Tíminn - 25.09.1977, Síða 33

Tíminn - 25.09.1977, Síða 33
Sunnudagur 25. september 1977 33 „Þetta er aðeins upp hafið að öðru meira” — segir dr. Olafur Guðmundsson um beitarþolstilraunirnar Dr. Ólafur Guömundsson — Vorið 1974 varundirbtíning- ur hafinn og tilraunir skipulagð- ar, ári siðar var byrjað á sex tilrauium og tveim bætt við 1976. Með þessum tilraunum, sem miöa að þvi að finna Ut beitarþol landsins, er verið að reyna að finna út hve mikiö megi beita landið með tilliti til afurða bú- fjárins, og einnig meö tilliti til landsins sjálfs. Ennþá eru tvö ár eftir af upphaflegri áætlun, en um áframhald get ég ekkert sagt, það hlýtur að fara að mati þeirra manna sem með pen- ingamálin fara. Hins vegar er það mitt álit að þetta séu engar lokarannsóknir, þar sem það sem hér er verið að gera, er að- eins upphafið að öðru meira. Þannig komst dr. Ólafur Guð- mundsson starfsmaður til- raunastofu landbúnaðarins að orði, er Timinn ræddi við hann fyrir skömmu. Og við spuröum Ólaf um þörfina fyrir beitar- þolstilraunir þær, sem hann stendur fyrir. öruggari aðferð til að finna beitarþolið — Það hafa verið gerðar beit- arrannsóknir hér á landi áður, en þetta eru fyrstu raunveru- legu beitarþolsrannsóknimar á mismunandi gróðurlendi. Það leikur enginn vafi á að það var orðið mjög aðkallandi aö þær yröu geröar. Mælingar hafa verið gerðar á beitarþoli meö öðrum aöferðum, en þessar til- raunir koma til með að auka þann skilning, sem fékkst úr niðurstöðum þeirra. Þessar til- raunir eru þannig uppbyggðar, að mismörgu búfé er beitt á land, þannig að beitarþungar veröa tveir eöa fleiri i hverri til- raun.Eftir nokkurn tima er svo hægt aö sjá hvaða beitarþungi er heppilegastur, svo að sem beztar afuröir fáist af skepnun- um og að landið spillist ekki. Hingað til hafa beitarþolsrann- sóknir nær eingöngu verið gerð- ar samfara gróðurkortagerð, sem er i sjálfu sér lika undir- staða fyrir okkar rannsóknir i dag, þvi við verðumað vita hvar hin ýmsu gróðurlendi eru, til að geta nýtt þær upplýsingar sem við fáum. Hins vegar eru þær tilraunir, sem hér er veriö að vinna að, mun dýrari i allri framkvæmd en þær aðferðir sem áður hafa verið notaöar. — Hvaða svæði eru það á landinu sem greinilega eru of- beitt? — Þetta er dálitið viðkvæmt mál, sem menn eru ekki alveg sammála um, en skilningur á þessu er að aukast og óhætt er að benda á ýmsa afrétti uppaf Suðurlandsundirlendinu i þessu sambandi, og sama máli gegnir um marga afrétti Norðurlands. Að þurrka upp hluta mýranna — En er ekki hægt að beita meirá einstök landsvæðien gert er i dag? — Að sjálfsögðu mætti jafna beitinni mjög mikið frá þvi sem tiðkast i dag, og m.a. það sem við erum að gera hér, er að reyna að finna út, hvernig hægt sé að nýta mýramar. Væri hægt að beita á þær yfir allt sumariö væri mikill vandi leystur. Hins vegar höfum við komizt að raun um að varla er hægt að láta lömb þrifast á mýrum seinni part sumars, þó að öðru máli gegni um nautgripi. — Yröi ekki gifurleg röskun á lifrikinu, ef þurrkaður yröi upp bróðurpartur islenzks mýrlend- is? — Það erekkiþar með sagtaö allar mýrar verði þurrkaðar, þó svo einhverjar verði teknar fyr- ir, enda er nú þegar mikið um framræstar ónýttar mýrar. Og þess má lika geta, að hér eru i gangi vistfræðirannsóknir undir stjórn dr. Sturlu Friðrikssonar, en þær miða að þvi að athuga á- hrif þurrkunarinnar á dýralifið. Þessar rannsóknir, rétt eins og okkar, eru styrktar af þjóðar- gjöfinni svokölluðu, sem ts- lendingar gáfu sér á 1100 ára af- mælinu. Tilraun á Auðkúluheiði hefur gefið góða raun — En svo ég gefi þér nánari hugmynd um hvað þaö er sem við erum að aöhafast, þá eru beitartilraunir i gangi í Alfta- veri á Suðurlandi. Þar er sand- blandinn móajarðvegur á hrauni. Við erum að athuga, hvaö má beita þetta land, án þess aö hætta sé á uppblæstri, en þó svo að skepnurnar nái sem beztu holdafari. Svo erum við með tilraun við Sandá á Biskupstungnaafrétti, þar sem beitt er á uppgræddan sand inn- an landgræöslugiröingar. Verið er aö rannsaka, hvort ekki sé hægt aö nýta þann gróður innan landgræðslugirðinganna, sem verið er að græða upp, eða þeg- ar er lokið viö aö græöa, án þess að valda tjóni á honum. Þá er i gangi tilraun á Auðkúluheiði á þurrlendi. Otkoman hefur orðið mjög góð, en þvi miður bendir fiest til að þaö landsvæði farið undir vatn ef af Blönduvirkjun verður. 