Fréttablaðið - 17.06.2006, Blaðsíða 6
6 17. júní 2006 LAUGARDAGUR
NFS Í BEINNI
Á VISIR.IS
35.000 gestir vikulega
sem dvelja í u.þ.b. eina klst. hver.
Auglýsingasími 550 5000.
VARNARMÁL Björn Bjarnson dóms-
málaráðherra spyr að því í grein í
nýjasta hefti Þjóðmála hvort
íslensk stjórnvöld verði ekki „að
fá lögheimildir til að sinna verk-
efnum á sviði öryggismála, sem
hvorki falla undir lögreglu né
landhelgisgæslu,“ eins og segir
orðrétt í grein hans, Nýskipan
öryggis- og varnarmála.
Björn segist með þessu vera að
vekja máls á því, hvort ekki sé
tímabært að ræða um öryggis- og
varnarmál með öðrum hætti en
gert hefur verið. „Lögregla og
landhelgisgæsla sinna löggæslu
en ekki hlutverki herafla. Íslenska
stjórnkerfið hefur engar lögheim-
ildir til að sinna verkefnum, sem
snerta hernaðarleg málefni eða
áætlanagerð og stjórnvöld ráða
ekki yfir neinum mannafla til að
taka að sér verkefni er lúta að her-
vörnum landsins. Spurningar
mínar lúta að því hvort ekki sé
tímabært að ræða þessi mál á
annan hátt en gert hefur verið.“
Björn varpaði fram spurning-
um um sams konar málefni fyrir
um ellefu árum síðan en hugmynd-
ir hans í þessa veru fengu ekki
mikinn hljómgrunn á þeim tíma.
„Þá var talað fyrir daufum eyrum.
Er það einnig gert núna?“ spyr
Björn og kallar eftir frekari
umræðu um málið.
Ágúst Ólafur Ágústsson, vara-
formaður Samfylkingarinnar,
segir umræðu um breytta stöðu í
öryggis- og varnarmálum þarfa en
telur hugmyndina um íslenskan
her vera fjarstæðukennda og ekki
í takt við breytta stöðu heimsmála.
„Það hefur lengi blundað í dóms-
málráðherra að koma á fót íslensk-
um her. Ísland hefur verið herlaus
þjóð í þúsund ár og tel ég það ekki
raunsætt eða skynsamlegt að
koma upp íslenskum her. Varnir
Íslands eru best tryggðar með
samvinnu við aðrar þjóðir, en ekki
upp á eigin spýtur.“
Ágúst Ólafur segir einnig
mikilvægt að horfa til þess starfs
sem unnið er á vettvangi Evrópu-
sambandsins í öryggis- og varnar-
málum. „Ég tel að það sé tímabært
að líta til Evrópu og fylgjast grannt
með því hvernig þeirri vinnu sé
háttað sem unnin er samkvæmt
utanríkisstefnu Evrópusambands-
ins.“ magnush@frettabladid.is
Lögheimildir
fyrir hernaði
Björn Bjarnason dómsmálaráðherra kallar eftir
frekari umræðu um lögheimildir stjórnvalda til að
sinna verkefnum er snerta hernaðarleg málefni.
BJÖRN BJARNASON DÓMSMÁLARÁÐHERRA
Björn fjallar um nýskipan í öryggis- og
varnarmálum í grein heftinu Þjóðmál.
FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR
VARNARMÁL Jaap de Hoop Scheffer,
framkvæmdastjóri Atlantshafs-
bandalagsins, lagði áherslu á að
farsælast væri fyrir stöðu Íslands
í öryggis- og varnarmálum að tví-
hliða samkomulag næðist við
bandarísk yfirvöld.
Scheffer átti fund með Geir H.
Haarde forsætisráðherra og Val-
gerði Sverrisdóttur utanríkisráð-
herra í gær. Fundurinn var hluti af
ferðalagi Scheffer til allra aðild-
arríkja Atlantshafsbandalagsins
en aðalfundur bandalagsins fer
fram í Riga í Lettlandi í nóvem-
ber.
