Fréttablaðið - 15.06.2006, Síða 78
54 15. júní 2006 FIMMTUDAGUR
sport@frettabladid.is
EIÐUR TIL BARCELONA
STEINÞÓR HELGI ARNSTEINSSON
skrifar frá Barcelona.
steinthor@frettabladid.is
Hólmgeir Einarsson og félagar hans í handknattleiksdeild ÍR
eru geysilega sáttir með þá niðurstöðu sem fékkst í peninga-
deilu sem þeir stóðu í við aðalstjórn félagsins. Félaginu
áskotnaðist mikið fé vegna lands á Hengilssvæðinu og var
mikil deila innan félagsins með upphaflega tillögu aðalstjórnar
um skiptingu fjárins. Á aðalfundi félagsins undir lok síðasta
mánaðar var skipt um aðalstjórn sem síðan kom fram með
nýja tillögu um skiptingu fjárins sem meiri sátt náðist um.
Handknattleiksdeildin fékk því fimm og hálfa milljón í
sinn rekstur í stað einnar milljónar sem
var upphaflega eyrnamerkt deildinni.
„Þetta er fullnaðarsigur og við
lítum svo á að réttlætið hafi náð fram
að ganga,” sagði Hólmgeir Einarsson,
sem hefur staðið í brúnni hjá ÍR til
fjölda ára og ávallt verið stoltur af
því hvernig deildin hafi verið rekin
á hans tíma en ólíkt sumum öðrum
deildum félagsins hefur hand-
knattleiksdeildin verið með svo gott sem engu tapi. „Þetta
er sanngjörn skipting og ég veit ekki betur en allir hafi verið
sáttir þegar upp var staðið. Ég hef farið fram á að hluti þessara
peninga fari í grasrótina og ég ætla að skella mér í það sjálfur.
Það verður mitt verkefni næsta vetur að fara í skólana og
reyna að virkja krakkana, betrumbæta heimaleikjaumgjörðina
og gera eitthvað til að gera starfið skemmtilegra og vekja
áhuga á íþróttinni í Breiðholtinu.”
Hólmgeir segir að meiri
ró sé komin í félagið eftir að
aðalstjórninni var skipt út en
fráfarandi stjórn hafði til að
mynda ekki haldið aðalfund í
tvö ár og var veruleg óánægja
með hennar starf eða réttara
sagt skorti á störfum. „Þetta
eru allt saman toppmenn og það er gríðarleg sátt
með þessa stjórn. Nú getum við horft björtum
augum til framtíðar,” sagði Hólmgeir.
HÓLMGEIR EINARSSON, HANDKNATTLEIKSFORKÓLFUR HJÁ ÍR: SÁTTUR VIÐ NIÐURSTÖÐU Í PENINGADEILU
Réttlætið náði fram að ganga
> Ólöf náði sér ekki á strik
Ólöf María Jónsdóttir, kylfingur úr Keili,
lék opnunarhringinn á BMW-meistara-
mótinu í Róm á 75 höggum í gær, á
þremur höggum yfir pari. Ólöf byrjaði
vel og var á einu höggi undir pari eftir
fyrri níu holurnar, en fataðist síðan flug-
ið á seinni hringnum. Mótið er hluti af
Evrópumótaröð kvenna en Ólöf er í 84.-
95. sæti. Þá eru Birgir Leifur Hafþórsson
úr GKG og Ófeigur Jóhann Guðjónsson
eru saman í ráshópi á fyrsta hring á
Áskorendamótinu sem hefst í Larvik í
Noregi í dag. Ófeigur keppir fyrir Noreg
en hann er fæddur á
Íslandi en er
með tvöfalt
ríkisfang.
Heiðar Davíð
Bragason úr
GKJ keppir
einnig á
mótinu.
Scott Ramsay í Víði
Knattspyrnukappinn Scott Ramsay er
genginn til liðs við 3. deildarfélagið
Víði í Garði. Ramsay spilaði síðast með
Grindavík en var áður hjá Keflavík.
Ramsay fékk leikheimild með Víði í gær
en liðið er í öðru sæti A-riðils eftir þrjá
leiki.
FÓTBOLTI Eyjólfur Sverrisson,
landsliðsþjálfari Íslands í knatt-
spyrnu, var kampakátur fyrir
hönd Eiðs Smára þegar Frétta-
blaðið hafði samband við hann í
gær. Eyjólfur hefur einnig spilað
með Eiði í landsliðinu og hlakkar
mikið til að sjá hann í spænska
boltanum á næstu tímabilum.
