Fréttablaðið - 12.07.2006, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 12.07.2006, Blaðsíða 10
10 12. júlí 2006 MIÐVIKUDAGUR SKIPULAGSMÁL Annar áfangi Sundabrautar hefur verið kynnt- ur í tillögu að matsáætlun, sem fyrirtækið Línuhönnun hf. stóð að. Áfanginn mun vera 8 km lang- ur vegur sem þverar Eiðsvík, Leiruvog og Kollafjörð og eru möguleikarnir tveir, ytri og innri leið. Vegurinn verður átta kíló- metrar og talið er að lagning brautarinnar út í Geldinganes geti hafist árið 2008. Þar á sam- kvæmt skipulagi að rísa 8-10.000 íbúa byggð og verður fyrstu lóð- unum úthlutað á þessu ári. Samkvæmt skýrslu Línuhönn- unar er Sundabraut talin nauð- synlegur hlekkur í stofnbrauta- kerfi höfuðborgarsvæðisins og forsenda fyrir uppbyggingu í Geldinganesi og Álfsnesi. Helstu atriði sem taka þurfi tillit til séu dýralíf, landslag, gróðurfar, forn- leifar, vatnsvernd og hljóðmeng- un. Auk þess séu tvær eyjar á Kollafirði á náttúruminjaskrá auk Úlfarsár, Varmár, Blikastaðakró- ar og Leiruvogs og taka beri tillit til þess við lagningu brautarinn- ar. Almenningi er gefinn kostur á að koma með athugasemdir varð- andi framkvæmdina og gefst frestur til 19. júlí til að hafa sam- band við Línuhönnun vegna máls- ins. - sgj Tillaga að matsáætlun fyrir lagningu annars áfanga Sundabrautar: Tveir möguleikar Sundabrautar kynntir LEGA ANNARS ÁFANGA SUNDABRAUTAR Rauðu línurnar tákna mögulega legu, og er sú efri ytri leiðin, en sú neðri innri. SAMEINUÐU ÞJÓÐIRNAR Framkvæmda- stýra Barnahjálpar Sameinuðu þjóð- anna (UNICEF), Ann M. Veneman, kemur til Íslands á föstudaginn. Fyrir tveimur árum hóf lands- nefnd fyrir UNICEF á Íslandi störf og mun Veneman gera framtíðar- samning fyrir hönd UNICEF við landsnefndina. Samningurinn þýðir að landsnefndin muni starfa undir merkjum UNICEF, skuldbinda sig til að fylgja stöðlum samtakanna og afla fjár fyrir verkefni þeirra. Veneman mun skrifa undir samn- inginn á skrifstofu UNICEF á föstu- daginn, en hún mun einnig eiga fund með Valgerði Sverrisdóttur utanrík- isráðherra. - sgj Framkvæmdastýra UNICEF: Heimsækir Ís- land í vikulok ANN M. VENEMAN JAFNRÉTTI Evrópusambandið hefur ákveðið að árið 2007 eigi að hafa þema í þágu jafnra tækifæra fyrir alla. Samkvæmt heimasíðu sam- bandsins er markmiðið að vekja fólk til umhugsunar um rétt sinn til að njóta jafnra tækifæra og lífs án mismununar. Margrét María Sigurðar- dóttir, framkvæmdastjóri Jafn- réttisstofu, fagnar þessum tíðind- um. Hún segist hafa orðið vör við mikin áhuga hjá félagsmálaráðu- neytinu að taka þátt í þessu verk- efni en ekki sé búið að ákveða með hvaða hætti það verður. Hvað Jafn- réttisstofu varðar segir Margrét María að með samvinnu ólíkra hópa verði hægt að ná árangri. „Ég sé tækifæri þar sem ólíkir hópar geta unnið saman að sameiginlegu markmiði,“ segir Margrét María. „Það hefur vantað upp á að hópar vinni saman, til dæmis að öryrkjar og Jafnréttisstofa vinni saman að því að útrýma mismunun hvers konar í samfélaginu.“ Magnús Stefánsson félagsmála- ráðherra segir að þess sé að vænta bráðlega að ráðuneytið tilkynni til hvaða ráðstafana verði gripið hér á landi í tengslum við þetta verk- efni. „Við höfum fullan hug á að taka með markvissum hætti þátt í verkefninu,“ segir félagsmálaráð- herra. - æþe Árið 2007 verði ár jafnra tækifæra fyrir alla: Árið 2007 verði ár jafnra tækifæra MAGNÚS STEFÁNSSON G8 MÓTMÆLT Þessi stúlka stóð fyrir utan rússneskt hótel í gær og mótmælti G8 fundinum sem fram fer í Rússlandi í þessari viku. Hún og félagar hennar voru að draga athyglina að slæmum lífsskilyrð- um indjána í Bandaríkjunum og vara við of nánum tengslum Rússlands við Bandaríkin. FRÉTTABLAÐIÐ/AP KABÚL, AP Donald Rumsfeld, vara- forseti Bandaríkjanna, brá sér í óvænta heimsókn til Afganistans í gær og hitti þar Hamid Karzai for- seta að máli. Á sameiginlegum blaðamanna- fundi þeirra sagðist Rumsfeld sannfærður um að sigur myndi vinnast á vopnuðum sveitum tali- bana í suðurhluta landsins þrátt fyrir mikla herflutninga yfir landa- mæri Afganistans og Pakistans. Einnig sagði hann nauðsynlegt að Evrópuríki veittu Afgönum meiri aðstoð við að berjast gegn fíkniefnaframleiðslu í landinu, en þaðan flæðir heróín í stríðum straumum til Evrópu og Rússlands. Fíkniefnaframleiðsla hefur blómstrað í Afganistan þrátt fyrir tilraunir til þess að draga úr henni. Rumsfeld fagnaði því sérstak- lega að NATÓ-ríkin tækju að sér stærra hlutverk í Afganistan, sér- staklega til þess að berjast gegn liðsafla talibana í suðurhluta lands- ins. Á þessum sama blaðamanna- fundi sagði Karzai að lögreglulið landsins væri veikburða, sérstak- lega meðfram landamærum Pak- istans, og þess vegna hafi starf- semi herskárra hópa eflst. Talibanar, sem fyrir innrás Bandaríkjanna árið 2001 höfðu náð nánast öllu landinu á sitt vald, hafa haft sig töluvert í frammi í suður- og austurhluta landsins síðustu mánuði, og virðast hafa haft stuðn- ing bæði frá erlendum málaliðum og vopnuðum hópum á vegum ópíumframleiðenda. Undanfarinn mánuð hafa til dæmis sex Bretar farist í átökum við hina herskáu hópa. Bresk stjórnvöld hafa af þeim sökum ákveðið að senda 900 her- menn til suðurhluta Afganistans í viðbót við 3.600 manna herlið sitt þar. Margir Afganar, þar á meðal Karzai forseti, hafa sakað nágrannaríkið Pakistan og forseta þess, Pervez Musharraf, um að hafa gert lítið sem ekkert til að hindra vopnaða hópa í því að herja á Afganistan frá bækistöðvum sínum handan landamæranna í Pakistan. Musharraf segir þær ásakanir tóma vitleysu, Pakistan hafi þvert á móti sent 90 þúsund hermenn til landamæranna gagn- gert til þess að stöðva stuðnings- menn talibana þar. - gb Fór óvænt til Afganistans Donald Rumsfeld varaforseti Bandaríkjanna er sannfærður um að sigur muni vinnast á talibönum. Fíkniefnaframleiðsla hefur blómstrað í Afganistan þrátt fyrir tilraunir til að draga úr henni. Á BLAÐAMANNAFUNDI Í AFGANISTAN Hamid Karzai fylgist grannt með þegar Rumsfeld útskýrir málin. FRÉTTABLAÐIÐ/AP KÁRAHNJÚKAVIRKJUN Borun vegna gangagerðar við Kárahnjúkavirkj- un hefur miðað óvenju hægt und- anfarnar vikur. Sprunga varð á leið eins af borunum þremur og þarf að steypa í hana áður en unnt er að bora lengra. Landsvirkjun samdi um afhend- ingu fyrstu raforku til álvers Alcoa á Reyðarfirði þann 1. apríl á næsta ári. Það mun dragast, en fullnaðarafhending rafmagns er þó enn dagsett þann 1. október. Að sögn Þorsteins Hilmarssonar upp- lýsingafulltrúa er verkið þó hvorki á eftir áætlun, né yfir kostnaðar- áætlun vegna tafanna. Nokkurra milljarða svigrúm hafi verið gefið vegna ófyrirséðs kostnaðar og hafa aðgerðir vegna misgengja og sprungna verið helstu ófyrirséðu framkvæmdirnar. - sgj Tafir á borun við Kárahnjúka: Afhending á rafmagni tefst
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.