Fréttablaðið - 15.06.2006, Side 16
16 15. júní 2006 FIMMTUDAGUR
TÖLVULEIKIR Yfir þrjátíu þúsund kín-
verskir spilarar skráðu sig í fjöl-
spilunarleikinn Eve Online á fyrstu
klukkustundunum eftir að opnað
var fyrir prófanir á honum í Kína í
fyrradag. Þar að auki eru um
350.000 manns á biðlista eftir að fá
að spila leikinn, en áætlað er að
fullgerð útgáfa komi út í næsta
mánuði. Það er íslenska tölvuleikja-
fyrirtækið CCP sem á og rekur
leikinn og hafa íbúar annars staðar
í heiminum átt kost á að spila hann
á evrópskum þjóni seinustu þrjú ár.
Þar eru yfir 100.000 spilendur en
kínverski leikurinn verður algjör-
lega aðskildur hinum evrópska.
Eve Online er eini leikurinn sem
CCP hefur gefið út og gengur hann
mjög vel á heimsvísu. Megintekjur
fyrirtækisins eru í dollurum en
útgjöld í krónum, og því hafa sveifl-
ur krónunnar gagnvart dollaran-
um haft mikil áhrif á rekstur þess.
Þegar dollarinn var sem lægstur
var jafnvel talað um að fyrirtækið
flyttist úr landi, en ekki eru uppi
áform um það sem stendur segir
Hilmar Veigar Pétursson, fram-
kvæmdastjóri CCP. „Á meðan
krónan er í stöðugu ástandi er mjög
fínt að vera á Íslandi, en það er erf-
itt að takast á við þessar sveiflur í
innlendum kostnaði og þá ber
maður óneitanlega aðra kosti
saman við það.“ - sþs
BRETLAND, AP Stefna Bandaríkj-
anna í Írak er hættulegri ógn en
kjarnorkuáætlun Írana, sam-
kvæmt alþjóðlegri könnun hins
virta Pew-rannsóknarhóps sem
birt var í vikunni. Stuðningur við
George W. Bush Bandaríkjafor-
seta og stríð hans gegn hryðju-
verkum fer einnig dvínandi
meðal spurðra, en könnunin náði
til 17.000 manns í 15 löndum.
Jafnframt kom fram að sá vel-
vilji sem aðstoð Bandaríkjanna
vegna flóðbylgjunnar 2004 skap-
aði í garð þeirra, hefur dvínað til
muna síðan í fyrra, jafnvel í þeim
löndum sem fengu aðstoðina, svo
sem í Indónesíu.
Stríðið í Írak reynist orðstír
Bandaríkjanna sífellt dýrkeypt-
ara. Sérstaklega líta landsmenn
Indlands, Spánar og Tyrklands
stórveldið hornauga nú, og hefur
stuðningur þeirra við Bandaríkin
hrapað stórlega síðan í fyrra, eða
úr 71 prósenti niður í 56 prósent á
Indlandi, úr 41 prósenti í 23 pró-
sent á Spáni og úr 23 prósentum
niður í 12 prósent í Tyrklandi.
Meirihluti þeirra sem spurðir
voru í tíu löndum af fjórtán,
þegar svör Bandaríkjamanna eru
ekki talin með, sögðu heiminn
vera hættulegri síðan Bandarík-
in hófu stríð sitt á Írak. Sextíu
prósent Breta, sem þó eru helstu
bandamenn Bandaríkjanna í
þeim hernaði, telja Íraksstríð
hafa gert veröldina að ótryggari
stað en áður.
Auk þess treysta Evrópubúar
Bush Bandaríkjaforseta sífellt
minna, og telja flestir að Banda-
ríkjunum muni ekki takast að ná
takmörkum sínum í stríðinu gegn
hryðjuverkum.
Kjarnorkuáætlun Írana veldur
Evrópubúum og Bandaríkja-
mönnum sífellt meiri áhyggjum,
en múslimaþjóðir hafa hins vegar
litlar áhyggjur af Íransstjórn.
Íranar hafa staðfastlega haldið
því fram að kjarnorkuvinnsla
þeirra sé eingöngu í friðsamleg-
um tilgangi, en talsmenn Banda-
ríkjastjórnar telja að þá ætla sér
að nota orkuna til framleiðslu á
kjarnorkuvopnum.
Á meðan Indverjar og Japanar
hafa mestar áhyggjur af loftlags-
breytingum vegna gróðurhúsa-
áhrifanna, hafa þær tvær þjóðir
sem valda mestum gróðurhúsa-
áhrifum, Bandaríkjamenn og
Kínverjar, minnstar áhyggjur
vegna þess vanda.
