Fréttablaðið - 17.06.2006, Page 10
17. júní 2006 LAUGARDAGUR10
Umsjón: nánar á visir.is
Vanskil einstaklinga og fyrir-
tækja, sem staðið hafa lengur en
einn mánuð, voru í lágmarki á
fyrsta ársfjórðungi og hafa ekki
verið lægri á þeim fimm árum
sem yfirlit Fjármálaeftirlitisins
(FME) nær til. Hlutfall vanskila
af útlánum nam 0,6 prósentum
undir lok fyrsta árshluta saman-
borið við 1,5 prósent á sama tíma
í fyrra.
Vanskil fyrirtækja var 0,5 pró-
sent í lok fjórðungsins og var
hlutfallið óbreytt miðað við árs-
lok. Hlutfallið var 1,3 prósent í
lok fyrsta ársfjórðungs 2005.
Vanskilahlutafall einstaklinga
var heldur hærra eða eitt prósent
í lok mars, sem er óbreytt hlutfall
frá áramótum. Í lok fyrsta árs-
fjórðungs 2005 nam hlutfallið 2,1
prósenti.
Í frétt FME kemur fram að sú
útlánaaukning sem hafi orðið í
bankakerfinu undanfarin misseri
geti komið fram í auknum van-
skilum síðar. - eþa
Heimsmeistarakeppnin í fótbolta
hefur haft letjandi áhrif á
smásöluverslun í Bretlandi og
greinilegt að neytendur velja
heldur að horfa á leikina en að
versla. Á vefsíðu The Daily
Telegraph er haft eftir
framkvæmdastjóra Woolworths,
Trevor Bish-Jones, að verslun hafi
dregist saman um fimmtíu prósent
á meðan England lék sinn fyrsta
leik í heimsmeistarkeppninni á
laugardaginn var.
Minnkandi sala kemur á óhent-
ugum tíma fyrir Woolworths, sem
birti nýlega lakar sölutölur fyrir
19 vikurnar fram að 10. júní. Jókst
heildarsalan um 0,4 prósent milli
ára en dróst saman um 6,7 prósent
sé ekki tekið tillit til nýrra versl-
ana. Baugur á tíu prósenta hlut í
Woolworths. - hhs
Fjárfestar skráðu sig fyrir öllu
sem í boði var í skuldabréfaútboði
sem Finnair stóð fyrir. Alls seldi
finnska flugfélagið skuldabréf
fyrir 100 milljónir evra, eða 9,5
milljarða króna. Andvirði bréf-
annna, sem eru á gjalddaga árið
2012, verður notað til að endur-
nýja flugflota félagsins en stefnt
er að því að fjárfesta í nýjum flug-
vélum fyrir 95 milljarða króna á
næsta áratug.
FL Group og Straumur-
Burðarás eiga samanlagt yfir
fimmtung hlutafjár í Finnair. - eþa
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
ICEX-15 5.392 -0,38% Fjöldi viðskipta: 166
Velta: 732 milljónir
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Actavis 62,40 -0,32% ... Alfesca
3,46 -0,29%... Atorka 5,80 +0,87% ... Bakkavör 44,30 -0,45% ...
Dagsbrún 5,65 +0,89% ... FL Group 17,50 -0,57% ... Flaga 3,86
-0,52% ... Glitnir 17,20 -0,58% ... KB banki 739,00 -0,54% ...
Landsbankinn 20,00 +0,00% ... Marel 68,60 -0,58% ... Mosaic
Fashions 15,00 +1,01% ... Straumur-Burðarás 17,10 -0,58% ...
Össur 103,00 -1,44%
MESTA HÆKKUN
Mosaic Fashions +1,01%
Dagsbrún +0,89%
Atorka +0,87%
MESTA LÆKKUN
Össur -1,44%
Straumur-Burðarás -0,58%
Marel -0,58%
Fjármálaeftirlitið telur að þegar
fimmtungshlutur eða stærri hlut-
ur í félagi, sem er eigandi stofn-
fjárhlutar, skiptir um hendur beri
stjórn sparisjóðs að samþykkja
sölu eða framsal stofnfjárhluta
eins og gildir ávallt um bein við-
skipti á stofnfjárbréfum. Þetta álit
er óháð því hversu stóran hlut
eignarhaldsfélagið á í sparisjóði.
