Fréttablaðið - 15.06.2006, Side 42
[ ]
Að kjósa sterkara hjarta
Heilbrigð sál
BORGHILDUR SVERRISDÓTTIR
EINKAÞJÁLFARI OG B.A. Í SÁLFRÆÐI
Vel skal vanda það sem lengi skal standa. Það
tekur meira en einn dag að snúa lífinu við og lifa heilsusamlegu lífi.
Settu þér markmið og gefðu þér tíma til að ná þeim.
Hjúkrunarfræðingarnir Bríet
Birgisdóttir, Anna I. Arnar-
dóttir og Soffía Eiríksdóttir eru
á leiðinni til New York í haust
þar sem þær ætla að taka þátt
í tveggja daga göngu til styrkt-
ar krabbameinsrannsóknum.
Gangan sem þær stöllur eru að
fara í er alþjóðleg og gengið verð-
ur dagana 7. og 8. október. „Októb-
er er alþjóðlegur brjóstakrabba-
meinsmánuður og gangan er sextíu
og þriggja kílómetra löng en hún
verður gengin á tveimur dögum,
fyrst eitt maraþon og síðan hálft
maraþon,“ segir Soffía.
Hugmyndin að því að taka þátt í
göngunni kom upp eftir að Bríet,
Anna og Sofía fóru að stunda lík-
amsrækt í World Class í janúar.
„Við vorum allar í frekar lélegu
formi þegar við byrjuðum í Líkama
fyrir lífið fyrir konur og settum
okkur það markmið að komast í
nógu gott form til þess að geta
tekið þátt í þessari göngu. Fyrst
þorðum við ekkert að tala um þetta
en svona í byrjun mars sögðum við
frá þessu opinberlega. Í janúar
hefðum við ekki getað þetta en
núna erum við allar komnar í betra
form og orðnar miklu styrkari.“
Bríet, Anna og Soffía vinna
allar með krabbameinssjúklinga
og hafa séð ýmislegt í starfi sínu.
„Okkur langaði til þess að snúa
vörn í sókn og gera eitthvað
jákvætt í þessum málum,“ segir
Soffía.
Þátttakendur í göngunni í New
York þurfa að greiða átján hundr-
uð dollarar hver en Bríet, Anna og
Soffía eru komnar með marga
góða styrktaraðila. „Við ákváðum
svo að allt sem safnaðist umfram
þátttökugjaldið rynni beint til
Samhjálpar kvenna.“
Á sunnudaginn næsta verður
heilsudagur til styrktar baráttu
gegn brjóstakrabbameini í World
Class í Laugum. „Við ætlum að
vera á staðnum og ræða um heilsu
og heilsuvernd, Hjartavernd mun
bjóða upp á blóðþrýstingsmæl-
ingu og blóðsykursmælingu og
hjúkrunarfræðingar frá leitar-
stöðinni og fulltrúar frá Samhjálp
kvenna verða með gelbrjóst til
þess að sýna hvernig framkvæma
á sjálfsskoðun. Síðan býður World
Class upp á alls konar líkamsræktar-
tíma, stafgöngu, pilates og Master
Class danstíma. Þetta kostar þús-
und krónur fyrir hverja konu en
Dísa í World Class ætlar svo að
jafna það og ágóðinn mun allur
renna til baráttu gegn brjósta-
krabbameini.“
emilia@frettabladid.is
Vildu snúa vörn í sókn
Soffía, Anna og Bríet eru allar komnar í mjög gott form og tilbúnar að takast á við gönguna. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL.
C M Y CM MY CY CMY K
kriya
Swami Mangalananda Giri og Peter Van Breukelen halda kynningarfund um Kriya yoga
í Sal Rósarinnar, Bolholti 4 (áður Lífsýnarsalurinn) föstudaginn 16. júní klukkan 20:00.
Kennsla í Kriya yoga verður dagana 17. - 19. júní í Yogastöðinni Heilsubót, Síðumúla 15.
Afmælishátíð Paramahamsa Hariharananda verður haldin sunnudaginn 18. júní í Sal
Rósarinnar, Bolholti 4, frá klukkann 12:00 til 16:00. Nánari upplýsingar í síma 6918565 og 8697151
yoga
Það er vegurinn
sem hinir uppljómuðu vísa
Swami Mangalananda Peter Van Breukelen
Við kusum um framtíð okkar um
daginn. Kusum um hverjum við
treystum best til að stjórna
bænum/borginni okkar með von
um að það geti gert líf okkar
betra á einhvern hátt.
Í kosningabaráttu á sér stað
ákveðið endurmat og jafnvel upp-
stokkun. En kosningar geta leitt
til nýs upphafs eða tækifæris til
að halda áfram sömu góðu sigl-
ingunni og bæta jafnvel aðeins í
seglin. Stjórnin flaggar því sem
vel hefur verið gert og uppbyggi-
leg gagnrýni andstöðunnar er
nauðsynleg til að halda öllum á
tánum. Kosningaherferðir taka
því ekki síst stöðuna á meinum og
mætti bæjarfélagsins, fá fólk til
skoða ástandið og finna leiðir til
að bæta þau mein sem herja á. Að
mörgu leyti má því að segja að
kosningabarátta stjórnmálaflokk-
anna sé ákveðin „líkamsskoðun“
samfélagsins, ekki satt?
Þú ert bæjarstjórinn!
Á sama hátt og það er gott fyrir
bæjarfélagið að taka stöðuna,
fjalla um það sem vel hefur verið
gert og gera betur í ýmsum þátt-
um, þurfum við að gera það sama
fyrir heilsu okkar og fjölskyld-
una. Einkenni kosningabaráttu
með öllum sínum krafti, endur-
mati og orku er hugarfarið sem
þarf til að kjósa þá heilsu sem við
viljum. Stundum finnst mér eins
og sumir haldi að aðrir stjórni
heilsu þeirra. Ganga jafnvel alla
leið og kenna öðrum um þegar í
óefni er komið. En heilsa þín er
að stórum hluta afsprengi þinna
stjórnarhátta, þar sem þú ert
bæjarstjórinn Bastían. Góðir
bæjarstjórar starfa ekki í fíla-
beinsturni og vona að allt sé í
lagi, heldur taka stöðuna reglu-
lega, horfast í augu við raunveru-
leikann og vilja gera betur. Ég
mæli því með að við hefjum
okkar eigin kosningabaráttu sem
stendur fyrir daglegri hreyfingu
að eigin vali, næringarríkri og
fjölbreyttri fæðu, reyklausu
umhverfi, fleiri góðum samveru-
stundum með vinum og fjöl-
skyldu og síðast en ekki síst nátt-
úrutengingu sem virkar sem
vítamínsprauta fyrir andlega
heilsu okkar. Kannski myndu ein-
hverjir telja þessa framboðs-
ræðu mína vera mynd af ein-
hverri útópíu, en ég hef fundið
fyrir miklum meðbyr með þess-
ari stefnu eins og sannur stjórn-
málamaður og vil trúa á meiri-
hlutafylgi.
Leiðum hugann að því hverj-
um við treystum best til að
stjórna heilsu okkar og vellíðan.
Eini einstaklingurinn sem við
getum treyst fyrir þessum mála-
flokki erum við sjálf. Hér er það
aðeins þú sem getur komið til
framkvæmda og unnið að flott-
um og hraustum einstaklingi sem
endast lengur og betur. Við vilj-
um alltaf eitthvað meira og betra
svo mitt kosningaslagorð yrði:
„Heilbrigður lífsstíll og þú færð
meira.“
Kær kveðja,
Borghildur