Skoðanakönnunin var gerð í
Bandaríkjunum, Bretlandi,
Egyptalandi, Frakklandi, Ind-
landi, Indónesíu, Japan, Jórdaníu,
Kína, Nígeríu, Pakistan, Rúss-
landi, Spáni, Tyrklandi og
Þýskalandi á tímabilinu 31. mars
og 14. maí.
smk@frettabladid.is
Írak skaðar orðstír
Bandaríkjanna
Stuðningur almennings í fimmtán löndum heims við stríð Bandaríkjamanna
gegn hryðjuverkum hefur dvínað til muna á síðasta ári. Sífellt fleiri Evrópubúar
vantreysta George W. Bush Bandaríkjaforseta.
HERMAÐUR Í ÍRAK Bandarískur hermaður við störf í Írak, en að baki hans gengur daglegt líf
áfram sinn vanagang. Meirihluti aðspurðra í fimmtán löndum sem tóku þátt í nýlegri skoð-
anakönnum telja að stríð Bandaríkjanna gegn hryðjuverkum hafi gert heiminn ótryggari en
áður var, og fer stuðningur Evrópubúa við George W. Bush Bandaríkjaforseta ört dvínandi.
NORDICPHOTOS/AFP
ÍSLENSKI TÖLVULEIKURINN EVE ONLINE Prófanir hafa staðið yfir á leiknum í Kína og verður
leikurinn gefnn þar út í næsta mánuði.
Eve Online geysilega vinsæll í Kína:
Tæp hálf milljón Kínverja í biðröð
LÚXEMBORG, AP Evrópusambandið
hefur langtímaáætlun um lýðræð-
isþróun á Kúbu í smíðum og lýstu
utanríkisráðherrar aðildarríkj-
anna 25 yfir djúpstæðum áhyggj-
um af bágri stöðu mannréttinda-
mála í eyríkinu á mánudag.
Ríkisstjórnin í Havana var
hvött til að leysa pólitíska fanga úr
haldi og henni boðið til viðræðna,
meðal annars um mannréttinda-
mál. Ráðherrar sumra aðildarríkj-
anna vildu ganga lengra og grípa
til refsiaðgerða, en ákvörðunum
um slíkt var frestað að sinni.
Ráðherrar fyrrum austantjalds-
landa voru sérlega harðir í afstöðu
sinni gegn ríkisstjórn Kúbu og
minntu þeir á að einnig þyrfti að
gera áætlun um hvernig ætti að
bregðast við óumflýjanlegu frá-
falli Kastrós, en hann verður átt-
ræður í ágúst.
Hvað tekur við á Kúbu við lát
Kastrós er allsendis óljóst. Víst
þykir að umbreytingar verði á
stjórnarháttum þar á bæ, en hversu
róttækar þær breytingar verða er
annað mál. „Mikilvægt er að
undirstrika að Kastró muni ekki
ríkja að eilífu,“ sagði utanríkisráð-
herra Tékklands.
ESB ætlar að gera sitt til að
koma í veg fyrir áframhaldandi
einræðisstjórn á Kúbu, en margir
óttast að Raúl, yngri bróðir
Kastrós, hafi hug á að taka við
stjórnartaumunum. - kóþ
Evrópusambandið eykur þrýstinginn á Kúbustjórn:
Engar refsiaðgerðir í bili
FÍDEL KASTRÓ Kastró er ekki vinsæll meðal
ráðamanna fyrrverandi austantjaldslanda í
Evrópu. NORDICPHOTOS/AFP
Lögreglan í Vík greinir frá því að um
fimmtíu ökumenn hafi verið stöðvaðir
í umdæminu að meðaltali á viku síðan
eftirlit með hraðakstri var aukið. Tals-
maður lögreglunnar segir að áframhald
verði á þessu mikla eftirliti.
LÖGREGLUFRÉTTIR
VÍSINDI Örlög mannkynsins gætu
ráðist á því hvort við finnum nýja
plánetu til að búa á innan hundrað
ára, að sögn Stephens Hawking,
hins heimsfræga stjarneðlisfræð-
ings.
