Fréttablaðið - 15.06.2006, Qupperneq 39
FIMMTUDAGUR 15. júní 2006 7
Skítugur
örbylgjuofn
ÖRBYLGJUOFNAR GETA ORÐIÐ ANSI
SKÍTUGIR EN ÞAÐ ÞARF EKKI AÐ
VERA MIKIÐ MÁL AÐ KIPPA ÞVÍ Í
LIÐINN.
Gott ráð til að þrífa örbylgjuofninn
er að setja nokkrar sítrónusneiðar
á disk og svo inn í örbylgjuofninn.
Örbylgjuofninn er svo settur af stað í
tíu mínútur. Að þessu loknu tekurðu
sítrónurnar út úr ofninum og strýkur
yfir hann með rakri tusku. Þá eru
sítrónurnar búnar að leysa upp öll
óhreinindi í örbylgjuofninum og
íbúðin angar af ferskum sítrónuilmi.
Ef ofninn er mjög skítugur gæti
verið þörf á að endurtaka leikinn
einu sinni. Þetta náttúrulega ráð
virkar einnig á bakaraofninn og er
mun sniðugra en að nota eitruð
hreinsiefni sem sitja föst í ofnunum í
langan tíma.
húsráð }
Blómavalsverslanirnar lækka
verð á sumarblómum.
Verslanir Blómavals eru í þjóðhá-
tíðarskapi og bjóða af því tilefni
upp á sumarblóm á stórlækkuðu
verði. Þeir sem hafa því ekki enn
komið sér upp sumarlegu blóma-
umhverfi geta gripið þetta góða
tækifæri og fegrað umhverfið
sitt.
Á tilboðsdögum Blómavals má
meðal annars má fá tíu stjúpur á
399 krónur eða fjögur stykki af
sólboða á 999 krónur. Einnig flau-
elsblóm á 499 krónur, hengilobelíu
á 399 krónur og fjögur stykki af
margarítum á 999 krónur.
Auk góðra tilboða á fallegum
blómum er veittur 25 prósent
afsláttur af frostþolnum útipott-
um.
Þjóðhátíðar-
blóm
Sumarblóm eru á tilboði í verslunum
Blómavals. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Svefnherbergið er fyrir mörgum
mikilvægasti staðurinn á heimil-
inu. Þeir sem búa í lítilli íbúð nota
svefnherbergið til lesturs, náms,
svefns og ef börnin sofa inni í
herberginu líka þá þarf einnig að
koma fyrir leikföngum og leik-
plássi. Það er því mikilvægt að
raða vel í herbergið og nota hinar
ýmsu hönnunarlausnir til þess að
herbergið verði huggulegt þrátt
fyrir mörg hlutverk.
Stórir púðar og fallegt rúm-
teppi geta breytt rúminu í sófa á
daginn. Þá er hægt að nota rúmið
til þess að lesa fyrir barnið eða
eiga huggulega stund saman.
Vegghillur spara ótrúlega mikið
pláss. Það er sniðugt að setja
vegghillur upp á veggi sem nýt-
ast annars ekki, til dæmis fyrir
ofan rúmið. Svo er hægt að setja
lítinn leslampa á hilluna, bækur
og vekjaraklukkuna og nýta
þannig hilluna sem náttborð. Box
og skrautlegir kassar fara vel
uppi á fataskáp. Þar er hægt að
geyma ýmsa smáhluti eða leik-
föng og auka þannig við gólf-
plássið og losna við óreiðu þar.
Einnig er tilvalið að geyma hluti
og dót í skúffu sem er rennt undir
rúmið.
Til þess að gera svefnherberg-
ið stílhreinna er tilvalið að nota
hvítan lit í bland við mýkri liti.
Þannig verður herbergið hlýlegt
en jafnframt bjart.
Upplagt er að hafa til dæmis
hvít gluggatjöld og hvíta veggi
en hlýleg húsgögn og munstrað
rúmteppi - já eða öfugt. Kerti á
hillunum eða náttborðinu gefa
herberginu rómantískan blæ og
myndir í römmum gera herberg-
ið persónulegra.
Það eru margir sem gleyma
svefnherberginu þegar að því
kemur að gera heimilið fallegt
en það þarf ekki að vera mikið
mál að gefa því smá andlitslyft-
ingu. Þannig er hægt að nýta her-
bergið til ýmislegs annars en ein-
ungis til svefns.
Huggulegra svefnherbergi
Svefn, lestur, vinna og leikur í einu herbergi
Svefnherbergið er hentugt fyrir hvíldina
sem starfið.
Nýjasta frá Tívolí
iSongBook
Ferða-afspilunartæki fyrir iPod er
Stereóútvarp í hæsta gæðaflokki
með öflugan móttakara og ótrúleg
hljómgæði. Þú verður að skoða
þetta fyrir sumarið, í sumarbústaðinn,
fellihýsið, tjaldið eða hvar og hvenær
sem þér dettur í hug. Fæst í Hljómsýn,
Mirale, Duka og Halldóri Ólafssyni.
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI