Fréttablaðið - 15.06.2006, Side 58

Fréttablaðið - 15.06.2006, Side 58
 15. júní 2006 FIMMTUDAGUR34 timamot@frettabladid.is ÚTFARIR 13.00 Björn Guðbrandsson læknir verður jarðsunginn frá Neskirkju. 13.00 Gunnar Arnar Hilmarsson, Stórási 7, Garðabæ, verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði. 13.00 Ruth Einarsdóttir, Löngu- hlíð 21, Reykjavík, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík. 13.00 Sigurður Björnsson, Sléttu- vegi 7, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Hallgríms- kirkju. 14.00 Bára Sigurjónsdóttir kaup- kona, Fjarðargötu 17, Hafn- arfirði, verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju. 15.00 Guðmundur M. Jóhann- esson læknir, Jórsölum 3, Kópavogi, verður jarðsung- inn frá Hallgrímskirkju. 15.00 Haukur Freyr Ágústsson verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju. 15.00 Ingibjörg Guðnadóttir frá Siglufirði, Krummahólum 2, Reykjavík, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju. AFMÆLI Finnur Beck fréttamaður er 31 árs. Sigurjón Sighvats- son kvikmynda- framleiðandi er 54 ára. Pétur Gunnarsson rithöfundur er 59 ára. Sigrún Magnús- dóttir fyrrverandi borgarfulltrúi er 62 ára. SÓLARUPPRISA Á NÍLARFLJÓTI Egypskur fiskimaður lætur fagra upprisu sólarinnar ekki trufla sig við veiðarnar á Níl þar sem hún rennur gegn um Kaíró. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Erfitt er að finna eitt starfsheiti sem nær utan um allt sem Ríkarður Örn Pálsson hefur tekið sér fyrir hendur. Á þeim sextíu árum sem liðin eru frá því hann fæddist hefur hann meðal annars verið kontrabassaleikari, starfað sem tónlistargagnrýnandi og tekið þátt í spurningakeppni norrænna sjónvarps- stöðva um sígilda tónlist, Kontra- punkti. Á afmælisdaginn verður tón- skáldið Ríkarður þó sett í forgrunn og gefinn út tvöfaldur diskur með eigin tónsmíðum og útsetningum hans. „Þetta er brot af því sem ég hef gert síðastliðin þrjátíu ár, svona sitt af hverju tagi,“ segir Ríkarður. Hann kveðst ekki hafa gert neitt í því að koma verkunum út hingað til, enda séu þau ólík og passi illa inn í söluvænar umbúðir. „Egill Ólafsson tók sig svo bara til þegar hann frétti af því að ég væri að verða sextugur. Hann ákvað að drífa í því að gefa þetta út og tók þannig af mér ómakið að fara sjálfur í útgáfuna.“ Ríkarður segir að þessi tímamót hafi annars þótt tilvalin til að gefa út þetta yfirlitsverk „áður en ég sest í helgan stein“. Ríkarður er þó langt frá því að fara að minnka við sig vinnuna. Hann segist í raun hafa í nógu að snúast svo ekki gefist færi á að hella sér í tónsmíða- gerð. „Það er orðið svo mikið verk að vera gagnrýnandi á Morgunblaðinu. Þegar ég byrjaði vorum við fjórir að gagnrýna þegar flest var, en núna erum við Jónas Sen orðnir einir um hit- una. Síðan hefur tónleikum örugglega fjölgað um hátt í þriðjung.“ Efniviður Ríkarðs kemur úr mörg- um áttum og á afmælisdisknum kennir ýmissa grasa. Þar má finna sönglög, verk fyrir kóra og ýmis hljóðfæri ásamt svítu sem spiluð er úr tölvunni. „Tölvan flytur fjóra frumsamda gömlu- dansa sem hafa aldrei verið fluttir af lifandi hljóðfæraleikurum. Ég get svarið að mér þykir hvað vænst um þetta verk á disknum vegna þess hvað „flutningurinn“ er yndislega nákvæm- ur og í mikilli sveiflu.“ Uppruni verk- anna er líka ólíkur. Þar eru leikhús- verk, sjónvarpskvikmyndatónlist, þjóðlagasyrpur, brúðarmarsar og svo mætti lengi telja. Á disknum eru einnig lög við ljóð sem Ríkarður samdi sjálfur. „Þetta eru þrjú lög í sérstökum flokki sem heitir Fyrsta lag eftir fréttir. Innblásturinn í öll ljóðin er sóttur í hádegisfréttir Rík- isútvarpsins.