Fréttablaðið - 17.06.2006, Síða 58

Fréttablaðið - 17.06.2006, Síða 58
 17. júní 2006 LAUGARDAGUR42 utlit@frettabladid.is MÓÐUR VIKUNNAR > ÁLFRÚN FER YFIR MÁLIN N† VÖRU- OG fiJÓNUSTU- SKRÁ Á VISIR.IS/ALLT ... sem flig vantar í n‡ja húsnæ›i› > Mælum með... að fólk noti tækifærið á sjálfum þjóðhátíðardeginum og klæðist íslensku lopapeysunni. Bæði hlý og góð þegar veðurguðirnir eru í vondu skapi. Spáir þú mikið í tískuna? Já ég geri það. Ég hef mjög gaman af því að skoða tímarit og líta í kringum mig. Hvernig myndirðu lýsa stílnum þínum? Hann ræðst svolítið eftir skapi. Uppáhaldshönnuðir eða fatamerki: Chloé. Klassískt og fallegt. Flottustu litirnir: Svartur klikkar ekki og grænn í öllum tónum. Hverju ertu veikust fyrir? Skóm og fylgihlutum. Hvaða flík keyptir þú þér síðast? Stuttar buxur og axlabönd. Hvað finnst þér flottast í tískunni núna? Hvað hún er fjölbreytt og hvað næstum öll tímabilin fá að njóta sín. Hvað ætlarðu að kaupa þér fyrir sumarið? Kawasaki-strigaskó í einhverjum skemmtilegum lit. Bikiní í sólinni og millisíða, matta plast-regn- kápu í einhverjum lit í rigningunni. Uppáhaldsverslun: Comtoir des cotonniers og H&M. Einnig stórar búðir eins og Gallerie Lafayette þar sem öll merkin eru á einum stað. Hvað eyðir þú miklum peningum í föt á mán- uði? Fer eftir stað og stund hvers mánaðar. Hvaða flíkur gætir þú ekki verið án? Svörtu háhæluðu skónna minna, gallajakkans míns og allra hlýrabolanna. Uppáhaldsflík: Gallajakkinn minn og nýja svarta tjullpilsið mitt sem mamma var að sauma á mig. Hvert myndir þú fara í verslun- arferð? Til Berlínar og Parísar. Ljótasta flík sem þú hefur keypt þér: Hvítar „bas“ plast Tark buxur með reimum. Þvílíkt tískuslys! SMEKKURINN: BERGLIND GUÐMUNDSDÓTTIR STARFSMAÐUR Í LANDSBANKANUM OG NEMI Í HÁSKÓLA ÍSLANDS Svart tjullpils úr smiðju mömmu og H&M í uppáhaldi Allar konur safna fylgihlut- um, hvort sem það eru skartgripir, slæður, skór og síðast en ekki síst töskur. Það er eitthvað ómótstæði- legt við allt þetta glingur sem maður getur notað endalaust og við hvað fatnað sem er. Það eru einmitt kostir fylgihluta, þeir gera oftar en ekki útslagið að full- komnu dressi. Einnig getur maður notað fylgihluti til að persónugera flík- ina sína, margar nælur á einföldum jakka eða belti á venjulegum bol. Þetta er gert til að poppa upp á flíkina. Þetta sumarið er úrvalið af fylgihlut- um mjög gott og búðirnar ættu að vera stútfullar af nýjustu tískustraumunum. Glingur er mikið í tísku þessa stundina og því meira því betra. Allt er leyfilegt, gull og silfur blandað saman og því meiri litagleði í armböndum og hálsfest- um því skemmtilegri heildarsvipur. Leggings og legghlífar er ekki lengur bara leikfimisklæðnaður og er til mikið að marglitum buxum og sokkabuxum sem flottar eru við alla síðu bolina. Bangsar, hjörtu og blómaskart eru mikið í tísku núna og tilvalið að nota skemmtilegar fígúrúr til að flikka upp á fataskápinn. Hné- sokkar henta einnig íslensku veðurfari mjög vel enda býður það ekki upp á margar ber- leggja stundir og er hægt að fá bæði þykka og þunna. Ég vona að fólk njóti frjálsræðisins sem ríkir í tískunni þetta sumarið og hlaða á sig skarti og flippi út með því að blanda saman ólíkum litum og munstrum. alfrun@frettabladid.is Ómótstæðilegt glingur Ég lenti í mjög fyndnu atviki um daginn. Ég var að yfirgefa minn fyrri vinnustað þennan dag og auðvitað klæddi ég mig upp í tilefni dagsins. Fór í nýju mittisháu Acne-buxurnar mínar og girti bolinn ofan í. Mjög smart og algjörlega samkvæmt nýjustu tísku fannst mér. Vel girt gekk ég áhyggjulaus um ganga Kringlunnar, þar sem ég vann, ánægð með nýju buxurnar mínar. Á leiðinni niður rúllu- stigann heyrði ég í litlum stúlkum fyrir aftan mig. Þær voru örugg- lega svona 10 eða 12 ára og ég heyrði þær flissa og sneri mér við. Mér til mikllar undrunar bentu þær á buxurnar mínar og hlógu, blá- kalt framan í mig. Þarna stóð ég í miðri verslunarmiðstöð óttans lát- andi litlar stúlkukindur