Fréttablaðið - 15.06.2006, Síða 35

Fréttablaðið - 15.06.2006, Síða 35
FIMMTUDAGUR 15. júní 2006 3 Hátískan (Haute couture) má muna sinn fífil fegri og hefur hátískuhúsunum fækkað á síð- ustu árum. Í heimsvæðingunni tapast eitt og annað í verkmenn- ingu og listgreinum vegna þess hversu ódýrt er að framleiða í Asíu og víðar. Ekki þó allt. Tískuhúsið Chanel í París hefur keypt nokkur gömul handverks- fyrirtæki sem áður voru í eigu fjölskyldna til að koma í veg fyrir að þessi hefð hverfi. Þetta á til dæmis við um Des- rues hnappaframleiðandann sem á sjötíu árum hefur fram- leitt 80.000 mismunandi gerðir hnappa, framleiðir nú 4.000 hnappa á dag og býður átta hundruð mismunandi hnappa á ári sem tískuhúsin velja til að nota í framleislu sinni. Chanel, Louis Vuitton og fleiri sverja og sárt við leggja að nota eingöngu hnappa frá Desrues sem eru úr ýmsum efnum; kopar, silfri, viði, með gyllingu, glerjungi og svo mætti lengi telja. Að auki sem þeir hafa verið Karl Lager- feld uppspretta að margs konar skarti. Í dag hafa nútímalegar aðferðir bæst við þær sem áður voru notaðar eins og leysigeisli til að skera eða munstur gert með tölvutækni. Sama má segja um hattagerð Michel sem stofnuð var árið 1936 og hefur saumað hatta fyrir alla frægustu tískuhönn- uði heims í gegnum tíðina, jafnt stráhatta sem úr virðulegri efnum eins og sléttflaueli, sat- íni eða leðri. Hjá Michel sem enn er við Sainte Anne-götu í París er varðveitt ótrúlegt safn þrjú þúsund hattamóta en fyrir- tækið komst í eigu Chanel 1996. Árið 1900 voru yfir þrjú hundruð verkstæði sem fram- leiddu fjaðrir fyrir tískuhús, 1960 voru þau rétt fimmtíu og í dag er Lemarié nánast það eina sem eftir er í Frakklandi. Það var því einstök menningararf- leifð sem komst í eigu Chanel 1997. Og þó að Paradísarfuglinn sé nú friðaður þá eru strúts- og svanafjaðrir fluttar inn frá Afríku, þær eru litaðar, krullað- ar, klipptar og nýjar saumaðar úr mörgum fjaðrategundum. Lesage-fyrirtækið sér um útsauminn sem getur náð því að vera 2000 vinnustundir eins og við hátískukjólana ,,Coromandel“ sem Karl Lagerfeld hannaði fyrir Chanel veturinn 1996-7. Útsaumurinn getur verið með perlum, steinum sem Swarov- ski-kristöllum sem demöntum, allt saman að sjálfsögðu saumað með silkitvinna í öllum regnbog- ans litum. Hjá Lesage eru varð- veitt 40.000 sýnishorn af útsaumi sem raðað er eftir árstíðum í röð eins og á skjalasafni. Og til að tryggja að þessi arfleifð lifi hefur François Lesage í áratug rekið útsaumsskóla. Hér er aðeins í nokkrum orðum talað um ótrúlegar list- greinar. Tískan er nefnilega ekki bara stundarfyrirbæri heldur list, menningararfleifð varðveitt í landi tískunnar eins og handrit á Íslandi. bergthor.bjarnason@wanadoo.fr Úr háborg tískunnar BERGÞÓR BJARNASON SKRIFAR FRÁ PARÍS Þúsund litlar hendur Andlitskrem og líkamsgel sem gerir húðina slétta og fallega. High Résolu- tion Collaser- 48TM er and- litskrem sem lagfærir hrukkur og eykur fjaður- magn og ljóma húðarinnar. Kremið eykur magn kollagens um 69 prósent á 48 klukku- stundum og áferð húðar- innar verður flauelsmjúk og slétt. Slim Suc- cess Lypolyzer- TM er gel sem dregur úr ummáli og appelsínuhúð. Gelið er borið á mjaðmir, maga og rass kvölds og morgna og eftir eina viku á appel- sínuhúð að hafa minnkað sýnilega og eftir einn mánuð á ummál að hafa minnkað til muna. Nýtt frá Lancome Líkamsgel sem minnkar appelsínuhúð og ummál. Andlits- krem sem lagfærir hrukkur. Stjörnurnar klæddust svörtum kjólum á Tony-verðlaununum. Svartir kjólar voru vinsælir á Tony-verðlaunahátíðinni sem hald- in var síðasta sunnudagskvöld. Fyrir utan litinn voru kjólarnir þó ekki allir eins. Rita Wilson hafði svart belti með slaufu um mittið og Oprah Winfrey var í vöfðum satínkjól. Af öðrum svartklædd- um konum má nefna Glenn Close sem bar sig vel í flegnum kjól og Juliu Roberts sem heillaði við- stadda með glæsilegum kjól, opnum í bakið. Svartur var aðaltískuliturinn síðasta vetur og það lítur út fyrir að hann verði það aftur næsta vetur, þá í bland við hvítan lit. Alltaf klassískt Julia Roberts. Glenn Close. Oprah Winfrey. 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI Þú nærð árangri hjá okkur Losum þig við appelsínuhúð Grennum, stinnum, afeitrum og brúnkum Velkomin í prufutíma Pantaðu tíma í síma 587-3750 Englakroppar.is Stórhöfða 17 N† VÖRU- OG fiJÓNUSTU- SKRÁ Á VISIR.IS/ALLT ... sem flig vantar í n‡ja húsnæ›i›
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.