Fréttablaðið - 15.06.2006, Blaðsíða 55
23
TILKYNNINGAR
FIMMTUDAGUR 15. júní 2006
Samkvæmt 1.mgr 21.gr. skipulags-og byggingarlaga nr.
73 1997 er hér með auglýst eftir athugasemdum við eft-
irfarandi aðalskipulagsbreytingar:
1 Laugarvatn í Laugardal, Bláskógabyggð
Tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Laugardalshrepps
2000-2012 innan þéttbýlismarka Laugarvatns. Í breyting-
unni felst að afmörkuð eru þrjú ný íbúðarsvæði sem sam-
anlagt eru 27,3 ha að stærð og gera má ráð fyrir að reisa
megi á bilinu 150-220 íbúðir. Svæðin eru:
• 12,5 ha svæði (syðsti reitur) staðsett sunnan íbúðar-
byggðar við Vesturtún og nær að Litluá í suðri og þjóðvegi
nr. 37 í vestri.
• 3,3 ha svæði (miðju reitur) sem afmarkast af Gjábakka-
vegi í norðri, Laugardalsvegi í austri og athafnasvæði í
vestri.
• 11,5 ha svæði (nyrsti reitur) upp í hlíðinni ofan við
gatnamót Gjábakkavegar og Dalbrautar/þjóðvegar nr. 37.
Með nýjum íbúðarsvæðum er verið að tryggja að nægjan-
legt framboð íbúðarlóða verði til staðar á Laugarvatni og
stuðla þannig að þróun bæjarins.
2 Hraunkot í Grímsnesi, Grímsnes- og Grafnings-
hreppi
Tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Grímsnes- og Grafn-
ingshreps 2002-2004 í landi Hraunkots. Í breytingunni
felst að um 40 ha svæði í landi Hraunkots breytist úr
svæði fyrir frístundabyggð í landbúnaðarsvæði auk þess
sem þar er skilgreint vatnsverndarsvæði vegna fyrirhug-
aðrar vatnstöku úr vatnsbóli syðst á svæðinu.
3 Kílhraun á Skeiðum, Skeiða- og Gnúpverjahreppi.
Tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Skeiða- og Gnúp-
verjahrepps 2004-2016 í landi Kílhraun, umhverfis Ás-
hildarmýri. Í breytingunni felst að um 100 ha svæði í landi
Kílhrauns sem afmarkast af sveitarfélagamörkum við
Hraungerðishrepp og Villingaholtshrepp, þjóðveg nr. 30
og Árhraunsvegi verður svæði fyrir frístundabyggð í stað
landbúnaðarsvæðis. Innan svæðisins er svokölluð Áshild-
armýri og er gert ráð fyrir að frístundabyggðin verði stað-
sett á hrauni umhverfis hana. Gert er ráð fyrir um 90 frí-
stundahúsalóðum á svæðinu.
Samkvæmt 1.mgr. 25.gr. skipulags-og byggingarlaga nr.
73 1997 er hér með auglýst eftir athugasemdum við eft-
irfarandi deiliskipulagstillögur:
4 Austurhlíð í Biskupstungum, Bláskógabyggð.
Skotalda, frístundabyggð.
Tillaga að deiliskipulagi frístundabyggðar í landi Austur-
hlíðar sem kallast Skotalda. Í tillögunni felst að gert er ráð
fyrir 4 frístundahúsalóðum sem allar eru rúmleg 0,45 ha
að stærð á svæði rétt norðvestan við bæjartorfu Austur-
hlíðar. Gert er ráð fyrir að á hverri lóð verði heimilt að
reisa allt að 150 m2 frístundahús og allt að 30 m2 gesta-
hús.
5 Bergsstaðir í Biskupstungum, Bláskógabyggð.
Frístundalóð með landnúmer 167205.
Tillaga að deiliskipulagi frístundahúsalóðar í landi Bergs-
staða, á svæði með landnúmer 167205 sem liggur norð-
an við heimreið að Bergstöðum. Í tillögunni felst að gert
er ráð fyrir 1,8 ha frístundahúsalóð þar sem heimilt verð-
ur að reisa allt að 150 m2 frístundahús og allt að 20-25
m2 aukahús.
6 Bergsstaðir í Biskupstungum, Bláskógabyggð.
Frístundalóð með landnúmer 189401.
Tillaga að deiliskipulagi frístundabyggðar í landi Bergs-
staða, á svæði með landnúmer 189401 og liggur norður
af túni gamla bæjarins á Bergstöðum. Í tillögunni er gert
ráð fyrir einni 3 ha lóð með byggingarreit fyrir eitt frí-
stundahús allt að 150 m2 og aukahús allt að 20-25 m2.
