Fréttablaðið - 15.06.2006, Síða 28

Fréttablaðið - 15.06.2006, Síða 28
 15. júní 2006 FIMMTUDAGUR28 og fólk ? Vissir þú?að Álfadís frá Selfossi sem vakti athygli sem hæsta dæmda fjög- urra vetra hryssa á landsmótinu árið 2000 á fimm skráð afkvæmi? Þar af eru tveir stóðhestar sem hlotið hafa fyrstu verðlaun, þeir Álfasteinn og Álfur frá Selfossi. www.worldfengur.com. EINN Á FERÐ Hestamenn hafa nú langflestir sleppt hestum sínum í sumarhaga. Þar una hrossin sér vel og eru frelsinu fegin. Að öllum líkindum tekur þessi hestur við Eystrahorn í sama streng enda fagurt fyrir austan. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Það hefur lengi verið viðtekin venja að hesta- menn ljúki vetri með því að fara í sleppiferð. Þá ríða þeir hestum sínum í iðagræna haga og sleppa þeim í frelsi íslenskrar náttúru. Sleppiferðir hafa þó tekið nokkrum breyt- ingum frá því sem áður var. Ekki er lengur skilyrði að lagt sé af stað frá hesthúsinu eða að endastöðin sé sumarhaginn. Bæði getur verið leiðingjarnt að ríða alltaf sömu leiðina á hverju vori auk þess sem erfitt getur reynst fyrir hestamenn á höfuðborgarsvæðinu að komast með stórt hestastóð út fyrir bæjar- mörkin vegna hraðbrauta sem liggja allt í kringum hana. Því bregða margir á það ráð að keyra hesta sína á einhvern fallegan byrjunarreit og skipuleggja nokkurra daga ferð um það svæði. Þetta eykur á fjölbreytnina og gerir upplifunina mun ánægjulegri en reiðtúr meðfram þjóðvegum hefði annars orðið. ■ Tími sleppiferða er hafinn Ármúla 11 - sími 568-1500 Lónsbakka - sími 461-1070 Rafm.sláttuvélar Vandaðar vélar og öflugir mótorar Ármúla 11 - sími 568-1500 Lónsbakka - sími 461-1070 Garðsláttuvélar 3,5 hö - 6 hö Verð frá 19.900,- Ármúla 11 - sími 568-1500 Lónsbakka - sími 461-1070 Garðsláttuvélar Fyrir þá sem gera kröfur um gæði Þýskar gæðasláttuvélar Ármúla 11 - sími 568-1500 Lónsbakka - sími 461-1070 Vélorf Alvöru orf á góðu verði Ármúla 11 - sími 568-1500 Lónsbakka - sími 461-1070 Verð frá kr. 195.000,- Sláttutraktorar 12,5 - 18 hö Brynja Þorgeirsdóttir heitir hún, valkyrjan sem hendist nú vítt og breitt um land ásamt töku- manni og býr til hestaþætti fyrir Ríkissjónvarpið. Allir landsmenn eiga þess kost á að horfa á þættina, en ekki er víst að aðdáendur þeirra viti að umsjónarmaðurinn, hún Brynja, er algjör- lega forfallin hestamanneskja. Hún á tvö hross, hefur verið að spreyta sig á keppnisvellinum á innanfélagsmótum, stundum með góðum árangri, allt upp í fyrsta sæti. Svo sótti hún tíma í reiðkennslu í allan vetur til að bæta um betur. Hún er ekkert frábrugðin öðrum hestamönnum með það, að vilja alltaf vera að prófa eitthvað nýtt, gera betur og betur og jafnvel föndra lítillega við ræktun. Að minnsta kosti fer hryssa sem hún á undir stóðhest í sumar. Sem sagt hestadella eins og hún gerist best. „Þetta byrjaði allt þegar ég fór í sveit sem krakki að Syðstu-Fossum í Borgarfjarðarsveit,“ segir hún. „Þar fór ég á hestbak í fyrsta skipti. Ég varð bara lasin strax, því ég fékk strax þessa bakteríu á háu stigi. Hestamennskan var fólgin í því að við teymdum þessa þægu barnahesta sem við máttum leika okkur á, frá húsinu, hoppa síðan á og þá tóku þeir sprettinn aftur heim að bæ. Og auðvitað vorum við alltaf berbakt. Ég var svo óheppin að vera sú einasta eina í minni fjölskyldu sem hafði áhuga á þessu. Ég þekkti alls engan sem var í hestum. Ég varð einn af þessum krökkum sem hímdi alltaf í hesthúsa- hverfinu og horfði á fólk með vonaraugum að það myndi nú leyfa mér að fara á bak eða bara kemba.