Fréttablaðið - 17.06.2006, Síða 64
48 17. júní 2006 LAUGARDAGUR
sport@frettabladid.is
�������
����������������
�����������������������������
�� ���������������������������
������ ���������
HANDBOLTI „Stemningin í hópnum
er fín og allir eru ákveðnir í að ná
að spila enn betur en í Svíþjóð. Ég
geri ráð fyrir að Svíarnir mæti
sterkari til leiks en í fyrri leiknum
og þá ætlum við bara að gera það
líka. Stefnan er ekkert að halda
neinu forskoti heldur bara vinna
þennan leik,“ sagði Alfreð Gísla-
son, landsliðsþjálfari Íslands,
þegar Fréttablaðið ræddi við hann
í gær.
Ísland vann glæstan sigur í
fyrri viðureigninni sem fram fór í
Svíþjóð um síðustu helgi, 32-28, og
er því í mjög góðri stöðu fyrir leik-
inn. Ef allt fer á réttan veg í dag
hafa strákarnir tryggt sæti sitt á
heimsmeistaramótinu sem fram
fer í Þýskalandi á næsta ári. Mikil
stemning er fyrir leiknum og varð
uppselt fyrir nokkru síðan enda er
þetta einn mikilvægasti leikur
sem íslenska landsliðið hefur leik-
ið síðustu ár.
„Ég er mjög ánægður með þann
áhuga sem þessi leikur hefur feng-
ið og vona bara að það fólk sem
mæti á leikinn verði duglegt við
að láta í sér heyra og styðja okkur
svo allt gangi upp,“ sagði Alfreð
en leikurinn mun hefjast klukkan
17:15 í Laugardalshöllinni. Þrátt
fyrir glæstan sigur í Svíþjóð segir
Alfreð að enn sé margt í leik
íslenska liðsins sem betur megi
fara.
„Það er fullt sem við þurfum að
laga í okkar leik og við stefnum á
að ná að gera það, Við höfum verið
að byrja leikina of rólega, það var
líka þannig gegn Dönum og við
megum ekki leyfa okkur að taka
alltaf stundarfjórðung í að hitna.
Við verðum að mæta af fullum
krafti alveg frá byrjun. Þá er fullt
af atriðum í sóknarleiknum sem
við þurfum að bæta og þar á meðal
hraðaupphlaupin,“ sagði Alfreð,
sem reiknar með meiri mótspyrnu
en í fyrri leiknum.
„Ég reikna með því að þeir
reyni ýmsa nýja hluti á móti vörn-
inni okkar og við verðum að geta
brugðist við því,“ sagði Alfreð.
Hann segir góða stemningu vera
innan hópsins en þegar Frétta-
blaðið heyrði í honum í gær var
hann á leið á æfingu með liðið.
Eftir hana hélt allur hópurinn á
Hótel Örk í Hveragerði þar sem
landsliðsmenn gistu og söfnuðu
kröftum fyrir átök dagsins.
„Við ákváðum þetta til að fá
smá ró á mannskapinn og fá að
vera í friði. Það eru allir klárir í
slaginn og mikil tilhlökkun að tak-
ast á við þetta skemmtilega verk-
efni,“ sagði Alfreð Gíslason lands-
liðsþjálfari.
elvar@frettabladid.is
Við ætlum að spila betur
en við gerðum í Svíþjóð
Strákarnir okkar í íslenska handboltalandsliðinu leika seinni leikinn gegn
Svíum í Laugardalshöllinni í dag. Uppselt er á leikinn og mikil spenna ríkir.
GLEÐI Alexander Petersson, Sigfús Sigurðsson og Alfreð Gíslason fagna eftir sigurinn ytra.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
HANDBOLTI Það verður sannkölluð
þjóðhátíðarstemning í Laugar-
dalshöllinni þegar Ísland tekur á
móti Svíum í seinni leik liðanna í
umspili fyrir HM.
Fréttablaðið skellti sér í Kringl-
una í gær og spurði landann að því
hvernig leikurinn færi.
Ísland-Svíþjóð í dag:
Hvernig fer
leikurinn?
ADAM REEVE Ég veit allavega að Ísland
vinnur.
HLYNUR Ísland tapar þessum leik 24-28.
ÞIRÝ Ég held að við tökum þennan leik
með tveimur mörkum.
ÓSKAR ÖRN Við tökum þetta öruggt 28-25.
GUNNAR INGI Hef ekki hugmynd, fylgist
ekkert með handbolta og vissi ekki af
þessum leik.
HARPA Við vinnum aftur með fjögurra
marka mun.
GUÐLAUGUR: Ég held að Ísland komist á
HM með tveggja marka sigri.
TEITUR Ég vona allavega að Ísland sigri.
VIKTOR Ísland rústar þessu 30-25.
STEFÁN Ísland verður með 40 stig en
Svíþjóð svona 30.
HELENA OG LAUFEY Ísland tekur þennan
leik 30-28.
Ísland-Svíþjóð í dag:
Hvernig fer
leikurinn?
