Fréttablaðið - 10.08.2006, Qupperneq 22
10. ágúst 2006 FIMMTUDAGUR22
fréttir og fróðleikur
Svona erum við
1998
58
65
9
1.
60
3
U
pp
hæ
ð
2
2000
2002
2004
FRÉTTASKÝRING
AUÐUNN ARNÓRSSON
audunn@frettabladid.is
Segolene Royal er á toppn-
um í öllum skoðanakönn-
unum í Frakklandi þessa
dagana; hún er langvin-
sælust allra forsetaefna
vinstrimanna, hún er sá
stjórnmálamaður sem
flestir Frakkar myndu vilja
bjóða með sér í sumarleyfi.
Frönsk útgáfa karlatíma-
ritsins FHM útnefndi hana
meira að segja eina kyn-
þokkafyllstu konu landsins.
En Royal á við eitt stórt vandamál
að stríða, og það er að hennar eigin
flokksfélagar í Sósíalistaflokknum
fá ekki nóg af því að agnúast út í
hana. Stjórnmálaskýrendur hafa
fundið nafn á þetta bakslag á braut
Royal að forsetaframboði, það er
„Hver sem er nema Segolene“-
hreyfingin. Aðrir innan flokksins
sem sækjast eftir forsetaframboði
hamast nú sem mest þeir mega í
von um að fjara fari undan vin-
sældum Royal.
Það hefur farið fyrir brjóstið á
ýmsum flokksmönnum Royal að
hún hefur talað fyrir hugmyndum
sem stangast á við opinbera stefnu
Sósíalistaflokksins í ýmsum málum.
Dæmi um slíkt eru ummæli hennar
um að taka hart á glæpum og að
skikka mætti vandræðaunglinga í
herþjálfun.
Lífsföru- og keppinautar
Óhefðbundnar hugmyndir Royal
hafa sett lífsförunaut hennar og
föður barna hennar fjögurra,
Francois Hollande, formann Sósí-
alistaflokksins, í vandræðalega
stöðu. Vegna embættis síns – og
hugsanlegs metnaðar til að komast
sjálfur í forsetaframboð – hefur
hann séð sig knúinn til að lýsa van-
þóknun sinni á sumum ummælum
hennar.
Ýmsir áhrifamenn í flokknum,
þar á meðal nokkrir sem stefna að
því að taka þátt í prófkjöri flokks-
ins í nóvember um útnefningu til
forsetaframboðs, kvarta yfir því að
Royal sé vísvitandi að tileinka sér
sum af stefnumálum innanríkisráð-
herrans harðsnúna, Nicolas Sar-
kozy, en hann er talinn eiga einna
besta möguleika á að verða fram-
bjóðandi hægrimanna í forseta-
kosningunum á vori komanda.
Keppinautarnir innanflokks
láta einnig að því liggja að hún
stundi lýðskrum í stað þess að
leggja skýrar línur um það hvar
hún stendur og halda sig síðan við
það.
„Vinsældir eru banvænt eitur
fyrir lýðræðið í landinu,“ lét Jean
Galvany, fyrrverandi landbúnaðar-
ráðherra, hafa eftir sér í blaðinu Le
Journal du Dimanche um helgina.
Laurent Fabius, fyrrverandi for-
sætisráðherra, vísaði til tveggja
þekktustu skoðanakannana-
stofnananna í kveinstöfum sínum.
„Við getum ekki látið Sankti-Sofres
eða Sankti-Ifop um að velja fram-
bjóðendur okkar,“ hefur AP-frétta-
stofan eftir honum.
Flokkurinn virðist margklofinn
Flokkurinn virðist margklofinn í
afstöðu sinni, nú þegar fáeinir
mánuðir eru til stefnu uns hann
gerir út um það hver fari fram í
hans nafni í kosningunum í vor.
Stjórnmálaskýrandinn Michel
Noblecourt skrifaði um þetta í
þriðjudagsblað Le Monde:
„Með klækjabrögð og smá fyrir-
sátir að bakgrunni, þar sem hvor
fylking hefur skipst á skítkasti og
tilraunum til að bregða fæti fyrir
hina, vonast keppinautar Royal
eftir því að T.S.S. fari að virka,“ en
T.S.S. stendur fyrir Tout Sauf Segol-
ene, eða „Hver sem er nema Segol-
ene“.
Sumir hælbítar Royal hafa jafn-
vel þrýst á Lionel Jospin, fyrrver-
andi forsætisráðherra, að gefa kost
á sér, en hann dró sig í hlé frá
stjórnmálum eftir smánarlega
útreið í fyrri umferð forsetakosn-
inganna árið 2002, en þar hlaut
hann færri atkvæði en hægriöfga-
maðurinn Jean-Marie Le Pen.
Jospin hefur sagt að hann væri
reiðubúinn ef flokkurinn þyrfti
aftur á honum að halda.
Önnur helstu framboðsefnin
eru Fabius, Jack Lang fyrrverandi
menningarmálaráðherra, og
Dominique Strauss-Kahn, fyrr-
verandi fjármálaráðherra. Og Hol-
lande flokksformaður og lífsföru-
nautur Royal.
Ólíkar ímyndir
Ímynd Royal og Hollande gæti vart
verið ólíkari – hún er álitin frumleg
og drífandi en sambýlingur hennar
aftur á móti óspennandi og prófess-
orslegur. Þau hjónaleysin segja að
tilnefningin til forsetaframboðs
valdi engum heimiliserjum hjá
þeim. Ef svo skyldi fara að þau
sæktust bæði eftir tilnefningu
myndu þau láta flokksmönnum
eftir að gera upp á milli þeirra. Enn
sem komið er hefur dagsetning
fyrir prófkjörið ekki verið ákveðin
en það mun þó fara fram í nóvem-
ber.
