Fréttablaðið - 15.06.2006, Side 82
15. júní 2006 FIMMTUDAGUR
KÖRFUBOLTI Guðjón Skúlason,
landsliðsþjálfari kvenna í körfu-
knattleik, valdi í vikunni 24 manna
hóp sem mun æfa með landsliðinu
í sumar til að undirbúa sig fyrir
Evrópukeppnina næsta haust.
Þetta verður í fyrsta sinn sem
kvennalandsliðið tekur þátt í
Evrópukeppni. Keflavík á flesta
leikmenn í þessum hóp, sjö tals-
ins.
Það eru þær Birna Valgarðs-
dóttir, Bryndís Guðmundsdóttir,
Ingibjörg Vilbergsdóttir, María
Erlingsdóttir, Rannveig Randvers-
dóttir, Svava Stefánsdóttir og Mar-
grét Kara Sturludóttir.
Haukar eru með sex leikmenn í
hópnum en það eru þær Hanna S.
Hálfdánardóttir, Helena Sverris-
dóttir, Kristrún Sigurjónsdóttir,
Pálína Gunnlaugsdóttir, Sigrún
Ámundadóttir og Ösp Jóhanns-
dóttir.
Frá ÍS eru þær Signý Her-
mannsdóttir, Stella R. Kristjáns-
dóttir, Þórunn Bjarnadóttir og
Helga Jónasdóttir. Í hópnum eru
einnig þær Ragnheiður Theodórs-
dóttir úr Breiðablik og Alda Leif
Jónsdóttir leikmaður hjá Den
Helder í Hollandi.
Íslenska kvennalandsliðið:
Stór hópur
æfir í sumar
FÓTBOLTI Ekki er víst hvort Gary
Neville geti tekið þátt í leik enska
landsliðsins í dag en hann þurfti
að draga sig í hlé eftir stundar-
fjórðung á æfingu liðsins í gær.
Neville átti við meiðsli að stríða
og sagði landsliðsþjálfarinn Sven
Göran Eriksson að óvíst væri með
þátttöku hans. - egm
Meiðsli hjá Englandi:
Óvissa með
Gary Neville
FÓTBOLTI Úkraínumenn áttu alls
enga óskabyrjun í sínum fyrsta
leik á heimsmeistaramóti en þeir
mættu Spánverjum í Leipzig í
gær. Fyrir fram var talið að þarna
væru tvö sterkustu lið H-riðils að
fara að eigast við en leikurinn var
einstefna frá byrjun til enda og
buðu leikmenn spænska liðsins
upp á flugeldasýningu. Spánn
vann 4-0 og eftir þessa frammi-
stöðu verður liðið að teljast meðal
þeirra sigurstranglegustu í keppn-
inni.
Það var Xabi Alonso sem braut
ísinn eftir þrettán mínútna leik
þegar hann komst milli tveggja
varnarmanna og skoraði með
skalla eftir hornspyrnu. Stuttu
síðar skoruðu Spánverjar aftur en
þá var það David Villa sem skor-
aði beint úr aukaspyrnu. Fleira
markvert gerðist ekki í fyrri hálf-
leiknum en Úkraínumönnum gekk
ákaflega illa að skapa sér færi og
ógnuðu marki Spánar ekkert.
Snemma í seinni hálfleik kom
síðan þriðja mark Spánverja en
það skoraði Villa úr mjög umdeildri
vítaspyrnu. Þarna voru úrslitin
algjörlega ráðin en svissneski dóm-
arinn sem bar flautuna í leiknum
rak einnig varnarmanninn Vlady-
slav Vashchuk af velli og Úkraínu-
menn voru því manni færri það
sem eftir lifði leiks. Það var síðan
Fernando Torres sem rak síðasta
naglann í kistuna með góðu marki
níu mínútum fyrir leikslok.
