Fréttablaðið - 16.07.2006, Qupperneq 18
16. júlí 2006 SUNNUDAGUR18
Í fyrradag féll dómur
í mesta hneykslismáli
síðari tíma í knatt-
spyrnuheiminum. Rof
varð á hátíðarhöldum
vegna heimsmeistara-
titils Ítala og athyglin
beindist að liðunum
fjórum sem hlutu harð-
ari refsingar en flestir
áttu von á. Einar Logi
Vignisson veltir hinum
stranga dómi fyrir sér
og skoðar þann jarðveg
sem málið er sprottið
úr.
Hneykslismálið sem ýmist hefur
verið kallað calciopoli eða Moggio-
poli á Ítalíu er mesta áfall sem
ítölsk knattspyrna hefur orðið
fyrir. Það hvernig haldið hefur
verið á málarekstrinum og harðir
dómar yfir liðunum sem féllu í
fyrradag eru þó vísir um að betri
tíð sé framundan. Að Ítölum takist
loksins að taka til hjá sér og breyta
hegðun eigenda knattspyrnulið-
anna. Kjarni calciopoli-málsins er
nefnilega ekki þau einstöku atvik
sem liðið voru ákærð fyrir heldur
langvarandi hegðunarmynstur
sem er því miður ekki bara bundið
við knattspyrnuna þar í landi held-
ur samfélagið almennt. Við gætum
sagt það endurspegla „andrúmið í
samfélaginu“ eins og svo gjarnan
var tekið til orða hér á landi í
frægu upphlaupsmáli. Hina ofsa-
fengnu umræðu og hörðu dóma
verður að skilja í þessu samhengi,
segja má að verið sé að gefa tóninn
fyrir nýtt upphaf, nýtt siðferði.
Jafnframt að refsa liðunum og
stjórnendum þeirra fyrir að hafa
verið slæmir strákar í mörg ár
fremur en að kveða upp dóma út
frá ákæruliðunum eingöngu.
Hreinir fætur
Upphaf málsins á sér sömuleiðis
flóknar sögulegar rætur. Það er
villandi framsetning að rannsókn-
inni hafi verið beint gegn Juventus,
að grunur um spillingu hjá liðinu
hafi hrundið rannsókninni af stað.
Upp komst um athæfi Juventus
fyrir tilviljun vegna rannsóknar á
óskyldum málum. Fyrir hálfum
öðrum áratug skáru Ítalir upp
mikla herför gegn mafíunni. Her-
ferðin var nefnd hreinar hendur
(mani puliti) og í stíl við hana hefur
vorhreingerningin í fótboltanum
að sjálfsögðu verið nefnd hreinir
fætur (piedi puliti). Grunnurinn að
árangri baráttunnar gegn mafí-
unni var aukið sjálfstæði dómstóla
og ríflegar heimildir rannsóknar-
dómara og saksóknara til sjálf-
stæðra rannsókna. Lögfróðir menn
segja mér að óvíða á Vesturlönd-
um hafi skrifstofur saksóknara
jafn mikið sjálfstæði og á Ítalíu og
sem dæmi um víðtækt valdsvið
þeirra er að sími Luciano Moggi
var hleraður í heilt ár áður en
ákærur voru gefnar út og var þó
Moggi með hreint sakarvottorð og
rannsóknin beindist í upphafi ekki
að honum. Það voru rannsóknar-
dómarar í Flórens og Napóli sem
ýttu málinu af stað. Viðurnefnin
calciopoli og Moggiopoli eiga sér
þá skýringu einmitt að rannsóknin
hófst í Napólí auk þess sem Moggi
er frá borginni. Calcio er ítalska
heitið á knattspyrnu, merkir ann-
ars kalk og er tilvísun í að línurnar
á leikvellinum voru markaðar með
kalki.
Það virðist öllum gleymt hvað
þessir rannsóknaraðilar voru að
rannsaka í upphafi og satt best að
segja fer lítið fyrir því í umfjöllun
um málið. Eingöngu hefur verið
klifað á því að þeir hafi verið að
rannsaka spillingarmál tengd
knattspyrnunni og kveikjan eflaust
verið áralangur vandræðagangur,
óráðsía og spilling í kringum lið
þessara borga. Óbeint tengdist líka
rannsókn saksóknara í Tórínó
lyfjagjöf lækna Juventus um miðj-
an síðasta áratug sem kostaði
nokkra leikmenn leikbönn á sínum
tíma en þótti aldrei fullrannsakað.
Einnig var rannsökuð ólögleg veð-
málastarfsemi Camorra-mafíunn-
ar í Napólí. Bæði Napólí og Fior-
entina hafa orðið gjaldþrota á
undanförnum árum og þurft að
hefja nýtt líf í neðstu deild undir
nýjum heitum þótt gömlu nöfnin
hafi reyndar fljótt verið tekin upp
aftur. Nýir eigendur hafa ekki
reynst miklir siðbótarmenn og
legið undir ámælum um sitthvað
misjafnt. Rannsóknaraðilarnir í
Flórens og Napólí voru að kryfja
málefni heimaliðanna hvorí sínu
lagi en rannsóknir þeirra leiddu
bæði teymin að sama stað. Þræð-
irnir lágu til umboðsmannsins All-
essandro Moggi og þaðan til föður
hans Luciano Moggi og þess lygi-
lega vefs sem hann var búinn að
spinna og festa tugi manna í.
