Fréttablaðið


Fréttablaðið - 10.08.2006, Qupperneq 24

Fréttablaðið - 10.08.2006, Qupperneq 24
 10. ágúst 2006 FIMMTUDAGUR24 hagur heimilanna Þeir námsmenn sem ætla að kaupa sér fartölvu fyrir haustið hafa úr mörgu að velja. Fyrir námsmenn skipta nokkrir eiginleik- ar fartölvu meira máli en aðrir. Þar ber helst að nefna hversu lítil tölvan er og hversu lengi rafhlaðan endist. Þegar haustið nálgast og styttist í skólann fara tölvuverslanir að auglýsa fartölvur sínar grimmt. Með aukinni tækniþróun undan- farin ár hefur fartölvumarkað- urinn stækkað gríðarlega. Margir framhalds- og háskólar mælast nú til þess að nemendur séu með fartölvu í skólanum og ganga sumir svo langt að krefj- ast þess. Eitt það fyrsta sem verðandi eigandi fartölvu þarf að spyrja sig að áður en hann kaupir hana er „Í hvað ætla ég að nota þessa tölvu?“ Fartölvur eru gríðarlega mismunandi í stærð, afli, endingu rafhlöðu og síðast en ekki síst verði. Þarfir notandans segja til um hvernig fartölvu best er að kaupa. Hér verður farið yfir þau atriði sem venjulegur námsmaður ætti að hafa í huga þegar hann kaupir sér fartölvu í skólann. Þeir eiginleikar fartölvu sem skipta námsmenn almennt mestu máli eru meðfærileiki, ending rafhlöðu og verð. Ef tölvan er of stór og þung er hætt við að hún verði skilin eftir heima nokkrum vikum eftir fyrsta skóladag. Mikilvægt er að rafhlaðan end- ist að minnsta kosti heilan skóla- dag, enda verður mjög þreytt til lengdar að hlaða tölvuna milli tíma eða byrja hverja kennslu- stund á því að leita að innstungu. Að lokum skiptir miklu máli að fá sem mest fyrir peningana, enda fæstir námsmenn ríkir. Afl fartölvunnar og skjástærð eru eiginleikar sem skipta minna máli þegar námsmaður velur sér fartölvu í skólann. Ef nota á tölv- una í glósur, tölvupóst og net- vafur er engin þörf á öflugustu tölvunni sem völ er á. Allar tölvur á markaðnum í dag ráða auðveldlega við slíka vinnslu og gott betur. Skjástærð er vissu- lega smekksatriði en stærri skjár þýðir stærri og þyngri tölva, sem fæstir vilja að skólatölvan sé. Að lokum ættu allir sem ætla að kaupa fartölvu að hafa merki hennar í huga og ábyrgðina sem fylgir henni. Að geta treyst framleiðanda tölvunnar er mik- ilvægt ásamt því að spyrjast fyrir um reynslu annarra af svipuðum tölvum. Ef enginn kannast við merkið er líklegast góð ástæða fyrir því. Það er einn- ig mikilvægt að geta treyst þeim sem selur tölvuna. Erfitt er að skipta um íhluti í fartölvum og viðgerðarkostnaður verður oft mjög hár. Þess vegna þarf í það minnsta tveggja ára ábyrgð að vera á tölvunni, ef ekki lengri. salvar@frettabladid.is Hagur heimilanna > Gistinætur Íslendinga á hótelum hérlendis Heimild: Hagstofa Íslands 2001 Fj öl di n át ta 14 7. 71 4 2003 EIGINLEIKAR SEM SKIPTA NÁMSMENN MESTU MÁLI:  Stærð Mikilvægt að tölvan sé nógu létt til að maður nenni að bera hana allan daginn.  Rafhlaða Enginn vill að tölvan slökkvi á sér í miðjum tíma. Nauðsynlegt að rafhlaðan endist að minnsta kosti heilan skóladag.  Verð Námsmenn eru samkvæmt skilgreiningunni fátækir og vilja fá mest fyrir sem minnstan pening. EIGINLEIKAR SEM SKIPTA NÁMSMENN MINNA MÁLI:  Afl Það þarf enga ofurtölvu til að glósa, senda póst og vafra.  Skjástærð Stærri skjár gerir tölvuna stærri og þyngri. Minni skjár hentar oft betur í skólatölvur. EIGINLEIKAR SEM SKIPTA ALLA FARTÖLVUEIGENDUR MÁLI:  Merki Kauptu merki sem þú þekkir og treystir. Ef enginn þekkir merkið er sennilega góð ástæða fyrir því.  Ábyrgð Þegar fartölvur bila er oft rándýrt að gera við þær. Tveggja ára ábyrgð er algjört lágmark. Oft vill það verða að einstök vörumerki eigna sér heila vörutegund. Vörumerkið verður samnefnari vörunn- ar, þrátt fyrir að mörg önnur fyrirtæki bjóði upp á sams konar vöru í svipuðum gæðaflokki. Þannig hefur þetta orðið í sölu á mp3- spilurum, þar sem Apple fyrirtækið tröllríður mark- aðnum með iPod-spilurum sínum. Vel má vera að iPod-spilarar séu gæðavara, en sjálfsagt er fyrir alla meðvitaða neytendur að skoða hvaða kosti önnur fyrirtæki bjóða upp á. Sony, Creative og Thomson bjóða upp á samkeppnishæfa mp3-spilara sem vert er að kynna sér. Nauðsynlegt er þá að skoða verð, geymslupláss og rafhlöðu spilarans, hvort hann er samhæfanlegur við tölvuna sem maður á og hversu notendavænt viðmót hans er. ■ Verslun og þjónusta Fleiri möguleikar