Fréttablaðið - 17.06.2006, Blaðsíða 12
17. júní 2006 LAUGARDAGUR12
stjornmal@frettabladid.is nánar á visir.is
UMMÆLI VIKUNNAR,, U MÆLI VIKUN AR ,,
Eftir spennuþrungna daga í síðustu viku færðist ró yfir stjórnmálin í vikunni
sem er að líða.
Staðreyndirnar lágu fyrir.
Eltingaleiknum við þing- og trúnaðarmenn stjórnarflokk-
anna lauk á laugardag fyrir viku þegar tilkynnt var um
breytingar á ríkisstjórninni en ýmsar bollaleggingar voru
uppi um skipan mála. Ég held að enginn hafi spáð fyrir
um að Valgerður Sverrisdóttir yrði utanríkisráðherra.
Þær fréttir koma vel til greina sem pólitísk tíðindi vikunn-
ar.
Innkoma Jóns Sigurðssonar í stjórnmálin er vissulega
athyglisverð en það var búið að sá þeim fræjum og kom
því ekki jafn mikið á óvart.
Að sama skapi var búist við að Jón Kristjánsson myndi hætta.
Reyndar eru það talsverð tíðindi að Framsóknarflokkurinn hafi krafist – og
fengið – sjötta ráðuneytið enda almennt talið að flokkurinn hefði hvorki
stöðu til að æskja þess né burði til að bera það. En hafi menn lært eitthvað
af pólitík liðinna áratuga er það að vanmeta ekki framsókn.
Línur í samningunum í Reykjavík voru farnar að skýrast og Fréttablaðið
sagði frá því á þriðjudagsmorgun hvernig nefndarformennsku í fagráðum
yrði skipt. Sögur voru á kreiki um að Björn Ingi væri að svínbeygja Vilhjálm
Þ. og að embættum yrði skipt jafnt en það voru bara sögur. Sex-tvö varð
niðurstaðan.
Og Guðlaugur Þór verður stjórnarformaður Orkuveitunnar! Það hlýtur að
sjóða á Alfreð. Nú fær Guðlaugur litlu, snotru skrifstofuna sem Alfreð hafði
í Alfreð Hall á Bæjarhálsinum.
Mislæg gatnamót á mótum Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar eru vissu-
lega tíðindi. Þau eiga að rísa áður en kjörtímabilið er allt. Innan fjögurra
ára. Það mun ekki ganga andskotalaust fyrir sig að koma framkvæmdinni
á koppinn.
Simmi í Idolinu er varamaður í íþrótta- og tómstundaráði og Andri Snær er
varamaður í menningar- og ferðamálaráði. Nýtt mannréttindaráð borgarinn-
ar er aðeins skipað konum. Hvar er jafnréttið þar?
Mér er til efs að það hafi áður gerst að nýr borgarstjórnarmeirihluti og ný
ríkisstjórn taki til starfa í einni og sömu vikunni. Það eitt og sér eru vissulega
tíðindi.
VIKA Í PÓLITÍK
BJÖRN ÞÓR SIGBJÖRNSSON
Valgerður, Alfreð Hall
og Simmi í Idolinu
Stjórnmálafræðingarn-
ir Einar Mar Þórðarson
og Birgir Guðmundsson
segja ólíklegt að miklar
breytingar verði á verkum
ríkisstjórnarinnar í kjölfar
ráðherraskiptanna þar sem
þrír nýir ráðherrar tóku
sæti í stjórninni og tveir
færðu sig um set.
Forysta Framsóknarflokksins er
forvitnilegasta málið í augsýn
eftir ríkisstjórnarskiptin, að mati
stjórnmálafræðinganna Einars
Mars Þórðarsonar og Birgis Guð-
mundssonar. Mörgum þykir Fram-
sóknarflokkurinn sem höfuðlaus
her eftir að Halldór Ásgrímsson
tilkynnti brotthvarf sitt af vett-
vangi stjórnmálanna og ekki þykir
sýnt hver verður arftaki hans sem
leiðtogi flokksins. Guðni Ágústs-
son, landbúnaðarráðherra og vara-
formaður flokksins, hefur mætt
andstöðu ýmissa flokksmanna og
sömuleiðis Siv Friðleifsdóttir heil-
brigðisráðherra. Þá hefur nýr iðn-
aðar- og viðskiptaráðherra, Jón
Sigurðsson, fyrrverandi Seðla-
bankastjóri, verið nefndur
til sögunnar.
