Fréttablaðið - 15.06.2006, Page 76

Fréttablaðið - 15.06.2006, Page 76
Regnboginn í kvöld kl. 20 Pierre Dulaine (Antonio Banderas) tekur að sér danskennslu fyrir vand- ræðaunglinga í skóla í New York. Þau eru í fyrstu áhugalítil um sam- kvæmisdansana en Dulaine tekst að vekja áhuga þeirra og saman þróa þau sína eigin útgáfu og æfa af kappi fyrir danskeppni. Frábær mynd með Antonio Banderas í sjóðheitri danssveiflu. Myndin er byggð á raunverulegum atburðum. Bíóklúbbur MasterCard býður MasterCard korthöfum forsýningu á myndinni í Regnboganum í kvöld kl. 20. Meira á www.kreditkort.is/klubbar. Bíóklúbbur MasterCard býður í bíó! Myndin verður frumsýnd 16. júní! www.kreditkort.is/klubbar Enginn trúði á þau, en hann hjálpaði þeim að finna taktinn Platan Emotional með íslensku hljómsveitinni Trabant var nýver- ið gefin út í Evrópu af plötufyrir- tækinu Southern Fried sem er í eigu Fatboy Slim. Fjallað er um plötuna í nýjasta hefti breska tón- listartímaritsins Q. Emotional fær þrjár stjörnur af fimm möguleg- um í umfjöllun blaðsins og gagn- rýnin er nokkuð jákvæð. Trabant er lýst sem vel smurðri vél og tón- list sveitarinnar er sögð einhvers staðar á milli Take My Breath Away með Berlín og Queen-mynd- bandsins I Want to Break Free. Sú formúla er sögð ganga vel upp á Íslandi enda sé Trabant vinsælli en Coldplay hérlendis. Gagnrýn- andinn John Robinson klikkir svo út með því að lýsa Trabant sem „undarlegum evrópskum frænd- um Scissor Sisters“. Frændur Scissor Sisters TRABANT Plata þeirra, Emotional, fær þrjár stjörnur af fimm mögulegum í nýjasta hefti Q. Hljómsveitin Sign kemur fram á sumartónleikaröð Reykjavík Grapevine og Smekkleysu í dag. Sign spilar órafmagnað í Smekk- leysubúðinni kl. 17.00 og er frítt inn. Sign kemur síðan fram á Amster- dam um kvöldið ásamt Pan og Truck- load of Steel. Aldurstakmarkið er 18 ára og er aðgangseyrir 800 krónur. Á morgun spilar Sign síðan í Tryggvaskála á Selfossi klukkan 20.00. Miðaverð er 1000 krónur. Á laugardaginn halda Sign-liðar síðan til Bretlands þar sem þeir koma fram á Middlesborough-tón- leikahátíðinni á sunnudag ásamt því að spila á Water Rats í London daginn eftir. Sign spilar óraf- magnað í Reykjavík SIGN Hljómsveitin Sign er á leiðinni til Bretlands um helgina. Kvikmyndin Keeping Mum verð- ur frumsýnd í Sambíóunum og Háskólabíói í dag. Myndin fjallar um prestinn Walter Goodfellow (Rowan Atkinson), sem er svo upptekinn við að semja hinn full- komna sálm að hann áttar sig ekki á ástarsambandi eiginkonu sinnar (Kristin Scott Thomas) við golf- kennara sinn (Patrick Swayze). Einnig fer það alveg framhjá honum að dóttir hans skiptir um kærasta í hverri einustu viku. Leikstjóri myndarinnar er Niall Johnson sem meðal annars leik- stýrði The Big Swap árið 1998. Prestur í ógöngum KEEPING MUM Rowan Atkinson og Kristin Scott Thomas fara með aðalhlutverkin í Keeping Mum. Grínistinn frægi, Jerry Lewis, er að jafna sig á sjúkrahúsi eftir að hann fékk hjartaáfall er hann var í flugvél á leið til Las Vegas. Lewis, sem er áttræður, var fluttur á sjúkrahús í San Diego eftir að flugvél hans lenti þar. Lewis átti að koma fram í Las Vegas en ekkert verður af því. Að sögn upplýsingafulltrúa kappans var um vægt hjartaáfall að ræða auk þess sem hann greind- ist með vott af lungnabólgu. Búast læknar við því að hann nái sér að fullu. Jerry Lewis er þekktastur fyrir samstarf sitt og Deans Martin á sjötta áratugnum. Eftir það lék hann í þekktum myndum á borð við The Ladies Man og The Nutty Professor, sem síðar var endur- gerð með Eddie Murphy í aðal- hlutverki. Lewis hefur átt við ýmis veik- indi að stríða undanfarna tvo ára- tugi en hefur þó nokkrum sinnum komið fram á sviði að undan- förnu. Fékk hjartaáfall JERRY LEWIS Grínistinn Jerry Lewis er að jafna sig eftir hjartaáfall. FRÉTTABLAÐIÐ/AP ENGINN TRÚÐI Á ÞAU, EN HANN HJÁLPAÐI ÞEIM AÐ FINNA TAKTINN R.V. kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.10 THE OMEN kl. 5.30, 8 og 10.30 B.I. 16 ÁRA X-MEN3 kl. 5.40, 8 og 10.20 B.I. 12 ÁRA DA VINCI CODE kl. 5, 8, og 11 B.I. 14 ÁRA DA VINCI SÝND Í LÚXUS kl. 5, 8 og 11 B.I. 14 ÁRA RAUÐHETTA M/ ÍSL TALI kl. 3.40 ÍSÖLD M/ ÍSL TALI kl. 3.40 R.V. kl. 5.50, 8 og 10.10 TAKE THE LEAD kl. 5.40, 8 og 10.20 THE OMEN kl. 8 og 10.30 B.I. 16 ÁRA DA VINCI CODE kl. 6 og 9 B.I. 14 ÁRA RAUÐHETTA M/ ÍSL TALI kl. 6 R.V. kl. 6, 8 og 10 THE OMEN kl. 10 B.I. 16 ÁRA 16 BLOCKS kl. 8 B.I. 14 ÁRA X-MEN3 kl. 6 B.I. 12 ÁRA !óíbí.rk004 Gildir á allar sýningar í Regnboganum merktar með rauðu SÍMI 564 0000 SÍMI 551 9000 SÍMI 462 3500 S.V. MBL. D.Ö.J KVIKMYNDIR.COM V.J.V TOPP5.IS S.V. MBL.B.J. BLAÐIÐ V.J.V TOPP5.IS L.I.B TOPP5.IS HÖRKUGÓÐUR SPENNUTRYLLIR 51.000 MANNS UPPLIFÐU VINSÆLUSTU BÓK Í HEIMI! LEITIÐ SANNLEIKANS HVERJU TRÚIR ÞÚ? LOKAUPPGJÖRIÐ! MEÐ HVERJUM HELDUR ÞÚ? S.V. MBL. Heims frumsýning Mögnuð endurgerð af hinni klassísku The Omen! Á 6 degi 6. mánaðar árið 2006 mun dagur hans koma, Þorir þú í bíó 2000. KR. AFSLÁTTUR FYRIR XY FÉLAGA 45.000 MANNS Komdu í fyndnasta ferðalag sumarsins. Fór beint á toppinn í Bandaríkjunum! 1 FJÖLSKYLDA. 8 HJÓL. ENGAR BREMSUR Frábær mynd með Antonio Banderas í sjóðheitri danssveiflu MASTERCARD-SÝNING KL.8 Í REGNBOGANUM - FRÍTT FYRIR KORTHAFA.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.