Tíminn - 16.10.1977, Side 3
Sunnudagur 16. október 1977.
3
Líffræðinemar hóta að mæta ekki
LITAVER-LITAVER-LITAVER-LITAVER-UTAVER
í skólann næsta mánudag
GÓLFDÚKUR
F.I. Reykjavík — Nií stendur til,
að a.m.k. þeir skólar þar sem all-
irkennarar taka laun eftír kjara-
samningum stéttarfélaga utan
BSRB hefji kennslu að nýju n.k.
mánudag, þrátt fyrir verkfall
BSRB og þar meö verkfall hús-
varða þessara skóla.
Af þessu tilefni hefur stjórn
Hagsmunafélags liffræðinema
við H.I. setið fund og komizt að
þeirri niðurstöðu, að opnun skól-
anna á mánudag — verði verk-
fallið ekki þá þegar leyst, muni
hafa I för með sér gifurlega mis-
munun nemenda, þar sem megin-
þorriþeirraþarf á strætisvögnum
að halda tíl þessað geta sótt skól-
ana auk þess sem nokkuð stór
hluti nemenda á ekki heiman-
gengt vegna lokunar dagheimila.
Skorar stjórn Hagsmunafélags-
ins þvi á allt námsfólk við þessa
skóla að mæta ekki næsta mánu-
dag, ef verkfalli hefur ekki verið
aflétt fyrir þann tima og koma
þannig i veg fyrir þessa mismun-
un.
Timinn hafði samband við
vararektor Sigurjón Björnsson,
deildarstjóra félagsvisindadeild-
arog bar þessa áskoruna liffræði-
nemanna undir hann.
Sigurjóin sagðist vel vita þaö,
að llffræðinemar væru i erfiðri
aðstöðu i öllu strætisvagnaleys-
inu, þar sem kennsla I liffræði
færi m.a. fram inni á Grensás-
vegi, og samband við aðalstöðvar
háskólans erfitt af þeim sökum.
Hitt væri alveg ljóst, að háskólinn
hefði enga sérstöðu i verkfalli,
umfram aðrar stofnanir, þar sem
fólk yrði að mæta til vinnu og ó-
verjanlegt væri að halda ekki
uppi kennslu i háskólanum nú. —
Við erum auðvitað við þvi búnir
að gera ákveðnar ráðstafanir við
vissar námsbrautir, ef þörf kref-
ur, sagði Sigurjón, og talað hefur
verið um að útvega vagn, sem
myndi leysa ferðavandamál
nemenda að hluta til.
Tom Krestesen sýnir
í Norræna húsinu
í gær var opnuð sýning i Nor-
ræna húsinu á verkum málarans
Tom Krestesen, og lýkur henni
þann 30. þ.m. Hann sýnir þar 60
myndir, ollumyndir, vatnslita-
myndir og tússmyndir sem lista-
maðurinn málar á gamalt tré-
verk s.s. huriSr.
Tom Krestesen er fæddur I
Danmörku 1927, en fluttist til Svi-
þjóðar árið 1950 og býr nú I Stokk-
hólmi. Hann hefur með timanum
þróað með sér expressjóniskan
málarastil, þar sem hann einbeit-
ir sér i æ rikara mæli að þvi að
draga fram þá hörmung og viður-
styggð, sem dynja yfir mannkyn-
ið vegna ofbeldisaðgerða vald-
hafanna. Goya og listamenn
endurreisnartimans hafa höfðað
til hans. Persónurnar i myndum
hans hrópa nánast til áhorfand-
ans og leitast við að miðla honum
af þeirri vitneskju, sem þær hafa
öðlast með þjáningu og nauð.