móðga mig og það sem verra er, þær hlógu að fatasmekk mínum. Ömmur mínar og mamma hafa oft gagnrýnt fatasmekk minn og ég hef tekið því meira sem hrósi en eitthvað annað. Ég veit að smekkur manna er misjafn, en litlar stelpuskját- ur? Er það ekki svolítið skrýtið? Þegar ég var lítil var allt sem eldri stelpur klæddust flott og maður buktaði sig og beygði fyrir eldri og vitrari kynslóðum. Það hugarfar virðist alveg vera horfið og veit ég um fleiri dæmi þess efnis að litla fólkið hagar sér ekki með virðingu í huga gagnvart „gamla“ fólkinu. Særandi, en ég komst sem betur fer yfir þessa höfnun frá ungu kynslóðinni en fór samt að hugsa hvort ég væri búin að missa mig of mikið í tískupælingum. Ég kaupi öll rándýru tískublöðin sem eru full af auglýsingum til að sjá hvað er gerast út í hinum stóra heimi og fá hugmyndir að flottu lúkki. Fataskápurinn löngu sprunginn og er ég farin að ráðast inn á pláss kærasta míns til að koma öllu fyrir, honum til lítillar ánægju. En tíska fyrir mér er meira en bara áhuga- mál. Ef ég gæti þá mundi ég eyða öllum mínum tíma í tískupæling- ar. Ég ætla því að halda ótrauð áfram að klæðast því sem ég vill, samkvæmt mínu innsæi og hlæi þeir sem hlæja vilja. Óvirðing ungu kynslóðinnar GULT LAKK Lakkbelti eru vinsæl og þetta er mjög líflegt frá Rokki og rósum. AXLABÖND Eins og oft hefur verið nefnt eru axlabönd mikið „it“ þessa dagana og ekki að ástæðulausu enda skemmtileg viðbót við flottu gallabuxurnar. MARGIR LITIR Hálsfestar í mörgum litum og gaman er að blanda þeim saman við gull og silfurfestina. Þessar eru úr keramik og fást í Kronkron. LITLAR PYNGJUR Klinkbuddur eru alltaf ómótstæðilega sætar. Þessar eru flottar úr leðri og fást í Friis Company. LEGGHLÍFAR Dýramunstur hafa verið mikið í tísku þetta sumarið og skemmti- legt til að poppa upp á svörtu sokka- buxurnar. Þessar fást í Skarthúsinu. GEGNSÆIR SOKKAR? Sætir sokkar við opna skó setja sitt mark á heildarútlitið. Frá versluninni Kronkron. PLAST Ótrúlega skemmtileg og lífleg næla frá Kronkron. Getur gert hvaða bol sem er flottan. KRAGI Fjólublár kragi frá Kronkron. Hentugt við hvað sem er. BLÓM Í HÁRIÐ Spöng með rauðu og svörtu tjullblómi í hliðinni. Flott við partýdressið. KYNÞOKKAFULLT Hnésokkar með blúndu og slaufu klikka ekki við sumarkjólinn. Bæði flott utan yfir sokkabuxurnar eða bara á bera leggina þegar veður leyfir. Fást í Rokki & rósum og Spúútnikk. HÁRGLINGUR Hárið má ekki verða útundan og þessi kambur er frá versluninni Rokki & rósum. Hvítur með gylltum röndum. TAKA HÁRIÐ FRÁ Hárbönd hafa allt- af verið vinsæl og þá sérstaklega á þessu vindasama landi. Sumarlegt í gulum lit. Fæst í Rokki & rósum. SPANGIR Töffaraleg spöng með hlébarðamunstri frá Rokki & rósum. SPENNUR Slaufur virðast vera mikið í tísku og er þessi silfurlitaða glam- úrleg. Frá Rokki & rósum. MINI AXLABÖND Þessir fylgihlutir eru hentugir til að þrengja boli eða búa til rykk- ingar á venjulegri flík. Fást í fjólubláu og svörtu með glingri á frá Spúútnikk. TÖSKUR Marglit taska frá búðinni Kronkron. Flott litasamsetning og hentugt undir snyrtidót eða í partýið. NÆLUR Skemmtilegar nælur frá versluninni Spúútnikk. SOKKABUXUR ekki festast í svörtu sokkabuxunum. Leyfum litagleðinni að ráða yfir sumartímann. Frá Rokki & rósum. MEIRA ER MINNA Klútar eru ekki aðeins til að skýla hálsinum fyrir kulda því hægt er að nota þá sem belti, armband eða festa á venjulegu svörtu töskuna sína til að fá smá tilbreytingu. GULL, GULL, GULL Kragar eru skemmtilegt fyrirbrigði og langt síðan þeir voru í tísku síðast. Þessi er frá versluninni Kronkron. HNÉSOKKAR Fyrirsæt- ur frá tískuhúsi Prada voru oftar en ekki klæddar í hnésokka við kjólinn. Mjög kven- legt og kynþokkafullt. MASSÍVIR EYRNALOKKAR Eyrnalokkar úr hömruðu gulli og í laginu eins og hjörtu. Fást í Spútnikk. HÁLSFESTAR Því fleiri hálsfestar því betra og gaman er að blanda öllu saman. Báðar festarnar frá Rokki & rósum.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.