Fréttablaðið - 17.06.2006, Síða 49
LAUGARDAGUR 17. júní 2006 33
www.bluelagoon.is
Orka
Frá upphafi hefur aftasta
síða Séð og heyrt hýst Séð
og heyrt stúlkuna. Margar
stúlkur hafa prýtt þessa
síðu í hinum ótrúlegustu
stellingum og mismikið
klæddar.
Hlutfallslega fáar af þeim stúlkum sem setið hafa fyrir á öft-ustu síðu Séð
og heyrt hafa náð
langt í fyrisætu-
bransanum. Ein-
hverjar þeirra hafa
þó náð langt á
öðrum sviðum og
þar má helst nefna
söngkonuna Birgittu
Haukdal sem sat fyrir
á síðunni í bláum kjól
árið 1997. Myndin var
tekin á Ísafirði þar sem hún var
að vinna á leikskóla og var ekkert
minnst á söng í viðtalinu. Þórdís
Elva Þorvaldsdóttir Bachmann
pósaði í gamaldags náttfötum á síð-
unni árið 1997 en hún er í dag hvað
þekkust fyrir leikrita-
smíð. Leikkonan
Halla Vilhjálms-
dóttir prýddi
síðuna sumarið
1998 en þá var
hún 16 ára
gömul og vann
sem læknarit-
ari á augn-
lækningastofu.
Halla gerði gott
betur en það því
hún prýddi síðuna
líka um áramótin það sama
ár. Leikkonan Nanna Kristín Magn-
úsdóttir sat líka fyrir á síðunni á
sínum tíma, þá var hún nýútskrif-
uð úr leiklistarskólanum. Söngkon-
an Rósa Guðmundsdóttir stillti sér
upp fyrir ljósmyndara Séð og heyrt
þegar hún var 19 ára og talaði þá
um dálæti sitt á Madonnu sem hún
hafi hitt í partíi hjá Björk. Fata-
hönnuðurinn Birta Björnsdóttir
var meðal annars mynduð í kvöld-
sól á Kanaríeyjum og
fyrirsætan Helga Lind
Björgvinsdóttir sat
fyrir buxnalaus og á
íþróttatreyju á síð-
unni þegar hún var
18 ára gömul.
Fyrirsætan Ásdís
Rán Gunnarsdóttir
hefur sést oftar en
einu sinni á síðunni, en
hún prýddi hana fyrst
19 ára gömul þá stutt-
hærð í röff selskinns-
fatnaði. Selskinn hefur
reyndar verið afar
vinsælt á þessarri
síðu og hefur sést
þar í hinum ýmsu
myndum, til dæmis í
formi baðfata og
stuttra pilsa. Þó að
flestar þær stúlkur
sem setið hafa fyrir á
síðunni hafi verið í fáklædd-
ari kantinum þá eru þess líka
dæmi að fyrirsæturnar hafi haft
meiri fatnað utan á sér en minni.
Þannig sat Elva Dögg Melsted, nú
blaðamaður á Nýju lífi og Lottó-
kynnir, fyrir í jakkafötum og með
hatt árið 1998. Birta Flókadóttir,
dóttir séra Flóka, sat einnig fyrir
í elegant jakkafötum á sínum
tíma, reyndar með bera
bringu. Listakonan Lína
Rut Vilbergsdóttir var
glæsileg í fötum frá
Spaks manns spjörum
á síðunni árið 2000
og Ragnheiður
Arngrímsdóttir
flugmaður hjá
Atlanta pósaði
flott og fullklædd
við flugvélina sína
fyrir nokkrum árum.
„Séð og heyrt stúlk-
urnar hafa sjaldnast
verið mjög fáklæddar,
eins og við sjáum í danska
Séð og heyrt, þó vissulega
hafi verið undantekningar þar á.
Þær myndir sem sýnt hafa nekt
hafa fyrst og fremst verið valdar
út frá listrænu eðli þeirra,“ segir
Bjarni.
Árið 1998 var brydd-
að upp á þeirri nýjung
að skipta Séð og heyrt
stúlkunni út fyrir
strák. Drengurinn
sem tók þetta vafa-
sama hlutverk að
sér var tvítugur
nemandi á skip-
stjórabraut í Fjöl-
brautaskóla Vest-
mannaeyja, Reynir G.
Pálsson að nafni. „Þetta var
fjallmyndarlegur Eyjapeyi, en ein-
hverra hluta vegna þá fóru ömmur
landsins og smástelpur á límingun-
um og voru ekki sáttar við þessa
nýjung því þær vilja máta sig við
aðrar konur,“ segir Kristján Þor-
valdsson en bætir við að á afmælis-
árinu hafi blaðið reyndar bæði birt
mynd af Séð og heyrt strák og Séð
og heyrt stelpu.
