Fréttablaðið


Fréttablaðið - 15.06.2006, Qupperneq 30

Fréttablaðið - 15.06.2006, Qupperneq 30
 15. júní 2006 FIMMTUDAGUR FRÁ DEGI TIL DAGS ÚTGÁFUFÉLAG: 365 – prentmiðlar RITSTJÓRAR: Kári Jónasson og Þorsteinn Pálsson FRÉTTARITSTJÓRI: Sigurjón M. Egilsson AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Jón Kaldal FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir, Sigríður Björg Tómasdóttir og Trausti Hafliðason FULLTRÚI RITSTJÓRA: Björgvin Guðmundsson RITSTJÓRNARFULLTRÚI: Steinunn Stefánsdóttir RITSTJÓRN OG AUGLÝSINGAR: Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík AÐALSÍMI: 550 5000 SÍMBRÉF Á FRÉTTADEILD: 550 5006 NETFÖNG: ritstjorn@frettabladid.is og auglysingar@frettabladid.is VEFFANG: visir.is UMBROT: 365 – prentmiðlar PRENTVINNSLA: Ísafoldarprentsmiðja ehf. DREIFING: Pósthúsið ehf. dreifing@posthusid.is Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. issn 1670-3871 Síðustu árin, sem hann lifði, var Leoníd Brésnef geymdur í spritti, sumir segja formalíni, líkt og Lenín. Hann var borinn milli staða uppstoppaður, stífur og staursleg- ur: það var talið lífshættulegt að kveikja á eldspýtu í návist hans. Brésnef var þó næstum eins og spriklandi lax í samanburði við ríkisstjórn Íslands eins og nú er ástatt fyrir henni ári fyrir alþing- iskosningar. Hvers vegna geymdu þeir hann ekki heldur í seðlabank- anum? - til að spara sprittið. Ég held ég viti svarið: það hefði þótt einum of gróft þarna austur frá. Yfirvofandi dauðastríð ríkis- stjórnar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins hefur snúizt upp í farsa. Það mátti sjá hvert stefndi strax í stefnuyfirlýsing- unni vorið 2003. Hún geymdi mest- megnis almennt og innihaldslaust loforðaglamur, eins og ég lýsti á þessum stað fyrir viku, og vand- legar áætlanir um veizluhöld, sem urðu síðan að almennu athlægi. Forsætisráðherrann gleymdi að bjóða forseta Íslands í heima- stjórnarafmælið, og annað var eftir því. Það er einnig vert að rifja það upp, að ríkisstjórnin vann 34 þingsæti 2003 gegn 29 þingsætum stjórnarandstöðunnar, og ýmislegt þótti benda til þess, að eitt þessara 34 þingsæta væri illa fengið. Stjórnarandstaðan kærði framkvæmd kosningarinnar, en nýi þingmeirihlutinn tók sjálfur að sér að úrskurða, að allt væri með felldu. Það var því minni munur á Íslandi 2003 og Flórída þrem árum fyrr en margur skyldi halda. Kjarni málsins er þó sá, að kosningalögin, sem Alþingi setur landinu, hygla stórum flokkum á kostnað minni flokka. Sjálfstæðis- flokkurinn og Framsóknarflokk- urinn hafa fengið eitt til tvö þing- sæti samtals í forgjöf í hverjum alþingiskosningum síðan 1979 í krafti þeirrar aðferðar, sem þeir leiddu sjálfir í lög til að úthluta þingsætum að loknum kosning- um. Þessi bjögun bætist ofan á misvægi atkvæðisréttar eftir búsetu. Ef kosningalögin hér heima væru eins og þau eru í Dan- mörku, Noregi og Svíþjóð, hefðu stjórnarflokkarnir fengið 32 þing- sæti 2003 gegn 31 þingsæti stjórn- arandstöðuflokkanna, og núver- andi ríkisstjórn hefði þá varla verið mynduð. Völd núverandi alþingismeirihluta eru illa fengin í þessum skilningi líkt og völd rík- isstjórnar Bush forseta í Banda- ríkjunum: þau endurspegla ekki vilja þjóðarinnar eins og hann myndi birtast, ef kosningalögin væru eins og þau ættu að vera, og ferill beggja ríkisstjórna - spill- ingin, græðgin, vitleysan - verður ef til vill skiljanlegri í þessu ljósi. Vandinn hér er sá, að ríkisstjórn- arflokkarnir tveir hafa áratugum saman náð að sveigja kosninga- lögin og kjördæmaskipanina sjálf- um sér í hag. Illa fengin völd eru eins og annað þýfi: menn fara jafnan illa með þau. Það þarf því ekki að koma nein- um á óvart, að landsstjórnin und- angengin ár hefur ekki gengið sem skyldi, og nú er þetta allt saman að koma í ljós. Varnaðar- orð þeirra, sem sáu í gegnum brestina frá öndverðu, voru að engu höfð: þau drukknuðu í veizluglaumnum. Merkilegast af öllu er kannski það, að ríkisstjórn- in