„Við munum ekki finna
nokkurn stað eins huggulegan og
jörðina nema við förum til annars
stjörnukerfis,“ sagði hann á
fyrirlestri í Hong Kong á þriðju-
dag. „Líf á jörðu er í síaukinni
hættu á útrýmingu vegna gróður-
húsaáhrifa, kjarnorkustyrjaldar,
stökkbreyttrar veiru eða annars
sem okkur hefur ekki enn hug-
kvæmst.“
Hawking mun gefa út barna-
bók um eðli alheimsins á næst-
unni. - sgj
Stephen Hawking varar við:
Menn verða að
flytja út í geim
STEPHEN HAWKING Prófessorinn virti hefur
áhyggjur af framtíð mannkynsins og jarðar-
innar. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
FIMMBURAR EÐA FLEIRI? Kínverska konan
Qiao Yubo er þunguð af að minnsta kosti
fimm börnum. Hún er eingöngu komin
fimm mánuði á leið en mittismál hennar
er þegar orðið 1,75 metrar. Til samanburðar
má nefna að hún er 1,67 metra há. Eins
og gefur að skilja er Qiao orðin afar þung
á sér og gengur eingöngu í sérsaumuðum
fötum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
SLYS Maður á þrítugsaldri varð
fyrir því óláni við vinnu seinni-
part þriðjudags að skjóta sig í
fótinn með naglabyssu.
Slysið átti sér stað á sveitabæ
skammt vestan við Skóga, rétt
hjá Hvolsvelli.
Um var að ræða voðaskot úr
byssunni og skaut maðurinn
nagla í hnéð á sér og hlaut tölu-
verð meiðsli af.
Hann var fluttur með sjúkra-
bíl á Borgarspítalann í Fossvogi
þar sem gert var að sárum hans.
- æþe
Vinnuslys rétt hjá Skógum:
Skaut nagla í
fótinn á sér
ATVINNULÍF Niðurstöður úr nýrri
könnun IMG Gallup á stöðu og
framtíðarhorfum í atvinnulífinu
gefa til kynna að aðstæður séu
tiltölulega góðar en þó lakari en í
seinustu könnun. Stjórnendur sjá
fram á versnandi horfur næsta
hálfa árið hvað varðar innlenda
eftirspurn þótt áfram megi búast
við þenslu á vinnumarkaði.
Gengisþróun undanfarinna
mánaða hefur gert það að verk-
um að hagur útflutningsgreina
fer batnandi, og staðfestir könn-
unin þetta. Áfram er spenna á
atvinnumarkaði og skortur á
starfsfólki í flestum greinum, en
í maí mældist 1,3 prósenta
atvinnuleysi á Íslandi. - sþs
Könnun á stöðu atvinnulífs:
Segja aðstæður
frekar góðar
EFNAHAGSMÁLIN Geir H. Haarde
utanríkisráðherra segir að ríkis-
valdið sé að vinna að sínum ráð-
stöfunum í efna-
hagsmálum þannig
að endurskoðun
kjarasamninga
geti farið fram
milli aðila vinnu-
markaðarins strax
í þessari viku, ekki
í haust eins og
kveðið er á um í
samningum.
Geir segir koma
til greina að leysa
þessi mál með samkomulagi, „við
erum að vinna í því,“ segir hann
og tekur illa í nýtt lægra skattþrep
fyrir hina tekjuminni. „Við höfum
ekki fallist á að gerbreyta skatt-
kerfinu en ég vil ekki fara út í
smáatriði í þeim viðræðum. Þær
eru í gangi.“ - ghs
Utanríkisráðherra:
Ekki gerbreyta
skattkerfinu
GEIR H. HAARDE
Verðandi forsæt-
isráðherra.
BANDARÍKIN, AP Dómari í Kaliforn-
íu hefur komist að því að lögbann
á sölu skammbyssna, sem sam-
þykkt var af 58 prósentum borg-
arbúa í San Francisco í nóvember,
standist ekki nánari skoðun. Lög-
gjöf Kaliforníuríkis leyfir sölu
vopnanna og borgin má ekki
banna það sem fylkið leyfir.
Dómarinn féllst þar með á rök
Rifflasambandsins (NRA) en for-
vígismenn þess stefndu borginni
daginn eftir að lögbannið var sam-
þykkt.
Forsvarsmenn NRA fögnuðu
úrskurðinum og sögðu að dómar-
inn „viðurkenndi að löghlýðnir
skotvopnaeigendur ... eru hluti af
lausninni, ekki vandanum.“ Borg-
aryfirvöld íhuga nú hvort úrskurð-
inum verði áfrýjað. - kóþ
Meirihlutinn verður að lúffa:
Löglegt á ný að
selja byssur
BYSSUR TIL SÖLU Borgaryfirvöld í San
Francisco mega ekki banna skammbyssu-
sölu. NORDICPHOTOS/AFP
Réðust á söngvara Fjórir menn
hafa verið handteknir fyrir árás á
samkynhneigða söngvarann Kevin
Aviance í New York síðastliðinn
laugardag. Mennirnir hrópuðu að
honum fúkyrði og börðu hann til óbóta.
OFBELDI