„Það er alveg ljóst að
Guðni og jafnvel Siv og
Jón eru að kanna bakland
sitt í flokknum. Ég geri
fastlega ráð fyrir að
Halldór hafi séð
arftaka sinn í Jóni
og þess vegna
ákveðið að taka
hann inn í ríkis-
stjórnina,“ segir
Einar.
„Það forvitnilegasta er hvernig
samskiptamynstrið verður í ríkis-
stjórninni út af þessari óvissu
goggunarröð í Framsóknarflokkn-
um,“ segir Birgir. „Ég yrði ekki
hissa ef Geir myndi ræða meira
við Jón en hina forkólfa flokks-
ins.“
Einar og Birgir segja báðir
varnarviðræðurnar við Banda-
ríkjamenn, yfirstandandi kjara-
viðræður og blikur í efnahagsmál-
um vera stærstu málin sem ný
ríkisstjórn þarf að glíma við fram
að næstu kosningum. Þar setja
þeir báðir kjaraviðræðurnar
efstar á blað. Þeir eru þó efins um
að miklar breytingar verði á verk-
um stjórnarinnar með nýafstöðn-
um ráðherraskiptum.
Báðir eru þeir hissa á því
hversu fúsir sjálfstæðismenn
voru til að gefa framsóknarmönn-
um aftur umhverfisráðuneytið og
færa ráðherratöluna þannig í
fyrra horf. „Sjálfstæðisflokkurinn
hefði getað heimtað sín sjö ráðu-
neyti áfram á þeirri forsendu að
innanbúðardeilur framsóknar-
manna væru ekki þeirra vanda-
mál,“ segir Einar. „Það er skiljan-
legt að það sé óánægja
með þetta meðal sjálf-
stæðismanna,“
segir Birgir.
Valgerður Sverrisdóttir, nýr
utanríkisráðherra, hefur látið
Geir H. Haarde, nýjum forsætis-
ráðherra, það eftir að leiða áfram
varnarviðræðurnar við Banda-
ríkjamenn. Einar og Birgir segja
það veikja stöðu Valgerðar.
„Það má setja spurningamerki
við það að stærsta verkefnið í
utanríkismálum Íslendinga sé
ekki á könnu utanríkisráðherra,“
segir Einar. Birgir tekur í sama
streng. „Það er ljóst að Valgerður
kemur í utanríkisráðuneytið og
tekur ekki við öllum verkefnunum
og það gerir hana að veikari utan-
ríkisráðherra.“ Þeir eru þó sam-
mála um að það hafi lítið að gera
með persónu Valgerðar, það sama
hafi verið uppi á teningnum þegar
Davíð fór með málið í utanríkis-
ráðherratíð Halldórs Ásgrímsson-
ar.
Birgir og Einar eru sammála
um að Geir H. Haarde gæti orðið
farsæll forsætisráðherra. „Hann
er maður sátta og málamiðlana og
tiltölulega öfgalaus á allan hátt,“
segir Einar. Hann telur jafnframt
að meiri líkindi séu með forsætis-
ráðherrunum Geir og Halldóri en
Geir og Davíð.
Forysta Framsóknarflokks
er forvitnilegasta málið
Vandamálaflokkur
Sjálfstæðismenn í Hafnarfirði hafa ekki átt sjö
dagana sæla síðasta mánuðinn. Þeir töpuðu
einum bæjarfulltrúa sinna í kosningunum
27. maí og nú síðast gerir Fjarðarpósturinn,
fréttabréf Hafnarfjarðar, vandamál flokksins að
umtalsefni. „Svo virðist sem óánægja sé komin
upp innan Sjálfstæðisflokksins með skipun full-
trúa í ráð og nefndir bæjarins,“ segir á forsíðu
síðasta tölublaðs Fjarðarpóstsins. Sagt
er að frambjóðendur flokksins hafi
fyrst heyrt af skipan flokksins í ráð
og nefndir á bæjarstjórnarfundi og
athygli vakin á því að einstaklingur
utan framboðslistans hafi verið
fenginn til að sitja fyrir flokkinn í
Hafnarstjórn.