Tom Krestesen málar oft
myndir sinar á aflangar fjalir,
sem hann getur svo stillt saman
svipað og I altarisskápum mið-
alda, en plslarvottarnir á þeim og
persónur hans eiga líka margt
sameiginlegt. 1 landslagsmynd-
um sinum leggur hann litina i
mjög þykkum lögum og nær
þannig fram blæ, sem minnir á
lágmyndir,og gefur jafnframt til
kynna heita skapsmuni lista-
mannsins. Þótt hann hafi mikið
dálæti á dökkum litum er þó mikil
birta ráðandi i myndunum.
Tom Krestesen stendur nokkuö
einn sér á sviði sænskrar nútima-
listar, einangrun hans er allmjög
i ætt við einsemd Torsten Ren-
qvists, sem er meöal þekktustu
málara i Sviþjóð. Báðir reyna
þeir að fanga söguna i myndum
sinum og beita m.a. til þess máli
naturalismans með dálitið forn-
legum blæ. Einnig má lita á verk
Tom Krestesen sem yfirlýsingu
um heimsástand, þat- sem ör-
væntingin er svo mögnuð, aö
huggunar verður engan veginn
leitað með ódýrri einföldun. Af
þessu leiðir, að erfitt getur verið
að skera úr um það, hvort bann
flytur boðskap svartsýni eða
bjartsýni I myndum sinum. Þvi
er þó þannig háttað, að hann álit-
ur að ekkert að sé til sem rúmi
ekki samtimis I sér andstæðu
sina.
Tom KresteSen hefur haldið
Tom Krestesen viö eitt verka sinna. Það er málaö meö tússi á gamlar
hurðir.
Tlmamynd: Gunnar
sýningar i flestum stærri borgum
Sviþjóðar, auk þess i Osló, Berg-
en, Kaupmannahöfn, Berlin,
London og New York. Flest
merkari listasöfn Sviþjóðar eiga
verk eftir hann og sama er að
segja um ríkissöfnin i Osló og
Kaupmannahöfn. Næsta sýning
málarans verður i Gallerl 15,
kunnu listasafni I Moss i Noregi.
TUraunakvikmyndir í gaJlerí,
Suðurgötu 7
Laugardaginn 15. október opn-
ar sýning i galleri Suðurgötu 7.
Sýndar verða nokkrar innlendar
tilraunakvikmyndir m.a. eftir
Bjarna H. Þórarinsson, Jón Karl
Helgason og Friðrik Friðriksson^
Sýnt verður á hverju kvöldi kl. 8,
9 og 10 næstu kvöld. Fólki er
heimilt að hafa eigin kvikmyndir
meðferðis og sýna á 10 sýningun-
um. Þar sem galleriið stendur i
stórræðum þessa dagana eins og
útgáfu timaritsins Svart á hvitu
hefur það ákveðið aö efna til sölu-
sýningar á verkum, sem aöstand-
endur gallerisins hafa gefið þvi.
Allur ágóði af seldum verkum
rennur þvi til gallerisins og er
verði verkanna mjög stillt I hóf.
Þarna verða verk eftir Kristján
Kristjánsson, Steingrim Eyfjörð
Kristmundsson, Bjarna H. Þórar-
insson, Ingólf Arnarson, Eggert
Pétursson og Helga Friðjónsson
svo einhverjir séu nefndir.
Sýningin verður opin á hverju
kvöldi frá 8 til 11 næstu kvöld, þá
verður einnig hægt að kaupa
timaritið Svart á hvitu.
LITAVER-LITAVER-LITAVER-LITAVER-LITAVER
Góð bújörð óskast
Höfum kaupanda að góðri bújörð.
Æskilegt að bústofn og vélar fylgi. Komið,
hringið eða skrifið.
Eignaumboðið
Laugavegi 87, simi 1-38-37.
Heimir Lárusson, heimasimi 7-65-09.
Vyni/ gólfdúkur - allar tegundir
Gjafavörur
•4
Ýmsar tin- og
koparvörur til
tækifærisgjafa
Lítið víð
i Litaveri
það hefur áva/lt borgað sig!
V
Hreyfilshúsinu — Grensásvegi 18