Fréttablaðið - 15.06.2006, Page 38

Fréttablaðið - 15.06.2006, Page 38
[ ] Það er um að gera að hressa aðeins upp á heimilið yfir sum- artímann og hleypa sumarlit- unum inn fyrir dyrnar. Blaða- maður Fréttablaðsins kíkti í heimsókn í tvær blómabúðir og skoðaði úrvalið á sumarlegum vörum fyrir heimilið. Í Blómavali er mikil litadýrð og gott úrval ýmissa smáhluta sem geta lífgað upp á hillurnar og stofu- borðið. Lára Gyða Bergsdóttir er útstillingahönnuður hjá Blómavali og segir að því fleiri litir og munst- ur inni á heimilinu þeim mun líf- legra verði það. Það er víst allt leyfilegt í sumar. „Sumarsmellur- inn í ár eru margir vasar í mismun- andi litum og gerðum og skemmti- legast er að blanda þeim saman. Það er alveg jafn smart að hafa vas- ana tóma en það er samt ekkert verra að fá blómvönd af og til og skella í þá. Blómstrandi blóm í skrautlegum blómapottum gefa líka sumarlegan blæ og litrík blóm eins og gerberur í háum vasa. Svart og hvítt þema er mikið í tísku í sumar og verður áfram. Það er sumarlegt að blanda saman tvílit við einlit, eins og límónu- grænum við svart-hvíta mynstrið. Þá ertu komin með hásumar,“ segir Lára Gyða. Sumartískan í blómabúðunum þarf ekki að ein- skorðast við skæra liti og skrautleg munstur. María Más- dóttir blómaskreytir og eigandi búðarinnar Blóma- hönnun sinnir þörfum þeirra sem eru sífellt á far- aldsfæti yfir sumartímann. „Við erum með pottablóm í álpottum sem eru algjörlega viðhaldsfríir og svo er hægt að setja alls kyns skraut ofan í pottana allt eftir árstíðum og tilefni. „Til dæmis er sólblóm í þannig potti bara gargandi sumar. Við erum með plöntur eins og tann- hvössu tengdamömmuna, berg- fléttu og frostþurrkuð strá en græni liturinn á þeim er hlýlegur og minn- ir mann á íslenskt sumar. Það er einnig hægt að setja fusk, sem er eins og gras eða hreiður, í pott- ana. Það er hægt að fá fuskið í öllum litum, skærum og neon- lituðum, þannig að það er hægt að gera græna litinn enn sumarlegri. Allar þess- ar skreytingar eiga það sameig- inlegt að ekki þarf að nostra við þær eða vökva. Þannig að þá þarf ekki að hafa áhyggjur þegar farið er í sumarfrí og þær eru einnig til- valdar til að hressa upp á sumarbú- staðinn,“ segir María að lokum. erlabjorg@frettabladid.is Flott er að blanda límónugrænum og túrkísbláum saman og raða vösunum óreglu- lega upp. Svart og hvítt þema er ríkjandi í sumar og fallegir blómavasar, með blómum eða án. Sumarlegt í stofunni María er blómaskreytir og eigandi verslun- arinnar Blómahönnun. Lára Gyða er útstillingahönnuður í Blómavali. Blómstrandi blómið ástareldur er sumarlegt pottablóm og gerberur í vasa lífga upp á heimilið. Það er fátt jafn sumarlegt og sólblóm. Í pottinum er svokall- að fusk sem hægt er að fá í margs konar litum. Tannhvassa tengda- mamma er blóm sem þarf ekki að vökva á meðan á sumarfríinu stendur. Frostþurrkuð strá í álpotti eru mjög vinsæl þessa dagana. Heimilissiðir eru ýmsir til og sinn er siður í landi hverju. Það þykir til dæmis mesta ókurteisi að fara ekki úr skóm áður en gengið er inn á heimili í Japan. Áskriftarsími 586 8005 Tímaritið Gróandinn aldrei glæsilegri Áhugavert og fræðandi tímarit um garðyrkju, grænmeti, skógrækt og skreytingar Áskriftarsími 586 8005 Kíkið á þetta! Gómsætt á grillið Tjarnargerð Glæsigarður á Akureyri

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.