Fréttablaðið - 15.06.2006, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 15.06.2006, Blaðsíða 2
2 15. júní 2006 FIMMTUDAGUR Kristín Gísladóttir sjúkraþjálfari aðstoðar við val á réttri dýnu alla fimmtudaga á milli kl. 16 og 18. Opið virka daga: 10-18 Reykjavík: Mörkin 4, s: 533 3500 SPURNING DAGSINS Halldór, hefði ekki verið rétt að vísa þeim á dyr? „Nei, þeir hafa sinn rétt og við virðum hann.“ Fulltrúar frá Samkeppniseftirlitinu gerðu húsleit hjá Visa Ísland í fyrradag og tóku gögn og afrit af tölvugögnum. Halldór Guð- bjarnason, framkvæmdastjóri Vísa Ísland, gagnrýndi aðfarirnar harkalega. VÍSINDI Stofnun Sæmundar fróða um sjálfbæra þróun og þverfaglegar rannsóknir við Háskóla Íslands var formlega opnuð í gær af Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur mennta- málaráðherra. Meginhlutverk stofnunarinnar er að vera vettvang- ur fyrir þverfaglegar rannsóknir, samstarf og fræðslu um sjálfbæra þróun, umhverfi, samfélag og efna- hag. Opnun stofnunarinnar fylgir í kjölfar formlegs samkomulags Háskóla Íslands og Jarðarstofnunar Columbia-háskóla í Bandaríkjunum um samvinnu á sviði rannsókna og kennslu er varða sjálfbæra þróun. Þar verða verkefni á sviði loftlagsbreytinga og þróun á tækni til að bregðast við loftslags- breytingum í forgrunni og mun stofnun Sæmundar fróða taka virk- an þátt í því samstarfi. Dr. Guðrún Pétursdóttir er for- stöðumaður stofnunarinnar. „Þegar ég er spurð að því hvað sjálfbærni sé svara ég oft með því að spyrja til baka hvort viðkom- andi myndi fá eitthvað lánað hjá nágranna sínum og skila því hálf- ónýtu til baka. Hækkandi hitastig vegna útblásturs gróðurhúsaloft- tegunda getur bókstaflega ráðið því hvort jörðin verði byggileg eða ekki í framtíðinni. Við trúum því varla að vandamálið sé svona alvarlegt en við getum ekki leyft þessu að halda svona áfram. Það er óábyrgt og við eigum engra kosta völ nema takast á við þenn- an vanda.“ Guðrún segir vísinda- menn Háskólans hafa gegnt lykil- hlutverki í alþjóðlegu samstarfi til lausnar þessa alheimsvanda og með Stofnun Sæmundar fróða sé vettvangur áframhaldandi þróun- ar í rannsóknum og hagnýtum verkefnum tryggður. Þorgerður Katrín Gunnarsdótt- ir menntamálaráðherra segir Stofnun Sæmundar fróða hafa mikla þýðingu fyrir háskóla- og rannsóknasamfélagið á Íslandi en einnig alþjóðasamfélagið í heild. „Við Íslendingar getum og eigum að taka forystu í þessum málum því við eigum frábæra vísinda- menn sem eru í forystu á sínu sviði. Þetta sýnir hvernig Háskól- inn er að byggjast upp sem for- ystuháskóli á alþjóðavísu og stofn- unin mun styðja það markmið.“ Í tengslum við opnunina flutti fyrirlestur í boði forseta Íslands, dr. Rajendra K. Panchauri, stjórn- arformaður orkurannsóknarstofn- unarinnar á Indlandi. Dr. Panchauri fjallaði um lykilþætti opinberrar stefnumótunar og tækniumhverfi í sjálfbærum heimi. Kom fram í máli hans að lausnin á vanda alþjóðasamfélags- ins í tengslum við loftlagsbreyt- ingar fælist fyrst og fremst í hug- arfarsbreytingu og að allar þjóðir heims yrðu að koma að lausn vand- ans á jafnréttisgrundvelli. Fyrir- lesturinn var sá þriðji í fyrir- lestraröð forsetaembættisins - Nýir straumar. svavar@frettabladid.is Forystuháskóli á alþjóðavísu í mótun Menntamálaráðherra opnaði í gær nýja stofnun um sjálfbæra þróun og þver- faglegar rannsóknir við Háskóla Íslands. Stofnuninni er ætlað að leika stórt hlutverk í að leysa mörg af alvarlegustu vandamálum alþjóðasamfélagsins. FRÁ OPNUNINNI Í GÆR Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra opnaði Stofn- un Sæmundar