þrætti fram í rauðan dauðann fyrir það, að gengi krónunnar væri of hátt skráð, gengið féll síðan um fjórðung, og stjórnin þrætir enn; þar á bæ ræða menn nú leiðir til þess að hækka gengið aftur. En nú er veizlunni að ljúka: örlagastundin nálgast grimm og köld, svo að ég vitni enn í Snorra Hjartarson. Ríkisstjórnin hefur misst tökin á efnahagsmálunum. Stöðugleikinn er rokinn út í veður og vind, verðbólgumarkmið Seðla- bankans er markleysa, krónan heldur áfram að falla, verklýðs- hreyfingin er í viðbragðsstöðu, og erlendar skammtímaskuldir þjóð- arbúsins tvöfölduðust fyrstu þrjá mánuði þessa árs (þetta er ekki prentvilla). Stjórn ríkisfjármála og peningamála er í uppnámi. Gunnar Tómasson, einn reyndasti hagfræðingur landsins, lýsti pen- ingastjórninni svo í Morgunblað- inu um daginn, að hún sé ,,atlaga að almannahag“. Og hvernig ætti annað að vera? Seðlabankanum var árum saman stjórnað af manni, sem hafði það hlutverk helzt að geyma banka- stjórastólinn handa flokksfor- manni sínum og stóð síðan upp eins og ekkert væri, þegar for- maðurinn þurfti að komast að; það hefur ekki spurzt til forverans síðan. Enginn spyr hann álits á ástandi og horfum efnahagsmál- anna, enda hafði hann aldrei neitt um þau að segja á eigin forsend- um. Og nú blasir það við, sem margir vissu, að fráfarandi seðla- bankastjóri Framsóknarflokksins gegndi sama hlutverki: að verma stólinn handa formanni sínum. Þeir geta þá stumrað hvor yfir öðrum, vinirnir. Dvínandi glaumur Í DAG ÁSTAND ÞJÓÐAR- BÚSINS ÞORVALDUR GYLFASON Stöðugleikinn er rokinn út í veður og vind, verðbólgumark- mið Seðlabankans er mark- leysa, krónan heldur áfram að falla, verklýðshreyfingin er í viðbragðsstöðu, og erlendar skammtímaskuldir þjóðar- búsins tvöfölduðust fyrstu þrjá mánuði þessa árs (þetta er ekki prentvilla). Su›urlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Sími 540 7000 • www.falkinn.is • Léttbygg› hjól • Bur›armikil hjól • Húsgagnahjól • Ry›frí hjól • I›na›arhjól VAGNHJÓL E in n t v e ir o g þ r ír 3 1. 29 4 Nýr meirihluti hefur tekið við í borgarstjórn Reykjavíkur. Í almennu pólitísku samhengi markar sá atburður nokk-ur tímamót með því að þetta er í fyrsta sinn sem Sjálf- stæðisflokkurinn á aðild að meirihluta í borginni í samstarfi við annan flokk. Þetta er einnig fyrsti meirihlutinn í Reykjavík sem kjósendur hafa ekki valið beint. Um margt er því eðlilegt að mismunandi sjónarmið komi fram um deilingu valda og ábyrgðar milli flokka af jafn ólíkri stærð og raun er á. En það eru þó aukaatriði. Það er stefna nýja meirihlutans sem skiptir máli. Þegar upp verður staðið er það hún og framkvæmd hennar sem ræður dómum borgaranna. Í ljósi umræðunnar fyrir kosningar kemur fátt á óvart í stefnuskrá meirihlutans. Hún er í samræmi við þau fyrirheit sem gefin voru í kosningabaráttunni. Þungi áformanna er á sviði velferðar- og fjölskyldumála. Þó að útfærslur í kosningastefnuskrám flokkanna hafi verið mis- munandi á þessum sviðum hnigu þær í öllum grundvallaratrið- um í sömu átt. Fyrir þá sök má vænta ágreinings milli meiri- og minnihluta borgarstjórnar um einstök efnistök fremur en um grundvallar hugmyndafræði. Efst á málefnaskrá meirihlutans eru mál af þessu tagi. Þar má nefna byggingu leigu- og þjónustuíbúða fyrir aldraða. Þau viðfangsefni eru sannarlega svar við þungri almennri kröfu. Það er einfaldlega gott til þess að vita að þessar úrbætur í málefnum aldraðra skuli vera komnar efst á forgangslista framkvæmd- anna. Barnafjölskyldur hljóta einnig að fagna lækkun gjalda á leik- skólum. Á sama hátt geta barnafjölskyldur glaðst yfir áformum sem miða að því að auðvelda börnum þátttöku í fjölbreyttu íþrótta- og félagsstarfi. En sú krafa stendur jafnframt á meiri- hlutann að láta þessi áform ekki veikja fjárhagsstöðu borgar- sjóðs. Satt best að segja hefur skort á það í stjórnmálaumræðu hér á landi að fyrirheit um útgjöld væru með skýrum hætti tengd fjár- öflun. Meðal margra