Fréttablaðið - 15.06.2006, Side 72

Fréttablaðið - 15.06.2006, Side 72
 15. júní 2006 FIMMTUDAGUR48 „Ég reyni að nýta tímann vel og fara vel yfir síðasta leik, tækni og annað,“ segir Birkir Ívar Guð- mundsson landsliðsmarkvörður, sem spilar með Haukum. Hann skoðar myndbönd frá síðasta leik sem fram fór í Stokkhólmi á sunnudag. „Ég skoða hvað ég get gert betur og hvernig Svíarnir skjóta.“ Leikurinn á laugardaginn leggst vel í Birki og segir hann það skipta miklu að spila á heima- velli og að ekki skemmi fyrir að Laugardalshöllin sé troðfull. „Stuðningur áhorfenda skilar sér inn á völlinn og það er ekkert sér- stakt að spila fyrir tómum stúk- um. Þessi leikur er góð uppskrift að sigri.“ Birkir segist ekki vera hjátrúarfullur en hann reynir þó að spila í sama bolnum undir treyj- unni. Stúderar tækni Svíanna BIRKIR ÍVAR GUÐMUNDSSSON Reynir að spila alltaf í sama bolnum undir treyjunni. FRÉTTABLAÐIÐ/OLE NIELSEN Sigfús Sigurðsson er einn besti varnarmaður íslenska lansliðsins og spilar með spænska liðinu Ademar Leon á Spáni. „Ég er ekki búinn að gera neitt sérstakt til að búa mig undir þennan leik. Ég reyni þó að breyta ekkert út af venju minni og líki leikjum við próf. Maður á ekki að gera neitt óvenjulegt og reyna að læra undir það eins og maður gerir venju- lega. Þá fær maður bestu útkom- una.“ Sigfús segist ekki vilja setja sjálfan sig undir óþarfa pressu og það eina sem hann hugsar um fyrir leiki er að skórnir séu með í för svo að geti að minnsta kosti spilað. Sigfús tók þátt í Stjörnu- golfinu sem var á þriðjudaginn og segist vera mikill áhugagolfari. „Ég átti reyndar mjög lélegan leik á þriðjudaginn og ég spilaði með Tryggva Guðmundssyni fótbolta- kappa í frábæru golfveðri.“ Breytir ekki út af venjunni SIGFÚS SIGURÐSSON Hugsar um að hafa strigaskóna með sér fyrir leiki svo hann geti spilað. FRETTABLAÐIÐ/HARALDUR Vignir Svavarsson leikur með Skjern í Danmörku. „Ég er búinn að vera duglegur að horfa á HM og vera með fjölskyldum og vinum. Bara slappa af, það er ekk- ert hægt að gera þegar það er svona veður. Annars líst mér bara vel á þetta, það er uppselt í Höll- ina og ég er mjög spenntur fyrir þessu.“ Vinir og fjölskylda „Þegar ég er ekki að liggja yfir videóupptökum og er í tölvunni þá fer ég og syndi,“ segir Alfreð Gíslason landsliðsþjálfari. „Ég bara get ekki hlaupið leng- ur út af hnjánum og til að ná hreyf- ingu fer ég og syndi. Að öðru leyti er ekki um neinn frítíma að ræða fyrir mig. Hins vegar ætla ég að taka mér verulega gott frí þegar ég er búinn með þennan leik því þá ætla ég að hjóla í tvo til þrjá tíma á dag í Þýskalandi,“ segir Alfreð. Syndir og hjólar ALFREÐ GÍSLASON Landsliðsþjálfarinn syndir þegar hann er ekki að þjálfa íslenska landsliðið. Það væsir ekki um söngvarann Magna Ásgeirsson, sem þessa dag- ana dvelst í Los Angeles og berst fyrir því að komast í sjónvarps- þáttinn Rockstar: Supernova. Eins og Fréttablaðið hefur greint frá fóru fjórir Íslendingar utan fyrir skemmstu og reyndu fyrir sér í áheyrnarprufum fyrir þáttinn. Þau sem fóru út voru Hreimur Örn Heimisson úr Landi og sonum, Idol-stjarnan Aðalheiður Ólafs- dóttir og Kristófer Jensson úr Lights on the Highway. Af þeim fékk Magni að halda áfram og hann er nú kominn í 18 manna úrtak. Af þeim verður valinn 15 manna loka- hópur fyrir þættina. Upptökur hefjast í næsta mánuði og þættirn- ir verða sýndir á Skjá einum. Fyrsta serían af Rockstar var sýnd síðastliðinn vetur en þar leit- uðu liðsmenn áströlsku rokksveit- arinnar INXS að nýjum söngvara. Þættirnir nutu fádæma vinsælda og beint þótti liggja við að gera aðra seríu. Að þessu sinni er hljómsveitin Supernova í for- grunni en hana skipa trommarinn Tommy Lee, úr Mötley Crüe, gít- arleikarinn Gilby Clarke úr Guns N‘ Roses og Jason Newsted, fyrr- um