Fréttablaðið - 17.06.2006, Síða 32
17. júní 2006 LAUGARDAGUR4
Á sýningunni Bílar & sport
gafst gestum færi á að kynna
sér starfsemi sýnenda og fá
upplýsingar um mótorsport.
Sýningin fór fram um síðustu
helgi í Laugardalshöll og var hald-
in á vegum samnefnds tímarits.
Framkvæmdastjóri sýningar-
innnar var Þórður Freyr Sigurðs-
son. „Það var almenn ánægja með
sýninguna, bæði hjá gestum og
eins skipuleggjendum og sýnend-
um. Við ætlum að heildarfjöldi
gesta hafi verið á milli 15 og 16
þúsund og þeir sem hafa unnið á
svipuðum sýningum segja sumir
að gestafjöldi hafi verið meiri nú
en áður.“
Þórður telur sýningu sem þessa
gegna margvíslegu hlutverki.
„Fyrst má kannski nefna að þetta
er góð kynning fyrir tímaritið og
við náðum að styrkja tengsl við
fyrirtæki og félagasamtök. Enn-
fremur er þetta góður vettvangur
fyrir sýnendur, sem voru um 170
talsins, að kynna sína starfsemi og
styrkja tengslin við viðskiptavini
og hvern annan. Loks er svona
sýning gott tækifæri fyrir áhuga-
menn til að kynnast starfsemi
félagasamtaka og fá til dæmis
upplýsingar um það hvernig er
hægt að byrja í rallinu. Það er svo
sjaldan sem maður fær tækifæri
til að kynnast sporti í gegnum
þátttakendur sem vita allt,“ segir
Þórður.
Á allra næstu dögum verður
tekin ákvörðun um hvort standa
eigi fyrir sambærilegri sýningu
að ári og ef svo verður fer undir-
búningur strax í gang. Spurður
um eftirlætis sýningargripinn að
þessu sinni er Þórður fljótur að
svara. „Koenigsegg. Hvort sem
það er bíllinn eða hjónin, Christian
og Halldóra. Við verðum með
myndaþátt í næsta blaði frá ferð
með bílnum til Mývatns, og eins
um sýninguna sjálfa,“ segir Þórð-
ur að lokum.
einareli@frettabladid.is
Gott tækifæri fyrir áhuga-
menn um bíla og sport
Sérsmíðað mótorhjól sem var flutt sérstaklega til landsins fyrir sýninguna.
Perla sýninginnar að margra mati var nýjasta útgáfan af Koenigsegg ofursportbílnum, CCX.
Á sýningunni voru líka flugvélar, bátar og jetski.
Gestum gafst kostur á að skoða mikið úrval mótorhjóla, eins og hér sést.
Opel Roadster í einkaeign. Með glæsilegri sportbílum sem voru á sýningunni, og var þó af
nógu að taka.
Umferðarstofa var með þessa skemmtilegu
en um leið sorglegu auglýsingu á sínum.
Tomcat-bílarnir eru náfrændur Land Rover
og hafa meðal annars tekið þátt í rallinu
í sumar. Hér er verið að útbúa einn sem
alvöru jeppa.
Þessi VW bjalla er handverk Svíans Per
Söder og er smíðuð sem sýningarbíll fyrir
hljómtækjasýningar.
Undir mælaborðinu leynast þrír bassahá-
talarar og einnig má sjá aukahátalara við
dyrnar.
Sparibíll var meðal annars með þennan FJ
Cruizer til sýnis, sennilega hinn fyrsta sem
sést hér á landi.
Þessi vígalegi Hummer á 49“ dekkjum
var meðal þess sem Ferðaklúbburinn 4x4
sýndi á sínum bás.
Opið virka daga 8-18
Umferð um Hvalfjarðargöngin
var 15 prósentum meiri fyrstu
átta mánuði yfirstandandi
rekstrarárs Spalar en á sama
tíma í fyrra.
Þá fóru tæplega 900.000 bílar um
göngin á tímabilinu en nú vel yfir
ein milljón bíla. Rekstrarár Spalar
stendur frá októberbyrjun til sept-
emberloka. Sérstaka athygli vekur
að umferðin jókst verulega á tíma-
bilinu nóvember til febrúar í vetur
eða um 21-28%.
Hins vegar jókst umferð lítið í
nýliðnum maímánuði. Nærtæk
skýring á þeirri breytingu er sú að
hvítasunnan var um miðjan maí í
fyrra en í júní í ár. Hvítasunnan er
jafnan mikil ferðahelgi lands-
manna. Þá má ætla að slæm veðr-
átta á Norðurlandi í ár hafi orðið
til þess að draga úr umferð um
göngin.
Nettótekjur Spalar af umferð-
inni minnkuðu um 8,5 prósent
fyrstu átta mánuði rekstrarársins
miðað við sama tímabil í fyrra
þrátt fyrir að umferðin hafi aukist
verulega. Þar birtast skýrt áhrif
gjaldskrárlækkunar 1. apríl 2005.
Nettótekjur af hverri ferð um
göngin voru 516 krónur mánuðina
október 2005 til maí 2006 en 650
krónur á ferð sömu mánuði 2004
og 2005. Tekjusamdráttur á ferð á
tímabilinu er því 20,5 prósent.
Alls eru nú um 11.500 áskriftar-
samningar um ferðir í gildi hjá
Speli og veglyklar í notkun eru um
25.000 talsins.
15% aukning í
Hvalfjarðargöngin
Frá gerð Hvalfjarðargangnanna.
FRÉTTABLAÐIÐ/HILMAR ÞÓR