Allt fram á þetta ár datt fáum í
hug að Royal kynni að vera vænleg
í forsetaframboð fyrir sósíalista.
Þótt hún hafi gegnt nokkrum ráð-
herraembættum, þar á meðal
umhverfis- og fjölskyldumála, og
verið þannig í framlínunni um
nokkurt skeið þykir hún frekar
óskrifað blað sem stjórnmálaleið-
togi. En mánuðum saman hefur hún
mælst langefst í skoðanakönnunum
um vænlegasta forsetaframboðs-
efni sósíalista. Vinsældir hennar
hafa orðið karlkeppinautum innan
flokksins tilefni vafasamra athuga-
semda. Þannig sagði öldungadeildar-
þingmaðurinn Jean-Luc Melenchon
að forsetakosningar væru „ekki
fegurðarsamkeppni“. Fabius spurði
„og hver mun annast börnin?“.
Arnauld Miguet, franskur
stjórnmálafræðikennari við London
School of Economics, segir and-
styggilegheit af þessu tagi munu
verða minna áberandi að prófkjör-
inu afstöðnu; franskir sósíalistar
hafi almennt fylkt sér að baki for-
setaframbjóðanda síns þegar hann
hefur á annað borð verið tilnefnd-
ur, ólíkt miðju-hægrimönnum sem
stundum hafa teflt fram tveimur
frambjóðendum.
Kunna illa við vinsældir Royal
Tamílatígrarnir eru hernaðar- og stjórnmála-
samtök sem hvetja til aðskilnaðar Tamíla frá Srí
Lanka-ríki og stofnunar sjálfstæðs ríkis í norður-
og austurhéruðum landsins. Tígrarnir kalla sig
eina málsvara og verndara Tamíla, en þannig
lítur ríkisstjórn Srí Lanka ekki á málið. Þrátt fyrir
það er talið að ríkisstjórnin verði að semja frið
við Tígrana til að ljúka átökunum í landinu.
Hvað eru Tamíltígrarnir sakaðir um?
Ríkisstjórn Srí Lanka hefur sakað Tígrana um
glæpi gegn mannkyninu, þjóðernishreinsanir,
fjölda sjálfsmorðsárása og skipulagða glæpa-
starfsemi. Sameinuðu þjóðirnar hafa sakað
Tamílana um að nota börn í hernað. 29 ríki
hafa lýst Tamílatígrana hryðjuverkahóp. Hóp-
urinn er einnig talinn bera ábyrgð á morðum
tveggja þjóðarleiðtoga, forseta Srí Lanka og
fyrrverandi forsætisráðherra Indlands.
Hvað saka Tígrarnir ríkisstjórnina um?
Tamílatígrarnir hafna þessum ásökunum
ríkisstjórnarinnar, en saka hana á móti
um þjóðarmorð og ríkisstyrkt hryðjuverk á
Tamílaminnihlutanum. Mannréttindasamtök
hafa tekið í sama streng og einnig brigslað
ríkisstjórninni um skort á tjáningarfrelsi, morð
og ógnir gegn blaðamönnum Tamíla. Srí Lanka
er í 25. sæti yfir óstöðugustu ríki heims hvað
varðar mannréttindi og efnahag og fær hluta
af gjaldeyristekjum sínum fyrir kynlífsþrælkun
barna.
Hvernig er skipulag Tamílatígranna?
Tígrarnir eru með landher og sjóher og fengu
nýlega herflugvélar til umráða. Hins vegar
halda þeir að miklu leyti í stjórnartaumana
í héruðum sínum, til dæmis hvað varðar
löggjafar- og dómsvald, lögreglu, fjármál og
menningu. Yfirmaður samtakanna er stofnandi
þeirra, Velupillai Prabhakaran, sem er eftir-
lýstur af Interpol fyrir hryðjuverk.
FBL GREINING: TAMÍLATÍGRARNIR
Sjálfskipaður her þjóðar án ríkis
ROYAL OG HOLLANDE Hjónaleysin Segolene Royal og Francois Hollande, formaður Sósíalistaflokksins. Þau eiga fjögur börn saman. Svo
kann að fara að þau etji kappi um forsetaframboðsútnefningu. NORDICPHOTOS/AFP
Breyting skilar
meiri krafti
Fyrirhuguð er skipting menntaráðs
Reykjavíkurborgar í leikskólaráð annars
vegar og menntaráð hins vegar. Ekki
eru allir á eitt sáttir við afgreiðslu
tillögunnar. Júlíus Vífill Ingvarsson er
formaður menntaráðs.
Hversu margir sitja í menntaráði?
Menntaráðið sjálft er sjö manna ráð
en fundina sitja um sautján manns,
með embættismönnum, áheyrnar-
fulltrúum kennara og skólastjóra og
fulltrúum foreldra.
Hver eru helstu málin á könnu
menntaráðs?
Menntaráð sér um rekstur og mótun
framtíðarstefnu grunnskólanna í
Reykjavík, tónlistarskólanna, Náms-
flokkanna og núna enn um sinn, þar
til stofnað verður nýtt leikskólaráð, þá
sér menntaráð um rekstur leikskóla og
hefur yfirumsjón með gæsluvöllum og
dagforeldrum.
Hverju mun breytingin skila?
Hún mun skila virkara og faglegra
starfi, auknum krafti fyrir bæði grunn-
skólastigið og leikskólastigið.
SPURT OG SVARAÐ
MENNTARÁÐ REYKJAVÍKUR
JÚLÍUS VÍFILL INGVARSSON
LÝSIR YFIR FRAMBOÐI
> Útleiga mynddiska (DVD) í krónum á íbúa
Heimild: Hagstofa Íslands
Ó
!
·
8
8
7
4