Tíminn - 25.09.1977, Qupperneq 14

Tíminn - 25.09.1977, Qupperneq 14
14 Sunnudagur 25. september 1977 Stefán Snæbjörnsson, formaður dómnefndar I Umbúðasam-* keppninni tilkynnir hverjir fengu viðurkenningar. Afhending viðurkenninga í U mbúðasam- keppninni Óskar Gunnarsson, framkvæmdastjóri Osta og smjörsölunnar tekur við viðurkenningu fyrir umbúðir sem fyrirtæki hans notar. Timamyndir: Róbert. Iðnkynning í Reykjavík iii Gunnsteinn Karlsson, Auglýsingastofu Sambandsins, tekur við viður- kenningu frá Stefáni Snæbjörnssyni, formanni dómnefndar, Umbúðasamkeppninni. Steingeitur bregöa á leik fyrir áhorfendur. Paradís í ítölsku Ölpunum Eitt af þvi sem ítalir eru ákaflega stoltir af er Gran Paradiso, stór un- aðsreitur í itölsku Ölp- unum, nálægt Torino. Þar verða ekki einungis i vegi ferðamanna til- komumikil fjöll og dalir, heldur einnig merkilegt dýralif, svo sem stór stofn steingeita. Svæði þetta er hentugt að þvi leyti að það er afgirt og hólfað niður, svo að ferðamenn og aðrir þeir sem þangað leggja leið sina eigi hægara um vik að komast nálægt dýr- unum. Italia er frægt land i listasög- unni fyrir miklar og ævafornar byggingar, stórkostleg kirkju- málverk, einnig fyrir sól, vin og suðræn aldin. Færri vita þo, að 1 ölpunum I noröri er að finna ósnortið lifriki á fjöllum uppi ásamt fjölbreytilegu villtu dýra- lifi. Um langan aldur hafa stór svæði veriö friðlýst á ítaliu. Þeirra stærst er þjóðgarðurinn Gran Paradiso I Itölsku ölpunum. Meðal þeirra dýra sem þar lifa eru steingeitur, hvitar akurhæn- ur, refir, krákur og emir, svo eitt- hvað sé nefnt. Mikill fjöldi sjaldséðra dýra er þó ekki það sem gerir garð þenn- an' merkilegan. öllu heldur er hann sérstakur fyrir þaö hve auð- velt er að komast um hann og aö dýrunum. Þessi garður var skipulagður um 1870 og þá hólfað- ur niöur, til að auðvelda Viktor Emanuel II. kóngi veiðarnar. Hann var ákafur veiðimaöur. Margir koma að s já Það gefur auga leið að þeir eru fleiri sem koma til að virða fyrir sér dýrin heldur en til að njöta út- sýnisins, þó að þeir séu margir. Til að sjá þau sem bezt og komast sem næst þeim er morguninn frá kl. 6—9 hentugastur, eða þá milli 5 og 8 á kvöldin. Þegar sterkjan frá brennheitri hádegissólinni verður kæfandi, leita dýrin i for- sæluna I fjailshliðunum og renna saman við margvislega liti gróðursins. Samt sem áður eru tveir staðir þar sem hægt er að komast mjög nálægt steingeitunum allan sólar- hringinn ef veður hamlar ekki. Það er við Viktor Emanuel kofann i Valsavaranche og varð- kofa i Val di Cogne. Yfir sumar- timann eru dýrin i 2500 til 3000 metra hæð. Sá sem vill hafa gagn og gleði af ferð þangað upp verður að eyða um átta timum þar og vera tilbúinn að takast á hendurgönguferði tvo, þrjá tima. Ýmsum kann að virðast eyðilegt um að litast i fyrstu, en eftir drjúga göngu skilst honum að J>að er tómur misskilningur. Aður en varir taka hin aöskiljanlegustu dýr að birtast, steingeitur og refir skjótastfram úrrunnum, krákur flökta um og ernir i efstum sal svifa i tignarlegri ró fyrir kletta- snös. „Samfélagsleg miðstýr- ing” Í3000 m hæð. En jafnvel i 3000metra hæð yfir sjó teygir hin samfélagslega miöstýring sig á ítaliu, þar sem gróöur vex villtur og dýrin lifa frjáls. Sú miðstýring er þó mest öll miðuð við mannkindina. Þarna hefur veriö komið upp áningarstöðum fyrir göngumóða ferðamenn, sem geta svalað þorsta sinum eftir hressandi gönguferð, skólabörn geta skroppið á bak hestum. Aætl- unarbilar ganga þama uppeftir reglulega. A vetrum er hægt aö komast i þjóögarðinn og fara á skiðum i bröttum hliðum. Hörð lifsbarátta. Tvær litlar sögur af lifsbaráttu dýra i þjóðgarðinum. Þessa sögu segir vaktmaður einn á svæðinu: Dag nokkur var ég einn á vaktinni Steingeitin lifir frjálsu og áhyggjulausu lffi f Gran Paradiso í Itölsku ölpunum. og sá þá örn sem flaug meðfram fjallshllð Hann skáskárhliðina’og var ýmist við efsta tind eða-niðri við rætur fjallsins. Honumr fylgdi minni örn, og hafði sá háa skræki og hvella. Sá minni hélt sig nokkrum metrum ofar. Hvað eftir annað steyptihannsérsnöggt yfir þann stærri og reyndiað höggva I bak hans. 1 fyrstu hélt sá stærri þeim minni frá sér meö kröftug- um vængjaslætti. Þegar sá minni sýndi ekki nein merki uppgjafar, sneri sá stærri sér skyndilega viö á fluginu, glennti út klærnar, við- búinn að hremma þann minni, jafnframt mundaði hann vængina tilað slá með. Sá minni flaug und- an, en lét hinn samt ekki i'friði og fylgdi honum eftir upp að f jalls- brún. Þarna var sá minni að varna þvi að sá stærri kæmist að hreiðri hans.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.