Fréttablaðið - 15.06.2006, Blaðsíða 31
FIMMTUDAGUR 15. júní 2006 31
Orion herrasett
Orion dömusett
Venus barnasett
Fatnaður með öndunarfilmu
og góða regnheldni.
Stærðir: S - XXL
Verð: 7.990 -
Stærðir: 36 - 44
Verð: 7.990 -
Stærðir: 110 - 170
Verð: 5.990 -
Eitt af því sem hlýtur að vera
nauðsynlegt hverjum stjórnmála-
flokki er að kjósendur viti nokkurn
veginn fyrir hvað hann stendur.
Hver eru grundvallarsjónarmiðin
og framtíðarsýnin? Ekki síst er
þetta mikilvægt í dag eftir að
stjórnmálin hafa færst nær miðj-
unni. Fylgistap Framsóknar-
flokksins í síðustu sveitarstjórn-
arkosningum má því að verulegu
leyti skrifast á tiltölulega óljós
grundvallarsjónarmið hans í
ýmsum veigamiklum málum.
Þegar þannig er komið fyrir
stjórnmálaflokki er ekki nema
eðlilegt að fylgið við hann fari ört
minnkandi og endi nánast í fylgis-
hruni eins og nú hefur gerst hjá
elsta stjórnmálaflokki þjóðarinn-
ar. Skýrasta dæmið í þessu sam-
bandi og það afdrifaríkasta hafa
verið gjörólík sjónarmið formanns
og varaformanns Framsóknar-
flokksins til Evrópumála, en Evr-
ópumálin eiga eftir að verða mestu
átakamálin í íslenskum stjórnmál-
um á komandi árum, því þau snú-
ast um fullveldi og sjálfstæði
íslenskrar þjóðar. Framganga
Halldórs Ásgrímssonar, formanns
Framsóknarflokksins, í Evrópu-
málum hefur verið undarleg svo
ekki sé meira sagt, og á stóran
þátt í því fylgistapi sem flokkur-
inn stendur nú frammi fyrir.
Hið farsæla ríkisstjórnarsam-
starf Framsóknarflokks og Sjálf-
stæðisflokks hefur ekkert með
fylgistapið að gera, eins og stjórn-
arandstaðan heldur fram. Evrópu-
sambandssýn formannsins, erjurn-
ar innan Framsóknarflokksins, og
misráðið R-listasamráð til 12 ára
eru þar helsti orsakavaldurinn.
Greinarhöfundur hefur stutt
Framsóknarflokkinn og verið félagi
í honum í nær 30 ár. Skömmu fyrir
kosningar skildu leiðir. Úrsögn úr
Framsóknarflokknum var óumflýj-
anleg. Ímynd flokksins sem þjóð-
legs stjórnmálaflokks er ekki leng-
ur fyrir hendi, enda uppskar hann
samkvæmt því. Sem stuðningsmað-
ur núverandi ríkisstjórnar var hins
vegar Sjálfstæðisflokkurinn kos-
inn. Veit að svo fór um marga aðra
kjósendur Framsóknarflokksisns
sem standa vilja vörð um hin þjóð-
legu gildi, sjálfstæði og fullveldi
íslenskrar þjóðar.
Fylgistap
Framsóknar
UMRÆÐAN
GUÐMUNDUR JÓNAS KRISTJÁNSSON
BÓKHALDARI SKRIFAR UM FRAMSÓKNAR-
FLOKKINN
Hið farsæla ríkisstjórnarsam-
starf Framsóknarflokks og
Sjálfstæðisflokks hefur ekkert
með fylgistapið að gera, eins
og stjórnarandstaðan heldur
fram.
Í dag, þann 15. júní, er fyrsti
alþjóðlegi baráttudagurinn gegn
ofbeldi á öldruðum haldinn um
allan heim. Tilgangurinn með
deginum er að leiða huga fólks að
þessu málefni og þeim menning-
arlegu, félagslegu og fjárhags-
legu áhrifum sem ofbeldi á öldr-
uðum getur haft í för með sér.
Atburðir, sem með einum eða
öðrum hætti benda á mikilvægi
forvarna gegn ofbeldi á öldruð-
um, verða á dagskrá í hinum
ýmsu löndum heims og var mál-
þing um forvarnir gegn ofbeldi á
öldruðum sem haldið var af Þjón-
ustumiðstöð Laugardals og Háa-
leitis í samvinnu við Félag eldri
borgara, Velferðarsvið Reykja-
víkurborgar og Öldrunarfræða-
félag Íslands þann 8. júní síðast-
liðinn haldið í tengslum við
daginn.
Á málþinginu tóku til máls Sig-
rún Ingvarsdóttir, félagsráðgjafi
hjá Þjónustumiðstöð Laugardals
og Háaleitis, Einar Már Guð-
mundsson rithöfundur, Matthías
Halldórsson aðstoðarlandlæknir,
Margrét Margeirsdóttir, formað-
ur Félags eldri borgara, Halldór
Reynisson, verkefnastjóri
fræðslusviðs Biskupsstofu og
Sigríður Jónsdóttir, skrifstofu-
stjóri velferðarsviðs.
Í máli þeirra kom fram að
ofbeldi á öldruðum er víða dulið
vandamál og fullyrða megi að
ekkert land í heiminum sé með
öllu laust við þann vanda. Ef ekk-
ert er að gert má búast við að
þessi tegund ofbeldis fari vax-
andi á næstu árum þar sem mjög
fjölgar í elsta hluta þjóðfélagsins.
Farið var yfir það hvað nágranna-
þjóðir okkar gera til varnar þessu
þjóðfélagsmeini og sýnt þótti að
Íslendingar þyrftu að fara yfir
hvað það væri sem þeir geta gert
betur. Töldu málshefjendur brýnt
að kerfi samfélagsins tækju hönd-
um saman um forvarnir gegn
ofbeldi á öldruðum og var ýmsum
leiðum velt upp varðandi sam-
starf kerfanna.
Gerð var óformleg skoðana-
könnun meðal málþingsgesta og
svöruðu alls 70 manns könnun-
inni. Spurt var hvort innleiða ætti
tilkynningaskyldu ef starfsfólk í
þjónustu við aldraða grunar að
ofbeldi eigi sér stað gagnvart
öldruðum. Yfir 90% þátttakenda í
könnuninni svöruðu játandi en
jafnframt komu fram athuga-
semdir um að það ferli sem færi
af stað við tilkynningu yrði að
vera skýrt, þ.e. hver tekur við til-
kynningunni, hvernig bregst sá
aðili við og til hvaða úrræða getur
hann gripið.
Mörgum spurningum, ekki síst
siðfræðilegum, er ósvarað. Við
gerum okkur engar vonir um að
leysa vandann á einum degi, en
hér með hefjumst við handa. Með
því að leggjast á eitt getum við
vakið athygli og komið upplýsing-
um til skila til þjóðfélagsins.
Við vitum af fenginni reynslu
að það hefur áhrif. Fjólublár er
litur dagsins og vill greinarhöf-
undur hvetja ykkur til að klæðast
einhverju fjólubláu í tilefni dags-
ins.
Alþjóðlegur baráttudagur gegn ofbeldi á öldruðum
UMRÆÐAN
OFBELDI
SIGRÚN INGVARSDÓTTIR
FÉLAGSRÁÐGJAFI
Í máli þeirra kom fram að of-
beldi á öldruðum er víða dulið
vandamál.
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI