Fréttablaðið - 25.06.2006, Blaðsíða 66
25. júní 2006 SUNNUDAGUR
�����
���������������
��������������
��������������
�������
��� ���
�������� ���
���� ���������
������������������ ���������������
�����������������������
�
��������������
��
�
��
�
��
��
�
��
��
��
�
�
���
��
�
�
��
�
��
�
�
�
��
�
�
Einu sinni í viku
breyti ég um ham og
læðist inn í annan
menningarheim. Ég
sit í tvo klukkutíma
og horfi á stráka
sparka tuðru. Sama
hvernig viðrar og
hvernig sem staðan
er tek ég frá tíma til að fylgjast
með sveittum folum spranga um
völlinn. Mikill hiti er innan vallar-
ins sem utan og oftast yfirgnæfa
gagnrýnisraddir gamalla spekinga
í átt að dómurum og leikmönnum,
hvatningarhróp stuðningsmanna.
Núna í vikunni fór ég á skemmti-
legan jafnteflisleik. Leikur þar
sem engin mörk eru skoruð getur
varla verið skemmtilegur hugsa
kannski margir, en stuðningsmenn
mótherjaliðsins áttu hug minn
allan í þessum leik. Þarna var sam-
ansafn af skemmtilegum einstakl-
ingum sem styðja menn sína til
dáða sama hvað gerist og syngja
hástöfum glaðbeitta söngva við
hvert tækifæri. Öll stúkan tók
undir og virtust allir vera búnir að
leggja á minnið flotta texta við
gömul dægurlög um hvern leik-
mann.
Ég upplifði annarskonar reynslu
í öðrum leik en þar virtust stuðn-
ingsmenn viðkomandi liðs ekki
gera annað en að gagnrýna leik-
menn síns liðs í stað þess að hvetja
þá til dáða. Þeir settu sig í stelling-
ar og hrópuðu ókvæðisorð á nánast
alla sem tóku þátt í leiknum. Auð-
vitað voru úrslit leiksins í sam-
ræmi við stuðning áhorfenda, tap
fyrir neikvæðu raddirnar á hliðar-
línunni. Stuðningsmenn skipta
miklu máli og þarf ég vart að taka
það fram að glaðbeittu söngvar-
arnir eru stuðningsmenn meistar-
anna í deildinni.
Í síðasta leik fékk ég loksins að
sjá með eigin augum þennan
jákvæða íþróttaanda sem ég er
búin að vera að leita að og allir
íþróttamenn tala mikið um. Sem
antisportisti hef ég ekki almenni-
lega skilið hvað er svona gaman
við að æfa á hverjum einasta degi
og keppast svo um að ná titli. En ef
þetta er gamanið við íþróttir þá er
ég farin að söngla mér upp á topp-
inn með bros á vör.
STUÐ MILLI STRÍÐA: Fótboltafár
ÁLFRÚN PÁLSDÓTTIR FÉKK LOKSINS ÍÞRÓTTAANDANN BEINT Í ÆÐ
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Úff,
þetta er
skelfilegt!
Líður þér
eitthvað
illa?
Vægast
sagt já!
Heldurðu að þú
sért að verða
veikur?
Nei það er
ekki það!
Er það eitthvað
sem þú hefur
borðað?
Nei
nei...
Eigum við
að fara
heim?
Nei, þetta tekur
brátt enda!
Tvo í
brauði!
Líður þér
betur?
Já, nú er allt eins og
það á að vera!