7 Brú í Biskupstungum, Bláskógabyggð. Frístunda-
byggð.
Tillaga að deiliskipulagi frístundabyggðar í landi Brúar í
Biskupstungum. Í tillögunni felst að á 36,7 ha svæði norð-
an Biskupstungnabrautar, rétt austan Tungufljóts og vest-
an bæjartorfu á Brú er gert ráð fyrir 30 frístundahúsalóð-
um. Lóðirnar eru á bilinu 5.644 – 15.086 m2 að stærð og
verður heimilt að reisa allt að 150 m2 frístundahús og allt
að 25 m2 aukahús. Gert er ráð fyrir rotþró á hverri lóð en
þær skuli staðsettar þannig að mögulegt verði að tengja
þær síðar við sameiginlega rotþró. Gert er ráð fyir tveim-
ur svæðum fyrir sameiginlega siturlögn.
8 Dalsmynni í Biskupstungum, Bláskógabyggð.
Deiliskipulag lögbýlis.
Tillaga að deiliskipulagi lögbýlis á um 15 ha spildu úr
landi Dalsmynnis í Biskupstungum, sunnan þjóðvegar og
á móts við bæjartorfu Dalsmynnis. Tillagan gerir ráð fyrir
tveimur byggingarreitum þar sem heimilt verður að reisa
allt að 400 m2 íbúðarhús, allt að 100 m2 bílskúr, allt að
200 m2 geymsluhús og allt að 200 m2 hesthús.
9 Miðhús í Biskupstungum, Bláskógabyggð.
Frístundabyggð.
Tillaga að deiliskipulagi frístundabyggðar á 14 ha spildu í
landi Miðhúsa.
Í tillögunni er gert ráð fyrir 4 lóðum, einni 7 ha með
tveimur byggingarreitum og þremur 2,3 ha lóðum með
einum byggingarreit hver. Heimilt verður að reisa allt að
150 fm frístundahús innan byggingarreitar auk allt að 35
fm gestahús. Með samþykkt deiliskipulagsins fellur úr
gildi deiliskipulag fyrir svæðið frá 1998 m.s.br.
10 Syðri-Reykir í Biskupstungum, Bláskógabyggð,
Frístundabyggð.
Tillaga að deiliskipulagi frístundabyggðarinnar í landi
Syðri-Reykja sem kallast Lambhagi. Í tillögunni er gert ráð
fyrir 48 frístundahúsalóðum á um 48 ha svæði austan
þjóðvegar nr. 55, ofan við frístundahúsahverfi sem kallast
Arnarhóll og að ánni Fullsæll. Aðkoma er um núverandi
vegi frá þjóðveginum. Lóðirnar eru á bilinu 3.600 – 9.000
m2 að stærð og verður heimilt að reisa allt að 200 m2 frí-
stundahús og allt að 25 m2 aukahús.
Gert er ráð fyrir að deiliskipulag frá 13. september 1994
falli úr gildi við samþykkt þessa skipulags. Helstu breyt-
ingar frá gildandi deiliskipulagi eru þær að þrjár lóðir
bætast við Lambhaga auk þess sem nú er gert ráð fyrir 8
frístundahúsalóðum syðst á svæðinu þar sem áður var
gert ráð fyrir þéttri orlofshúsabyggð á sameiginlegri lóð.
11 Grafarbakki II í Hrunamannahreppi. Frístunda-
byggð.
Tillaga að deiliskipulagi frístundabyggðar sem kallast
Laufskálabyggð í landi Grafarbakka 2. Í tillögunni felst að
gert er ráð fyrir 12 frístundahúsalóðum á svæði sem er
rétt tæplega 8 ha, þar af eru 8 lóðir um 0,42 ha og 4 um
0,62 ha. Heimilt verður að reisa allt að 100 m2 frístunda-
hús og allt að 20 m2 aukahús. Gert er ráð fyrir sameigin-
legri rotþró fyrir lóðir 1-6 og fyrir lóðir 7-12. Aðkoma að
svæðinu er frá Hrunavegi. Tillagan er í samræmi við áður
auglýsta tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Hruna-
mannahrepps 2003-2015.
12 Reykjadalur í Hrunamannahreppi. Hólaþýfi, frí-
stundabyggð.
Tillaga að deiliskipulagi frístundabyggðarinnar Hólaþýfi í
landi Reykjadals. Tillagan nær yfir um 12 ha svæði með-
fram Laugalæk og er gert ráð fyrir 14 lóðum á bilinu 0,5-
0,7 ha að stærð þar sem heimilt verður að reisa allt að
120 m2 frístundahús og 20 m2 aukahús.
