Fréttablaðið - 15.06.2006, Síða 40

Fréttablaðið - 15.06.2006, Síða 40
 15. júní 2006 FIMMTUDAGUR www.badheimar.is Nú er nýja heimasíðan komin í gagnið! B Ný og stærri verslun - Skemmuvegi 6 (blá gata)- Sími 568-2221 Allt fyrir brúðhjónin postulín, gjafavörur & húsgögn BORÐ FYRIR TVO KRINGLUKAST 14-18 júní Mörg góð tilboð Kryddjurtir eru mál málanna um þessar mundir. Sumarið að komast í algleyming og búið að pússa upp öll útigrill sem fyrirfinnast á heimilum. Og þeir sem ekki áttu útigrill hafa margir ráðið bragarbót á því. Sumir hafa jafnvel yngt upp og endurbætt hjá sér með nýjum, ryðfríum útigrillum sem nú eru óðum að leggja undir sig íslenska markaðinn. Eiginlega er útigrillið að mestu leyti í umsjá karlanna á heimilunum. Matseld á útigrilli er „macho“ og allt að því heilög karl- mennskuathöfn fyrir suma. En til að undirstrika karlmennsk- una henta kryddjurtirnar afar vel og eru eiginlega nauðsyn- legar til þess að tryggja að athyglin beinist að því hversu grillarinn er mikill meistarakokkur, því að lokahnykkurinn felst í því að gera sjálfur kryddsmjörið með krásunum. Og þá er komið að kryddjurtunum. Þær gera útslagið. Ecco eða Nike? Eiginlega er fátt auðveldara en að annast nokkrar kryddjurtir utandyra yfir hásumarið. Hér verður ekkert tíundað um sán- ingu og uppeldi þeirra. Við erum nefnilega svo heppin að nú fást tilbúnar kryddjurtir í pottum svo að segja árið um kring. Og þó svo að eitthvað af þeim misfarist eða klárist, er alltaf hægt að bæta í skörðin. Það eina sem kryddjurtirnar þurfa er dálítil mold í keri eða pottum eða bara í hvaða dollu sem er - það má líka nota gömlu vinnuklossana eða íþróttaskóna undir þær. Aðeins þarf að hafa plönturnar á sólríkum stað og muna eftir að vökva þær reglulega þegar þurrt er í veðri. Fal- legt og fjölskrúðugt kryddjurtasafn er róandi og lystaukandi. Átta ágætar og ein í viðbót Á myndina af kryddjurtakerinu mínu eru settar inn tölur frá 1 til 8 sem benda á helstu kryddjurtirnar sem þurfa að vera nálægt útigrillinu. Og reyndar er ein þar til viðbótar sem lítið ber enn á innan um allar hinar, en það er rósmarín sem einkum er notað með kálfa- og lambakjöti. Sömuleiðis í fyllingu í heilsteiktan fisk og fugl. Allar þessar tegundir henta vel í kryddsmjör fyrir grillrétti. Ýmist hver fyrir sig eða tvær til þrjár saman. Númer 1 er íslenskt blóðberg. Afar gott sem fylling í vatna- fisk og með ljósu kjöti, lambakjöt þar meðtalið. Blóðbergste hressir hugann og hreinsar öndunarfærin. Númer 2 er grísk kjarrmynta (oregano). Hún hentar í alla rétti þar sem ólífur, hvítlaukur og sólþurrkaðir tómatar koma við sögu. Pasta og pítsur. Númer 3 er hjartafró (sítrónumelissa) sem passar vel með öllum fiski, einkanlega feitum eins og lúðu og steinbít. Dálítið hrjúf í góm, en fínsöxuð gerir hún sitt fyrir grænmet- issalatið. Te af hjartafró er gamalreyndur kvefbani og þar að auki mjög ljúffengt. Piparmynta er svo númer 4. Frískandi ein og sér. Söxuð (nokkrir hnefar af laufum) í matvinnsluvél með einu eða tveimur eplum og „smakkað til“ með fáeinum dropum af eplaediki og einum dl af vatni og hlynsírópi til helminga gerir sósu sem borin er fram með lambakjöti. Verður jákvæð lífsreynsla fyrir alla sem fá að smakka og enginn gleymir að skrásetja í æviminningar sínar. Það má jafnvel gera enn betur undir haustið og bæta