Algengt er að eignarhaldsfélög
haldi utan um bréf í sparisjóðum.
Hefur verið álitamál hvernig beri
að líta á þegar ekki er um beint
framsal stofnfjárbréfa að ræða
heldur sölu á eignarhlut í félagi og
hvaða reglur gildi um hlutverk
sparisjóðsstjórnar í þeim efnum.
Í túlkun FME er nefnt sem
dæmi að ef aðili hefur stofnað
eignarhaldsfélag utan um stofn-
fjáreign selur eignarhlut í félag-
inu til annars aðila þá er viðkom-
andi félag enn eigandi bréfanna og
formlegt eignarhald hefur ekkert
breyst. Hins vegar telur FME að
eigandi félagsins sé sá sem ráði
raunverulega eignarhlutnum og
því hafi raunveruleg eignabreyt-
ing átt sér stað sem feli í sér óbeint
framsal. „Að mati Fjármálaeftir-
litsins ná ...ákvæði um spari-
sjóði ekki tilgangi sínum ef
horft er fram hjá því
hver teljist raunveru-
legur eigandi,“ segir
í áliti FME.
Með þessu
telur FME að
stjórn
spari-
sjóðs
geti
gert sér betur grein fyrir því hver
fari með raunverulegt eignarhald
á stofnfjárhlutum til að geta sinnt
hlutverki sínu samkvæmt lögum.
- eþa
Ber að fá samþykki
sparisjóðsstjórnar
Verði eigendaskipti að minnsta kosti fimmtungshlut í eignarhaldsfélagi, sem er
eigandi að stofnfé, skal fá samþykki stjórnar sparisjóðs fyrir þeim.
SPARISJÓÐUR VÉLSTJÓRA Framsal stofnfjárhluta með óbeinum hætti ber að bera undir
sparisjóðsstjórn.
Í LONDON Bretar elska fótbolta og fórna verslunarferðum fyrir leiki enska landsliðisins á
HM.
Straumur-Burðarás er kominn með
tíu prósent hlutafjár í olíu- og gas-
framleiðandanum Tanganyika eftir
að hafa keypt 325 þúsund hluti í vik-
unni. Tanganyika stundar einkum
leit og vinnslu í Egyptalandi og Sýr-
landi en hefur höfuðstöðvar í Van-
couver í Kanada. Hlutur Straums er
metinn á tæpa fjóra milljarða króna.
Í tilkynningu frá Straumi kemur
fram að kaupin eru fyrst og fremst
gerð í fjárfestingaskyni en ekki til
þess að hafa áhrif á stjórn félagsins.
Einnig kemur fram að Straumur
muni reglulega endurskoða stöðu
sína í félaginu.
Kanadíska félagið skilaði um
fjörutíu milljóna króna hagnaði á
fyrsta ársfjórðungi en það er skráð á
First North-markaðinn í Stokkhólmi.
Í haust færist félagið yfir á O-listann
í Stokkhólmi.
Þótt félagið sé kanadískt er eign-
arhaldið að stærstum hluta sænskt
en Lundin-fjölskyldan, sem hefur
fjárfest víða í olíugeiranum, er
stærsti hluthafinn.
Gengi hlutabréfa í Tanganyika
hefur fallið um fjörutíu prósent frá
því þau náðu hæsta ársgildi í apríl.
- eþa
Straumur eykur við
sig í Tanganyika
Fjögurra milljarða fjárfesting í kanadísku olíufélagi.
STRAUMUR FJÁRFESTIR Í OLÍUNNI Félagið á
yfir tíu prósenta hlut í Tanganyika.
FINNAIR MUN ENDURNÝJA FLOTANN
Safnaði 9,5 milljörðum í skuldabréfaútboði.
VANSKIL Í LÁGMARKI Hlutfall vanskila af útlánum nam 0,6 prósentum í lok fyrsta ársfjórðungs.
NÝBYGGING Mikið framboð nýbygginga er ein orsaka lægra íbúðaverðs.
Íbúðaverð lækkaði um 0,2 prósent
á höfuðborgarsvæðinu í maí frá
fyrra mánuði samkvæmt tölum
frá Fasteignamati ríkisins. Fjöl-
býli lækkaði um 0,2 prósent en
sérbýli um 0,1 prósent.