Geir sagði þá hafa verið sam-
mála um að farsælast væri fyrir
Ísland að leysa úr ágreiningi um
varnarmál á grundvelli tvíhliða
samkomulags. „Það hefur verið
okkar afstaða frá upphafi, að hags-
munir Íslands séu best tryggðir
með því að komast að samkomu-
lagi við Bandaríkjamenn á grund-
velli tvíhliða samkomulags.“
Scheffer lagði áherslu á að
hann væri tilbúinn til þess að veita
íslenskum stjórnvöldum alla þá
hjálp sem óskað yrði eftir. „Ég hef
fylgst náið með viðræðunum á
milli bandarískra og íslenskra
yfirvalda. Ég fæ reglulega að
heyra af því í hvaða farvegi við-
ræðurnar eru. Miðað við þær
aðstæður sem fyrir hendi eru,
finnst mér líklegt að samkomulag
náist þó síðar verði.“
Scheffer vildi ekki tjá sig um
hvaða afstöðu hann hefði til við-
ræðnanna en lagði áherslu á
grundvallaratriði í samningi Atl-
antshafsbandalagsins, sem er
jafnræði allra ríkja. „Allar aðild-
arþjóðir Atlantshafsbandalagsins
eru jafnar að verðleikum. Nálgun
bandalagsins að varnarmálum
Íslands er einungis í gegnum þá
staðreynd að Ísland er aðildar-
ríki.“ magnush@frettabladid.is
Tvíhliða
samkomulag
Jaap de Hoop Scheffer, framkvæmdastjóri NATO,
segir mikilvægt að íslensk og bandarísk stjórnvöld
nái tvíhliða samkomulagi um varnir landsins.
JAAP DE HOOP SCHEFFER Scheffer sagðist ánægður með fund sinn með nýskipuðum
forsætis- og utanríkisráðherra. Hann sagðist fylgjast grannt með viðræðum íslenskra og
bandarískra yfirvalda um varnarmál. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
VARNARMÁL Geir H. Haarde for-
sætisráðherra vonast til þess að
samkomulag náist við bandarísk
yfirvöld sem fyrst. „Við vonumst
til þess að viðræðurnar gangi vel á
næstunni en það er erfitt að segja
til um hvenær þeim lýkur. Vonandi
náum við samkomulagi sem fyrst,“
sagði Geir eftir að fundi hans og
Valgerðar Sverrisdóttur utanríkis-
ráðherra með Jaap de Hoop
Scheffer lauk.
Geir vildi ekki upplýsa um
kröfur bandarískra og íslenskra
stjórnvalda enda viðræðurnar enn
á viðkvæmu stigi. „Fundurinn með
Scheffer var gagnlegur. Það eru
allir á því, sem koma að viðræðun-
um um varnarmálin, að farsælast
sé að leysa málið á grundvelli tví-
hliða samkomulags við Bandarík-
in. Það er okkar markmið og að því
verður unnið áfram.“
Á fundinum var farið yfir þau
mál sem tengjast alþjóðlegu starfi
Atlantshafsbandalagsins, meðal
annars starf íslenskra stjórnvalda
í Kosovo og Afganistan.
Geir sagðist vonast til þess að
fundur íslensku og bandarísku
nefndanna um varnarmálin, sem
fer fram 7. júlí, þoki viðræðunum í
samkomulagsátt. - mh
Forsætisráðherra vonast til þess að viðræðunum við Bandaríkin ljúki sem fyrst:
Þokast í samkomulagsátt
GEIR H. HAARDE RÆÐIR VIÐ FRÉTTAMENN Geir sagðist ánægður með fundinn með
Scheffer en vonast til þess að samkomulag næðist í viðræðum íslenskra og bandarískra
yfirvalda sem fyrst. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
UNGLINGADRYKKJA Lögreglan í
Reykjavík beinir þeim tilmælum
til foreldra unglinga að nýta
þjóðhátíðardaginn í samveru og
skemmtun allrar fjölskyldunnar
og vonar að sem flestir fylgi
börnum sínum á skemmtanir í
bænum í kvöld. Undir þetta tekur
Guðni R. Björnsson, upplýsinga-
fulltrúi Fræðslumiðstöðvar í
fíknivörnum. Stofnunin stendur
fyrir vímuvarnarátakinu „Ég
ætla að bíða“ þar sem ungu fólki
eru gefin þau skilaboð að fjöl-
margar ástæður séu fyrir því að
bíða með vímuefnaneyslu þar til
löglegum aldri er náð. Auglýs-
ingar sem ætlað er að vekja fólk
til umhugsunar um átakið hafa
birst í blöðum og ljósvakamiðl-
um undanfarnar vikur.
