Fréttablaðið - 15.06.2006, Page 17
Nú er að taka undir sig stökk út í sumarið. Við bjóðum fjölbreytt úrval
af flottum barnafatnaði handa stelpum og strákum 0-14 ára fyrir
skrúðgönguna, í ferðalagið, á róló eða út að leika. Spariföt, létt
sumarföt, útvistarfatnaður. tryggðu þér flottustu barnamerkin
á markaðnum; esprit, 660norður, jasper conran, matthew williamson,
john rocha og st. george by duffer - á mun betra verði.
Í Debenhams finnurðu mikið úrval af fatnaði og gjafavöru á verði sem
kemur þér í gott skap.
Í LOFTINUINU
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
D
EB
3
31
14
0
6/
20
06
SUMARdebenhams
NÁTTÚRA Geitungastofninn á
Íslandi er mjög illa á sig kominn
það sem af er sumars. Búin eru
lítil og fá og geitungarnir sjálfir
eru ræfilslegir. Að sögn Róberts
Ólafssonar meindýraeyðis er
ástæðan fyrir þessu hrun stofns-
ins síðasta sumar þegar tvísýnt
var um að hann lifði yfirleitt af, en
líklegast þykir að einhvers konar
sveppasýking hafi verið þar á ferð-
inni. Þó getur verið að stofninn
taki kipp seinna í sumar, líkt og
gerðist í fyrra.
Hann nefnir að þegar geitunga-
búin séu lítil og á aðgengilegum
stöðum sé oft auðveldara fyrir
fólk að losa sig við þau sjálft frek-
ar en að fá aðstoð meindýraeyðis.
Ef rétt sé að staðið eigi að vera
hægt að fjarlægja geitungabú á
öruggan hátt með því að úða á það
eitri sem kaupa má úti í búð.
Aðspurður að því hversu mikil
hætta stafi af geitungum svarar
Róbert því að þeir séu meinlaus
dýr sé þeim ekki ógnað. Vissulega
beri varúðar að gæta ef um bráða-
ofnæmi sé að ræða, en almennt
hafi geitungur enga ástæðu til að
stinga, sé hann látinn í friði. Best
sé að skipta sér bara ekkert af
þeim.
Landsmenn geta því andað létt-
ar, það sér ekki fram á geitung-
afaraldur í sumar. - sþs
Geitungar eiga erfitt uppdráttar í sumar:
Stofninn lítill og ræfilslegur
GEITUNGUR Meinlaus ef hann er látinn í
friði segir meindýraeyðir.
ÍRAK, AP Bandaríski herinn segir
sjúkraliða hafa reynt í tuttugu
mínútur að bjarga hryðjuverka-
manninum Abu Musab al-Zarqawi,
eftir loftárás á hús sem hann var
í. Bandarískir hermenn voru sak-
aðir um að hafa barið hann til
dauða eftir loftárásina, en læknar
segja nú að innvortis meiðsli hafi
verið banamein Jórdanans.
Al-Zarqawi er sagður hafa
muldrað og reynt að komast af
sjúkrabörunum, en hann var
ýmist með eða án rænu eftir árás-
ina. Meðal þeirra sem dóu í
árásinni voru tvær konur og ungt
barn, en ekki er vitað hvar líkin
verða færð til greftrunar. - sgj
Drápið á al-Zarqawi:
Var klukku-
tíma að deyja
STJÓRNMÁL Gengið hefur verið frá
ráðningu Drífu Snædal í starf
framkvæmdastýru Vinstrihreyf-
ingarinnar - græns framboðs. Hún
tekur við í haust af Svandísi Svav-
arsdóttur, oddvita
Vinstri grænna í
borgarstjórn, sem
sinnt hefur starf-
inu síðastliðið ár.
Drífa hefur
starfað sem
fræðslu- og fram-
kvæmdastýra
Samtaka um
kvennaathvarf
seinustu ár, en hún
hefur próf í við-
skiptafræði frá Háskóla Íslands.
Hún hefur gegnt stöðu ritara
Vinstri grænna síðan 2003 og hefur
setið í stjórn flokksins frá stofnun
hans árið 1999. ■
Breytingar hjá VG:
Drífa í stað
Svandísar
DRÍFA SNÆDAL
Tekur við af Svan-
dísi Svavarsdóttur.
ÍRAK AP Aðaldómarinn í réttar-
höldum yfir Saddam Hussein
úrskurðaði á þriðjudag að vitna-
leiðslum verjenda væri lokið og að
ákærendur myndu flytja loka-
ræðu sína í næstu viku.
Verjandi Saddams mótmælti,
en hann telur sig ekki hafa náð að
flytja mál sitt með fullnægjandi
hætti og vildi fá að leiða fleiri
vitni fram fyrir dóminn. Dómar-
inn svaraði með því að verjandinn
hefði nú þegar leitt fram 62 vitni
og ef það dygði ekki til myndu 100
vitni ekki hjálpa honum frekar.
- kóþ
Réttarhöld yfir Saddam:
Vitnaleiðslum
verjenda lokið
SADDAM HUSSEIN Lögfræðingur Saddams
varð fyrir vonbrigðum með úrskurðinn.
NORDICPHOTOS/AFP
WASHINGTON, AP Leikarinn Robert
Redford hélt tölu síðstliðinn
mánudag á fundi frjálslyndra
stjórnmálasamtaka sem kallast
„Baráttan fyrir framtíð Banda-
ríkjanna“.
Redford sagði til einskis að
rökræða við Bush-stjórnina um
orkumál og að eina leiðin til breyt-
inga væri að koma repúblikönum
frá völdum. Til þess þyrftu demó-
kratar að taka sér herkænsku
repúblikana til fyrirmyndar.
Redford brýndi fyrir demó-
krötum að vera stórhuga og koma
skikki á sín mál svo þeir sigruðu í
næstu kosningum og sagði að ef
það mistækist yrði það „ekki ein-
ungis harmleikur fyrir flokkinn,
heldur fyrir þjóðina alla“. - kóþ
Robert Redford:
Harmleikur í
uppsiglingu
ROBERT REDFORD Leikarinn vill koma
repúblikönum frá völdum. NORDICPHOTOS/AFP
FIMMTUDAGUR 15. júní 2006 17