HANDBOLTI Sænskir fjölmiðlar
sýna landsleik Íslands og Sví-
þjóðar sem fram fer í dag ekki
mikinn áhuga. Það er aðeins
Dagens Nyheter sem fjallaði um
leikinn í gær en blaðið spjallaði
við landsliðsþjálfarann Ingemar
Linnell.
„Hnífurinn liggur að hálsinum
og kannski þéttar nú en oft áður,“
sagði Linnell en þessi orð hans
þurfa ekki að koma á óvart í ljósi
þess að Ísland vann fyrri leikinn
með fjórum mörkum og því þurfa
Svíar að sigra með fimm mörk-
um í Höllinni til að komast á
HM.
„Þeir náðu þessu forskoti á
skömmum tíma og við nýttum
heimavöllinn ekki nógu vel. Línu-
og hornaspil var ekki til staðar og
við eigum það meðal annars inni.
Svo vorum við kannski svolítið
stressaðir þar sem við vorum á
heimavelli og það er alltaf pressa
að ná hagstæðum úrslitum í fyrri
leik á heimavelli. Við höfum engu
að tapa í seinni leiknum á Íslandi
og það gæti hjálpað okkur,“ sagði
Linnell en sænska liðið kom til
landsins á fimmtudag. - hbg
Ingemar Linnell, landsliðsþjálfari Svía, er ekki búinn ða gefast upp:
Erum með hnífinn við hálsinn
ÓLAFUR STEFÁNSSON Var í strangri gæslu hjá sænsku vörninni í Globen og hann þarf að
leika vel í dag ef Ísland á að komast á HM. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins
eru Grindavík og FH komin langt með
að semja um kaupverð sín á milli
fyrir knattspyrnumanninn Sinisa
Valdimar Kekic, sem er á leiðinni
frá Grindavík eftir tíu ára veru þar
á bæ. Kekic sinnaðist við Sigurð
Jónsson, þjálfara liðsins, og segist
ekki hafa áhuga á því að spila
lengur undir hans stjórn.
Hversu háa upphæð
Grindavík vill fá fyrir
Kekic er óljóst en Jónas
Þórhallsson, formað-
ur knattspyrnudeildar
félagsins, ýjaði að því við
Fréttablaðið í fyrradag
að hann yrði ekki seldur
ódýrt.
„Ég myndi alveg vilja ganga til liðs við
FH-inga. Þeir eru með besta liðið á
Íslandi og hafa orðið Íslandsmeist-
arar tvö ár í röð, ég held að þeir
verði svo meistarar aftur núna.
Þeir spila mjög flottan fótbolta og
ég held að ég myndi smellpassa
inn í liðið. Ég er maður fyrir FH,
sem er með flott lið. Ég ítreka
að ég vil halda áfram að
spila fótbolta og FH-ingar
halda boltanum vel og
spila honum á milli sín,“
sagði Kekic við Frétta-
blaðið í gær en hann
hafði áður gagnrýnt
spilamennsku Grinda-
víkurliðsins í sumar.
„Ég hef annars ekki leitt
hugann mikið að því hvert ég á að fara.
Ég hef verið að æfa sjálfur og margir
hafa komið að máli við mig og reynt að
snúa hug mínum, bæði leikmenn og
stuðningsmenn Grindavíkur. Við verðum
að sjá til hvað Grindavík gerir og segir,
en vonandi leysist þetta farsællega. Það
verður ekki auðvelt að fara frá Grindavík
en ég vil gera það núna,“ sagði Kekic,
sem hefur ekki verið sáttur með eigin
spilamennsku í sumar, en hann segir að
Sigurður hafi truflað hann of mikið.
Íslandsmeistararnir gætu verið að fá
mjög feitan bita á leikmannamarkaðn-
um til sín en Kekic er fjölhæfur og getur
spilað hvar sem er á vellinum. Auk þess
býr hann yfir mikilli reynslu sem gæti
komið liðinu vel í Evrópukeppninni sem
liðið tekur þátt í í sumar.
KNATTSPYRNUKAPPINN SINISA VALDIMAR KEKIC: GÆTI VERIÐ Á LEIÐINNI TIL ÍSLANDSMEISTARA FH
Ég myndi ekki segja nei við FH
> Birgir Leifur áfram
Kylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson
komst í gær í gegnum niðurskurðinn á
áskorenda-
mótinu í golfi
sem fram fer
í Larvik í Nor-
egi. Birgir Leif-
ur er tveimur
höggum undir pari
að loknum tveimur
hringjum en hann er í
42.-50. sæti. Ekki gekk
eins vel hjá Heiðari Davíð
Bragasyni úr Kili en hann
féll naumlega úr keppni, var
í 68.-77. sæti á sléttu pari
og var aðeins einu höggi
frá því að komast áfram.
Raimo Sjöberg frá Svíþjóð
hefur eins hoggs forystu
á mótinu en hann er
níu höggum udir
pari.
Leikurinn beint á RÚV
Leikur Íslands og Svíþjóðar verður
í beinni útsendingu á RÚV í dag en
útsending hefst klukkan 16.45. Uppselt
er á leikinn og búast má við mikilli
skemmtun í Laugardalshöll á sjálfan
þjóðhátíðardaginn.