Fréttablaðið - 17.06.2006, Blaðsíða 46

Fréttablaðið - 17.06.2006, Blaðsíða 46
 17. júní 2006 LAUGARDAGUR30 Kaupmáttarskerðing er fyrirsjáanleg. Verðbólgu- hraðinn er um 16 prósent og hefur ekki verið svo mikill frá því fyrir 1990. „Óvissu- tímar,“ segir Einar Oddur Kristjánsson, varaformaður fjárlaganefndar, í samtali við Guðrúnu Helgu Sig- urðardóttur. Almenningur óttast þróunina í efnahags- málum og verkalýðshreyf- ingin vill fá tryggingu fyrir því að það takist að verja kaupmátt fólks. Samningaviðræður hafa staðið yfir síðustu vikur milli aðila vinnu- markaðarins með þreifingum innan ríkisstjórnarinnar um það hvernig megi leysa þann vanda sem fyrirsjáanlegur er í efnahag þjóðarinnar. Ýmislegt hefur komið til umræðu og má búast við að málið skýrist betur um miðja næstu viku þegar ríkisstjórnin hefur lagt fram tilboð sitt og verkalýðshreyfingin getur tekið afstöðu til þess. En um hvað er rætt? Allt að 5,5 prósent Fulltrúar landssambanda ASÍ áttu fundi með Samtökum atvinnulífsins í síðustu viku þar sem þeir fengu skýringar á til- boði Samtaka atvinnulífsins. Til- boðið hljóðaði upp á 12 þúsund króna launahækkun yfir línuna og tvö prósent í viðbót til þeirra sem ekki hafa fengið neitt launa- skrið undanfarið ár. Heildar- hækkunin yrði því 4,5 prósent þegar 2,5 prósenta hækkunin sem kom um síðustu áramót er tekin með. Þó tilboðið hafi í eðli sínu verið einfalt þá hafa komið upp ýmis álitaefni og hafa spurningarnar til dæmis snúist um það hvernig tilboðið kemur út gagnvart mis- munandi launakerfum, ákvæðisvinnukerfi, bónusvinnukerfi og öðru launakerfi sem kann að hafa þróast í fyrir- tækjum og starfsgreinum. Við þess- um spurningum telja menn sig nú hafa fengið full- nægjandi svör. Það er þó langt í land ennþá. Bæði hefur verkalýðshreyfingin látið í ljós óskir um krónu- töluhækkun upp í 15 þúsund krónur og prósentuhækkun þannig að heildarhækkunin verði allt að 5,5 prósentum. Þá hefur ríkisvaldið ekki sent frá sér neitt tilboð en væntingar eru um að það berist um eða eftir helgina þannig að hægt verði að reikna út ávinninginn og taka afstöðu til þess um miðja vikuna. Þarf eitthvað til viðbótar Ríkisstjórnin hefur lýst yfir opin- berlega að hún fallist á hækkun barnabóta og breytingar á vaxta- bótakerfinu í samræmi við hækk- andi fasteignaverð síðustu miss- eri en hafnað kröfu um nýtt og lægra skattþrep fyrir lágtekju- fólkið. Talað er um að hækka skatt- leysismörkin um næstu áramót. Nýtt skattþrep hefur lengi verið eitt af baráttumálum ASÍ og segir Halldór Grönvold, aðstoðarfram- kvæmdastjóri ASÍ, að ekki hafi verið tekin afstaða til þess innan hreyfingarinnar hvort hærri per- sónuafsláttur gæti komið til greina í staðinn. „Við teljum að nýtt og lægra skattþrep sé skynsamleg niður- staða en ef þessi leið á að koma til álita þarf að vera tryggt að það komi eitthvað til viðbótar við þá hækkun sem fyrirsjáanleg er hvort sem er. Ef þessi leið verður farin þarf að vera tryggt að skatt- leysismörkin hækki umtalsvert að raungildi,“ segir Halldór. Rætt er um fleiri atriði, til dæmis að styrkja vinnumarkað- inn, fyrst og fremst með alþjóða- væðinguna í huga og aukna starf- semi erlendra fyrirtækja hér á landi, þannig að erlend fyrirtæki virði hér reglur og lög og að launa- fólk, sem kemur hingað til starfa, njóti þeirra réttinda og kjara sem gilda á vinnumarkaði hér. Auk þess hefur verið rætt um hvernig öryrkjar, ellilífeyrisþegar og atvinnulausir gætu fengið hlið- stæðar kjarabætur og á vinnu- markaði. Halldór segir að til að sam- komulag náist og kjarasamningar verði bundnir út árið 2007 sé mik- ilvægt að það takist að efla trú samfélagsins á því að stjórnvöld- um takist í raun og veru að draga úr verðbólgu og koma á stöðug- leika. Ávinningur af samningum brenni