Tíminn - 25.09.1977, Side 39
Sunnudagur 25. september 1977
39
flokksstarfið
Akureyri
Fulltrúaráö Framsóknarfélaganna á
Akureyri heldur fund sunnudaginn
25. sept. á Hótel KEA kl. 14.00.
Gestur fundarins verður Steingrímur Hermannsson, ritari
Framsóknarflokksins.
Fulltrúaráðsmenn, bæði aðal- og varamenn eru hvattir til að
mæta stundvislega.
Stjórnin.
„Opið hús" Flateyri
Framsóknarfélag önundarfjarðar verður með opið hús i sam-
komuhúsinu Flateyri á þriðjudagskvöldum kl. 20.30-23.30. Leikið
verður af plötum, spilað, teflt, myndasýningar.
Allir velkomnir.
LONDON
Fyrirhuguð er 5 daga ferð til Lundúna á vegum SUF i siðari
hluta nóvember ef næg þátttaka fæst.
Nánar auglýst siðar.
SUF
Kópavogur
Fulltrúaráðsfundur framsóknarfélaganna i Kópavogi verður
haldinn að Neðstutröð 4 þriðjudaginn 27. sept. næstk. kl. 20.30.
Fundarefni: 1. FramboðsmálT Kosning framboðsnefndar. 2.
Vetrarstarfið. 3. önnur mál.
Stjórnin
Keflavík
Fulltrúaráð Framsóknarfélaganna i Keflavik heldur fund i
Framsóknarhúsinu fimmtudaginn 29. sept. og hefst kl. 20.30.
Dagskrá:
1. Vetrarstarfið.
2. Umræður um prófkjör vegna bæjarstjórnarkosninga á kom-
ándi vori.
Stjórnin.
0 Samstarf
lært eitthvað hver af annarri sé
vilji fyrir hendi. Þið hér á Is-
landi, hafið miklu meiri reynslu
i að nota grasategundir af nor-
rænum slóðum i landbúnaði, en
við i Alaska. Það er að mörgu
leyti ótrúlegt að sjá landið ykk-
ar á sumum stöðum. En við get-
um ekki aðeins lært að nota rétt-
ar tegundir á rettum stöðum,
við getum lært að varast afleið-
inar ofbeitar. I Alaska eru til
landsvæði sem svipar mjög til
þess, sem gerist á tslandi, og
mikið af þessu landi er ekki er
ekki fullnýtt i dag. Frumbyggj-
arnir stunda landbúnað, en i litl
um mæli enn sem komið er, og
sú þekking sem við getum feng-
ið hér á landi, á eflaust eftir að
koma þeim til góða. Ég vona að
það samstarf, sem þegar er
komið nokkuð vel á veg, megi
aukast og dafna, þvi það mun
verða báðum aðilum til hagnað-
ar.
0 Skiptinemar
nema, hafa margar tekið aftur á
móti skiptinemum.
Kristni ekki skilyrði
Það er ekki skilyrði, að skipti-
nemarnir séu kristnir, og hafa
t.d. verið sendir múhameðstrúar-
menn á vegum samtakanna. En
að baki býr kristin hugsjón, sú að
öðlast skilning á öðrum þjóðum
og vekja unga fólkið til um-
hugsunar um aðrar þjóðir heims-
ins, um þarfir annars fólks, um
misskiptingu auðæva og að vera
sér meðvitaður um náungann.
0 Hillman
Eftir Utkomu plötunnar stofn-
ar hann 7 manna hljómsveit og
fer I velheppnað hljómleika-
ferðalag. Nútiminn sá hann
tvisvar i London (eins og áður
hefur verið greint frá) og var
frammistaða hans og hljóm-
sveitarinnar i einu orði sagt frá-
bær.Nú nýlega kom svo önnur
„sóló” plata hans út, „Clear
Sailin’”, virkilega góð og vönd-
uð plata sem slær þá fyrri alveg
út.
Þannig er staða Hillmans i
dag, átján árum eftir að hann
byrjaði að spila opinberlega.
Óneitanlega athyglisverður tón-
listarmaður með margþættan
feril, tónlistarmaður sem hefur
farið í gegnum margar tón-
listarbreytingar um dagana og
á eftir að vera I slagnum i mörg
ár enn.
