárás við eftirlitsferð í
Basra á laugardag og annar særð-
ist. Sex sprengjur sprungu í norð-
urhluta Bagdad sama dag, flestar
við helgistaði Síja.
Mikil spenna ríkir á milli trúar-
hópa í Írak meðan stjórnarviðræð-
ur standa yfir í írakska þinginu.
Átök helgarinnar setja enn frekari
pressu á Nouri al-Maliki, sitjandi
forsætisráðherra, að ná sátt um
stjórnarmyndun en samningavið-
ræður hafa gengið treglega. Full-
trúar súnní- og síja- múslima hafa
hótað að draga sig út úr stjórnar-
myndunarviðræðum og telja ráða-
menn brýnt að sátt náist sem fyrst
svo dragi úr átökum í landinu.
Nouri al-Maliki hefur viku frest til
að ljúka stjórnarmyndun.
Friður er ekki í sjónmáli í Írak.
Í aprílmánuði einum féllu hátt í
þúsund manns í átökum trúarhóp-
anna. Árásir helgarinnar eru þær
skæðustu í marga mánuði. Flestir
þeirra sem létu lífið voru óbreytt-
ir borgarar.
johannas@frettabladid.is
Á fjórða tug féll í Írak
Mikið mannfall varð í Írak um helgina. Bandarískir og írakskir ráðamenn segja
brýnt að sátt náist um stjórnarmyndun, fyrr ljúki ekki blóðugum átökum.
SLÖSUÐUM KOMIÐ TIL HJÁLPAR Tveir óbreyttir borgarar féllu þegar almenningsvagn í Bagdad var sprengdur upp. Sprengjunni var ætlað að
hitta nálægar lögreglusveitir. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
RÚSTIRNAR KANNAÐAR Írakskur drengur
skoðar eyðileggingu spreninga sem urðu
á hraðbraut nálægt alþjóðaflugvellinum í
Írak. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
SAMFYLKINGIN Samfylkingin í
Kópavogi kynnti sín helstu stefnu-
mál á blaðamannafundi í gær. Að
sögn Guðríðar Árnadóttur sem
skipar fyrsta sæti flokksins er
megináhersla flokksins lögð á vel-
ferðarmál eldri borgara og skóla-
mál. Þá hyggst flokkurinn til
dæmis fjölga hjúkrunarrýmum,
efla heimaþjónustu hjá öldruðum
og virkja tómstundir þeirra.
Markmiðin í skólamálum bein-
ast meðal annars að því að flytja
tómstundirnar inn í skólana svo að
skólastarfi verði lokið þegar heim
er komið. Einnig segir í stefnu-
skrá flokksins að Samfylkingin
vilji lækka þátttökugjöld barna og
unglinga í íþrótta- og tómstunda-
ráði til að tryggja jöfn tækifæri
óháð efnahag foreldra.
Fleiri mál á stefnuskrá flokks-
ins eru til dæmis að veita meira fé
til leikskóla, efla menningar- og
listastarf barna og unglinga,
tryggja að fatlaðir búi við öryggi
og lífsgæði og virkja samráð við
íbúa í skipulagsmálum. -bog
Samfylkingin í Kópavogi kynnir stefnumál:
Áhersla á mál eldri borgara
SAMFYLKINGIN Í KÓPAVOGI Flokkurinn kynnti stefnuskrá sína á sunnudaginn og þar vógu
þyngst mál eldri borgara og skólamál.
KJÖRKASSINN
Ætlarðu að sækja viðburði Lista-
hátíðar?
Nei 84,4%
Já 15,6%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Á að hætta við byggingu há-
tæknisjúkrahúss við Hringbraut?
Segðu þína skoðun á Vísir.is