bassaleikari Metallica. Erlendir fjölmiðlar hafa fjallað talsvert um væntanlega þáttaröð og nokkuð hefur verið gert úr því að Íslendingur skuli vera í 18 manna hópnum. „Sigurvegarinn gæti verið karlkyns, kvenkyns, frá Ástralíu, Íslandi eða hvaðan sem er,“ sagði bassaleikarinn Newsted í einu viðtali. Í 18 manna hópnum eru átta konur og tíu karl- ar. Þetta fólk hefur síðustu vikuna dvalist í glæsivillu í Hollywood- hæðum en það mun verða heimili þátttakendanna á meðan upptök- um stendur. Í næstu viku ætti að verða ljóst hvort Magni okkar Ásgeirsson kemst í 15 manna hóp- inn sem verður í þáttunum. Magni með stórstjörnunum í glæsivillu MAGNI ÁSGEIRSSON Er kominn í 18 manna úrtak fyrir Rock- star: Supernova. 15 komast í þáttinn. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Sverrir Björnsson línumaður eyðir frítíma sínum fram að lands- leiknum í vinnunni. „Ég starfa hjá Glitni í markaðsviðskiptum og fer þangað á milli æfinga og reyni að gera eitthvað gagn,“ segir Sverrir og hlær. Þegar hann kemur heim til sín reynir hann að slappa eins vel af og hann getur. „Ég er líka með fullt af efni af Svíunum sem Alli [Alfreð Gíslason] lét okkur fá fyrir nokkrum vikum. Ég reyni að skoða það og síðan fer ég yfir það þetta aftur og aftur í hausnum, maður er alltaf með hugann við þetta,“ segir hann. „En það er ágætt að fara í vinnuna til að dreifa huganum aðeins. Svo er líka gott að maður mæti í vinnuna, svona gagnvart vinnuveitandanum, en þeir sýna þessu reyndar allan skilning.“ Dreifir huganum í vinnunni SVERRIR BJÖRNSSON Línumaðurinn Sverrir Björnsson eyðir frítíma sínum í vinnunni. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Snorri Steinn Guðjónsson, sem spilar með Minden í Þýskalandi, brá sér í veiði á Þingvallavatni í vikunni. „Ég hef mikinn áhuga á veiði, er búinn að hlakka mkið til að fara að veiða. Ég er í Þýska- landi og fer ekkert að veiða þar. En ég veiddi sex bleikjur og kom endurnærður til baka,“ segir Snorri Steinn. Hann ætlar að taka því rólega fram að leik, fylgjast með HM í fótbolta og hitta vinina. „Svo er það bara undirbúningur fyrir leikinn, við reynum að nýta tímann sem best. Fríið tekur við eftir leikinn og þá getur maður farið að hanga og slappa almenni- lega af,“ segir Snorri. Veiddi sex bleikjur á Þingvöllum SNORRI STEINN GUÐJÓNSSON Hefur lengi hlakkað til að fara að veiða. Íslenska landsliðið í handknattleik spilar einn mikilvægasta leik sinn á laugardaginn þegar Svíar mæta í Laugardalshöllina. Í húfi er sæti á HM í Þýskalandi en margir telja að það mót eigi eftir að verða það glæsilegasta í sögu handboltans. Fréttablaðið tók hús á nokkrum landsliðsmönnum og spurði þá hvernig þeir eyddu frítíma sínum fyrir stóru stundina. Tíminn líður hratt fyrir leik „Auðvitað er mikil spenna fyrir þennan leik enda mikilvægur leikur og gaman að Laugardals- höllin sé loksins full,“ segir Guð- jón Valur Sigurðsson, hornamað- ur íslenska landsliðsins í handbolta og leikmaður þýska liðsins Gummersbach. Guðjón hefur staðið sig vel í þýsku deild- inni og er þar markahæstur sem og besti leikmaður deildarinnar. „Við erum að æfa mjög mikið í þessari viku, einu sinni til tvisv- ar í viku. Ég reyni að hvíla líkam- ann og hugsa vel um hvað ég set ofan í mig svona rétt fyrir leik.“ Guðjón segist aðallega vera heima í rólegheitum með fjöl- skyldunni og horfir á mynd- bandsupptöku frá síðasta leik við Svía sem fram fór síðustu helgi. „Þar er farið vel yfir öll tækni- atriði okkar og sænska liðsins. Ég er ómeðvitað með ákveðna rútínu fyrir leik en hún er svo ómerkileg að það er best að ég haldi henni fyrir mig,“ segir hinn skotfasti Guðjón Valur. Tekur lífinu með ró VIGNIR SVAVARSSON Eyðir frítíman- um í HM og fjölskylduna.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.