Fréttablaðið - 12.07.2006, Blaðsíða 56
V I N N I N G A R V E R ÐA A F H E N D I R H J Á BT S M Á R A L I N D. KÓ PAVO G I .
M E Ð Þ V Í A Ð TA K A Þ ÁT T E R T U KO M I N N Í S M S K LÚ B B. 9 9 K R / S K E YT I Ð.
S E N D U S M S S K E YT I Ð J A S M F Á N Ú M E R I Ð
1 9 0 0 O G Þ Ú G Æ T I R U N N I Ð M I ÐA F YR I R T VO.
V I N N I N G A R E R U B Í Ó M IÐA R F YR I R T VO * DV D M YN D I R
TÖ LV U L E I K I R VA R N I N G U R T E N G D U R M YN D I N N I
O G M A R G T F L E I R A
9.
HVE
R
VIN
NUR
!
Hljómsveitin Hairdoctor sem að
öllu jöfnu er skipuð þeim Jóni Atla
Helgasyni og Árna „+1“ Hlöðvers-
syni fékk mikinn liðsstyrk á dög-
unum. Á nýafstöðnum tónleikum
hljómsveitarinnar í Þýskalandi
voru bakraddirnar í umsjá þeirra
Lóu Hlínar Hjálmtýsdóttur, kær-
ustu Árna, og Gyðu Bergs, kær-
ustu Jóns Atla.
„Kærastan mín hafði aldrei
sungið í míkrafón áður en kærasta
Árna er að vinna að efni með
honum sem heitir FM Belfast.
Þetta kom mjög vel út, það var
mun meiri kynþokki í þessu,“
segir Jón Atli. Aðspurður hvort
framhald verði á samstarfi með
bakraddasöngkonunum segist Jón
Atli ekki vita það ennþá. „Við
erum bara í stúdíói að búa til
músík, en þær mega alveg syngja
ef þær eru í stuði. Við erum nú
samt bara tveir í hljómsveitinni að
búa til músík og það var bara hent-
ugt að taka þær með út.“
Að sögn Jóns Atla eru breyttar
áherslur í tónsmíðum hljómsveit-
arinnar. „Við erum að gera nýja
tónlist núna, þetta er svona
hressandi elektró og bara miklu
meira partí. Það gekk mjög vel á
tónleikunum enda fíla Þjóðverjar
náttúrlega bassatrommu og
teknó,“ segir Jón Atli. - vör
Rómantík í Hairdoctor
HAIRDOCTOR Þeir Jón Atli og Árni „+1“ fengu góða aðstoð frá kærustunum sínum á tón-
leikum í Þýskalandi fyrir skemmstu.
Fyrsta plata hljómsveitarinnar Dr.
Mister & Mr. Handsome, Dirty
Slutty Hooker Money, kemur út á
vegum Cod Music þann 20. júlí en
sveitin hefur verið að gera það gott
á vinsældalistum með lögum á borð
við Kokaloca, Is it Love og Was it
all it was. Þessi lög hafa einnig
verið vinsæl sem hringitónar á far-
símum landsmanna en sveitin á tvo
af fimm vinsælustu hringitónum
landsins um þessar mundir.
Sveitin hefur vakið mikla athygli
fyrir óheflaða framkomu en hún er
skipuð þeim Ívari Erni Kolbeins-
syni og Guðna Rúnari Gunnarssyni
auk Egils Tómassonar sem bregður
sér í hlutverk Snake. Góðir gestir
heiðra þá félaga með nærveru sinni
á plötunni og má þar meðal annars
nefna Svölu Björgvinsdóttur og
bróður hennar, Krumma úr Mínus.
Dr. Mister & Mr.
Handsome gefa út
DR. MISTER & MR. HANDSOME Fyrsta plata ólátabelgjanna er væntanleg í verslanir 20. júlí.
[KVIKMYNDIR]
UMFJÖLLUN
Í Cars hverfist allt um kappakst-
ursbílinn Lightning McQueen,
nýliða á kappakstursbrautinni
sem ætlar sér að leggja heiminn
að fótum sér einn síns liðs. Það er
nettur Schumacher-hroki í kauða
og hann fælir alla aðstoðarbíla og
vini frá sér, blindaður af ranghug-
myndum um eigið ágæti og vélar-
afl. Ofmetnaðurinn verður auðvit-
að til þess að hann beygir af réttri
braut, verður strandaglópur í
draugabæ sem er alveg á felgunni
og á sér vart viðreisnar von þó
að bílarnir sem þar búi haldi enn í
vonina um að úr muni rætast.
Þarna kynnist McQueen öllum
helstu steríótýpum ævintýranna,
straumlínulagaðri prinsessu sem
vinnur hug hans, sjónumhryggum
hjálparkokki sem verður besti
vinur hans og síðast en ekki síst
gömlum vitringi sem miðlar ung-
æðislegu ökutækinu af biturri
reynslu sem hann hefur öðlast í
gegnum áratugina.
Einvala lið leikara talar fyrir
persónurnar. Hinn margnefbrotni
Owen Wilson er lygilega sjarmer-
andi leikari og hann leikur sér að
því að gera hrokagikkinn McQueen
að heillandi persónu. Gamla brýn-
ið Paul Newman, sem klikkar
aldrei, rúllar upp veðraða vitr-
ingnum Doc Hudson og aðrir leik-
arar gefa aldurhnigna töffaranum
svo lítið eftir.
Það fer ekki mikið fyrir frum-
leika í Cars en það verður heldur
ekki af þessari þrautreyndu for-
múlu tekið að hún virkar alltaf
þegar hún er notuð rétt, ekki síst á
börn sem þekkja þetta frásagnar-
mynstur eins og lófann á sér án
þess að hafa hugmynd um það.
Fjörið dettur þó aðeins niður í
ýktri tilraun til þess að berja með
slaghamri boðskap myndarinnar
um mikilvægi vináttunnar og að
útlitið sé ekki allt inn í hausinn á
áhorfendum. Þá er bullandi nost-
algía og þrá eftir gömlum og betri
tímum ekki beinlínis til þess fallin
að halda ungviðinu við efnið en í
lok seinni hálfleiks er allt blessun-
arlega gefið í botn og mjög svo
fyrirsjánleg sagan endar í einni
allsherjar klisjusúpu sem tryggir
það að ungir sem aldnir ganga
sáttir frá kappakstursbrautinni.
Þórarinn Þórarinsson
Þroskasaga bíls
CARS
LEIKSTJÓRI: JOHN LASSETER
HELSTU RADDIR: OWEN WILSON, PAUL
NEWMAN, BONNIE HUNT.
Niðurstaða: Bílarnir hjakka í gamalgrónum
klisjum en það kemur síður en svo að sök.
Sagan er sígild og nýtur sín vel í stífbónuð-
um tölvuteikningum auk þess sem snjallir
leikarar blása heilmiklu lífi í sprautulakkaðar
persónurnar.
Ef þú ættir fjarstýringu sem gæti stýrt lífi þinu? Hverju myndir þú breyta?
Myndir þú breyta heiminum með henni...eða gera eitthvað annað.
ADAM SANDLER, KATE BECKINSALE OG
CHRISTOPHER WALKEN Í GAMANMYND ÁRSINS
STICK IT kl. 5.40, 8 og 10.20
CLICK SÝND kl. 3, 5.30, 8 og 10.30 B.I. 10 ÁRA
SÝND Í LÚXUS kl. 3, 5.30, 8 og 10.30
THE BENCHWARMERS kl.4, 6, 8 og 10 B.I. 10 ÁRA
DA VINCI CODE kl. 6 og 9 B.I. 14 ÁRA
R.V. kl. 3.50
RAUÐHETTA M.ÍSL TALI kl. 3.50
STICK IT kl. 5.40, 8 og 10.20
THE BENCHWARMERS kl. 6, 8 og 10 B.I. 10 ÁRA
CLICK kl. 5.30, 8 og 10.30 B.I. 10 ÁRA
DA VINCI CODE kl. 6 og 9 B.I. 14 ÁRA
THE BENCHWARMERS kl. 6, 8 og 10 B.I. 10 ÁRA
CLICK kl. 6 og 8 B.I. 10 ÁRA
THE FAST & THE FURIOUS kl. 10.10 B.I. 12 ÁRA
!óíbí.rk004
Gildir á allar sýnin
gar í
Regnboganum me
rktar með rauðu
SÍMI 564 0000 SÍMI 551 9000 SÍMI 462 3500
Frá leikstjóra Big Daddy og Happy Gilmore
kemur sumarsmellurinn í ár!
�
3 fullorðnir ættu að geta unnið hrottana í hverfinu
...eða hvað?
�
50.000
MANNS
BYGGÐ Á VINSÆLUSTU BÓK Í HEIMI!
8 HJÓL. 1 FJÖLSKYLDA. ENGAR BREMSUR.
Sprenghlægileg grínmynd með Íslandsvininum
Rob Scheider úr Deuce Bigalow
og John Heder úr Napoleon Dynamite!
ÓVÆNTASTA,
KYNÞOKKAFYLLSTA
OG SKEMMTILEGASTA
GRÍNMYND ÁRSINS
FRÁ HÖFUNDI
BRING IT ON