Að sögn ritstjóranna hringdu
oft stúlkur inn á blaðið og óskuðu
eftir að komast á þessa öftustu síðu
blaðsins, en valið á fyrirsætum var
alveg sett í hendurnar á ljósmynd-
urunum. Margrar þessara stúlkna
hafa verið myndaðar oftar en einu
sinni fyrir þessa síðu, þar á meðal
Marín Manda, nú fatahönnuður í
Kaupmannahöfn og það sama á við
um Kolbrúnu Pálínu Árnadóttur
fyrrum fegurðardrottningu og
núverandi einkaþjálfara. Helga
Kolbeinsdóttir stjórnmálafræðing-
ur hefur einnig setið nokkrum
sinnum fyrir á síðunni en
hún sat reyndar einnig
fyrir í Playboy á
sínum tíma. Tvær
stúlkur virðast þó
hafa verið í miklu
uppáhaldi hjá ljós-
myndurum blaðis-
ins og hafa mynd-
ir af þeim birst
skuggalega oft á
síðunum. Þetta eru
þær Harpa R. Arnars-
dóttir, sem einu sinni sá
um sjónvarpsþáttinn Zink, og
Díana Árnadóttir, sem er hvað
þekktust í dag fyrir að vera kær-
asta Annþórs Karlssonar hand-
rukkara.
Sexý og sætar Séð
og heyrt stúlkur
ÞESSAR KONUR HAFA BIRST
OFTAST Á FORSÍÐU SÉÐ OG
HEYRT
DORRIT MOUSSAIEFF,
FORSETAFRÚ
Það var Séð og heyrt sem
kynnti þessa dularfullu
vinkonu forsetans fyrst fyrir
þjóðinni. Síðan hafa myndir
af henni oft birst í blaðinu
vegna glæsileika, fallegs skarts og kjóla.
LINDA PÉTURSDÓTTIR, FYRRVERANDI
FEGURÐARDROTTNING
Linda var kjörin
alheimsfegurðardrottn-
ing 1988 og í kjölfar
þess fór þjóðin að
fylgjast með henni.
Hún hefur oftast lent
á forsíðu Séð og heyrt
vegna ástamála sinna,
fyrst með skotanum Les, síðan með Fjölni
Þorgeirssyni.
TINNA OG DALLA ÓLAFSDÆTUR
Forsetadæturnar komu fram í sviðsljósið
við fráfall móður þeirra Guðrúnar Katrínar
en þá fóru þær að fylgja föður sínum Ólafi
Ragnari í ýmsar opinberar heimsóknir og
veislur. Síðan hefur blaðið fylgst grannt
með þeim og flutt þjóðinni fréttir af þeim
og eiginmönnum þeirra.
BIRGITTA HAUKDAL, SÖNGKONA
Séð og heyrt kynnti
Birgittu fyrir þjóðinni
sem unga og upprenn-
andi söngkonu. Hún
og fyrrverandi kærasti
hennar Hanni, birtust oft
í blaðinu þegar þau voru
saman. Þess má líka geta
að Birgitta var á sínum tíma Séð og heyrt
stúlkan.
ÁSDÍS RÁN, FYRIRSÆTA
Fyrirsætan Ásdís Rán fór
að birtast í Séð og heyrt
í kjölfar þess að hún
tók þátt í hinum ýmsu
fyrirsætukeppnum. Blaðið
hefur líka sýnt myndir af
henni í líkamsræktarátaki
með fyrrverandi kærasta
og innan um Hollywoodstjörnur.
SVAVA ÞORGERÐUR JOHANSEN
VERSLUNARKONA
Það var oft glatt á hjá
Bolla og Svövu í 17
og hafa þau oft sést
prúðbúin á forsíðu
Séð og heyrt. Svava er
glæsileg kona og fellur
vel undir þá glam-
úruppskrift sem blaðið
hefur unnið eftir.
ÞESSIR KARLMENN HAFA BIRST
OFTAST Á FORSÍÐU SÉÐ OG
HEYRT
FJÖLNIR ÞORGEIRSSON ATHAFNAMAÐUR
Séð og heyrt hefur fylgst grannt með
ástamálum Fjölnis
í gegnum árin.
Samband hans við
söngkonuna Mel B.
vakti mikla athygli,
þá samband hans við
fatahönnuðinn Marín
Möndu og svo við
Lindu P. en tölublaðið
sem sagði fyrst frá
fréttum af því sambandi er eitt söluhæsta
eintak blaðsins.
ÓLAFUR RAGNAR, FORSETI ÍSLANDS
Sama ár og Ólafur Ragnar
tók við forsetaembættinu
kom fyrsta tölublað Séð
og heyrt út og Ólafur
prýddi forsíðu fyrsta blaðs-
ins með appelsínugulan
túrban á höfði.
GUÐJÓN SIGMUNDSSON
Gaui litli varð stjarna í þætt-
inum Dagsljós í Ríkissjón-
varpinu en blaðið fylgdist
með honum löngu eftir
hann var hættur á skjánum.
BUBBI MORTHENS
Þessi ástsæli söngv-
ari þjóðarinnar hefur
sést í blaðinu við
hin ýmsu tækifæri.
Meðal annars sagði
blaðið frá skilnaði
söngvarans við eig-
inkonuna Brynju og
einnig hefur söngv-
arinn verið áberandi
í blaðinu vegna Idol-keppninnar.
JÓN ÓLAFS STÓRKAUPMAÐUR
Jón Ólafsson hefur oftar en ekki poppað
upp á forsíðu
blaðsins veislu-
klæddur með
eiginkonuna Helgu
sér við hlið.
Lesendur hafa líka
séð hýbýli hans
erlendis og önnur
auðæfi.
ÞORSTEINN JÓNSSON VIÐSKIPTAMAÐUR
Samband Steina í
Kók, eins og hann
er oftast kallaður,
og hinnar ungu
fegurðardísar Önnu
Lilju vakti mikla
athygli á sínum tíma
og fékk gott pláss í
blaðinu.