Fjölskylduskyldur fjötra
„Engir fjármunir hafa skipt um
hendur. Hver átti að hagnast á
þessu?“ spurði Silvio Berlusconi
sárreiður í vikunni forundrandi
yfir ásökunum í garð síns heitt-
elskaða liðs AC Milan. Þetta virð-
ist rétt hjá Berlusconi, engar sann-
anir eru um að einhverjum hafi
verið mútað og það er hálfgert
aukaatriði í málinu. Því er skondið
að málið er iðulega nefnt mútu-
hneyksli í íslenskum fjölmiðlum.
Málið snýst ekki um Rolexúr eða
að útvega dómurum gleðikonur
eins og Moggi var ásakaður um
þegar hann stýrði Tórínó fyrir
tæpum tuttugu árum. Það snýst
hins vegar um hina sérítölsku sam-
tryggingu og fyrirgreiðslu sem
gegnsýrir allt samfélagið. Fjötrar
sem Ítalir verða að losa sig úr fyrr
en síðar ef þeir vilja að samfélags-
gerð þeirra þróist í átt til þess sem
tíðkast norðar í álfunni. Þótt Ítalir
séu stoltir af fjölskyldugildum
sínum þá eru þeir fyllilega meðvit-
aðir um þessa staðreynd og meiri-
hluti almennings vill sjá samfélag-
ið færast í þessa átt. Það er hins
vegar afar erfitt að breyta rót-
grónum hugsunarhætti og alda-
gömlum hefðum. Ítalir hafa ævin-
týralega þörf fyrir að hafa traust
öryggisnet fjölskyldu, ættingja,
vina, vinnuveitenda og fólks í
atvinnulífinu í kringum sig.
Eitt af því sem aðgreinir mann-
inn frá flestum öðrum dýrateg-
undum er sá langi tími sem
afkvæmin þurfa skjól hjá foreldr-
um sínum. Það sem aðgreinir
ítölsku afkvæmin frá afkvæmum
annarra þjóða er að þessi tími er
sérlega langur. Tveir af hverjum
þremur Ítölum búa enn í foreldra-
húsum 27 ára gamlir. Ítalir fara
helst ekki að heiman fyrr en námi
er lokið og þeir hafa fengið trausta
vinnu. Sömuleiðis stofna þeir ekki
til hjúskapar fyrr en að loknum
nokkrum árum á vinnumarkaði,
hvað þá að þeir eignist börn enda
fækkar Ítölum meira en nokkurri
annarri þjóð í veröldinni. Skyld-
urnar við fjölskylduna eru miklar.
Harðir dómar boða siðbót á Ítalíu
FAGNAÐ OF SNEMMA Juventus hefur verið svipt síðustu tveimur meistaratitlum sínum. Hér sést fyrirliðinn Alessandro Del Piero halda á bikarnum sem liðið hlaut í vor eftir að hafa sigrað í Serie A. Del Piero er einn örfárra stjörnuleik-
manna sem mun taka þátt í baráttu liðsins við að komast upp úr Serie B. Flestir sem fagna með honum á þessari mynd, m.a. Fabio Cannavaro fyrirliði ítalska landsliðsins, verða komnir í aðra búninga í haust.
Hvað verður um leikmennina?
Dómurinn mun ekki hafa teljandi áhrif á leikmannamál AC Milan en mjög afdrifaríkar afleiðingar fyrir hin liðin þrjú.
Lazio og Fiorentina standa það veikum fótum fjárhagslega fyrir að vistin í Serie B gæti reynst þeim
þungbær. Í tilviki Lazio gæti vistin jafnvel riðið félaginu að fullu. Lazio á svo
sem ekki marga stjörnuleikmenn og gæti haldið megninu af mannskapnum
þótt Oddo, Liverani, Behrami o.fl. hverfi á braut.
Fiorentina á fleiri stjörnur og í það minnsta hálft byrjunarliðið stekkur frá borði.
Luca Toni er eftirsóttasti leikmaðurinn en Fiore, Jorgensen og Pazzini eru einnig
of sterkir til að dvelja í Serie B. Kaupin á aumingja Adrian Mutu ganga svo að
sjálfsögðu til baka, hvar sem hann nú endar. En það eru stjörnur Juventus sem
flestir berjast um. Buffon, Cannavaro, Zambrotta, Emerson, Viera, Trezeguet og
Ibrahimovic verða allir seldir. Fyrirliðinn Del Piero fer hvergi enda „bandiera“,
tákngervingur félagsins og Juve þarf á slíkum mönnum að halda. Einhverjar
fleiri stjörnur gætu orðið eftir, félagið þarf að halda andlitinu og tryggja sér
skjóta endurkomu í efstu deild. Mögulegt er að skipt verði á leikmönn-
um, jafnvel reynt að lána einhverja leikmenn í eitt tímabil og beita öllum
þeim hundakúnstum sem Ítalir kunna þótt konungur markaðarins, eins
og Moggi var kallaður, sé horfinn á braut.
SLEGIST UM ZLATAN Inter, Real Madrid og
Man. United auk fleiri liða eru sögð hafa
áhuga á Zlatan Ibrahimovic.