nokkrum reyniberjum við og bera þá fram með hreindýrakjöti. Og ef um steikingarvökva af kjötinu er að ræða, má gera úr þessu heita sósu með því að píska hann samanvið og hita snöggt í potti. Sítrónutimían er hið fimmta. Það styrkir alla kjúklinga- og fiskrétti sem framreiddir eru að hætti mannfólksins við Miðjarðarhaf. Keimurinn af því breytir dumbungsdögum í dýrðardaga með sólblik í hverjum daggardropa. Sléttblaða steinselja hlaut númer 6 í þessari rásröð. Hún gefur þunga í létta rétti. Styður við og styrkir bragð af nauta- kjöti. Skapar jafnvægi í grænmetissalatið. Hefur sætara bragð en hrokkin steinselja. Saxið steinseljur smátt. Garðablóðberg (timían) er númer 7. Það setur punktinn yfir i-ið í öllum kjötréttum, með hvítu sem rauðu kjöti. Fiskisúpa án garðablóðbergs er eins og bók án kjalar. Ekki er það heldur síðra að sáldra nokkrum timíanlaufum ofan á hóflega þykkar sneiðar af sólþroskuðum bufftómötum. Garðablóð- bergið hleypir galsa í grænmetissalatið. Það er hitandi og örvar blóðrás. Hrokkin steinselja rekur hér lestina með tölunni 8. Bragð hennar er ögn beiskara en á sléttblöðkunni. Hún er líka dökkgrænni. Að öðru leyti eru þær notaðar og meðhöndl- aðar á sama hátt. Það er gömul viska að steinselja dregur úr andremmu og linar timburmenn. Kryddsmjör og aðferðir Hér er reiknað með að kryddjurtirnar séu notaðar ferskar. Meðhöndlunin felst í því að nota bara blöðin, enga stöngla. Saxa smátt og sáldra yfir réttina eða í grænmetissalatið. Þær eiga aldrei að sjóða. Einnig er heimsins minnsti vandi að búa til kryddsmjör úr fínsöxuðum kryddjurtum og smjöri. Þessu er blandað saman. Hafið smjörið við stofuhita og sparið ekki kryddjurtirnar. Rúllið blöndunni í hæfilega sverar og langar rúllur og kælið í nokkrar klukkustundir. Þá er auðvelt að skera þær niður mátulega þykka klatta sem svo eru bornir fram í veislunni og þá gjarnan í skál með klakahröngli. Kryddjurtir, karlar og útigrill Í GARÐINUM HEIMA HAFSTEINN HAFLIÐASON SKRIFAR UM POTTAPLÖNTUR Í gamalli bensínstöð á Hvols- velli rekur Árný Svavarsdóttir ritfanga- og gjafavöruversl- unina Bláfell. Viðskiptavinir eru bæði innansveitungar og aðkomumenn. Árný hefur rekið verslunina í fimm ár. „Við byrjuðum inni í þorpinu á Hvolsvelli þar sem við keyptum upp gamla verslun. Sú verslun var líka ritfangabúð en þar var einnig framköllunarþjón- usta,“ segir Árný. „Við færðum okkur svo um set í núverandi húsnæði fyrir þremur árum.“ Við flutninginn hætti verslun- in að bjóða upp á framköllunar- þjónustu en í staðinn kom gjafa- varan. Þar að auki er Bláfell með umboð fyrir Símann og happ- drættin á svæðinu. Að sögn Árnýjar eru við- skiptavinirnir bæði fólk frá Hvolsvelli og aðkomufólk. „Ég er með fasta viðskiptavini allt austur til Kirkjubæjarklaust- urs,“ segir Árný. „Það er lokað um helgar hjá okkur svo það er algengt að fólk sem hefur átt leið hjá hringi á mánudegi og spyrj- ist fyrir um eitthvað sem það sá í glugganum. Það getur verið mjög skemmtileg samtöl þegar fólkið lýsir hlutnum á meðan ég reyni að finna hann í búðinni.“ Bláfell er við hliðina á veit- ingaskálanum Hlíðarenda á Hvolsvelli og er verslunin opin alla virka daga frá 10 til 17. Lítil og hugguleg verslun Árný í gjafavöruhorni verslunar sinnar Bláfelli. FRÉTTABLAÐIÐ/SÓLVEIG
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.