“ Það var ekki fyrr en fyrir þremur árum að Brynja keypti sér sinn eigin hest - og síðan annan. Og þar með varð draumurinn að veruleika. Nú tvinnar hún saman vinnuna og áhugamálið með fjölbreyttri umfjöllun um allt sem við kemur hrossum og hestamennsku. Meira að segja ferðalögin á hestbaki, sem hingað til hafa verið ein hennar besta skemmtun, verða í sumar skemmtileg vinna. Þá fer hún á Löngufjörur með Íshestum, þar sem tekið verður upp efni. Í för verða valdir gestir, ekki af verri endanum. Við bíðum spennt. HESTAMAÐURINN: BRYNJA ÞORGEIRSDÓTTIR Varð bara lasin um leið og ég fór á hestbak Hæð, kyn og skeið hafa hvað mest áhrif á ágrip hjá íslenskum kynbótahrossum segir í verðlaunaritgerð Friðriks Más Sigurðssonar sem útskrifaðist nýlega frá Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri. Ágrip er sýnilegur áverki á fótum hesta sem verður til við hreyfingu fóta í reið. Það er afleiðing þess að tá eða innri hluti afturhófs snertir eða grípur á hóf, kjúku eða legg framfótar og veldur sári á húð og öðrum vefjum. Tíðni ágripa hjá íslenskum kynbótahrossum er hærri en hjá öðrum hestakynj- um, segir í lokaritgerð Friðriks Más Sigurðssonar sem útskrif- aðist nýlega frá búvísindabraut við Landbúnaðarháskóla Íslands en hann hlaut fyrir ritgerð sína hæstu einkunn sem veitt var í ár. Friðrik hefur áhuga á öllu sem tengist hestamennsku, en þó mest ræktun. Hugmyndin að rit- gerðinni vaknaði í samtölum við rektor Landbúnaðarháskólans, Ágúst Sigurðsson, en hann er einnig fyrrverandi hrossaræktar- ráðunautur. „Mönnum fannst að ágripum hefði fjölgað en það hafði aldrei beinlínis verið mælt,“ segir Friðrik og bendir á að kyn- bótadómarar og sýningarstjórar hafi reynt að horfa eftir þessum slysum og fundist þróunin vera í þessa átt. Segja má að niðurstöður Friðriks styðji skoðun þeirra enda komst hann að ýmsu merkilegu í athugun sinni. Þrír þættir virðast hafa hvað mest áhrif á ágrip á kynbóta- brautinni. Þar ber fyrst að nefna hæð hestsins. „Eftir því sem hestar eru hærri á herðar miðað við lengd eykst hættan á því að hestar grípi á sig,“ segir Friðrik og bendir á að íslenski hesturinn hafi á síðastliðnum fjörutíu árum hækkað um tíu sentimetra án þess að lengjast neitt af viti. Annað sem hefur áhrif á ágrip hesta í kynbótasýningum er kyn, en stóðhestar grípa mun frekar á sig en hryssur. Fyrst og fremst er talið að það hljótist til af því að meira álag sé sett á stóðhesta í sýningum. Þá bendir Friðrik á að margir af þekktustu stóðhestunum séu jafn háir og þeir eru langir. Þriðji þátturinn sem hefur mikil áhrif á ágrip er skeið. Ef skeið er sýnt á kynbótasýningu aukast líkurnar á ágripi til muna. Skýrist það að mestu leyti af þeim mikla hraða sem hestar eru á. Lokaverkefni Friðriks var mjög viðamikið enda tók það til um 1.900 kynbótasýninga. Þá var það tíma- frekt en að mati Friðriks vel þess virði. Til dæmis gat hann sýnt fram á að léleg einkunn fyrir rétt- leika hefði lítil áhrif á ágrip ólíkt því sem almennt hefur verið talið. Friðrik segir margt ókannað í hestamennsku og útilokar ekki að hann muni leggja í framhaldsnám á því sviði. „Það eru svo mörg svið innan hestamennskunnar sem hægt er að rannsaka og jákvætt allt umhverfi gagnvart rannsókn- um í hestamennsku,“ segir hinn viðkunnanlegi Friðrik sem las ræktunarbækur Jónasar Kristj- ánssonar sem ungur drengur meðan félagar hans lásu Andrés önd. solveig@frettabladid.is Ágrip í kynbótasýningum SVÖÐUSÁR Ágrip er sýnilegur áverki á fótum hesta sem verður til við hreyfingu fóta í reið. Það er afleiðing þess að tá eða innri hluti afturhófs snertir eða grípur á hóf, kjúku eða legg framfótar og veldur sári á húð og öðrum vefjum. FRÉTTABLAÐIÐ/FRIÐRIK MÁR HESTAMAÐUR Í HÚÐ OG HÁR Friðrik Már Sigurðsson skrifaði B.S.-ritgerð sem hefur hlotið hæstu einkunn sem gefin var á búvísindabraut. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Undirbúningur fyrir Norðurlandameistaramótið í hestaíþróttum stendur nú sem hæst. Mótið verður haldið í Danmörku dagana 24. til 30. júlí og má því búast við skemmtilegri upplifun enda stóðu Danir sig með eindæmum vel við mótshald á heimsmeistaramótinu í Herning árið 2003. Búið er að velja dómara sem koma frá öllum Norður- löndunum. Fyrir Íslands hönd dæma þeir Sigurður Kolbeinsson og Einar Ragnarsson sem einnig verður yfirdómari. Fleiri upplýsingar má nálgast á heimasíðu mótsins, www.nm2006.dk. ■ Norðurlandameistaramót í undirbúningi
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.