fróða um sjálfbæra þróun við Háskóla Íslands formlega í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI DR. PACHAURI STJÓRNMÁL Albert Jónsson verður sendiherra Íslands í Bandaríkj- unum frá 1. nóvember. Um þá ráðstöfun og breytingar á högum tólf annarra sendiherra var til- kynnt í gær. Var það eitt af síð- ustu embættisverkum Geirs Haarde sem utanríkisráðherra. Albert starfaði lengi í forsæt- isráðuneytinu og var þar náinn samverkamaður Davíðs Oddsson- ar í öryggis- og varnarmálum. Fylgdi hann Davíð í utanríkis- ráðuneytið, þar sem hann starfar þar til hann heldur utan. Helgi Ágústsson, sem verið hefur sendi- herra í Washington, kemur til starfa í utanríkisráðuneytinu. Í ágúst verður Grétar Már Sig- urðsson, skrifstofustjóri við- skiptaskrifstofu, sendiherra í Pek- ing, höfuðborg Kína, og við starfi hans tekur Berglind Ásgeirsdóttir sem verið hefur aðstoðarfram- kvæmdastjóri OECD. Eiður Guðnason, sendiherra í Kína, mun veita skrifstofu upplýsinga- og menningarmála forstöðu og tekur Elín Flygenring, sem gegnt hefur því starfi við embætti prótókoll- stjóra. Stefán Lárus Stefánsson prótókollstjóri verður sendiherra gagnvart Evrópuráðinu í Strass- borg. Hörður H. Bjarnason, sendi- herra í Strassborg, kemur til starfa á alþjóðaskrifstofu. Bene- dikt Ásgeirsson, sendiherra í Pret- oríu í Suður-Afríku, tekur við starfi sendiherra í Rússlandi í ágúst en við starfi hans tekur Sig- ríður Dúna Kristmundsdóttir. Benedikt Jónsson flytur frá Moskvu til starfa á viðskiptaskrif- stofu. Þorsteinn Ingólfsson, sem verið hefur fulltrúi Norðurlanda í stjórn Alþjóðabankans, kemur til starfa í ráðuneytinu en kjörtíma- bili hans í bankanum lýkur 1. júlí. Þá hefur Lilja Viðarsdóttir verið skipuð aðstoðarframkvæmda- stjóri EFTA í Brussel frá 1. sept- ember. - bþs Umfangsmiklar breytingar ákveðnar á sendiherrastigi utanríkisþjónustunnar: Albert Jónsson til Washington ALBERT JÓNSSON Verður sendiherra í Washington frá og með 1. nóvember. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI HAGSTOFA Undanfarin fjögur ár hefur verið algengast að forsjá barna eftir skilnað sé í höndum beggja foreldra, samkvæmt nýjum tölum Hagstofu Íslands. Árið 2005 átti þetta við um 72,8 prósent barna úr lögskilnuðum. Sameiginleg forsjá er einnig algengust eftir sambúðarslit og var árið 2005 valin í 74 prósentum tilvika. Alls voru börn undir átján ára aldri úr lögskilnuðum og sam- búðarslitum 1.145 á árinu 2005. Áður var algengast að móðir færi ein með forsjá en sameigin- leg forsjá hefur færst sífellt í vöxt frá því að foreldrum var gefinn kostur á því árið 1992. - sdg Algengasta form forsjár: Í höndum beggja foreldra HVALVEIÐAR Sendinefnd á vegum íslenskra stjórnvalda er nú farin til St. Kristofer og Nevis í Karíbahafi en um næstu helgi fer ársfundur Alþjóðahvalveiðiráðsins þar fram. Stefán Ásmundsson, skrifstofu- stjóri í sjávarútvegsráðuneytinu, er formaður nefndarinnar en auk hans eru Ásta Einarsdóttir og Gísli Víkingsson í nefndinni. Japanir íhuga að draga sig út úr Alþjóðahvalveiðiráðinu, náist ekki samstaða á fundinum um að leyfa hvalveiði. Japanir hyggjast leggja fram tillögu um að hvalveiðibanni verði aflétt en þrjá fjórðu atkvæða þarf til þess að tillagan verði sam- þykkt. Hvalveiðibann hefur verið í gildi í tvo áratugi. - mh Alþjóðahvalveiðiráðið: Ársfundur um næstu helgi DÓMSMÁL Karlmaður á þrítugs- aldri hefur verið ákærður fyrir líkamsárás og frelsissviptingu fyrir að hafa í september í fyrra ráðist á konu og haldið henni nauð- ugri í íbúð hennar. Meint árás átti sér stað á heim- ili