Fréttablaðið - 10.08.2006, Qupperneq 17
Hámarksafköst - Hámarksframmistaða
HP Compaq nx9420 fartölvan með 17” breiðtjaldsskjá og
Intel Centrino Duo Mobile tækni tryggir þér framúrskarandi
vinnslu og grafík - hvar og hvernær sem er. HP Compaq
nx9420 fartölvan er með þriggja ára HP ábyrgð.
Auk þess nýtur þú bestu mögulegu þjónustu
með HP Total Care.
Skoðaðu www.fartolvur.is, hringdu í síma 570 1000,
eða skoðaðu úrvalið hjá næsta HP söluaðila.
HP mælir með Windows XP Professional
Sími 570 1000 • www.ok.iswww.fartolvur.is
OK Personuleg FINAL.indd 1 09/08/06 14:24:39
FIMMTUDAGUR 10. ágúst 2006 17
SRÍ LANKA, AP Sprengja varð fimm
manns að bana á yfirráðasvæði
Tamílatígra í norðurhluta Srí
Lanka seint á þriðjudagskvöld.
Fólkið var í sjúkrabíl og meðal
þeirra sem létust voru tvær hjúkr-
unarkonur og einn læknir.
Þetta var haft eftir S. Puleede-
van, einum yfirmanni uppreisnar-
mannanna, í gær. Hann skellti sök-
inni alfarið á sérsveitir
stjórnarhersins og bætti við að svo
virtist sem árásum stjórnarhersins
væri í auknum mæli beint gegn
hjálparstarfsmönnum, því að í gær
hefði önnur sprengja sprungið á
svipuðum stað og þá hefði skot-
markið verið sendibíll læknis. Hann
og aðrir farþegar sluppu ómeiddir.
Talsmaður stjórnarhersins,
Upali Rajapakse, neitaði ásökun-
unum og sagði að herinn sækti
ekki inn á svæði Tamíla.
Um helgina fundust sautján lík
starfsmanna franskra hjálpar-
samtaka og kenna stríðandi fylk-
ingar hvor annarri um ódæðið.
Ekki náðist í Þorfinn Ómarsson
í gær, en hann er talsmaður nor-
rænu eftirlitssveitanna á Srí
Lanka. Á næstu dögum verður
tekin ákvörðun um hvort Norð-
menn og Íslendingar haldi áfram
eftirlitsstarfi á eyjunni.
Stjórnarherinn varpaði í gær
sprengjum á vatnsveitusvæðið
umdeilda, þrátt fyrir að Tamíla-
tígrar hefðu opnað fyrir hana og
veitt vatni á svæði stjórnarhers-
ins. - kóþ
Fimm manns dóu eftir að sprengja sprakk á þriðjudagskvöld á yfirráðasvæði Tamílatígra:
Ráðist á hjálparstarfsmenn á Srí Lanka
SKRIÐDREKI STJÓRNARHERSINS
Nú standa yfir verstu átök á Srí Lanka síðan
vopnahléi var komið á árið 2002. Nýlunda
er að ráðist sé á utanaðkomandi aðila.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
ELDSNEYTISSALA
Olíufélagið Atl-
antsolía hefur sótt
um lóð til upp-
byggingar á nýrri
bensínstöð í
Árborg. Stefanía
Katrín Karlsdótt-
ir, bæjarstjóri í
Árborg, segir það
vilja meirihlutans að Atlantsolíu
verði úthlutað lóð og nú sé unnið að
því að finna hentugan stað. Atlants-
olía rekur nú þegar átta stöðvar og
er sú níunda í byggingu í Kópavogi.
„Við erum stöðugt að skoða stækk-
unarmöguleika og viljum þjónusta
okkar viðskiptavini þar sem þeir
eru,“ segir Albert Þór Magnússon,
framkvæmdastjóri Atlantsolíu.
Hann segir að þá sé verið að skoða
byggingu stöðvar á Akureyri og á
fleiri stöðum á landinu. - öhö
Atlantsolía reisir nýjar stöðvar:
Vill byggja upp
víða um land
ALBERT ÞÓR
MAGNÚSSON
FRÆÐSLA Verkefni á vegum Sér-
sveitarinnar í Hinu húsinu fer
fram þessa dagana þar sem þátt-
takendur eru allir blindir eða sjón-
skertir. Verkefnið, sem heitir
„Everyone can do it“, eða „Allir
geta gert það“ á íslensku, felst
meðal annars í því að fjalla um
hindranir blindu og hvað blindir
og sjónskertir geta sjálfir gert til
að auðvelda sér hversdaginn.
Í lok verkefnisins munu þátt-
takendur framkvæma ólíka hluti
sem þeir hafa ekki átt kost á
sökum sinnar fötlunar. Einn mun
starfa á bóndabæ, tveir fara á sjó,
tveir læra að ríða út og einn syng-
ur lag í hljóðveri. - sþs
Allir geta gert það:
Blindir fara á
sjó og ríða út
FLÓÐ Á INDLANDI Monsúnrigningarnar
hafa valdið miklum flóðum á Indlandi í
ár og hafa 650.000 manns neyðst til að
flýja heimili sín vegna vatnselgsins. Leit-
uðu þessar skrautklæddu konur skjóls í
flóttamannabúðum á Vestur-Indlandi.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
SAMGÖNGUR Eftirlit Vegagerðar-
innar með notkun litaðrar dísilolíu
er ekki nægilegt og of auðvelt er
að komast upp með að svindla á
reglunum, að mati Jóns Magnúsar
Pálssonar, formanns Landssam-
bands vörubifreiðastjóra.
„Ég þori nánast að fullyrða það
að menn eru að misnota þetta kerfi
í einhverjum tilfellum,“ segir Jón.
Hann bendir á að eflaust sé auð-
velt að láta freistast þegar litaða
olían kostar 41 krónu minna á
lítrann en sú ólitaða og eftirlit er
jafn lítið og raun ber vitni.
„Þetta eru bílar sem eyða 50 til
70 lítrum á hundraðið og eru jafn-
vel keyrðir 500 kílómetra á dag.
Ef þessir aðilar eru að svindla og
spara þriðjung af sínum olíukaup-
um sitja þeir ekki við sama borð
og aðrir. Þeir eru til dæmis með
allt aðrar forsendur fyrir útboð-
um.“
Jón segist hafa verið mótfall-
inn þeirri breytingu að fella úr
gildi þungaskattskerfið þegar
olíuverð var orðið eins hátt og það
nú er, þótt deila hefði mátt um
upphæð kílómetragjaldsins. „Það
kerfi þrælvirkaði og undanskot
voru algjör undantekning.“
Jón segir blasa við að Vega-
gerðin þurfi að herða eftirlitið.
„Þeir ráða ekkert við þetta. Fjórir
bílar sjá um eftirlit með þyngd,
öxulþunga, olíu og rekstrarleyf-
um. Það er einfaldlega ekki nóg.“
- sh
Formaður LV segir of auðvelt að svindla með því að nota litaða olíu á vörubíla:
Eftirliti með olíu ábótavant
JÓN MAGNÚS PÁLSSON, FORMAÐUR
LANDSSAMBANDS VÖRUBIFREIÐASTJÓRA