Fréttablaðið - 15.06.2006, Síða 62
15. júní 2006 FIMMTUDAGUR38
Það segir víst ansi
mikið um vestrænt
þjóðfélag þegar fólk
er komið með sigg
eftir að opna gos-
flöskur. Ég hef
reyndar bara frétt
af einu dæmi hing-
að til, það er mínu
eigin, en miðað við að ég
tel mig vera meðalmanneskju í gos-
drykkju þá er það nokkuð líklegt að
fleiri eigi við gosdrykkjasigg að
stríða í samfélaginu. Ég er ekki að
sötra sykurkók allan daginn heldur
er ég meira í aspartaminu, en dag-
skammturinn er svona ein til tvær
Coca Cola Light í flösku ásamt
einum Toppi eða Kristal, eftir
aðstæðum. Sökudólgur þessa nýja
sjúkdóms er bannsettur flöskutapp-
inn og nú er svo komið að ég er með
sigg á báðum höndum, á pínulitlum
punkti í lófanum fyrir neðan löngu-
töng og baugfingur. Fyrir tveimur
vikum, þegar ég byrjaði að opna
flöskur með hægri hendi til þess að
hlífa þeirri vinstri, fór sársaukafull
blaðra að gera vart við sig, svo ég
þakka nú fyrir að blaðran hefur þró-
ast á siggstigið. Ég reyni endrum og
sinnum að skipta yfir í dósakók en
bölvun flöskutappans er lúmsk.
Tappinn stuðlar auðvitað að því að
gosið helst lengur í drykknum og
því er alls ekkert auðvelt að henda
flöskukókinu fyrir borð.
Sem betur fer er siggið falið í
lófanum og í raun er ég farin að
taka það í sátt. Gosdrykkjasiggið er
svolítið eins og tásiggið sem dans-
arar þurfa að eiga við; það fylgir
því einfaldlega að vera atvinnu-
dansari sem þarf að dansa á tánum.
Gosdrykkjasiggið fylgir því að vera
nútímamanneskja sem drekkur lítið
kaffi. Mig grunar að nú sé að vaxa
úr grasi kókkynslóð sem kærir sig
kollótta um kaffi. Ef það er rétt má
búast við því að tíðni gosdrykkja-
siggs aukist. En sennilega á umbúða-
samfélagið hluta af ábyrgðinni, því
þeir eru örugglega margir sem fá
gosdrykkjasigg af vatnsneyslu úr
flöskum einni saman. Þannig að þó
að þessi „sjúkdómur“ einn og sér sé
ekki illkynja veit það ekki á gott að
plastið skuli tröllríða öllu. Sem
minnir mig á að ég ætti að fara með
flöskurnar í endurvinnslu... ■
STUÐ MILLI STRÍÐA Gosdrykkjasigg
RÓSA SIGNÝ GÍSLADÓTTIR HEFUR UPPGÖTVAÐ NÝJAN SJÚKDÓM
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Ég get synt
hundasund!
Ég elska að
synda hunda-
sund.
Já,
ég líka!
Þú mátt búast
við samkeppni...
Við rjúfum seiðandi
sjávarhljóðið til að minna
ykkur á að nota sólarvörn í dag.
Og hvað felst
svo í þessu
heilsuátaki?
Bætt matar-
æði og
æfingar...
Ég held að ég byrji á
fimmtíu magaæfingum. Ein... Úff
Þetta var ein, þá
eru 49 eftir.
Strákar, þetta drasl sem þið
horfið á er ekkert nema
heilaskemmandi.
Í alvöru
talað? Ekki koma henni
af stað...
Mamma segir
að maður
eigi að skola
eplin.
Ekki hlusta á
svona hræðslu-
tal. Sjáðu, þau
glansa.
Gaman!
Áfram
pabbi!