„Við áttum svo sannarlega frá-
bæran leik. Vonandi verður þetta
aðeins fyrsta skref spænska lands-
liðsins í farsælli heimsmeistara-
keppni. Við gáfum okkur alla í
þennan leik og vonandi heldur það
þannig áfram. Stemningin innan
hópsins er mjög góð og við höfum
samheldið lið,“ sagði Villa, leik-
maður Valencia og Spánar, eftir
leikinn. - egm
Úkraína var lítil fyrirstaða fyrir stórskemmtilegt lið Spánverja í H-riðli heimsmeistaramótsins í gær:
Mögnuð byrjun hjá sprækum Spánverjum
GLEÐI Mikil gleði ríkir á Spáni eftir úrslitin í gær en hér fagnar David Villa öðru marka sinna
í gær. NORDICPHOTOS/AFP
FÓTBOLTI „Við eigum ekki að nota
hitann sem afsökun, við þurfum
bara að vanda sendingarnar og
færslurnar á vellinum,“ sagði
Gary Neville, bakvörður enska
landsliðsins, en leikmenn liðsins
kvörtuðu mikið yfir því hvað það
var gríðarlega heitt meðan leikur-
inn gegn Paragvæ fór fram um
síðustu helgi. Enska liðið var alls
ekki sannfærandi í leiknum en
náði samt sem áður 1-0 sigri og
tryggir sig áfram í aðra umferð
keppninnar með sigri gegn Tríni-
dad og Tóbagó í dag.
FIFA hefur staðfest að leik-
menn liðsins fái greiðan aðgang
að vatni í dag en spáð er 28 stiga
hita í Nürnberg þegar leikur
hefst. Búist er við því að Sven-
Göran Eriksson, landsliðsþjálfari
Englands, muni tefla fram sama
byrjunarliði og gegn Paragvæ.
Vangaveltur hafa verið uppi um
hvort Wayne Rooney komi við
sögu í leiknum en talað er um að
ef hann meiðist á mótinu eigi
enska knattspyrnusambandið
yfir höfði sér málsókn frá
Manchester United.
Trínidad og Tóbagó er að taka
þátt í sinni fyrstu heimsmeistara-
keppni og náði óvænt jafntefli
gegn Svíþjóð í fyrstu umferð
riðlakeppninnar. Þekktasti leik-
maður liðsins er Dwight Yorke.
Fróðlegt verður að sjá baráttu
Peter Crouch við varnarmanninn
Dennis Lawrence, en þeir tveir
eru svipað stórir. Allir búast við
sigri enska liðsins og ljóst að
kröfurnar að heiman eru að Eng-
land vinni sannfærandi sigur.
Um kvöldið eigast síðan Sví-
þjóð og Paragvæ við í sama riðli
en ef England vinnur sinn leik og
sá leikur endar með jafntefli er
enska liðið búið að tryggja sér
efsta sætið í riðlinum. Sænsku
leikmennirnir rifust heiftarlega
innbyrðis eftir leikinn gegn Tríni-
dad. „Við þurfum að standa saman
sem ein heild og gleyma þessu
sem gerðist. Við erum búnir að
ræða þessi rifrildi og þau eru að
baki. Það sem mestu máli skiptir
er að ná góðum úrslitum gegn
Paragvæ,“ sagði Teddy Lucic,
varnarmaður Svía.
Fyrsti leikur dagsins er viður-
eign í A-riðli milli Ekvador og
Kosta Ríka. Ekvadorar stefna á
að fylgja eftir góðum sigri gegn
Póllandi í fyrst umferðinni en von
er á jöfnum leik. Kosta Ríka spil-
aði vel gegn gestgjöfum Þýska-
lands í opnunarleiknum þó það
hafi ekki dugað til að ná í stig.
- egm
Enska landsliðið leikur sinn annan leik á HM í dag gegn Yorke og félögum í Trínidad og Tóbagó:
England kemst áfram á HM með sigri
FJÖR Á ÆFINGU Það var létt yfir Jamie
Carragher og Wayne Rooney á æfingu
enska landsliðsins í gær.