Fjarðarpósturinn fer hins
vegar mun mýkri höndum um
Samfylkinguna í klausunni sem
henni er úthlutað. Þar eru reglur um nefndar-
skipanir sagðar í gildi hjá flokknum og vitnað
óbeint í ónefndan talsmann sem segir þær
reglur í hávegum hafðar.
Átakafundur?
Fjarðarpósturinn segir frá fundi Sjálfstæðis-
flokksins sem fór fram daginn sem umrætt blað
kom út, og kallar hann fyrirfram „átakafund“ í
fyrirsögn, með varnagla í formi spurningarmerk-
is. Fjarðarpósturinn hefur heimildir fyrir því að
fundurinn verði fjölmennur og að Þorgerður
Katrín Gunnarsdóttir og Árni M. Mathiesen,
hafnfirskir ráðherrar flokksins, láti sjá sig.
Þetta var svo staðfest af Ríkisútvarpinu dag-
inn eftir. Fjarðarpósturinn ýjar að því að
einhver vilji oddvitann Harald Þór
Ólason burt úr röðum flokksins
og segir að búist hafi verið
við tillögu um það á
fundinum. Viðstaddir segjast þó ekki hafa orðið
varir við slíka tillögu, né nokkur önnur átök.
Valgerður Sigurðardóttir, sem kaus að taka ekki
sæti á listanum eftir að hún laut í lægra haldi í
kjöri um efsta sætið í vetur, segir fundinn hafa
verið „allt í lagi“ og að ekki hafi verið minnst
einu orði á nein nefndarsæti. Haraldur segir
eingöngu hafa verið „farið yfir vetrarstarfið“ og
„gengi flokksins í síðustu sveitarstjórnarkosn-
ingum“, eins og við var að búast. Enn
er á huldu hvers vegna umdeildasta
málið meðal flokksmanna var látið
kyrrt liggja á þessum fundi, þar
sem fundurinn hefði verið kjörinn
vettvangur til að ræða málið til
hlítar. Kannski var það vegna
þess að í auglýsingu fyrir
fundinn var tekið fram að
hann yrði „á léttum nótum“.
Úr bakherberginu...
SÍÐASTA RÍKISSTJÓRN HALLDÓRS ÁSGRÍMSSONAR Frá vinstri á myndinni eru: Valgerður
Sverrisdóttir, Siv Friðleifsdóttir, Jón Kristjánsson, Einar K. Guðfinnsson, Árni Mathiesen, Hall-
dór Ásgrímsson, Ólafur Ragnar Grímsson, Geir H. Haarde, Björn Bjarnason, Guðni Ágústsson,
Sigríður Anna Þórðardóttir, Sturla Böðvarsson og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir.
FYRSTA RÍKISSTJÓRN GEIRS H. HAARDE Frá vinstri á myndinni eru: Sturla Böðvarsson,
Magnús Stefánsson, Jón Sigurðsson, Einar K. Guðfinnsson, Árni M. Mathiesen, Geir H.
Haarde, Ólafur Ragnar Grímsson, Valgerður Sverrisdóttir, Björn Bjarnason, Guðni Ágústs-
son, Jónína Bjartmarz, Siv Friðleifsdóttir og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir.
LEIÐTOGINN VEIFAR BLESS Halldór Ásgrímsson yfirgaf ríkisráðsfundinn að Bessastöðum á fimmtudag og sagði þar með skilið við ríkis-
stjórnina sem hann hafði stjórnað. Margir halda því fram að hann skilji Framsóknarflokkinn eftir sem höfuðlausan her við brotthvarf sitt.
„Það má ekki dæma
stóriðjustefnuna eftir
mestu og stærstu
framkvæmdum
Íslandssögunnar, sem
standa nú yfir.“
Jón Sigurðsson, nýr iðnaðar-
og viðskiptaráðherra, í
Fréttablaðinu í gær.
„Nú ætla ég í hálfan
mánuð burt til fjalla, að
skoða fjöll sem ég hef
ekki séð áður.“
Halldór Ásgrímsson,
fyrrverandi forsætisráð-
herra, í Fréttablaðinu í gær.