Fréttablaðið - 10.08.2006, Side 2

Fréttablaðið - 10.08.2006, Side 2
2 10. ágúst 2006 FIMMTUDAGUR SPURNING DAGSINS Sigurður, hafið þið orðið vör við knattleiki á Bessastöðum? „Nei, en við munum opna endurbætt íþróttahús hérna í næsta mánuði og þá verður Ólafi Ragnari og öllum öðrum þjóðhöfðingjum velkomið að koma og spila fótbolta.“ Evo Morales, forseti Bólivíu, spilar reglulega knattspyrnu og þykir leikinn með knöttinn. Hann hefur oft boðið öðrum þjóðhöfðingj- um með í leikina. Sigurður Magnússon er bæjarstjóri á Álftanesi. Kristín Gísladóttir sjúkraþjálfari aðstoðar við val á réttri dýnu alla fimmtudaga á milli kl. 16 og 18. Opið virka daga: 10-18 Reykjavík: Mörkin 4, s: 533 3500 SKATTAR Árni Mathiesen fjármála- ráðherra og Geir H. Haarde for- sætisráðherra telja nauðsynlegt að fara varlega í breytingar á skatt- kerfinu, þrátt fyrir að ójöfnuður hafi farið vaxandi síðustu ár. Á þriðja þúsund einstaklingar höfðu eingöngu tekjur á síðasta ári sem taldar voru fram sem fjármagns- tekjur, samkvæmt upplýsingum frá Ríkisskattstjóra. Skattur á fjár- magnstekjur er tíu prósent en hefð- bundinn tekjuskattur er næstum fjórfalt hærri, 37 prósent. Geir segir spurningar um há laun einstakra starfsmanna fyrir- tækja þurfa að beinast til forsvars- manna fyrirtækjanna sjálfra. „Spurningar um laun einstakra starfsmanna fyrirtækja verða að beinast að forsvarsmönnum fyrir- tækjanna sjálfra, eðli málsins sam- kvæmt. Það er ánægjulegt að fyrir- tæki séu það vel stæð að þau geti greitt góð laun, en ef laun fara út fyrir velsæmismörk hjá almenn- ingi í landinu er það ekki hyggilegt fyrir fyrirtækin sjálf. Það verður að gæta sín á því í umræðu um há laun að ganga ekki of hart fram þannig að fyrirtæki og athafna- menn sem skapa arðinn í landinu fari ekki með starfsemi sína úr landinu. Þegar öllu er á botninn hvolft skiptir sá arður sköpum fyrir almenning í landinu.“ Ekki hefur sérstaklega verið rætt um það innan ríkisstjórnarinn- ar að breyta skattkerfinu, en Árni segir það vera í sífelldri endurskoð- un. „Við erum alltaf að skoða skatta- kerfið, en skoðun á launaupplýsing- um sýnir hversu vel stæðir Íslendingar eru orðnir og það situr mikið eftir af þeim miklu tekj- um sem hér hafa orðið til að undan- förnu. Skattlagn- ing á fjármagns- tekjur er viðkvæm og það er vand- meðfarið að eiga við breytingar á þeim skatti.“ Árni segir jafnframt að best væri að geta lækkað tekju- skattinn enn meira, en ítrekar að til þess þurfi aðstæður að vera réttar. „Það væri auðvitað draumur að geta lækkað tekjuskattinn sem mest en það hefur sýnt sig að það er frekar snúið að lækka tekjuskatt- inn á tímum grósku og mikils hag- vaxtar. En ég get alls ekki leynt því að það væri ákjósanlegt að geta látið fjármagnstekjuskatt og hefð- bundinn tekjuskatt nálgast með því að lækka tekjuskattinn umtals- vert.“ Spurður hvort honum finnist sanngjarnt að einstaklingar komist upp með það að borga tíu prósenta skatt af tekjum sínum sagði hann sanngirni vera afstæða í þessu sem öðru. „Þetta snýst nú ekki alltaf um hvað sé sanngjarnt. Það er auðvitað mikið matsatriði. Það sem gæti verið sanngjarnt gæti þýtt í huga einhvers að það væri ekki um nein- ar tekjur að tefla. Ég held að við höfum verið að gera ákveðnar til- lögur að breytingum á skattkerfinu sem miði í rétta átt. Það er ekkert launungarmál að við viljum lækka skattana en réttar aðstæður verða að vera fyrir hendi svo það sé hægt.