Fréttablaðið - 17.06.2006, Síða 48

Fréttablaðið - 17.06.2006, Síða 48
48 28. janúar 2005 FÖSTUDAGUR www.bluelagoon.is Orka Í 10 ár hefur Séð og heyrt fært þjóðinni fréttir af fræga og fallega fólkinu á Íslandi. Snæfríður Inga- dóttir settið niður á Þjóð- arbókhlöðunni og fletti í gegnum gamla árganga af blaðinu og heyrði í ritstjór- unum sem stýrt hafa þessu vinsælasta slúðurtímariti landsins. Séð og heyrt er blað sem fáir kannast við að kaupa en flestir eru samt sjúkir í að lesa. Sem mest lesna selda blað landsins er ljóst að Íslending- ar hafa afar gaman af því að lesa um skart og kjóla fína fólksins, um skilnaði og ástarlíf fyrirmenna sem og undarlegar lífsreynslusög- ur. Fyrrverandi ritstjórar blaðs- ins, þeir Bjarni Brynjólfsson og Kristján Þorvaldsson, sem ritstýrt hafa blaðinu frá upphafi en létu nýlega af störfum, gefa ekki uppi leyniuppskriftina á bak við vin- sældir blaðsins en líklega sé hún góð blanda af öllu framantöldu. „Sumt fólk seldi vissulega betur en annað. Það var nú löngum sagt að Fjölnir Þorgeirsson væri ofnot- aður en hann gaf nokkuð vel af sér,“ segir Kristján og bætir við að skemmtilegur skilnaður hafi líka oft verið happadráttur. „Við spegluðum það sem var í gangi og fjölluðum um þá sem mest voru í sviðsljósinu á hverj- um tíma,“ segir Bjarni og viður- kennir að blaðið hafi líka ýtt undir vinsældir og frægð sumra. Þar á meðal Fjölnis Þorgeirssonar sem oft hefur birst á síðum blaðsins. „Ég er endalaust þakklátur fólki eins og Fjölni, Lindu P. og Svan- hildi Hólm, svona fólk gerir lífið skemmtilegra,“ segir Kristján en þess má geta að eitt söluhæsta tölublað blaðsins skartaði einmitt forsíðu með Lindu P. og Fjölni. Séð og heyrt væðing forsetaembætt- isins Þegar Fróði setti Séð og heyrt á markað fyrir tíu árum hafði álíka blað aldrei verið gefið út á Íslandi. Slúðurblöð, þar sem aðaláherslan var lögð á hið myndræna, höfðu verið gefin út í Skandinavíu og var hugmyndin að blað- inu sótt þangað. „Ég verð að segja að ég var ekkert viss um að þetta myndi hvell- virka hér á Íslandi. Ég hélt að Íslendingar væru meiri bókaþjóð og vildu meira lesefni,“ segir Bjarni en annað kom á daginn. Erlendis þrífast svona blöð að miklu leyti á sögum af kóngafólki og því kemur ekki á óvart að for- setinn og fjölskylda hans hafi oft verið í íslenska Séð og heyrt enda forsetaembættið það sem næst kemst konungsfjölskyldu nágrannaþjóðanna. „Árið 1996 varð Ólafur Ragnar forseti landsins og á fyrstu for- síðu blaðsins var hann með túrban á höfði. Síðan þá hefur hann fylgt blaðinu og margir hafa talað um Séð og heyrt-væðingu forsetaemb- ættisins og hún er vissulega frek- ar okkur að kenna en honum. Við höfum auðvitað fylgst grannt með því sem hann hefur verið að bauka enda oft mikill glamúr í kringum það. Íslendingar eru bara eins og aðrar þjóðir þeim finnst gaman að skoða flottar myndir,“ segir Bjarni. Könnun Fréttablaðsins á öllum útgefnum tölublöðum Séð og heyrt sýnir reyndar að forseta- frúin Dorrit hefur skotið Ólafi ref fyrir rass hvað umfjöllun blaðs- ins varðar því hún er sú persóna sem hefur langoftast birst á for- síðu blaðins á 10 ára ferli þess. „Við vorum náttúrulega þeir fyrstu til að kynna þessa vinkonu forsetans fyrir þjóðinni og höfð- um afar gaman af því,“ segir Bjarni. Ljósvakalýður og leikarar með hræsni Ritstjórarnir hafa vissulega feng- ið kvartanir vegna efnisvals en Bjarni segir að slíkt hafi yfirleitt gengið fljótt yfir. „Það er mikil hræsni í gangi gagnvart blaðinu sérstaklega hjá leikarastéttinni og ljósvakalýðnum. Það er langversta liðið að eiga við í þessum bransa,“ segir Kristján. Að hans sögn ber þetta fólk enga virðingu fyrir þessari tegund af blaðamennsku. „Þegar blaðamaður hefur sam- band að fyrra bragði þá fer þetta fólk í vörn og setur sig í gáfu- mannastellingar og talar um hvað þetta er ómerkileg blaðamennska. Þessu sama fólki finnst samt alveg sjálfsagt að hafa samband þegar það er að setja nýjan þátt á dag- skrá eða er að markaðsetja nýtt leikrit. Það er sem sagt til í að mis- nota blaðið þegar því hentar en ata það aur þess á milli.