ekki upp á verðbólgubáli. Eins prósenta lækkun tekjuskatts Einar Oddur Kristjánsson, vara- formaður fjárlaganefndar alþing- is, hefur fylgst með viðræðum Samtaka atvinnulífsins og Alþýðu- sambands Íslands. Hann gerir sér vonir um að ríkisstjórnin geti lagt veruleg lóð á vogarskálarnar til þess að samningar takist. „Það er afar brýnt og þýðingarmikið og getur haft verulega þýðingu fyrir framvindu mála á næstu misser- um á Íslandi að þessir samningar takist,“ segir hann. Þegar Einar Oddur er beðinn um að meta hvernig samkomulag gæti litið út telur hann að í stað tveggja prósenta lækkunar á tekju- skatti um áramót gæti komið til greina að lækka tekjuskattinn um eitt prósent og hækka í staðinn skattleysismörk. „Það er drýgra og betra fyrir lág- launamanninn og ég get séð fyrir mér að menn gætu náð samkomu- lagi um slíkt,“ segir hann. Einar Oddur telur að ríkis- stjórnin hafi jákvætt viðhorf varðandi hækkun barnabóta og að viðmið varðandi vaxtabætur verði hækkuð í takt við hækkanir á fasteignaverði á undanförnum misserum. Hann telur líka að ekki verði komist hjá því að taka á málefnum Íbúðalána- sjóðs og þá helst þannig að hámarks- lán sjóðsins verði lækkuð niður í það sem þau voru áður fyrir svo utan vaxta- lækkun. Ábyrgðarleysi hjá sveitarfélög- unum Íslendingar þurfa að beita öllum ráðum til að draga úr umsvifum í þjóðfélaginu. Einar Oddur telur að ríkisstjórnin eigi ýmis meðul, til dæmis verði hún að krefja sveitarfélögin um að ganga í takt með sér. Sveitarfélögin hafi farið óvarlega, til dæmis í launamál- um. „Sveitarfélögin verða að gera sér grein fyrir að þau bera ábyrgð á sjálfum sér. Tiltölulega fá sveit- arfélög hafa efni á því að hækka launin eins mikið og þau hafa verið að gera. Sveitarfélögin hafa haft forgöngu um þessar launahækkan- ir og það er algjörlega ábyrgðar- laust,“ segir hann. Einar Oddur telur að ekki verði hjá því komist að fara varlega í fjárlögum næsta árs. Hann segir að miðað við efnahagshorfur sé enginn grundvöllur til þess að ríkið auki að raungildi samningslauna- eða tekjumillifærslur á næsta ári. „Við verðum að komast í gegnum þá verðbólgu sem við erum að horfast í augu við. Það er bara þyngra en tárum taki að ræða það ef verðbólgan festir sig í sessi. Þá erum við komin í vond mál,“ segir hann. Einar Oddur vill leggja pening- ana sem fengust fyrir Símann inn í gjaldeyrisvarasjóð Seðlabankans og fresta framkvæmdum. Það liggi ekkert á þeim. „Við þurfum fyrst og fremst að gæta okkar í efna- hagsmálum. Það er það sem skiptir öllu máli. Hitt getur beðið.“ Einar Oddur leggur til að ríkis- stjórnin afnemi og breyti lögum um ráðstöfun Símapeninganna. Hann telur samning- inn milli ríkisins og Reykjavíkurborgar um byggingu tónlistarhúss ótímabæran og fjar- stæðu að ætla sér í þá framkvæmd núna. Vanmat á ógnarkrafti Tíminn er naumur, nógu lengi hefur rekið á reiðanum í efnahags- málum. Einar Oddur segir brýnt að slá á væntingar og gera þjóðinni grein fyrir því að horfurnar eru alvarlegar og það verði að bregð- ast við þeim. Ríkisstjórnin mun höfða til bankanna líka og þeir muni bregðast við stöðunni því að allir eigi mikið undir því að brugð- ist verði rétt og skynsamlega við. Sama ríkisstjórnin hefur verið við völd nú í mörg kjörtímabil. Hávær gagnrýni hefur verið síð- ustu misseri og því má spyrja af hverju ekkert hefur verið gert. Einar Oddur segir að ýmislegt hafi verið vanmetið í efnahagsmálun- um. „Það liggur á borðinu að menn vanmátu á sínum tíma hvílíkan ógnarkraft við leystum úr læðingi með því að einkavæða bankana. Það er staðreynd sem við komumst ekki hjá,“ segir hann. „Ég hef líka gagnrýnt þá linkind sem menn hafa sýnt í þróun launa- mála. Það er engum til gagns að hækka laun umfram framleiðni í samfélaginu. Menn eiga að þekkja það hvaða afleiðingar víxlverkun verðlags og kaups er fyrir samfé- lagið í heild. Við megum ekki falla í þá gryfju. Við sátum í þeirri gryfju okkur til skelfingar í tvo áratugi.