Fréttablaðið - 08.08.2006, Side 11
ÞRIÐJUDAGUR 8. ágúst 2006 11
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
/
N
M
2
2
8
7
8
Nú n SKJÁEINUM í gegnum Digital Íslandærðu
Fylgist með Magna í kvöld kl. 1 eftir miðnætti. Úrslitin verða svo sýnd
á miðnætti annað kvöld.
Tónleikarnir verða endursýndir kl. 21.30 á miðvikudagskvöldið
og úrslitin kl. 21.30 á fimmtudagskvöldið.
„Pure talent“
–Jason Newsted
UMFERÐ Lögbundið er að
hafa hraðatakmarkandi
búnað í vöruflutningabíl-
um hérlendis sem hindrar
það að þeir komist hraðar
en á níutíu kílómetra
hraða. Þetta segir Jón
Magnús Pálsson, formað-
ur Landssambands vöru-
bifreiðastjóra.
Vöruflutningabílstjór-
ar hafa verið gagnrýndir
undanfarið, meðal annars fyrir
það að aka of hratt. Ýmsir hafa
fullyrt að þeir hafi ekið á eftir
vörubílum á 110 til 120 kílómetra
hraða á þjóðvegum. Jón segir
þetta varla geta staðist í ljósi þess
að öllum beri skylda til að
hafa slíkan búnað í bíl
sínum, en sé það satt sé
viðkomandi alvarlega
brotlegur.
Guðmundur Hallvarðs-
son, formaður samgöngu-
nefndar Alþingis, hefur
einnig varpað fram þeirri
hugmynd að hugsanlega
ætti að banna tengivagna
við vörubíla því vegakerf-
ið þoli þá ekki, og leggja ætti
aukna áherslu á sjóflutninga.
Jón Magnús segir markaðs-
aðstæður á Íslandi gera þá kröfu
að vörur séu fluttar landleiðina.
„Hvað á annars að gera við allan
ferska fiskinn sem þarf að flytja
frá Akureyri, Kópaskeri og vítt og
breitt af landinu og fer beint í
flug?“
Jón Magnús bendir á að á
Íslandi séu í gildi Evrópustaðlar
um lengdir ökutækja og þeim sé
framfylgt. „Ef vagnarnir væru
teknir aftan úr minnkuðu flutn-
ingarnir ekkert, bílunum myndi
bara fjölga.“ Hann bætir við að
ekki sé mögulegt að setja 12 til 14
metra langa gáma á bíla án tengi-
vagna. Þá þyrfti að lengja bílana
og þannig kæmust þeir til að
mynda ekki í gegnum venjuleg
hringtorg.
„Ég held að stjórnvöld og sam-
tök hagsmunaaðila ættu að setjast
niður og reyna að ná sátt í þessum
málum,“ segir Jón. - sh
Formaður Landssambands vörubifreiðastjóra segir það varla geta staðist að margir vörubílstjórar aki of hratt:
Hraðatakmarkandi búnaður skylda
JÓN MAGNÚS
PÁLSSON,
RÚMENÍA, AP Um 7.000 börn og ung-
menni í Rúmeníu eru smituð af
HIV-veirunni og segja mannrétt-
indahópar þau vera fórnarlömb
fordóma í eigin landi. Börnin
gangi ekki í skóla og njóti hvorki
þjónustu tannlækna né fái rétt lyf
við sjúkdómi sínum.
Að sögn Human Rights Watch
ganga 40 prósent barnanna ekki í
skóla, þrátt fyrir að skólaskylda
sé til 16 ára aldurs í Rúmeníu. Hin
börnin lendi í einelti vegna sjúk-
dómsins, bæði frá kennurum og
nemendum, og stundum séu þau
jafnvel rekin úr skóla. Lög um
barnavernd eru góð í Rúmeníu og
örorkubætur til staðar fyrir HIV-
sjúklinga, en hvorugu er fram-
fylgt, að sögn samtakanna. - sgj
HIV-smituð börn í Rúmeníu:
Fá ekki að
ganga í skóla
SVÍÞJÓÐ Lík af þungaðri konu fannst
í vikunni á floti við Ekerö, skammt
fyrir utan Stokkhólm. Að sögn lög-
reglu var konan myrt fyrir mörgum
mánuðum og í fyrstu var ekkert
annað vitað um hana en að hún hefði
líklega verið af erlendu bergi brotin
og komin rúma sjö mánuði á leið.
Upplýsingar frá almenningi
urðu til þess að nú hafa kennsl verið
borin á líkið og á fimmtudag hand-
tók sænska lögreglan karlmann á
fertugsaldri í suðurhluta Stokk-
hólms.
Hann var yfirheyrður í gær en
lögregla varðist allra fregna af
málinu, að því er fram kom á frétta-
vef Dagens Nyheter í gær. - smk
Konulík finnst í Svíþjóð:
Karlmaður
handtekinn
AUSTURRÍKI, AP Tæplega 200 manns
leituðu á slysavarðsstofu í borg-
inni Lenz í Austurríki á miðviku-
dag vegna ótta við kóngulóarbit.
Eingöngu átta voru greindir með
„hugsanleg einkenni“ og segja
læknar kóngulóarfælni hafa brot-
ist út í landinu.
Gulsekkjakóngulóin er landlæg
í Austurríki og þó að bit hennar sé
ekki hættulegt getur það verið
afar sársaukafullt.
Fyrr í sumar voru nokkrir bitn-
ir og síðan hafa fréttir birst reglu-
lega af kóngulónni í austurrískum
fjölmiðlum og hundruð manna
hafa hringt í neyðarþjónustu eit-
urefna í Vínarborg. Ríkisstjórnin
hefur beðið landsmenn um að taka
öllu með ró. - smk
Kóngulær í Austurríki:
Mikil skelfing
grípur um sig
GULSEKKJAKÓNGULÓ Margir Austurríkis-
búar eru um þessar mundir afar óttaslegn-
ir við þessa litlu kónguló. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Janúkovítsj kjörinn Úkraínuþing
staðfesti í gær Viktor Janúkovítsj
í embætti forsætisráðherra í
atkvæðagreiðslu sem fór 271 gegn 9.
Flokksmenn Júlíu Tímosjenkó, sem
ásamt Viktor Júsjenkó forseta leiddi
„appelsínugulu byltinguna“ fyrir hálfu
öðru ári, sátu hjá.
ÚKRAÍNA
Missti stjórn á bíl í lausamöl
Ökumaður missti á fimmtudag stjórn
á bifreið sinni við framúrakstur, rétt
norðan við Hólmavík, með þeim afleið-
ingum að bifreiðin endaði utan vegar.
Svo virðist sem ökumaður hafi fipast við
að lenda í lausamöl í vegkantinum, því
hann ók utan í bílinn sem hann hugðist
fara fram úr áður en hann lenti utan
vegar. Bifreiðin fór í gegnum grindverk
og að sögn lögreglu má ökumaður
teljast lánsamur að bíllinn valt ekki.
LÖGREGLUFRÉTTIR
VÖRUFLUTNINGABÍLL Hraðatakmarkandi
búnaður á að vera í öllum vöruflutningabíl-
um samkvæmt lögum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI