Fréttablaðið - 17.06.2006, Blaðsíða 33

Fréttablaðið - 17.06.2006, Blaðsíða 33
][ Óskar Páll Sveinsson með átta punda urriða úr Laxá í Mývatns- sveit Rómarvefurinn er hreinasta gullnáma fyrir unnendur Ítalíu enda má þar finna upplýsingar um næstum allt það sem teng- ist ítalskri menningu. Rómarvefurinn heldur um þessar mundir upp á fimm ára starfs- afmæli sitt. Vefurinn er helgaður menningu og sögu Ítalíu þar sem sérstök áhersla er lögð á borgina Róm. Vefurinn er ætlaður öllum þeim sem vilja fræðast um Ítalíu en segja má að vefurinn henti sér- lega vel fyrir ferðamenn sem ætla að legga leið sína til þessa fallega lands. Rómarvefurinn er ferða-, menn- ingar- og söguvefur. Meðal þess efnis sem finna má á vefnum eru ferðaupplýsingar um Róm, greinar um páfa og Páfagarð, stjórnkerfi Ítalíu, samskipti Íslands og Rómar fyrr á tímum, óperu og myndlist, matarumfjöllun og uppskriftir auk ýmissa pistla og greina. Vefurinn er sá eini sinnar teg- undar á Íslandi og hefur hann fengið góða umsögn hjá almenn- ingi og fagaðilum. Kristinn Pét- ursson er hönnuður vefsins og rit- stjóri hans, en Kristinn bjó í Róm um tveggja ára skeið. Þeir sem hafa ábendingar, ferðasögur, pistla eða myndir frá Róm eða Ítalíu eru hvattir til að hafa samband. Þá er sérstaklega óskað eftir leiðsöguefni í formi kvikmynda eða sem hljóðefni. - jóa Rómarvefurinn.is Rómarvefurinn er ítarlegur upplýsingavefur um Róm og Ítalíu. Veiðisumarið með Stefáni Jóni Hafstein Ódýr og góð veiði í vötnum Fleiri veiðifréttir og heilræði við veiðar á www.flugur.is; Flugufréttir koma alla föstudaga í tölvupósti til áskrifenda á flugur.is með ítarlega umfjöllun um allt sem varðar veiðiskap í sumar. Fjallað er um Mývatnssveit og næsta umhverfi hennar í árbók Ferðafélags Íslands fyrir árið 2006. Mývatnssveit - með kostum og kynjum, nefnist nýjasta árbók FÍ. Bókina ritar Jón Gauti Jónsson landfræðingur en myndirnar hefur tekið hinn kunni fuglaljós- myndari Jóhann Óli Hilmarsson. Mývatnssveit - með kostum og kynjum er þannig upp byggð að höfundur tekur lesanda með sér í ferðalag um sveitina, ofan af Mývatnsheiði og niður að bæjun- um við Laxá, síðan fram á Suður- bæi áður en förinni er haldið áfram meðfram vatninu sunnan og austan þess. Komið er í hlað á ýmsum bæjum þar sem ferða- mönnum býðst beini og gisting eins og á Skútustöðum og í Reykjahlíð. Síðan er haldið með bæjum norðan vatns og hringnum lokað við Laxá. Eftir að hafa skoðað byggðina er haldið upp á heiðar, fjöll, hraun og sanda umhverfis alla sveit. Komið að Kröflu, brölt í Búrfellshrauni, litið á Lúdent, haldið á Heilagsdal, farið um Fremrináma, skotist í Sellönd og Suðurárbotna. Um leið og landinu er lýst er haldið á vit sögu og sagna, sögð deili á fólki, lífsbaráttu þess og lifnaðarháttum, en einnig hugað að náttúrunni sem óvíða í landinu er jafn fjölbreytt og við Mývatn. Árbók FÍ Mývatnssveit - með kostum og kynjum BEINT FLUG TIL GENFAR OG ZÜRICH Í SVISS Vikulegt flug í sumar frá Keflavík til Genfar frá 17. júní og til Zürich frá 1. júlí. Flogið fram í ágúst. Tilkomumikil og áhugaverð ferðamannasvæði eru innan seilingar. Tilboðsverð: kr. 23.000 (m.sköttum) Bókið og staðfestið strax á ferðaskrifstofunni, Hesthálsi 10, s. 587 6000, info@vesttravel.is www.vesttravel.is www.trex.is Beint flug til Sviss! Bókið og staðfestið strax á ferðaskrifstofunni, Hesthálsi 10, s. 587 6000, info@vesttravel.is www.vesttravel.is www.trex.is HAUSTFERÐIRNAR TIL ST. JOHN’S Á NÝFUNDNALANDI HAFA SLEGIÐ RÆKILEGA