konunnar. Manninum er gefið að sök að hafa tekið hana hálstaki og hent henni til og frá. Hann er síðan kærður fyrir að hafa haldið henni nauðugri í íbúðinni í tvær klukkustundir. Honum er einnig gefið að sök að hafa í febrúar ruðst inn í sömu íbúð og neitað að yfirgefa hana. Konan krefst 800.000 króna í bætur og að maðurinn verði dæmdur til refsingar. - sh Frelsissvipting og líkamsárás: Hélt konu í íbúð hennar MYNDLIST Aðstandendur Q bar í Ingólfsstræti hafa brugðist við áskorunum um að taka niður lista- verk danska myndlistamannsins Hornsleths, sem hafa hangið þar uppi í nokkra daga. Kvartanir bár- ust frá stúlkum sem hafa tekið þátt í fegurðarsamkeppnum og aðstandendum þeirra, en stúlk- urnar eru sýndar í málverkunum ásamt grófum texta. Björn Rúnar Egilsson, einn aðstandenda sýningarinnar, segir Hornsleth ekki ráðast persónu- lega gegn þeim sem í málverkun- um birtast, heldur reyna að vekja fólk til umhugsunar um hvernig nekt kvenna sé notuð í auglýsinga- skyni. Sýningin sé ádeila á klám- væðingu fjölmiðla og Hornsleth sýni á grófan hátt hvernig mark- aðssetning verði í framtíðinni. „Mér finnst það hneyksli að einhver hafi tekið að sér að sýna þetta,“ segir Unnur Steinsson, móðir Unnar Birnu Vilhjálmsdótt- ur fegurðardrottningar. - sgj Q bar í Ingólfsstræti: Úthýsa verkum Hornsleths DÓMSMÁL Hæstiréttur Íslands staðfesti á þriðjudaginn úrskurð Héraðsdóms um að bú Ragnars Orra Benediktssonar yrði tekið til gjaldþrotaskipta að kröfu Símans hf. Ragnar Orri hafði gert þá kröfu að málinu yrði vísað frá dómi, en hann var dæmdur á síðasta ári í þriggja mánaða fangelsi fyrir hlut- deild sína í „Landssímamálinu“ svokallaða. Síminn hf. gerir einnig kröfu í bú Sveinbjörns Kristjánssonar, Kristjáns R. Kristjánssonar og Árna Þórs Vigfússonar, að sögn Evu Magnúsdóttur, upplýsinga- fulltrúa Símans. - kóþ Síminn sækir rétt sinn: Gerir kröfu í bú sakborninga DÓMSMÁL Ríkissaksóknara, Boga Nilssyni, þykir ekki vera grund- völlur til að rannsaka það frekar hvort Jón Gerald Sullenberger hafi borið ljúgvitni gegn Jóhann- esi Jónssyni í Baugsmálinu og hefur rannsókninni nú verið hætt. Þetta kemur fram í bréfi sem Bogi sendi Einari Þór Sverris- syni, lögmanni Jóhannesar, 8. júní. Jóhannes lagði fram kæru á hendur Jóni Gerald vegna þessa hinn 6. apríl. Jón Gerald hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna málsins þar sem hann segist frá fyrsta degi málsins hafa sagt satt og rétt frá og hyggjast gera það áfram. Hann segist jafnframt vonast eftir opinberri afsökunarbeiðni frá Jóhannesi og Einari vegna ásak- ananna. Einar Þór segir sig og Jóhann- es telja kæruna hafa verið reista á réttum gögnum og að hún hafi verið byggð á rökum. „Hins vegar er erfitt að sanna brot eins og rangar sakargiftir enda er bréf ríkissaksóknara reist á þeirri nið- urstöðu. Aðalatriðið er það að Jóhannes var sýknaður af öllum kröfum ákæruvaldsins fyrir Hér- aðsdómi Reykjavíkur, sem voru reistar á grundvelli ásakana Jóns Geralds, og hann hefur ekki verið ákærður að nýju,“ segir Einar. - sh Ríkissaksóknari hefur ákveðið að hætta rannsókn á meintum lygum Jóns Geralds: Vonast eftir afsökunarbeiðni RANNSÓKN HÆTT Jón Gerald segist frá fyrsta degi málsins hafa sagt satt og rétt frá og hyggjast gera það áfram. Sjálfstæðiskonur ósáttar Lands- samband sjálfstæðiskvenna sendi frá sér yfirlýsingu í gær þar sem lýst er yfir vonbrigðum með brotthvarf Sgríðar Önnu Þórðardóttur úr umhverfisráðu- neytinu. Breytingar á ríkisstjórn hafi þó verið óumflýjanlegar. STJÓRNMÁL
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.