„Það er draumur margra að
spila með Barcelona og gríðarlega
flottur og skemmtilegur áfangi
fyrir Eið. Ég er mjög glaður fyrir
hans hönd og ég hef fulla trú á því
að Eiður geti staðið sig vel hjá
stórliðinu,“ sagði Eyjólfur í gær
og velti því næst fyrir sér hvaða
hlutverk Eiður myndi hafa í stór-
liðinu.
„Það verður spennandi að sjá
hvaða hlutverk Frank Rijkaard
hefur fyrir Eið. Framherjinn
Samuel Eto´o er gríðarlega fljótur
og Rijkaard sér Eið eflaust fyrir
sér rétt fyrir aftan hann ásamt
Ronaldinho auk þess sem þeir hafa
Lionel Messi og fleiri magnaða
leikmenn. Eiður getur passað vel
þarna inn í enda frábærlega vel
spilandi og hann hentar liðinu vel.
Vonandi tekst honum að festa sig
strax í sessi í þessum sóknarbolta
sem þeir spila,“ sagði Eyjólfur.
„Þetta sýnir hve mikils metinn
Eiður er í evrópsku knatt-
spyrnunni. Þetta er mjög jákvætt
og Íslendingar geta verið stoltir af
því að eiga svona framúrskarandi
knattspyrnumann sem kemur til
með að spila með bestu leikmönn-
um í heimi,“ sagði Eyjólfur
Sverrisson um Eið Smára. - hþh
Landsliðsþjálfarinn Eyjólfur Gjafar Sverrisson um komu Eiðs Smára til Barcelona:
Leikstíll Barcelona hentar Eiði Smára
mjög vel enda spilar liðið sóknarbolta
FYRIRLIÐINN Eiður Smári fagnar hér marki
með íslenska landsliðinu. NORDICPHOTOS/AFP
FÓTBOLTI „Mér þykir gaman og
vænt um það að hafa spilað með
honum hjá Bolton og landsliðinu
og ég held að það hafi verið gæfu-
spor fyrir hann að koma til Bolton
og hefja ferilinn upp á nýtt. Hann
var í slæmu formi en sýndi úr
hverju hann er gerður, kom sér í
form og spilaði vel fyrir Bolton,“
sagði Guðni Bergsson, sem spilaði
með Eiði hjá enska liðinu.
„Menn komast ekki mikið
lengra í knattspyrnunni en að fara
til Evrópumeistaranna og liðs eins
og Barcelona. Það er líklega
draumur allra knattspyrnumanna
og í tilfelli flestra ekki raunhæfur
möguleiki. Þetta er frábært tæki-
færi fyrir Eið og það verður
spennandi að fylgjast með honum,“
sagðu Guðni, sem telur að Eiður sé
að taka hárrétt skref.
„Ég held það. Leikstíll Barce-
lona, með hollenska bakgrunninn
sem Eiður þekkir vel hjá Frank
Rijkaard, hentar honum mjög vel.
Ég hef fulla trú á því að hann eigi
eftir að standa sig vel hjá Barce-
lona á milli þeirra frábæru leik-
manna sem eru þar fyrir,“ sagði
Guðni um Eið. - hþh
Guðni Bergsson:
Hárrétt skref
hjá Eiði Smára
HJÁ BOLTON Eiður spilaði með Bolton í tvö
tímabil, þar á meðal með Guðna og Arnari
Gunnlaugssyni. NORDICPHOTOS/AFP
FÓTBOLTI Eiður Smári Guðjohn-
sen leikur í treyju númer 7 hjá
Barcelona. Eiður óskaði eftir því
að vera í treyju númer 7 hjá Bar-
celona, sem varð við ósk hans.
Félagið hafði tekið frá númerið
22 skyldi hann óska eftir því en í
því númeri lék hann hjá Chelsea.
Þeir síðustu til að leika í treyju
númer 7 eru Henrik Larsson,
sem lék í treyjunni á síðasta
tímabili, argentínski sóknarmað-
urinn Javier Saviola og á undan
honum sjálfur Luis Figo. - hþh
Eiður Smári mun spila í treyju númer 7:
Fetar í fótspor Luis Figo
FÓTBOLTI Eiður Smári Guðjohnsen
er fyrsti Íslendingurinn til að spila
knattspyrnu með Barcelona í 106
ára sögu þessa fornfræga félags.