NORDICPHOTOS/AFP
FÓTBOLTI Fyrri hálfleikur var eign
Þjóðverja og Miroslav Klose
komst ansi nálægt því að skora
þegar hann var aleinn inni í víta-
teignum en skalli hans sleikti
stöngina á leið sinni framhjá
markinu. Besta færi fyrri hálf-
leiks féll í skaut Lukas Podolski,
sem skaut rétt framhjá markinu
úr þröngu en góðu færi eftir und-
irbúning Bastian Schweinsteiger
og Philipp Lahm.
Þjóðverjar voru mun meira
með boltann en Pólverjar gerðu
sitt besta úr fáum sóknum sínum,
sem aðallega komu þegar þeir
sóttu hratt upp völlinn. Radoslaw
Sobolewski fékk að líta rauða
spjaldið og róðurinn þyngdist til
muna.
Artur Borac, markmaður Pól-
verja, átti frábæran leik og varði
hvað eftir annað meistaralega,
besta markvarslan kom þó undir
lokin þegar Borac bjargaði skoti
frá Lahm og síðan frákastinu frá
Oliver Neuville. Á 90. mínútu
skutu svo bæði Klose og Michael
Ballack í þverslána og allt leit út
fyrir að þetta yrði ekki gleði-
dagur fyrir heimamenn.
Þá komu varamennirnir tveir,
David Odonkor og Neuville, til
bjargar þegar sá fyrrnefndi sendi
fyrir og Neuville setti boltann í
netið af stuttu færi við angist Pól-
verja, sem héldu að þeir hefðu náð
að hanga á einu stigi. Allt kom
fyrir ekki og þjóðhátíð ríkir nú í
Þýskalandi enda liðið svo gott sem
komið áfram í sextán liða úrslitin.
en Pólverjar eru aftur á móti úr
leik.
Jürgen Klinsmann, landsliðs-
þjálfari Þjóðverja, var í skýjunum
með sína menn eftir leikinn en
hann hoppaði og skoppaði eftir
hliðarlínunni frá fyrstu mínútu.
Hann réð sér ekki fyrir kæti þegar
sigurmarkið kom og faðmaði alla
sem á vegi hans urðu. Hann hrós-
aði sérstaklega varamönnunum
Neuville og Odonkor, sem voru
lykillinn að sigrinum.
„Við vildum auka hraðann í
leiknum og því ákvað ég að setja
tvo fljóta menn inn á völlinn. Þeir
hleyptu miklu lífi í leik okkar og
ég gæti ekki verið sáttari,“ sagði
Klinsmann. Markaskorarinn Neu-
ville var sannfærður um að sigur-
inn hefði verið verðskuldaður.
„Augljóslega vorum við virkilega
heppnir en þegar öllu er á botninn
hvolft fannst mér við eiga sigur-
inn skilinn,“ sagði hetja Þjóðverja
í gær.
hjalti@frettabladid.is
Gestgjafarnir mörðu sigur
Þjóðverjar biðu fram á 92. mínútu með að skora sigurmarkið gegn Pólverjum á
Heimsmeistaramótinu í gær. Það gekk illa hjá gestgjöfunum að skora en Artur
Borac, markmaður Pólverja, var í miklu stuði í leiknum.
STUÐNINGSMENN Á ÖLLUM ALDRI
Þessi ungi drengur lék sig ekki vanta á
Westfalen-leikvanginn í gær, og tók svo
sannarlega góða skapið með sér.
NORDICPHOTOS/AFP
HETJUNNI FAGNAÐ Miroslav Klose og Michael Ballack með hetju Þjóðverja í gær, Oliver
Neuville, á milli sín. Hann tryggði sínum mönnum sigur með marki á síðustu andartökum
leiksins í gær. NORDICPHOTOS/AFP