{£) Fræakrar
til landsins. Við höfum, með
öðrum orðum ekki getað flokkað
fræ okkar sjálfir hér heima og
það fræ sem við höfum sent utan
til framræktunar, til dæmis i
Noregi hafa Norðmenn flokkað
fyrir okkar eftir að kornið var
komið þangað. En nú er svo
komið að við getum annazt
þetta sjálfir og nú er verið að
þjálfa starfsfólk i þvi að
nota þessar vélar og stjórna
þeim. Og þá geta íslendingar
gert sér vonir um að geta upp-
fyllt þær kröfur sem grann-
þjóðir okkar gera til ræktunar-
fræs.
Þær tegundir sem hér er um
að ræða eru aðallega vall-
arsveifgras og túnvingull.
Báðar eru þær jurtir islenzkar
og flest bendir til þess að is-
lenzkir stofnar þoli betur is-
lenzka veðráttu en erlendir
stofnar. Sömuleiðis er ræktað
vallarfoxgras, en bændur hér
nota fræ af stofni sem fram-
ræktaður hefur verið i Noregi.
Fræakrar á Sámsstöðum eru
nú fimm til sjö hektara að
flatarmáli og menn búast við
megin-árangrinum af þeim til-
raunum sem er verið að gera á
næsta ári eða ef til vill á næstu
tveim árum það er að segja 1978
og 1979.
Þegar tilraunastöðin á Sáms-
stöðum tók til starfa fyrir hálfri
öld var meginmarkmiðið það að
þar yrði ræktað grasfræ handa
islenzkum bændum. Þetta hefur
að visu alltaf verið gert og þar á
meðal allan þann tima sem
Klemenz Kr. Kristjánsson
starfaði á Sámsstöðum, i full
fjörutiu ár en þó minna en ætlað
hafði verið i upphafi. Smám
saman þokaðist starfsemin i
aðrar áttir, og má þar nefna
áburðartilraunir að ekki sé
minnzt á kornræktartilraunirn-
ar sem löngu eru orðnar lands-
kunnar.
Nú á fimmtiu ára afmæli til-
raunastöðvarinnar á Sáms-
stöðum er nýr áfangi að hef jast i
starfseminni þar með tilkomu
nýrra og fullkominna tækja.
Vist er að þeir sem áhuga hafa á
landbúnaðarmálum og ræktun
yfirleitt munu fylgjast náið með
þvi sem þar fer fram næstu
misserin.
Chicago
höldum við tryggð við sérein-
kenni okkar.
— Hvað er að segja um nýju
Chicagoplötuna?
— „Chicago II”, eins og hún
heitir, sýnir okkur, eins og ég
hef áður sagt, sem hljómsveit
þar sem allir leggja eitthvað til.
Hún er þverskurður allra þeirra
meininga um tónlist sem finnast
innan hljómsveitarinnar.
— Eru meðlimir Chicago
ánægðir með lifið i dag. Ég
minnist þess að fyrir nokkrum
árum komuð þið fram 350 sinn-
um sama árið.
— Ó já, það var óttalegur timi.
Við tökum það rólegar nú og
sinnum meira fjölskyldulifi.
Jafnframt vinnum við skipuleg-
ar og það hefur gert okkur lifið
Iéttar. Um tima var jafnvel
hætta á upplausn innan hljóm-
sveitarinnar, en úr þessu held
ég að hljómsveitin geti starfað
saman svo lengi sem við kærum
okkur um. Þegar að uppgjörs-
dögum kemur, verður það
ákvörðun okkar allra.
— Hvað er svo framundan hjá
ykkur?
— Hljómleikaferðir. Nýja
langspilið okkar er nýútkomið
og við verðum að stuðla að sem
mestri sölu, og einmitt þaö ger-
um við með hljómleikahaldi.
Tröllkonuhlaup á þurru
Hefði tröllskessan verið að elta Gissur bónda þegar ljósmyndari Tím-
ans, Gunnar, tók þessa mynd I fyrradag er engin hætta á að hún hefði
þurft að nota eyjarnar til að komast þurrum fótum yfir Þjórsá.
Tröllkonuhlaup heitir fossinn sem hér ætti að vera i Þjórsáogiheitir svo
vegna skessunnar sem notaði eyjarnar sem stiklur i eltingarleiknum
við bóndann. En eins og sjá má iná ganga þurrum fótuin þarna uin
Bjarnalækjarskurði þar sem allt rennsli árinnar fer um Búrfellsvirkj-
un. Að sögn starfsmanna þar kemur þetta fyrir að ganga má þurrum
fótum við Trölikonuhlaup, en ekki er það algengt.