annarra þjóða er stjórnmálaumræðan undir meiri aga að þessu leyti. Nýi meirihlutinn myndi gera gott í því að setja sjálfan sig undir harðan aga að þessu leyti til. Um það bil sem kosningabaráttan var að hefjast var á þessum vettvangi varað við því að frambjóðendur til borgarstjórnar lof- uðu kjósendum um of framkvæmdum úr ríkissjóði. Þó að ríkis- sjóður kosti ýmsar framkvæmdir sem tengjast borgarsamfélag- inu á borgarstjórn að takmarka útgjaldaloforð sín við borgarsjóð. Nýi meirihlutinn hefur nú lofað mislægum gatnamótum þar sem Kringlumýrarbraut og Miklabraut mætast. Jafnframt hefur hann lofað að framkvæmdir muni hefjast við Sundabraut. Hvort tveggja er á kostnað ríkissjóðs. Nú háttar svo til að opinberir aðilar, bæði ríki og sveitarfélög, verða að leggja talsvert af mörkum til þess að ná stöðugleika á ný í þjóðarbúskapnum. Það mun ekki gerast nema ríkið fresti ýmsum framkvæmdum sem verið hafa á döfinni. Það getur ekki talist ábyrg afstaða taki borgarstjórnarmeiri- hlutinn ekki fullan þátt í því viðfangsefni. Loforð um þessi kostn- aðarverkefni ríkissjóðs veldur því miklum vonbrigðum eins og sakir standa. Ekkert mál er nú mikilvægara en að koma böndum á verð- bólguna. Í umferðinni í Reykjavík er taugaveiklun meira vanda- mál en skortur á malbiki og steinsteypu; án þess að lítið skuli gert úr mikilvægi góðra æða í umferðinni. SJÓNARMIÐ ÞORSTEINN PÁLSSON Nýr borgarstjórnarmeirihluti: Haldið úr hlaði með baggana Mest lesna viðskiptablaðið AUGLÝSINGASÍMI 550 5000 FYLGIR FRÉTTABLAÐINU ALLA MIÐVIKUDAGA Sa m kv æ m t fj ö lm ið la kö n n u n G al lu p o kt ó b er 2 00 5. Umtalað jafnrétti Dagur B. Eggertsson, borgarfulltrúi Sam- fylkingarinnar, hefur gagnrýnt harðlega kosningu borgarstjórnar í stjórnir, ráð og nefndir á vegum Reykjavíkurborgar. Bakslag hafi orðið í jafnréttisbaráttunni. Bæði Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson og Björn Ingi Hrafnsson hafna þessari túlkun Dags og telja hlut kvenna ágætan - að því gefnu að varamenn séu taldir með. Dagur vitnar í tölur máli sínu til stuðn- ings og má segja að hann hafi nokkuð til síns máls. Til dæmis má spyrja af hverju Þorbjörgu Helgu Vigfúsdóttur, sem hefur setið í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur, var kippt þaðan út. Vilhjálmur réð hvernig málum var háttað þar á bæ fyrir hönd sjálfstæðis- manna. Það vekur líka athygli að Guðlaugur Þór Þórðarsson mun einungis gegna formennsku í stjórn Orkuveit- unnar í eitt ár - fram að þingkosningum. Þá tekur Haukur Leósson við og eftir tvö ár Björn Ingi Hrafnsson. Af hverju þenn- an hringlandahátt í stærsta fyrirtæki borgarinnar? Fyrsti fundurinn Björn Ingi Hrafnsson benti réttilega á það á þriðjudaginn að hann var að sitja sinn fyrsta borgarstjórnarfund. Kannski var það dæmi um reynsluleysi Björns Inga að hann gleymdi að taka með sér penna á fundinn. Þegar kjósa átti forseta borgarstjórnar í upphafi þurfti hann að fá lánaðan penna til að setja X á réttan stað. Þegar búið var að kjósa forseta borgarstjórnar og borgarstjóra settust Vilhjálmur og Hanna Birna Kristjánsdóttir við háborðið í borgarstjórnarsalnum. Björn Ingi færði sig þá í stól Vilhjálms, þar sem hann sat allt síðasta kjörtímabil, mitt á milli sjálfstæðismanna. Líklega til merkis um þá samstöðu sem ríkir í meirihlutanum. Þekktir frambjóðendur Sigmar Vilhjálmsson, eða Simmi í Idol, var kjörinn varamaður í stjórn Íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkur á þriðjudag- inn. Sigmar las inn á auglýsingar Björns Inga í kosningabaráttunni og er fulltrúi meirihlutans í stjórn ÍTR. Spurning hvort hann sé orðinn einn af fjölmörgum stuðningsmönnum Framsóknarflokksins. Andri Snær Magnason var líka boð- inn fram á fundi borgarstjórnar á fyrir hönd Frjálslynda flokksins. Vekur það athygli því Andri Snær var orðaður við Vinstri græna í aðdraganda borgar- stjórnarkosninganna. bjorgvin@frettabladid.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.