Alls hafa leikmenn frá 35 löndum
spilað með félaginu, en Eiður
Smári hækkar þá tölu í 36. Hann
er þó ekki fyrsti Íslendingurinn til
að spila í búningi Barcelona því
Viggó Sigurðsson, fyrrverandi
landsliðsþjálfari í handbolta og
stórskytta, lék með handknatt-
leiksliði félagsins á árunum 1979-
1981. - hþh
Íslendingar hjá Barcelona:
Eiður Smári og
Viggó þeir einu
FÓTBOLTI Camp Nou-leikvangur-
inn, hinn nýi heimavöllur Eiðs
Smára, er stórbrotið mannvirki
frá A til Ö. Hann er stundum kall-
aður Nou Camp, en á katalónsku,
máli innfæddra, þýðir það „Hinn
nýi völlur“. Upprunalega nafnið
er þó Estadi del Futbol Club Bar-
celona, eða „Leikvangur Barce-
lona-félagsins“.
Leikvangurinn hýsir 98.787
áhorfendur, sem gerir hann að
stærsta leikvangi Evrópu, en nán-
ast þriðji hluti af íslensku þjóðinni
gæti horft á leik á vellinum í einu.
Hann var byggður árið 1957 en við
hann er æfingasvæði félagsins,
minjagripaverslanir, safn um
félagið og meira að segja kapella
þar sem leikmenn geta lagst á bæn
fyrir leiki. - hþh
Camp Nou-leikvangurinn:
Stórbrotið
mannvirki
FRÁBÆR VÖLLUR Heimsókn á Camp Nou
er upplifun út af fyrir sig. NORDICPHOTOS/AFP
X
GLAÐUR Það leyndi sér ekki á Eiði Smára
að hann var kátur í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
FÓTBOLTI Faðir Eiðs og umboðs-
maður, Arnór Guðjohnsen, var að
sjálfsögðu á Camp Nou eða
Nývangi þegar Eiður skrifaði
undir samninginn við Barcelona.
Hann var að sjálfsögðu ánægður
með strákinn en sagði að það ætti
eftir að koma í ljós hvaða áhrif
þessi félagaskipti mundu hafa á
feril Eiðs Smára. ,,En þetta eru
ágætis merki um að hann sé virtur
sem knattspyrnumaður. Við verð-
um síðan að bíða og sjá en ég hef
fulla trú á honum. Ég trúi líka að
það henti honum og hans leikstíl
jafnvel betur að spila á Spáni en á
Englandi.”
Sem umboðsmaður Eiðs Smára
hefur Arnór gengið í gengið nokk-
uð mikið og strembið samninga-
ferli sem hann segir að sé mun
flóknara en margir halda. Í vor
komust Eiður og Chelsea að
ákveðnu samkomulagi um að
Eiður færi frá félaginu. ,,Þá kom í
ljós að flest stærstu liðin á bæði
meginlandinu og í Englandi höfðu
áhuga og Chelsea hafði meiri
áhuga á að selja út fyrir landstein-
ana en til helstu samkeppnisaðila.
Barcelona var fyrsta félagið sem
síðan setti sig í samband við Chel-
sea,” útskýrir Arnór en bætir við
að Real Madrid hafi þó rennt hýru
auga til leikmannsins allt frá sein-
asta sumri. ,,Þá kom ekki til greina
að selja hann en þeir báðu um að
vera látnir vita ef stæði til að selja
Eið og það var gert. Vandamálið
var hins vegar það að þeir gátu
ekkert aðhafst fyrr en eftir for-
setakosningarnar hjá félaginu í
júlí.”
Arnór segir jafnframt að eftir
samtal Eiðs við Frank Rijkaard,
þjálfara Barcelona, hafi hann svo
gott sem sannfærst. ,,Ég er alveg
klár að Eiður mun fá sína leiki,
það er ekki spurning. Þá er ein-
ungis spurning hvað hann mun
gera við þá.”
Eiður mun fá sína leiki
Arnór Guðjohnsen, faðir og umboðsmaður Eiðs Smára, var stoltur og stóð þétt
við hlið sonar síns er hann skrifaði undir samning við Evrópumeistarana.
GAMAN Í LÆKNISSKOÐUN Eiður Smári gekkst undir ítarlega fjögurra tíma læknisskoðun og
fylgdu fjölmiðlar honum hvert fótmál. Hann flaug í gegnum skoðunina og hafði gaman af
eins og sjá má. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP