Tíminn - 25.09.1977, Page 40
i Sunnudagur1
25. september 1977
í • ; - ■
1 *18-300 Harks og Spencer HEIMSÞEKKT GÆÐAMERKI
Auglýsingadeild Tímans. UNDIRFATNAÐUR
Nútíma búskapur þarfnast
BK.UER
haugsugu
Guöbjörn
Guöjónsson
Heildverzlun Sfóumúla 22
Símar BS694 & 852*5
Alinnlent fræ til grasræktar í augsýn:
Fræakrar á Sámsstöðum 5-7
hektarar að flatarmáli
Stórfelld fræuppskera
möguleg, ef stöðin fær
nægilegt rekstrarfé
VS-Reykjavik. Tilraunastöðin
að Sámsstöðum var fimmtug i
vor er leiö. Stöðinni var i upp-
hafi komið á fót til þess að ann-
ast ræktun á islenzku fræi en nú
er fyrst að skapast aðbúnaður
til þess að hægt sé aö sinna
þessu verkefni svo að vel sé.
Með styrk úr þróunarisjóði
Sameinuöu þjóðanna hefur ver-
ið komið upp góöum tækja-
búnaði til fræþreskingar og
hreinsunar á fræi. Auk þess
hefur hluta af „þjóðargjöfinni”
verið varið til þessa verkefnis I
samvinnu við Landgræðslu
rikisins sem á mikilla hags-
muna að gæta, þar eð árangur
af uppgræöslusáningunni myndi
batna til muna ef hægt væri að
sá islenzku grasfræi i staö þess
erlenda sem nú er notað.
Fyrsta fræið af nýjum stofn-
um af vallarsveifgrasi og tún-
vingli var ræktað I sumar og
þrátt fyrir fremur óhagstætt
veðurfar er það mjög fallegt.
Það virðist öruggt, að hér megi
rækta fræ af vallarsveifgrasi og
túnvingli, sem fullnægi innan-
landsþörfinni.
Hægt er aö leggja út i frærækt
I stórum stil á næstunni, að þvi
tilskildu að stofnræktun gras-
fræs á Sámsstööum sé i góðu
lagi. Til þess að svo megi verða
þarf að fullgera stöðina á Sáms-
stöðum og tryggja henni nægi-
legt rekstrarfé, en sérfræðingar
Rannsóknarstofnunar land-
búnaðarins telja fjárveitingar
til þessa verkefnis svo litlar að
búast megi við miklum töfum á
þvi að þessu marki verði náð ef
ekki fæst meira fé til starf-
seminnar.
Geta má þess að Norðmenn
Sviar og Finnar verja miklu fé
til fræræktar á helztu gras-
tegundum sinum, enda gera
ræktunarmenn sér yfirleitt
grein fyrir þvi, að innlent fræ,
aölagað aðstæðum á hverjum
stað er forsenda öryggis i rækt-
un viðkomandi lands.
Segja má að frærækt sé nær
þvi að vera iðnaður en búskapur
hún er á ýmsan hátt ekki ólik
graskögglaframleiðslu. Það
hefur nokkuð háð fræræktartil-
raununum á Sámsstöðum, að
nauðsynlegar vélar hafa ekki
verið fyrir hendi, en nú hefur
rætzt verulega úr þeim málum
eins og áður segir. Fræskurðar-
vél slær fræ úti, á akri en
flokkunarvél flokkar fræiö mjög
nákvæmlega. Þetta þýðir að
hægt & aö vera að framleiða
svokallað stofnfræ sem notað
væri þá til frekari ræfctar inn-
anlands eða verið sent til fræ-
ræktar I útlöndum en útlending-
ar gera mjög miklar kröfur til
hreinleika fræs og þær kröfur
höfum við ekki getað uppfyllt
fyrr en áðurnefndar vélar komu
Frh. á bls. 39
Mjög fallegt fræ af vallarsveifgrasi.
Ljósm. Þorsteinn Tómasson
Hér stendur Kristinn Jónsson tilraunastjóri hjá hluta af fræhreinsi-
og flokkunarsamstæðunni á Sámsstöðum. Ljósm. Þorsteinn Tómas-
son.