“ magnush@frettabladid.is Varlega verði farið í skattabreytingar Ráðherrar Sjálfstæðisflokksins telja að mörgu að hyggja áður en skattkerfinu verði breytt. Draumur Árna M. Mathiesen er að lækka tekjuskattinn meira. Spurningar um laun þurfa að beinast að fyrirtækjunum, segir Geir H. Haarde. ÁRNI MATHIESEN EFTIR RÍKISSTJÓRNARFUNDINN Árni vonast til þess að geta lækkað tekju- skatt enn meira. Hann segir skattkerfið vera í sífelldri endurskoðun. FRÉTTABLAÐIÐ/HRÖNN GEIR H. HAARDE LUNDÚNIR, AP Lögreglan handtók þrjá menn í gær vegna gruns um að þeir hafi staðið fyrir hlerunum í símakerfi skrifstofu Karls Bretaprins. Einum manni á sex- tugsaldri var sleppt eftir yfir- heyrslur en lögreglan segir hann þó ekki lausan allra mála; hann verði kallaður til yfirheyrslu á ný. Einn hinna handteknu mun vera ritstjóri konunglegra tíðinda á slúðurblaðinu breska News of the World. Skrifstofa Karls Bretaprins vildi ekkert láta uppi um málið í gær, en hún hefur legið undir ámæli fyrir slaka öryggisgæslu á tímum aukinnar hryðjuverka- ógnar. - kóþ Blaðamaður handtekinn: Njósnað um Bretaprins MENNTAMÁL „Frekar á að leggja áherslu á gæði kennslu en magn hennar,“ segir Val Koromzay, sér- fræðingur OECD sem í gær kynnti nýja skýrslu stofnunarinnar. Í henni er fjallað um efnahagsmál auk menntamála. Þar telja skýrslu- höfundar úrbóta þörf. Auka þarf hlutfall menntaðra kennara á landsbyggðinni, en við kynningu skýrslunnar var sér- staklega bent á þá staðreynd að börn af landsbyggðinni næðu síður góðum árangri í svonefndum PISA-könnunum. Koromzay sagði ekki viðunandi miðað við tilkostn- að við menntakerfið hér að kunn- átta barna væri bara í meðallagi í OECD-ríkjunum. Þá segir í skýrslunni að brott- fall úr námi eftir grunnskóla sé of mikið. Mælt er með styttingu framhaldsskólans, að því tilskyldu að það komi ekki niður á náms- gæðum og árangri. Að auki er hvatt til alvarlegrar umræðu um hvort áhersla eigi að vera á háskólanám heima fyrir eða hvort ýta eigi undir nám í útlöndum. „Það er gott að OECD sé að ein- blína á menntamálin í sinni umfjöllun. Það koma fram margar athyglisverðar tillögur sem við þurfum að huga að, en ánægjulegt er að það er bent á margt sem vel er gert. Stjórnarandstaðan mætti benda á það oftar,“ segir Þorgerð- ur Katrín Gunnarsdóttir mennta- málaráðherra um nýútkomna skýrslu OECD. Sjá einnig síðu 26 / - óká/mh Átaks er þörf í menntamálum þjóðarinnar að mati OECD: Ættum að standa okkur betur FOLDASKÓLI Bæta þarf grunnskólann að mati OECD, sem telur námsárangur barna hér óviðunandi. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA LÖGREGLUMÁL Tilkynning barst til lögreglu um ölvaða konu sem var til vandræða á Laugaveginum um fjögurleytið í fyrradag. Lögregla fann konuna, sem er um fertugt, töluvert ölvaða á bekk fyrir utan Laugaveg 9 með umtalsvert þýfi á sér sem hún virðist hafa stolið úr hinum ýmsu búðum við Laugaveginn. Eftir að hafa fengið leyfi til að skoða í tösku konunnar fann lögregla þar belti og sylgjur, bók, lítið útvarp og tvær hljómplötur. Á gangstétt- inni fyrir framan konuna þar sem hún sat lá pils, bolur og buxur. Ekki gat konan gefið skýringu á hvernig neitt af ofantöldu komst í hennar eigu. Konan var handtekin og færð í fangageymslur, þar sem hún var látin sofa úr sér. Hún var yfir- heyrð í gærmorgun. Hún hefur talsvert komið við sögu hjá lög- reglu vegna ölvunar og búða- hnupls. Verkfærum var stolið úr vinnu- skúr við Grand Hótel í Sigtúni í fyrrakvöld. Andvirði þýfisins er um sjö hundruð þúsund krónur. Lögregla segir þjófnað á verk- færum algengan um þessar mundir. Þá var veski konu stolið í Vídeó- höllinni í Lágmúla í fyrrakvöld þegar hún lagði það frá sér. Í því voru fjörutíu þúsund krónur í pen- ingum ásamt greiðslukortum. Þjófurinn er enn ófundinn. - æþe Ölvuð kona handtekin með þýfi í fórum sínum: Fór ránsferð um búðir á Laugavegi STJÓRNMÁL Óskar Bergsson, vara- borgarfulltrúi Framsóknarflokks- ins í Reykjavík, skoraði í gær á Siv Friðleifsdóttur, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, að bjóða sig fram til for- manns Framsóknar- flokksins. Siv kvaðst vera alvarlega að íhuga sína stöðu en vildi að öðru leyti ekki tjá sig um áskorun- ina. „Ég mun gefa út yfirlýsingu um mína ákvörðun þegar hún liggur fyrir en ég vil ekki tímasetja það nánar.