Fréttablaðið - 26.05.2006, Side 33
Smáauglýsingasími
550 5000
Auglýsingasími Allt
550 5880
Þú getur pantað
smáauglýsingar á visir.is
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ O.FL.
Í VIRKU Í MÖRKINNI 3 FÆST VÖNDUÐ
HVÍTLAUKSDRESSING SEM HEITIR GARLIC
EXPRESSIONS.
Það eru ekki einungis vefnaðarvörur,
húsgögn og gjafavörur í Virku heldur
líka góðmeti eins og hvítlauks
salatdressing úr olíu og ediki. Hún gefur
grænmetissalati frísklegan keim og
hentar vel í maríneringu, hvort sem er
á kjöt, fisk eða grænmeti. Gott er líka
að bragðbæta pítsu með því að bera
dressinguna á hana áður en sósa og
álegg er sett ofan á. Brauðsneiðar
sem penslaðar hafa verið með henni
og stungið inn í ofn bragðast líka vel
sem forréttur, með súpu eða öðrum
mat. Garlic Expressions dressingin
geymist vel í kæli í nokkrar vikur þótt
búið sé að opna flöskuna.
Eðalvara á flöskum
Hvítlauksdressingin í Virku.
Humar er á verksmiðjuverði í
Humarbúðinni í Hveragerði. Þeir
sem eiga leið austur fyrir fjall
ættu því að líta við og kippa
með sér góðum, ódýrari humri.
Svar býður sumartilboð á
síma, fartölvu og myndavél.
Panasonic-síminn kostar 4.900,
Acer-myndavél 29.900 og Acer-
fartölva 69.000. Fyrstir koma,
fyrstir fá.
Sushismiðjan er komin á fullt.
Um er að ræða sushi-take away
við smábátahöfnina í Reykjavík.
Staðurinn opnaði nýlega svo nú
er um að gera að skunda niður
á höfn og smakka á sushi við
sjávarsíðuna.
Papinos pizza hefur opnað
þriðja pítsustaðinn sinn og er
hann í Grafarvoginum.
ALLT HITT
[MATUR TILBOÐ]
Saumaklúbbsréttir og sushi eru sérgreinar Sóleyjar
Ástudóttur en hún er lagin við að malla saman
gómsæta rétti sem henta vel í samkvæmi.
Sóley Ástudóttir, einn eiganda Emm förðunarskólans og
förðunarmeistari, er jafn listræn í eldhúsinu og hún er við
förðunina. „Ég bý til mikið af smáréttum og á nokkrar
uppskriftir sem ég hef búið til sjálf,“ segir Sóley. „Það er
svo gott að kunna eitthvað fljótlegt en báðar uppskriftirn-
ar sem ég gef upp hér eru þannig. Aðra þeirra bjó ég til en
hina fékk ég í kokteilboði í Stokkhólmi.“
Sóley segir sinn uppáhaldsmat vera sushi og er orðin
ansi lagin við að elda það. „Það er rosalega erfitt að búa til
sushi og tekur langan tíma, en það er mjög gaman að gera
það með öðrum. Við vinkonurnar höfum verið saman í eld-
húsinu og útbúið okkur sushi meðan það kjaftar á okkur
hver tuska,“ segir Sóley og hlær.
Sóley ferðast mikið vegna vinnu sinnar og hefur kynnst
matarmenningu víða um heim. Hún segir Marokkó og
Spán vera neðarlega á listanum hvað varðar góða matar-
menningu. „Í Stokkhólmi má hins vegar finna marga góða
og fjölbreytta veitingastaði. Þar má líka finna fólk frá
öllum heimshornum þannig að farir þú á japanskan veit-
ingastað þá er það Japani sem matreiðir ofan í þig. Á Barb-
ados fékk ég frábæran rétt sem kallast Flying Fish. Svo
þeir sem eru á leið þangað ættu að leggja nafnið á minnið
og smakka.“ Uppskrift Sóleyjar má finna á síðu 3.
johannas@frettablaðið.is
Gott fyrir
kjaftaklúbba
Sóley Ástudóttir er dugleg við að búa til uppskriftir að léttum réttum sem henta vel í saumaklúbbinn. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
LEYNDARDÓMSFULLIR
EFTIRRÉTTIR
Þjóðverjar kunna það vel að galdra dýr-
indis eftirrétti úr eplum.
MATUR 2
Heimild: Almanak Háskólans
GÓÐAN DAG!
Í dag er föstudagurinn
26. maí, 146. dagur ársins
2006.
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík 3.39 13.25 23.13
Akureyri 2.57 13.09 23.25
TILBOÐ Á FATNAÐI
Mörg góð tilboð er að finna á
tilboðssíðum í blaðinu í dag.
TILBOÐ 6