13 Syðra-Langholt í Hrunamannahreppi. Frístunda-
byggð
Tillaga að deiliskipulagi frístundabyggðar vestan við
gatnamót Auðholtsvegar og Langholtsvegar. Svæðið er
um 25 ha að stærð og gerir tillagan ráð fyrir 10 frístunda-
lóðum auk byggingarreita fyrir gestahús og hesthús. Til-
lagan er í samræmi við áður auglýsta breytingu á Aðal-
skipulagi Hrunamannahrepps 2003-2015.
14 Kílhraun á Skeiðum, Skeiða- og Gnúpverjahreppi.
Frístundabyggð.
Tillaga að deiliskipulagi frístundabyggðar í landi Kílhrauns
á Skeiðum á svæði umhverfis Áshildarmýri. Skipulags-
svæðið er um 100 ha að stærð og afmarkast af sveitarfé-
lagamörkum við Hraungerðishrepp og Villingaholtshrepp,
þjóðvegi nr. 30 og Árhraunsvegi. Gert er ráð fyrir 88 lóð-
um fyrir frístundahús á bilinu 5.500 m2-11.600 m2 þar
sem heimilt verður að reisa allt að 200 m2 frístundahús
auk aukahúss allt að 25 m2. Tillaga að breytingu á Aðal-
skipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps 2004-2016 er aug-
lýst samhliða.
15 Skeiðháholt á Skeiðum, Skeiða- og Gnúpverja-
hreppi.
Frístundabyggð. Tillaga að deiliskipulagi frístundabyggð-
arlandi Skeiðháholts 2 á Skeiðum. Í tillögunni felst að gert
er ráð fyrir þremur frístundahúsalóðum í landi Skeiðhá-
holts 2 á svæði sem er staðsett neðar vegar, mitt á milli
Skeiðháholts og Blesastaða. Lóðirnar eru um 0,95 ha að
stærð og verður heimilt að reisa þar allt að 200 m2 frí-
stundahús, allt að 30 m2 gestahús, gróðurhús og áhalda-
geymslu.
Samkvæmt 1.mgr. 26.gr. skipulags-og byggingarlaga nr.
73 1997 er hér með auglýst eftir athugasemdum við eft-
irfarandi deiliskipulagsbreytingar:
16 Efri-Reykir í Biskupstungum, Bláskógabyggð. Frí-
stundabyggð.
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi frístundabyggðar í
landi Efri Reykja.
Í tillögunni er gert ráð fyrir að einni frístundalóð verði
bætt við auk þess sem verið er að staðfesta lóðamörk
með hnitsetningu sem felur í sér breytta afmörkun lóða.
Allar lóðir innan skipulagssvæðisins eru í eigu Efri –
Reykja en skipulagið hefur áhrif á tvær aðliggjandi lóðir
með þeim hætti að lóðamörk þeirra hafa verið hnitsettar.
17 Efra-Sel í Hrunamannahreppi, frístundabyggðin
Svanabyggð.
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi frístundabyggðar í
landi Efra-Sels, Svanabyggð. Í tillögunni felst að gert er
ráð fyrir nýrri 2.759 m2 frístundahúsalóð sem kemur í
beinu framhaldi af núverandi frístundabyggði. Heimilt
verði að reisa allt að 90 m2 frístundahús með 5 m mæn-
ishæð frá jörðu.
Skipulagstillögurnar liggja frammi á skrifstofu viðkomandi
sveitarfélags og hjá embætti skipulagsfulltrúa uppsveita
Árnessýslu, Dalbraut 12, Laugarvatni á skrifstofutíma frá
15. júní apríl til 13. júlí 2006. Athugasemdum við skipu-
lagstillöguna skulu berast til skipulagsfulltrúa uppsveita
Árnessýslu í síðasta lagi 27. júlí 2006 og skulu þær vera
skriflegar. Hver sá sem ekki gerir athugasemdir við tillög-
una innan tilskilins frests, telst vera samþykkur henni.
Pétur Ingi Haraldsson
Skipulagsfulltrúi uppsveita Árnessýslu
AUGLÝSING
UM SKIPULAGSMÁL Í UPPSVEITUM ÁRNESSÝSLU
Bláskógabyggð, Grímsnes-og Grafningshreppi, Hrunnamannahreppi
og Skeiða-og Gnúpverjahreppi.
44-55 smáar Vinstri 14.6.2006 15:53 Page 23