“ - En af hverju eru menn að vakna upp við vondan draum nú? „Menn trúðu Seðlabankanum. Menn trúðu því að með Seðlabank- anum væri hægt að halda uppi genginu svona lengi. Með því að halda genginu uppi, verð- laginu niðri og vöxtum lágum myndi gengið hægt og rólega leita að jafn- vægi sínu og þá væri auðveldara að eiga við verðlags- breytingar. Þetta var boðskapur Seðlabankans í mörg ár,“ svarar Einar Oddur og telur að taka beri aðvaranir erlendra sérfræðinga mjög alvarlega. „Það á ekki að gera lítið úr þess- um aðvörunum. Ef hlaup kemur aftur í gengið þá horfir ekki vel fyrir okkur og þá er ekki langt í það sem Den Danske Bank sagði. Þess vegna eigum við að taka þess- ar aðvaranir alvarlega, stíga á stokk og strengja þess heit að það verði aldrei að veruleika sem þeir vöruðu við.“ ÓVISSUTÍMAR Í EFNAHAGSMÁLUM EINAR ODDUR KRISTJÁNSSON „Menn trúðu Seðlabankanum,“ segir Einar Oddur Kristjáns- son, varaformaður fjárlaganefndar Alþingis, um ástæðuna fyrir því af hverju ekki var búið að bregðast við efnahagshorfum þjóðarinnar fyrir löngu. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL. HALLDÓR GRÖNVOLD „Við teljum að nýtt og lægra skattþrep sé skynsamleg niður- staða,“ segir Halldór Grönvold, aðstoðar- framkvæmdastjóri ASÍ. Ef skattleysismörk verða hækkuð telur hann nauðsynlegt að tryggja að þau hækki umtalsvert að raun- gildi. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA TÍMINN ER NAUMUR Verðbólgan er átta prósent og verðbólguhraðinn um 16 prósent. Svo mikill verðbólguhraði hefur ekki sést í mörg ár. Horfurnar eru ógnvænlegar og nauðsynlegt að grípa strax til ráðstafana, að mati verkalýðshreyfingarinnar og varaformanns fjárlaganefndar Alþingis. Hætta er á að kaupmáttur fólks minnki verulega og að láglaunafólkið eigi ekki fyrir salti í grautinn. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA HVAÐA EINKUNN FÆR RÍKISSTJÓRNIN FYRIR HAGSTJÓRNINA? FRIÐRIK PÁLSSON ráðgjafi og hótelhaldari. „Hagstjórnin hefur verið býsna góð, það hefur verið mikill uppgangur og góð lífskjör en framkvæmda- gleðin hefur verið of mikil. Það reynir á forystu ríkis- stjórnarflokkanna í aðdraganda kosningaárs að taka á verðbólgunni. Það ætti ekki að vera erfitt að slá á þensluna með því að fresta opinberum framkvæmd- um, til dæmis að endurskoða alvar- lega hvort ekki ætti að bæta innviði heilbrigðiskerfisins frekar en að byggja rándýrt stórhýsi undir LSH.“ ÖRN RAGNARSSON verkefnisstjóri hjá Rauða krossinum. „Ríkisstjórnin hefur ein- faldlega ekki unnið vinn- una sína. Húsnæðismark- aðurinn er í uppnámi út af lélegri hagstjórn. Verð- bólgunni hefur verið hleypt af stað, til dæmis með opinberum fram- kvæmdum, þegar vel hefði átt að vera hægt að koma í veg fyrir þessa verð- bólgu.“ GUÐMUNDUR KRISTJÁNSSON hafnarstjóri Ísafjarðarhafnar. „Ríkisstjórnin fær mesta mínusinn fyrir það að missa verðbólguna úr böndunum, annars hefði hún fengið 7,5 fyrir við- leitni. Þeir sem skulda verðtryggð lán og lán í erlendri mynt sjá fram á það að afborganir þyngjast umfram tekjuaukningu. Menn sem taka lán gera áætlanir um það hvernig þeir ætla að greiða þau en þegar hag- stjórnin og verðbólgan fara úr bönd- unum riðlast öll áform.“ ÓSK VILHJÁLMSDÓTTIR fararstjóri. „Ég gef ríkisstjórninni falleinkunn fyrir stór- iðjustefnu, 15-20 pró- senta verðbólguhraða, óstöðugleika og þenslu. Einkavæðing bankanna var hins vegar skynsam- leg en ekki vel að henni staðið.“ Einkunn 8.0 Einkunn 5.0 Einkunn 5.0 FALLEINKUNN 9,4% Janúar 2002 1,4% Janúar 2003 8,0% Júní 2006
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.