Fram kemur í Morgunkornum
Glitnis að sennilega séu frekari
lækkanir fram undan. Mikið
framboð nýbygginga sé í augsýn
auk þess sem hærri langtíma-
vextir, minni kaupmáttur og
skert aðgengi að lánsfé dragi úr
eftirspurn. Þá fari tiltrú neyt-
enda á efnahagslífinu þverrandi,
sem dragi úr þrýstingi til hækk-
unar.
Íbúðaverð hefur alls hækkað
um þrettán prósent á höfuðborgar-
svæðinu undanfarna tólf mánuði.
Verðið hefur hækkað um fimmtíu
og fjögur prósent frá því í ágúst
2004, þegar bankarnir hófu inn-
reið sína á íbúðalánamarkað. - jsk
Íbúðaverð lækkar
Sérfræðingar telja frekari lækkanir á íbúðaverði
fram undan.
MARKAÐSPUNKTAR...
Vinnslustöðin hf. í Vestmannaeyjum
hefur selt 45 prósenta hlut sinn í Stillu
ehf. en söluandvirði nemur 417 millj-
ónum króna. Með viðskiptunum hafa
krosseignatengsl Vinnslustöðvarinnar og
Stillu verið rofin.
Framkvæmdastjórn ESB hefur samþykkt
að veita Slóvenum aðild að myntbanda-
lagi sambandsins. Slóvenar munu taka
upp evruna 1. janúar á næsta ári.
Ingimundur Friðriksson, aðstoðarbanka-
stjóri Seðlabanka Íslands, hefur verið
settur tímabundið í starf bankastjóra
frá 15. júní til 31. ágúst næstkomandi.
Tekur hann við af Jóni Sigurðssyni, sem
í vikunni tók við embætti iðnaðar- og
viðskiptaráðherra.
Finnair selur skuldabréf
Fótboltinn truflar verslunina
Vanskil í útlána í lágmarki
Nafntogaður fjárfestir
Eins og kemur fram á viðskiptasíðunni í dag hefur
Straumur verið að kaupa hlutabréf í kanadíska
olíuframleiðandanum Tanganyika. Stærsti hluthaf-
inn í olíufélaginu er sænska Lundin-fjölskyldan en
ættfaðirinn er verkfræðingurinn Adolf H. Lundin.
Ekki er nákvæmlega vitað fyrir hvað stafurinn
há stendur en svo merkilega vill til að
Adolf er gyðingur. Auður fjölskyldunn-
ar hefur skapast vegna fjárfestinga í
olíu- og gasiðnaði og byggist einkum
á Lundin Petroleum þar sem Adolf er
heiðursforseti. Engir aukvisar sitja í
stjórn Lundin Petroleum; einn stjórn-
armanna er hægrimaðurinn Carl Bildt,
fyrrverandi forsætisráðherra Svíþjóðar.
Adolf Lundin er einnig þjóðþekkt-
ur heima fyrir en árið 1998 var
hann krýndur Svíi ársins af sjálfum
Svíakonungi.
Hasar í KB banka
KB banki í Noregi var leiddur í gildru þegar
arabískur fjárfestir seldi bankanum bréf sem hann
hafði ekki tiltæk. Bankinn varð að kaupa bréfin
úti á markaði og tapaði um 120 milljónum króna
á þessum viðskiptum þar sem gengi bréfanna
hafði hækkað í millitíðinni. Fjárfestirinn, sem er
frá Sameinuðu arabísku furstadæmunum,
hefur verið kærður og er Jan Petter Sissener,
forstjóri KB banka í Noregi, vongóður um
að bankinn fái peningana sína til baka. Erik
Högh, sem var yfir uppgjörsmálum bankans,
var látinn taka pokann sinn eftir að þetta
komst upp. Lögmaður, sem Högh hefur ráðið
til að stefna bankanum fyrir ólögmæta upp-
sögn, er forviða á ákvörðun bankans og
telur með ólíkindum sæta að verðbréfa-
miðlarinn, sem annaðist viðskiptinn við
arabann, skuli ekki vera gerður ábyrgur
fyrir mistökunum.
Peningaskápurinn ...