Fréttablaðið - 10.08.2006, Side 26

Fréttablaðið - 10.08.2006, Side 26
 10. ágúst 2006 FIMMTUDAGUR26 Umsjón: Í nýrri skýrslu OECD um efnahagsmál hér á landi er gagnrýnt að ekki liggi fyrir upplýsingar um hagkvæmni stór- iðjuframkvæmda vegna leyndar yfir raforkusölu- samningum. Enn er sögð þörf á vaxtahækkunum og frekari aðhaldsað- gerðum hins opinbera til að slá á verðbólgu. Enn þarf að hækka stýrivexti Seðlabankans til að ná tökum á verðbólgu, sem verið hefur yfir markmiði bankans síðan 2004. Þetta segir í nýrri skýrslu Efna- hags- og samvinnustofnunarinn- ar í París, OECD, um efnahags- mál hér og áréttað er að frekari aðgerða sé þörf því útlit sé fyrir að verðbólga verði enn hátt yfir markmiðinu í lok næsta árs. Nauðsynlegt sé því að koma skjótt á jafnvægi í efnahagslífinu og styrkja innviði hagstjórnarinnar. Skýrsla OECD var kynnt á fundi í Þjóðmenningarhúsinu í Reykjavík fyrir hádegi í gær. Val Koromzay, yfirmaður landarann- sókna efnahagsdeildar OECD og Hannes Suppanz, hagfræðingur á skrifstofu OECD sem sér um mál- efni Íslands og Bandaríkjanna, fóru yfir efni skýrslunnar. Þar segir meðal annars að mæta verði þensluáhrifum skatta- lækkana með frekara aðhaldi í útgjöldum, herða verði á fram- fylgd fjárlaga og að umgjörð ríkis- fjármála þurfi að beinast enn frekar að því að ná markmiðum í framfylgd fjárlaganna. „Meðal þess sem hægt væri að gera til að bregðast við er að ná fram hóf- legum launabreytingum og fresta opinberum framkvæmdum,“ segir Koromzay. Þá segir að ekki sé æskilegt að ráðast í frekari stórframkvæmd- ir áður en tekist hafi að leiðrétta núverandi efnahagslegt misvægi, auk þess sem Val Koromzay benti sérstaklega á að ekkert lægi fyrir um ávinning þjóðarbúskapsins af stórframkvæmdum hér. „Til að ná fram slíkum upplýsingum ríður á að gera raforkugeirann gagnsærri,“ segir hann. Eins gerðu sérfræðingar stöðu Íbúðalánasjóðs að umtalsefni og töldu mikilvægt að koma þar á breytingum, enda skekkti hann verulega samkeppnisstöðu á fjár- málamarkaði hér, sjóðurinn nyti lánakjara í skjóli ríkisábyrgðar og þyrfti ekki að að standa skil á arði til hluthafa líkt og viðskipta- bankarnir. Stórum hluta skýrslunnar er svo einnig varið í umfjöllun um menntamál, en þar telur OECD nokkurra úrbóta þörf, enda brott- fall hér mikið úr námi eftir fram- haldsskóla. olikr@frettabladid.is KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf] ICEX-15 5.322 +0,36% Fjöldi viðskipta: 122 Velta: 869 milljónir HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Actavis 62,40 +0,65% ... Alfesca 4,17 +2,71% ... Atlantic Petroleum 554,00 +0,73% ... Atorka 5,85 +0,00% ... Avion 32,20 +0,63% ... Bakkavör 48,20 +0,42% ... Dagsbrún 5,40 +2,47% ... FL Group 15,50 +0,00% ... Glitnir 17,40 +0,58% ... KB banki 705,00 -0,14% ... Landsbankinn 20,80 +0,97% ... Marel 78,00 +0,65% ... Mosaic Fashions 17,00 +1,19% ... Straumur-Burðarás 15,80 +0,00% ... Össur 110,00 +3,29% MESTA HÆKKUN Össur +3,29% Alfesca + 2,71% Dagsbrún +2,47% MESTA LÆKKUN KB banki -0,14% Gleðilegar ræstingar – og farsælan vinnudag! 11.154 kr. Fred ræstivagninn Léttur en öflugur ræstivagn með tveimur 15 lítra fötum og pressu. 8.793 kr. Spider Max ræstivagninn Nettur ræstivagn með 15 lítra tvískiptri fötu og pressu. 21.910 kr. Arka 21 ræstivagninn Ræstivagn fyrir gólfhreinsun og afþurrkun með 28 lítra tvískiptri fötu og pressu, afþurrkunarfötum og statífi fyrir sorppoka. Á tilboði í ágúst 2006 Liprir ræstivagna r frá Filmop R V 62 13 A Hörður Arnarson, forstjóri Marels, útilokar með öllu að upp- lýsingar hafi lekið út á markaðinn frá félaginu vegna kaupa þess á danska samkeppnisaðilanum Scanvægt fyrir tíu milljarða króna. Fyrir helgi áttu sér stað töluverð viðskipti með hlutabréf Marels og hækkaði gengi félags- ins um 3,5 prósent í yfir 53 millj- óna króna viðskiptum á fimmtu- daginn og föstudaginn. Hörður segir að á föstudags- kvöldið hafi aðilar verið búnir að handsala með sér samkomulag um kaup Marels á Scanvægt. Tilkynnt var um kaupin á frídegi verslunar- manna. Hann fullvissar að engin við- skipti innherja í Marel hafi átt sér stað, enda hafi þeim verið óheim- ilt að versla með bréf í félaginu á þessu ári. Forstjórinn hefur orðið var við áhuga fjárfesta á félaginu undan- farna mánuði eftir að það lauk við sex milljarða skuldabréfaútboð í byrjun apríl. Tilgangur þess var að fjármagna framtíðarvöxt félags- ins en Marel hefur ráðist í tvær yfirtökur í sumar. Sú fyrri var á AEW Delford í Bretlandi. - eþa Útilokar leka við kaup á Scanvægt Engin innherjaviðskipti í Marel á árinu. HÖRÐUR ARNARSON, FORSTJÓRI MARELS Engin viðskipti innherja í Marel hafa átt sér stað á árinu, segir forstjóri Marels, en kveðst hafa orðið var við áhuga fjárfesta á félaginu undanfarna mánuði. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Ný tegund fjársvika Danir hafa í sumar orðið fyrir barðinu á nýstár- legri svikamyllu, að því er fram kemur í Berlingske Tidende. Smærri fyrirtæki og einstaklingar með rekstur eru sagðir í hættu á að tapa tugþúsundum, en nokkur mál munu þegar komin á borð lögreglu. Dæmi um svik er þegar einstaklingur hefur samband frá útlöndum og vill leigja sumarhús eða aðra þjónustu sem auglýst er á netinu. Viðkomandi greiðir svo með helmingi of hárri ávísun, biður selj- andann (þegar hann hefur samband) um að leggja alla upphæðina inn hjá sér og millifæra mismuninn inn á reikning. Þetta gerir leigusalinn, en kemst svo að því þremur dögum síðar, þegar bankinn hefur höndlað með útlendu ávísunina, að hún er innistæðulaus. Sérfræð- ingar segja svona svindl hafa verið til í nokkur ár, en sé nú fyrst reynt í Danmörku. Ekki hefur heyrst af viðlíka hér. Létt undir með Simbabvemönnum Bankastjórn Seðlabanka Íslands gerir hvað hún getur til að sporna við þeirri verðbólgu sem í sífellu reynir að taka völdin hér á landi. Hennar verkefni hlýtur þó að teljast barnaleikur ef miðað er við ástandið í Simbabve. Þar hefur sjö ára hnignun efnahagskerfisins leitt til óðaverðbólgu sem um þessar mundir er 1.200 prósent og hefur sýnt lítil merki um að vera að hægja á sér. Seðlabanki þar í landi hefur nú gripið til þess ráðs að klippa þrjú núll af gjaldmiðli sínum og felldi um leið gengið um 59,5 prósent. Í kjölfarið á því hefur þriggja vikna blátt bann verið sett við hvers kyns verðhækkunum og gildir þá einu hvort um er að ræða framleiðendur, heildsala eða smásala. Er gripið til þessa ráðs til þess að íbúar landsins þurfi ekki lengur að burð- ast um með knippi af seðlum og greiða milljarða þarlendra dollara til þess eins að versla í matinn. Peningaskápurinn... DeCode Genetics tapaði 2,7 millj- örðum króna á fyrri helmingi árs samkvæmt nýbirtu uppgjöri félagsins. Tap deCode jókst um tæplega tuttugu og tvö prósent sé miðað við sama tímabil í fyrra. Tekjur félagsins námu tæpum 1,46 milljörðum króna fyrstu sex mánuði ársins og drógust saman um 35,5 milljónir króna frá því í fyrra. Heildarrekstrarkostnaður var rúmir tveir milljarðar króna og jókst um 667 milljónir frá fyrra ári. Í tilkynningu frá deCode segir að aukið tap megi rekja til hærri rannsóknar- og þróunarkostnaðar. Þá kemur fram að í lok júní hafi félagið átt 8,2 milljarða króna í lausafé til rekstrar félagsins. Hlutafjáraukning í deCode, sem fram fór í júlí, skilaði félaginu 19,7 milljörðum króna í lausafé. Kári Stefánsson, forstjóri deCode, segir í tilkynningunni að félagið sé komið vel á veg í klín- ískum prófunum á ýmsum lyfjum; sérstaklega gegn astma og hjarta- sjúkdómum. Hlutabréf í deCode hækkuðu um rúm tvö prósent á NASDAQ- markaðnum í gærmorgun og stóðu í 4,88 Bandaríkjadölum á hlut síð- ast þegar fréttist. - jsk DeCode tapar 2,7 milljörðum króna KÁRI STEFÁNSSON, FORSTJÓRI DECODE Hlutabréf í deCode hækkuðu á NASDAQ í gærmorgun þrátt fyrir að tilkynnt væri um 2,7 milljarða tap á fyrri helmingi árs. nánar á visir.is FJÁRMÁLARÁÐHERRA OG SÉRFRÆÐINGAR OECD Árni Mathiesen fjármálaráðherra opnaði fund í Þjóðmenningarhúsinu í gær þar sem kynnt var ný skýrsla OECD um efnahagsmál hér. Hann eftirlét svo Val Koromzay og Hannes Suppans (til hægri á myndinni), sérfræð- ingum OECD, orðið. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Auka þarf gagnsæi í orkumálum segir OECD MARKAÐSPUNKTAR ... Skemmtirisanum Walt Disney vegnaði vel á öðrum ársfjórðungi 2006 og jókst hagnaður hans um 39 prósent milli ára. Góðu gengi skemmtigarða fyrirtækisins og vel sóttum bíómyndum var helst þökkuð góð afkoma. Í sumar hefur selst fjórum pró- sentum meiri bjór í Danmörku en síðasta sumar. Sumarhitinn veldur því að að Danir drekka nú meira öl en áður - og drukku svo sem ekki lítið af því fyrir. Nýútkomnar efnahagsskýrslur í Japan gefa til kynna að efnahagur- inn þar í landi sé á batavegi. Gefur það því byr undir báða vængi að umdeild stýrivaxtahækkun Seðla- banka Japans fyrir skemmstu hafi verið af hinu góða.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.