„Við viljum gefa foreldrum
þau skýru skilaboð að taka ekki
þátt í að skapa aðstæður þar sem
krakkarnir byrja að fikta, því
þegar upp er staðið er það mál
foreldranna að leggja eitthvað
til,“ segir Guðni. „Unglingunum
bendum við á að hver og einn
einstaklingur hefur gilda ástæðu
til að bíða með að nota vímuefni
og að það er hægt að gera þetta
alltsaman mjög skemmtilegt án
þess að byrja að fikta of snemma.
Stóru skilaboðin eru: Hugsaðu
áður en þú framkvæmir.“ - sþs
Þjóðhátíðardag Íslendinga ber upp á laugardag í ár og stendur fram á nótt:
Foreldrar fylgi börnum sínum
UNGLINGAR AÐ SKEMMTA SÉR Í MIÐBÆ
REYKJAVÍKUR Fræðslumiðstöð í fíkni-
vörnum bendir unglingum á að þeir hafi
fjölmargar ástæður til að bíða með neyslu
vímuefna.
HAFRANNSÓKNASTOFNUNIN Fyrir
skömmu barst Hafrannsóknastofn-
uninni afar sjaldgæfur fiskur frá
togaranum Helgu Maríu AK. Hing-
að til hefur þessi tegund einungis
fundist undan ströndum eyjarinnar
Madeira, skammt norður af Kan-
aríeyjum, og telst fundur hennar
svo norðarlega því nokkur tíðindi.
Fiskurinn, sem hefur ekki enn
hlotið íslenskt nafn, er af smávax-
inni surtlutegund sem ber vísinda-
nafnið Linophryne maderensis og
var veiddur á úthafskarfaslóð suð-
vestur af landinu. - sdg
Hafrannsóknastofnunin:
Sjaldgæf fisk-
tegund finnst
LINOPHRYNE MADERENSIS Fiskurinn er um
átta sentimetrar á lengd.
SRÍ LANKA, AP Jarðsprengja í troðn-
um strætisvagni á fimmtudag olli
dauða að minnsta kosti 64 manna í
mesta ofbeldisverki Srí Lanka
síðan samið var um vopnahlé 2002.
Yfirvöld saka Tamíl-tígrana, upp-
reisnarhóp Tamíl-minnihluta
landsins, um að hafa komið
sprengjunni fyrir, en þeir neita
allri sök.
Í kjölfar sprengingarinnar
gerðu stjórnvöld loftárás á svæði
Tamíla í norðausturhluta landsins.
Einn leiðtoga Tamílanna segir
mannfall hafa verið mikið og
unnið sé nú að því að tryggja
öryggi íbúa norðausturhéraðanna.
- sgj
Óöldin í Srí Lanka:
Loftárás í kjöl-
far sprengingar
MANNRÉTTINDAMÁL Alþjóðadagur
flóttamanna er haldinn á Íslandi í
dag. Það eru Rauði kross Íslands og
Flóttamannastofunun Sameinuðu
þjóðanna sem munu halda sameig-
inlega upp á daginn í mæðragarðin-
um í Lækjargötu og vekja þannig
athygli á málefnum flóttamanna og
hælisleitenda hérlendis. Fulltrúi
Flóttamannastofnunar Sameinuðu
þjóðanna, Kristina Rodriguez er
stödd hér á landi í tilefni dagsins.
Frá árinu 1956 hafa íslensk
stjórnvöld tekið á móti um 450
flóttamönnum. Hingað til lands
koma einnig einstaklingar sem
óska hælis en sá fjöldi er um 500
manns á undanförum tíu árum. - hs
Alþjóðadagur flóttamanna:
Fjöldi leitar
hælis á Íslandi
KJÖRKASSINN
Er rétt að gera mislæg gatnamót
á Kringlumýrarbraut og Miklu-
braut?
Já 59,1%
Nei 40,9%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Ætlarðu að sækja hátíðarhöld í
tilefni 17. júní?
Segðu þína skoðun á visir.is