1 Kelduhverfi er tilraun á lyngmó, og þar þrifast lömbin vel við hæfilegan beitarþunga. Tilraunir á mýrlendi fara fram á Hesti og Hvanneyri I Borgar- firöi, og auk þess i Kálfholti og Sölvaholti á Suöurlandi. Auk þess er i mörgum tilraunanna verið að kanna, hversu mikið má auka beitarþol landsins meö áburðargjöf. — Hafið þið komizt að ein- hverjum sérstökum niðurstöð- um, sem t.d. bændum væri akk- ur I að heyra? Niöurstöður frá þvi i sumar liggja ekki fyrir, og við erum tregir til að álykta af aðeins tveggja ára niðurstöðum. Þetta er þriöja árið sem beitarþolstil- raunirnar eru i gangi, og ætlun- in er að taka saman eitthvað i haust og reyna að draga álykt- anir af þvi sem þegar er komið. Bráðabirgðaniðurstöður munu þvi liggja fyrir upp úr áramót- um. —áÞ Úr ársskýrslu Rannsóknarstofnunar landbúnaðarins BEITARÞOLSRANN SÓKNIR Beitarþolsrannsóknir eiga sér ekki ýkja langa sögu, en þær sem dr. Ólafur Guðmundsson fjallar um i viðtalinu, hófust ár- ið 1975. Þær hafa farið fram undir yfirstjórn nefndar, sem i eiga sæti dr. Björn Sigurbjörns- son, formaður, forstjóri Rann- sóknastofnunar landbúnaðar- ins, dr. Halldór Pálsson búnaða- málastjóri og Sveinn Runólfs- son landgræðslustjóri. Tvær tilraunir bættust við þær sem fyrir voru sumarið 1976, i Kelduhverfi og við Sandá á Biskupstungnaafrétti. 1 Keldu- hverfi var tilraunin á óábornum og ábornum kvistmóa, en auk þess á ábornum kvistmóa þar sem lyngi var eytt með lyfjum. Tilraunin við Sandá var á upp- græddum og ábornum sandi. Taka varð sauðfé úr þeirri til- raun á miðju sumri vegna ónógs gróðurs. Meðal þeirra mælinga, sem gerðar voru á hverjum stað 1976, má nefna: 1) Allt búfé var vegið á þriggja til fjögurra vikna fresti. 2) A svipuðum tima var mælt, hve mikil uppskera stóð eftir I hverju hólfi. 3) Gerð- ar voru mælingar á samsetn- ingu gróðurs 4) Fóðurgildi og efnamagn uppskerunnar var rannsakað. 5) Við slátrun lamb- knna voru ýmis sýni tekin 6) Fylgzt var náið með heilsu og þrifum búfjárins. 1 sambandi við beitartilraun- ina á Hesti var i samvinnu við tilraunastöð háskólans i meina- fræði gerð tilraun með kopar- gjöf handa lömbum, og einnig var gerð athugun með orma- lyfsgjöf bæði handa ám og lömbum. enginn munur fannt á afurðum né blóði lamba, sem rekja mætti til kopargjafarinn- ar. Ekki varð heldur nein af. urðaaukning vegna ormalyfs- gjafarinnar. Dr William Mitchell: Leggja ber áherzlu á aukið sam starf Alaskabúa og íslendinga Dr. William Mitchell Þegar Timamenn voru á ferð á Rannsóknastofnun landbun- aðarins að Keldnaholti, hittu þeir að máli Dr. William Mite- hell, iurtaerfðafræðing frá Al- aska. Mitchell hefur unnið við rannsóknir i Alaska siðan 1963 og einkum íengizt við kynbætur og frærækt villtra grasa tii upp- græðslu. Á siðustu arum hefur hann átt mikið samstarf við is- lenzka starfsbræður sina að Keldnaholti. Gagnkvæm fræskipti hafa átt sér stað, og mikið af athyglis- verðum tegundum heíur borizt til Islands, frá Alaska. Til gam- an má geta þess. að á grasvell- ínum fyrir framan tilraunastöð- ína i Aiaska er islen2k4 gras.sem sent var þangað til revnslu um 1960. Á siðustu árum heíur nv tegund af snarrótarpunti, Ber- ingspuntur, verið revnd við Rannsóknastofnun landbúnað- arins, sem virðist lofa góðu hér, og hafa Islendingar pantað um þrjú tonn af þessu grasi. 1 Alaska höfum við komizt að raun um að fáar tegundir inn- fluttra plantna standast sam- keppnma við upprunalegar plóntur i Alaska. En undantekn- ing eru hinar islenzku, þvi þær eru sérstaklega harðgerðar, sagði Mitchell. — Ég og islenzk- ir stéttarbræður minir erum, t.d. sérstaklega áhugasamir um snarrót, sem er eitt af aðalgrös- unum hér á landi. Beringspunt- urinn sem ég hef sent hingað, er með mýkri blöð en hinn fslfenzki, og eftir þvi sem mér hefur verið tjáð, þrifst hann með ágætum> Þessi tonn sem hafa verið pönt- uð hingað, eru t.d. ætluð til land- græðslu. — Getu Aiaskamenn eitthvað lært af Islendingum og öfugt? — Það leikur enginn vafi á þvi. Raunar geta allar þjóðir Frh. á bls. 39

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.