“ Aðspurður segist Rík- arður ekki semja fleiri ljóð en gerist og gengur og vera heldur ekki mikið fyrir að tónsetja eigin ljóð. „Ég á hins vegar eitthvað um hálft hundrað „Draumsögur“ sem kannski verða gefnar út einn góðan veðurdag ef snjall teiknari fæst til að lýsa þær.“ Stefnt var að því að diskurinn yrði gefinn út á afmælisdaginn, en annar viðburður, stærri en afmæli Ríkarðs, kom í veg fyrir að svo yrði. „Ég var að frétta að vegna heimsmeistarakeppn- innar í fótbolta væru svo mikil forföll í verksmiðjunni þar sem á að fjölfalda diskinn. Þeir sáu sér ekki fært að standa við gefin loforð og frestast disk- urinn því um viku.“ Afmælisdiskurinn verður þó kynntur vinum og stuðnings- mönnum í dag, eins og til stóð, „á lauf- léttri samkomu í Leikhúskjallaran- um“. Sjálfur verður Ríkarður að heiman í dag. RÍKARÐUR ÖRN PÁLSSON: SEXTUGUR Í DAG Tónskáldið í forgrunni RÍKARÐUR ÖRN PÁLSSON TÓNSKÁLD MEÐ MEIRU Um ævina hefur Ríkarður tekið upp á ýmsu en á afmælisdaginn verða tónsmíðar hans og útsetningar settar í forgrunn með útgáfu á nýjum geisladiski. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR MERKISATBURÐIR 1752 Benjamin Franklin sannar að eldingar eru rafmagn. 1846 Bandaríkin og Kanada sam- þykkja Oregon-samninginn sem ákvarðaði landamæri ríkjanna. 1926 Kristján tíundi Danakon- ungur og Alexandrína drottning leggja hornstein að Landspítalabyggingunni. 1954 Evrópska knattspyrnusam- bandið UEFA er stofnað í svissnesku borginni Basel. 1981 Garðar Cortes óperusöngv- ari hlýtur Bjartsýnisverðlaun Bröstes þegar þau eru veitt í fyrsta sinn. 2001 Þýska hljómsveitin Rammstein heldur tónleika í Laugardalshöll. ELLA FITZGERALD (1917-1996), LÉST ÞENNAN DAG. „Það eina sem er betra en söngur er meiri söngur.“ Djasssöngkonan Ella Fitzgerald söng sig inn í hjörtu heimsbyggðarinn- ar og lifir þar enn. Á þessum degi árið 1846 skrifuðu Bretar og Banda- ríkjamenn undir Oregon-samninginn. Þar með lauk áralöngum deilum milli landanna um hver réði í raun yfir Oregon-svæðinu. Samningurinn hljóðaði upp á að um 49. breidd- arbaug, frá Klettafjöllum til Georgíusundsins, lægju landamæri Bandaríkjanna og hins breska Kanada. Þannig öðluðust Bandaríkin fullan rétt til að ráða yfir svæðinu þar sem nú eru fylkin Oregon, Washington, Idaho og Montana. Bretarnir í Kanada fengu aftur á móti Vancouver-eyju og rétt til að sigla um hluta Kólumbíu-árinnar. Árið 1818 hafði gengið í gildi samningur milli ríkjanna um landamæri á 49. breiddarbaug að Lake of the Woods en þá var óákveðið hvor þjóðin myndi ráða yfir svæðinu austan vatnsins. Samningurinn árið 1846 eyddi þessarri óvissu og krafðist nokkurs samningsvilja af hálfu beggja. ÞETTA GERÐIST: 15. JÚNÍ 1846 Ákvörðun tekin um Oregon LEGSTEINAR OG FYLGIHLUTIR Í MIKLU ÚRVALI Svava Gestsdóttir sjúkraliði er 60 ára í dag, 15. júní. 60 ára afmæli Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi, sonur, bróðir og mágur, Guðmundur Guðjónsson Eyrarholti 6, lést á Landspítalanum í Fossvogi laugardaginn 10. júní. Útförin fer fram mánudaginn 26. júní. Jóhanna Sigurðardóttir Ragnhildur Guðmundsdóttir Bragi Bragason Elín Guðmundsdóttir Hermann Guðmundsson Hjördís Guðmundsdóttir Marco de Aquilar og barnabörn Elín Gísladóttir Þóra Elín Guðjónsdóttir Jón Rúnar Backman Bróðir minn Tómas Hreggviðsson frá Hlíð, Vestmannaeyjum, verður jarðsunginn frá Breiðabólstaðarkirkju í Fljótshlíð föstudaginn 16. júní kl. 14.00. Eyvindur Hreggviðsson og fjölskylda.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.