Fréttablaðið - 17.06.2006, Blaðsíða 72

Fréttablaðið - 17.06.2006, Blaðsíða 72
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000 ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S O G V 3 26 27 05 /2 00 6 Og Vodafone hefur leitt samkeppni á íslenska fjarskiptamarkaðnum og fært neytendum betri þjónustu og lækkað verð. Komdu í verslun Og Vodafone, hringdu í 1414 eða smelltu þér á www.ogvodafone.is fyrir nánari upplýsingar og skráningu í Og1. FERÐAFRELSI Taktu Frelsið með í ferðina. Ferðafrelsið virkar alveg eins og Frelsið þitt hér heima! ímtölin eru gjaldfærð samstundis og því færðu enga bakreikninga eftir heimkomuna. Núna þarftu ekki að skrá þig sérstakle a í Ferðafrelsi Og Vodafone og þú getur notað það í flestum löndum. Kynntu þér málið á ogvodafone.is áður en þú leggur af stað. Góða ferð. Smelltu þér á www.ogvodafone.is, komdu í næstu verslun Og Vodafone eða hringdu í 1414 og fáðu nánari upplýsingar. ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S O G V 3 29 08 06 /2 00 6 AUGL†SINGASÍMI 550 5000 FYLGIR FRÉTTABLA‹INU ALLA MI‹VIKUDAGA ���������� ��������� ��������������� 17. júní Ég verð að segja, svona í tilefni af 17. júní, að ég er eiginlega bara alls ekkert að springa af þjóð- ernisást um þessar mundir. Ég á mína staði á þessu landi sem mér þykir vænt um og fólk. Margt horf- ir svo sem til framfara, en samt verð ég að segja að ef ég á verða sérstaklega stoltur af því að vera Íslendingur, að þá verður margt að breytast. ÉG er ekki sáttur. Mér er verulega í nöp við stóriðjuvæðingu lands- ins, náttúruspjöllin og ekki síður þessa einhæfu og gamaldags stefnu í efnhagsmálum sem þessi álvæðing hefur í för með sér. Ég er hvumsa yfir því að enginn skuli sýna neina viðleitni til þess að lækka matvöruverð í þágu almenn- ings til dæmis með því að láta af forneskjulegri sérhagsmuna- stefnu og leyfa alla vega innflutn- ing á kjöti svo ekki sé beinlínis vöruskortur. Ég gapi yfir hugsun- arhætti þeirra sem hækka eftir- laun á sjálfa sig en berja svo hnef- anum í borðið og setja upp hörkusvip þegar rætt er um að hækka laun þeirra lægstlaunuðu. Ég hristi hausinn yfir því að menn skuli standa með allt niðrum sig, stefnulausir á svip, þegar varnar- liðið er loksins að fara. Ég er þreyttur á makki og persónuleg- um illindum ráðamanna og við- skiptajöfra. Og síðast en ekki síst: Ég er ennþá bandsjóðandi öskuill- ur út í þá sem settu Ísland á lista yfir þá sem studdu Íraksstríðið. FARI það kolað. Það er nefnilega ekki sjálfsagt mál að maður sé bara stoltur af því að vera Íslend- ingur sama hvað tautar og raular. Þjóðernisást er ekki eitthvað sem maður fæðist með eins og móður- ást. Þjóðernisást er áunnin. Maður verður, með öðrum orðum, að vera sáttur við þjóð sína og hvert hún stefnir. ÉG er ekki einn á báti. Stór hluti Vesturlandabúa er ósáttur. Íraks- stríðið veldur sívaxandi gremju samkvæmt glænýjum könnunum. Reiði þegnanna nær hvað hæstum hæðum í Bandaríkjunum. Ég segi að ég sé bandsjóðandi illur. Það er ekki neitt. Í Bandaríkjunum missa menn svefn út af bræði. Áður fyrr bjuggu Bandaríkin við það að fólk var stolt af því að tilheyra þeim og hvað sem segja mátti um ýmislegt, þá leit heimsbyggðin til Banda- ríkjanna sem fyrirmyndar á mörg- um sviðum. Bush óð yfir þetta allt saman á skítugum kúrekastígvél- um. Hann beinlínis nýtti sér þjóð- ernisástina til innrásar í þágu sér- hagsmuna. Eftir 11. september voru fjölmörg dæmi um góða og gegna Bandaríkjamenn sem gengu í herinn af fúsum og frjálsum vilja til þess að verja gildi og hugsjónir, en var fórnað í þágu olíu. ÞANNIG geta munn splundrað einingu meðal þjóðar sinnar, búið til ósætti og skorið sár í þjóðarvit- undina sem seint gróa. Hér verða menn að gæta sín. Aðgát skal höfð í nærveru þjóðarsálar. Ef ekki væri fyrir leikinn gegn árans Svíunum, sem þó nær að blása lífi í þjóðernisglæður, væri illa komið fyrir þessum 17. júní í roki og rign- ingu. Fjallkonan ein og sér bjargar litlu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.