“ Siv hefur ekki lýst yfir stuðn- ingi við nein framboð og hyggst ekki gera það. „Ég er á þeirri skoð- un að þingmenn eigi að leyfa flokksmönnum að velja nýja forystu.“ - sdg Flokksþing í vændum: Skorað á Siv í formanninn SIV FRIÐLEIFS- DÓTTIR HITAVEITA Orkuveita Reykjavíkur lokaði fyrir heitt vatn í öllu Breið- holtshverfi frá klukkan 19 í gær- kvöldi fram til klukkan átta nú í morgun. Verið var að sinna við- haldi í dælustöð fyrir heitt vatn við Stekkjarbakka, skipta um loka og annan búnað, að sögn Helga Péturssonar, almannatengslafull- trúa Orkuveitunnar. Orkuveitan notaði kvöldið og nóttina til verksins því hlýtt er á þessum árstíma og tugir þúsunda notenda voru án vatns þennan tíma. Bornar voru út tilkynningar í öll hús í báðum hverfum áður en lokað var fyrir vatnið. - sgj Orkuveita Reykjavíkur: Heitavatnslaust í Breiðholti STJÓRNSÝSLA Breytingar á reglum um akstursþjónustu eldri borgara voru samþykktar á fundi Velferðar- ráðs Reykjavíkurborgar í gær. Markmið þjónustunnar er að gera eldri borgurum kleift að búa leng- ur heima. Umsækjendur um akstursþjón- ustuna ráða því framvegis til hvaða erinda þeir nýta ferðir sem hafa hingað til einskorðast við læknisheimsóknir, skipulagða endurhæfingu eða félagsstarf á vegum borgarinnar. Þjónustusvæðið stækkar og nær nú yfir allt höfuðborgarsvæðið. Einnig geta umsækjendur nú tekið með sér aðstoðarmann. - sdg Eldri borgarar í Reykjavík: Þjónusta við akstur bætt LÖGREGLUMÁL Erlendur ökumaður mældist á 153 kílómetra hraða á Suðurlandsvegi rétt austan við Hellu í gær. Síðar í gær mældist annar erlendur ferðalangur á 127 kíló- metra hraða á bílaleigubíl í umdæmi lögreglunnar á Hvols- velli. Þriðji erlendi ferðalangur- inn lét ekki bíða lengi eftir sér, því undir kvöld var hann stöðvaður á 114 kílómetra hraða á bílaleigubíl með fimm farþega innanborðs. „Þessi hraði er út í bláinn,“ segir Sveinn K. Rúnarsson, varð- stjóri hjá lögreglunni á Hvolsvelli. „Það er ekki óalgengt að við séum að taka um sjö erlenda ferðamenn á viku sem aka á 120 til 130 kíló- metra hraða.“ Sveinn brýnir fyrir forsvars- mönnum bílaleiga að kynna fyrir útlendum ökumönnum hraðatak- Erlendur ferðamaður: Ók á 153 kíló- metra hraða Íslendingum fjölgað Fleiri Íslend- ingar verða fljótlega sendir til Srí Lanka, að sögn sendifulltrúa Norðmanna, Jon Hansen Bauer. Þetta kom fram í fréttum Ríkissjónvarpsins í gærkvöldi. Bauer segist enn eiga eftir að ræða við utan- ríkisráðuneytið um málið, en reiknað er með að 20 norskir og 10 íslenskir friðargæsluliðar verði sendir til landsins innan tíðar. SRÍ LANKA Norðmönnum rænt Fjórum norsk- um og úkraínskum olíuverkamönnum var rænt af birgðaskipi undan ströndum Nígeríu seint á þriðjudag. Skipið var á leið með birgðir til olíuborpalls á svæð- inu. Í síðustu viku var þýskum olíuverka- manni rænt við svipaðar aðstæður, en NÍGERÍA Ölvuð kona á bíl Kona á sextugsaldri var stöðvuð af lögreglu um miðnætti í fyrrakvöld í nágrenni Borgarness, ölvuð undir stýri. Lögreglunni á Borgarnesi barst tilkynning um einkennilegt aksturslag konu og hafði lögregla upp á henni. Hún var færð til blóðprufu á lög- reglustöðina og var að því loknu sleppt. LÖGREGLUFRÉTTIR KARL BRETAPRINS Grunur leikur á að sími hans hafi verið hleraður.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.