Í GEGN Brottfarir 2006: 28. - 31. okt. (lau. - þri.), 31. okt. - 4. nóv. (þri. - lau.) og 4. - 8. nóv. (lau. - mið.) Áhugaverðar og ljúfar borgar- og verslunarferðir fyrir einstaklinga jafnt sem hópa. Aðeins 3 - 3,5 klst. beint flug og gist á glæsilegum hótelum. Verð með sköttum frá kr. 57.300 m.v. tvo í herbergi á Holiday Inn. Komið með til Kanada! Handbók með ítarlegum upplýsingum, kortum o.fl. fylgir! Fæst á ESSO, í veiðivöruverslunum og á www.veidikortid.is Bestu kaupin! MÁL OG MENNING HEFUR GEFIÐ ÚT FERÐABÓK FÍUSÓLAR EFTIR KRISTÍNU HELGU GUNNARS- DÓTTUR MEÐ MYNDSKREYTINGUM HALLDÓRS BALDURSSONAR. Fíasól er skemmtileg stelpa sem á ferðalagasjúka fjölskyldu sem helst vill eyða öllum sínum tíma á flakki um fjöll og firnindi. Fíusól finnst vissulega gaman að ferðast líka en stundum finnst henni nóg um. Þess vegna finnst henni gott að kunna mikið af leikjum, þrautum og gátum til að stytta sér stundir í ferðalaginu. Í bókinni má finna bílaleiki, útileiki, litamyndir, þrautir og gátur og skemmtilegar sögur. Fíasól í ferðalag Ísland er eitt fallegasta land veraldar. Hversu mikið hefur þú séð af því? Hvernig væri að hvíla Spán þetta árið og skoða farsældar frón? Laxveiðin fer heldur hægt af stað í Borgarfirðinum, og það sem verra er, lítið um stórlax þrátt fyrir að smálaxagöngur í fyrra hafi verið mjög góðar. Áður fyrr töldu menn ljóst samhengi milli sterkra smálax- aganga eitt árið og stórlaxasumars næst á eftir, en nú er öldin önnur. Íslenski stórlaxinn á mjög undir högg að sækja. Nú er farinn að sjást smálax í göngum sem kann að vita á gott með hann. Aðstæður hafa verið mjög slæmar, vatnavextir og kuldi í vikunni sem leið, það er kominn tími á betra veður! Vatnaveiðin er góður kostur Þeir sem búa i eða við höfuðborgina eiga auðvelt með að komast í góða og ódýra veiði: Heimsklassaveiði á láglaunaverði. Hér er átt við vötnin við borgina: Þing- vallavatn, Elliðavatn og Vífilsstaðavatn. Nú í júní er besti tími sumarsins í þessum vötnum, bjart allan sól- arhringinn, lífríkið að vakna og fiskarnir í miklu töku- stuði. Á Þingvöllum er sannkölluð paradís, stórir fisk- ar, nóg af þeim og rúmt um alla veiðimenn ef menn þyrpast ekki allir á sömu grjótin. Meginreglan er að veiða djúpt, margir nota hægtsökkvandi línur eða flotlínu með mjög löngum taumi og þungum flugum. Kuðungableikjan hefur verið sein að landi eftir vetr- ardvöl á dýpinu í vor vegna kulda og veiði verið minni en oft áður, en sumir sett í góða urriða á móti. En á bleikjuna notum við flugur í stærðum 8-10 Peacock, Killer, Watson‘s Fancy og fleiri góðar. Dragið hægt með botni. Elliðavatn og Vílsstaðavatn bjóða upp á hæfilega pönnufiska, þetta eru grunn vötn; notið flotl- ínu með löngum taumi (12 fet) og verið duglega að skipta um flugu ef ekki gefur. Á veiðivefnum hjá mér, flugur.is, eru mjög greinargóðar lýsingar á þessum þremur vötnum eftir vana veiðimenn, kort og ráð- leggingar um flugur. Heilræði vikunnar: Hugaðu að línunni! Hvort sem menn veiða með flugulínu eða girni á kast- hjóli þarf að huga að línunni áður en haldið er í fyrsta veiðitúr. Fluguveiðimenn ættu að bóna línuna með sleipiefnum og treysta alla hnúta – og ekki nota taum- girni frá í fyrra! Þeir sem nota kasthjól ættu að fara beint í næstu búð og skipta. Þetta er ódýr vara en gæti reynst dýrt að missa eina fisk dagsins vegna þess að maður tímdi ekki nokkur hundruð krónum í nýtt girni. Með veiðikveðju, Stefán Jón.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.