“ „Við höfðum alltaf þá stefnu að ganga ekki nærri fólki. Ef við vorum að hnýsast í einkalíf eða fjalla um skilnaði þá pössuðum við upp á að það væri gert í jákvæðum tóni. Það má því segja að Séð og heyrt hafi aldrei verið meinfýsið blað,“ segir Bjarni og bætir við að allir blaðamenn sem starfa á Íslandi viti að það er mikið plögg í gangi og sumum henti mjög vel að vera í sviðsljósinu. Þannig sé til dæmis Gaui litli og fleiri plöggar- ar af guðs náð eins og það kallast og því ekki erfitt að fá hann til að pósa nakinn á forsíðunni í einu af jólablaðinu. „Það sem háir svona blaði er hvað þessi frægðarhringur hér er lítill en samt er hann í sjálfu sér ekkert minni en í nágrannalönd- unum. Það eru alltaf einhverjir sem eru heitastir á hverjum tíma og þeir lenda aftur og aftur á for- síðunni.“ Bjarni heldur áfram: „Íslendingar eru líka ákaflega hræddir við það að standa upp úr og tilfinningin er sú að þeir sem eru frægir vilja helst ekki vera það. Þeir eru líka mjög viðkvæmir fyrir umfjöllun. Erlendis er til svo mikils að vinna. Þar vilja allir vera frægir því maður græðir svo mikið á því. Það að vera þekkt and- lit erlendis gefur möguleika á aug- lýsingasamningum og fleiri tæki- færum sem minna er um hérlendis.“ Það þýðir þó lítið að fylla upp síðurnar með útlendingum því að sögn Bjarna þá virðast Íslending- ar mestan áhuga hafa á sjálfum sér. „Við settum stundum erlendar stjörnur á forsíður fyrstu blað- anna en það var ekki að virka, það má þó vera að þetta sér að breyt- ast núna. Miðað við aðrar þjóðir þá hafa Íslendingar bara áhuga á sjálfum sér því bæði norska og danska Séð og heyrt er oft með erlent efni á forsíðu.“ Jafn vandasöm blaðamennska og önnur Séð og heyrt hefur líka oft verið kallað slúðurblað og Bjarna er ekki illa við þann stimpil. „Þó að við höfum ekki verið hreinræktað slúðurblað þá var stimpillinn ekki svo slæmur því hann ýtti undir forvitni fólks.“ Umfjöllunarefni blaðsins hefur stundum lent í fréttatímum hinna fjölmiðlanna, eins og t.d. fréttir af næturflugi forsetafrúarinnar með Jóni Ásgeiri í fyrra, en blaðið er þó fyrst og fremst afþreyingarblað. „Við höfum tekið á ýmsum málum eins og fátækt, vímuefna- neyslu og hinu og þessu sem hefur verið efst á baugi í þjóðfélaginu og birt óteljandi lífsreynslusögur um allt milli himins og jarðar.“ Kristján segir að viðhorf ann- arra blaðamanna til blaðsins um árin hafi farið í taugarnar á sér. „Við fengum oft þá spurningu frá gáfudrengjum í íslenskri blaða- mannastétt hvenær við ætluðum að fara að gera eitthvað af viti. Við vorum hins vegar að gera þetta vel og náðum að sanna að það væri hægt að gefa svona blað út á Íslandi. Ég held samt að eftir því sem aðrir fjölmiðlar hafi þróast í þá veru að þjóna skemmtanagild- inu þá hafi þessir kollegar mínir sem rignt hefur upp í nasirnar á smám saman áttað sig á því að þetta er jafn vandasöm blaða- mennska og hver önnur.“ Ríkidæmi þjóðarinnar Þegar ritstjórarnir eru spurðir að því hverju Séð og heyrt hafi breytt í íslensku þjóðfélagi þá stendur ekki á svari frá Bjarna. „Blaðið hefur breytt fréttamat- inu, aðallega þá hvað uppsetningu og matreiðslu á efni varðar. Það var t.d. áður en við komum óþekkt fyrirbæri að dagblöðin væru með fyrirsagnir á myndatexta. Öll mat- reiðsla á efni var mun stífari og lesendur leiddir minna inn í efnið heldur en hjá okkur. Áður en við komum á markað var heldur eng- inn miðill sem sagði nærgöngular fréttir af fólki þó svo okkar sér- staða hafi samt sem áður aðallega falist í því hvað framsetningin var myndræn, Séð og heyrt er eigin- lega sjónvarp í tímaritsformi. Dag- blöðin hafa aukið myndræna fram- setningu sína til muna og birta oft heilu síðurnar bara með myndum. Einnig þekktist það ekki að heilt tímarit væri prentað í lit og kæmi svona oft út eins og Séð og heyrt. Nú svo má líka segja að við höfum haft þau áhrif að Íslendingar eru ekki lengur eins feimnir við það að vera ríkir. Við opnuðum umræð- una um ríkidæmi þjóðarinnar með því að birta myndir af bíla- og húsakaupum auðmanna. Eftir því sem ríkidæmi þjóðarinnar hefur vaxið þá er fólk ekki eins feimið við að flagga eigum sínum, en áður voru menn með þetta í felum. Ég held að mörgu leyti að það hvernig við skrifuðum um þessi mál hafi líka gert það að verkum að fólk hafi ekki fundist ástæða til þess að vera í felum með sinn aur.“ Skemmtilegur skiln- aður er happadráttur

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.