í kaupum á mp3-spilara Á bónstöðum bæjarins kosta alþrif á meðalfólksbíl frá 4.500 og upp í 6.900 krónur en þá er bíllinn bónaður, þveginn að innan og utan og rúðurnar þrifnar. Verðið fer eftir því hversu stórir bílarnir eru, en oft er verðið mismunandi eftir því hvort um er að ræða stóra eða litla fólksbíla og jeppa. Hjá Bónstöð Fúsa, Bón-Fús, eru alþrif á meðalfólksbíl ódýrust, eða um 4.500 krónur. Næst kemur Bónusbón, en þar verða meðalstórir fólksbílar hreinir og fallegir fyrir 5.900 krónur. Hjá Kringlubóni og Bónstöðinni Hjá Jobba fást alþrifin á 6.500 krónur og hjá Löðri er verðið 6.900 krónur. Þrif og bón á jeppum getur farið upp í níu þúsund krónur en ef lítið er í pyngjunni er auðvitað hægt að þrífa bílinn og bóna einungis að utan. Svo er alltaf hægt að láta bílaþvottinn nægja og fara í bíla- þvottastöðina Laugina og þvo bílinn sjálfur fyrir 600 krónur. ■ Hvað kostar ... að bóna og þvo bílinn? Mikill verðmunur á alþrifum Bensínverðið er síbreytilegt og hreyfist upp og niður vegna breytinga á gengi og annarra þátta. Gott er að fylgjast grannt með hvar bestu kjörin á bensínlítranum er að fá hverju sinni. Til þess er hægt að skoða heimasíður olíufélaganna. Á heimasíðu Atlantsolíu má sjá að bensínlítrinn kostaði 129,40 krónur þar á bæ í fyrradag. Á bensínstöðvum ESSÓ kostaði lítrinn að meðaltali 135,90 krónur og hjá Skeljungi 136,00 krónur fyrir lítrann. Þó ber þess að geta að flestar stöðvar veita afslátt fyrir sjálfsafgreiðslu. ■ Verslun og þjónusta Gerðu samanburð á bensínverði olíufélaga Jón Már Héðinsson, skólameistari Menntaskólans á Akureyri, er í vafa hver séu bestu kaupin. „En ég get nefnt ein afar góð kaup á mínu heimili þegar fjárfest var í gasgrilli fyrir nokkrum árum.“ Reyndar eru þetta ekki kaup Jóns Márs tæknilega séð, þar sem fjölskyldumeðlimir gáfu honum það í afmælisgjöf. „Ég vildi ekki kaupa gasgrill og því var afráðið að gefa mér það í gjöf en þetta má flokka undir fjölskyldukaup. Grillið hefur síðan verið í stöðugri notkun, bæði sumar og vetur. Hér er alltaf gott veður, ef ekki í verunni þá allavega í huga fólks.“ Verstu kaupin eru óumdeild í huga Jóns Más. „Mér er stöðugt núið því um nasir að hafa keypt safapressu fyrir nokkrum árum. Þannig var það að ég ákvað að fara í heilsuátak og ég gerði það best með því að kaupa safapressu til að ég gæti pressað minn safa sjálfur og fengið hann hreinan og ómengaðan,“ segir Jón Már og hlær við. „Margir reyndu að draga úr mér þegar ég hugðist kaupa þennan grip og allir ókostir voru útlistaðir fyrir mér, þar á meðal hversu hundleiðinlegt væri að þrífa þetta, sem kom á daginn. Ég reyndi af þvermóðsku og þrjósku að nota þetta til að byrja með en svo dró úr áhuganum.“ Jón segist oft hafa verið spurður af heimilismönnum hvernig væri nú að bjóða upp á safa úr safapressunni, við litlar undirtektir hjá eiganda hennar. Úr varð að safapressan var látin hverfa inn í geymslu. Aðspurður um hvernig átakið gekk segir Jón Már að það hafi allavega ekki snúist um saf- ann. „En ég mæli ekki með því að fólk kaupi sér safapressu.“ NEYTANDINN: JÓN MÁR HÉÐINSSON SKÓLAMEISTARI MENNTASKÓLANS Á AKUREYRI Safapressan hvarf sjónum Guðrún segir að á meðan börnin voru yngri hafi hún alltaf farið með þau í sund þegar hún kom heim eftir langan vinnudag. „Með þessu móti náði öll fjölskyld- an að slaka á og eiga saman góða stund áður en farið var yfir atburði dagsins. Annars nota ég húsráð minna eftir að börnin eru farin að heiman en ég man þó eftir að það var gott að nota tannkrem til að ná kroti af veggjum.“ Guðrún segist ekkert vera að stressa sig yfir ryki á heimilinu og ef henni finnst skítugt slekkur hún ljósin og kveikir á kertum því þá ber ekkert á óhreinindunum. GÓÐ HÚSRÁÐ MEÐ BÖRNIN Í SUND ■ Guðrún Jónsdóttir, talsmaður Stíga- móta, segir góð húsráð berast á milli kynslóða og standi alltaf fyrir sínu. 17 2. 97 0 21 7. 58 5 2005 Mikilvægt að tölvan sé létt og meðfærileg UNNIÐ Á FARTÖLVU Afl fartölvu skiptir minna máli fyrir námsmann en stærð hennar og þyngd. Einnig er ending rafhlöðu einn mikilvægasti þátturinn fyrir skólatölvu, enda nennir enginn að byrja hverja kennslustund á því að leita að innstungu. MYND/NORDICPHOTOS/GETTYIMAGES ALLT SEM fiIG VANTAR ER Á VISIR.IS/ALLT n‡ vöru- & fljónustu- skrá á visir.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.